Vikublaðið - 09.09.1994, Blaðsíða 1
Kreppa í kerflnu Trúin á þjóðríkið IHps i
Viðvarandi kreppa flokkakerf- Fyrir skömmu deildi Arni Berg- \\\
isins liggur í rótum íslenskrar 'ÆmS mann hér í blaðinu á „unglinga í ■
stjórnmálahugsunar þar sem stjórnmálafræðum“ og níðið um
samband foringja og skjól- Æm fflk þjóðríkið. Hallfriður
stæðinga gengur þvert á evr- Þórarinsdóttir mannfræðingur
ópska lýðræðishugsun Bls. 4 svarar fullum hálsi. Bls. 3
Mikið knús
Eg er svo mikill káfari, ég vil fá
að koma við, snerta, káfa á
lífinu, segir Margrét Vilhjálms-
dóttir söng- og leikkona í
viðtali við Elísabetu Jökuls-
dóttur. BIs. 8
35. tbl. 3. árg.
9. september 1994
Ritstjóm og
afgreiðsla:
sími 17500
250 kr.
Umsátursástand
í Flugmálastjórn
Ríkisendurskoðun fer í saumana á öllum Qárreiðum Flugmálastjórnar. Flugráðs-
menn kallaðir á neyðarfund og látnir skrifa undir yfirlýsingu um að þeir hefðu
ekki rætt við Vikublaðið.
Rannsókn er hafin hjá Ríkis-
endurskoðun á öllum fjár-
reiðum Flugmálastjómar.
Vikublaðið hefur fengið staðfest að
rannsókn þessi sé hafin í kjölfar
þess að frumskoðun Ríkisendur-
skoðunar leiddi til þess að meint
fjársvik firamkvæmdastjóra fjár-
málaþjónustu Flugmálastjómar
vom kærð til RLR og maðurinn
rekinn.
Vikublaðið greindi ffá grunsemdum
um víðtæka íjármálaspillingu innan
Flugmálastjórnar í síðasta blaði og var
flugráð kallað saman á neyðarfund síð-
asta þriðjudag vegna fréttar blaðsins. A
þeim fundi gerðist sá fáheyrði atburð-
ur að allir níu aðal- og varamenn í
flugráði voru látnir skrifa undir yfir-
lýsingu þess efnis að þeir hefðu ekki
rætt um málefni Flugmálastjórnar við
Vikublaðið.
Hjá Ríkisendurskoðun fékkst stað-
fest að í núverandi rannsókn yrðu öll
fjármál stofnunarinnar könnuð í tilefni
áðurnefnds rnáls og undir það tók
Hilmar Baldursson formaður flugráðs.
í þessu sambandi skal þess getið að
Ríkisendurskoðun kannaði í fyrra
samkvæint beiðni affnarkaða þætti
fjármála stofiiunarinnar, er lutu að
flugferðum og farseðlum. Engin
heildarskoðun hefúr því fyrr farið ffam
Meirihluti Reykjavíkurlist-
ans hefur ákveðið að ráða
tvo eða fleiri starfsmenn
til að sinna sérstaklega atvinnu-
uppbyggingu í borginni og hrinda
þannig í framkvæmd stefnumiðum
listans. Starfsmenn þessir munu
mynda vísi að sérstakri atvinnu-
máladeild og væntanlega starfa
undir atvinnumálanefnd borgar-
innar.
á fjárreiðum stofnunarinnar.
Sem fyrr segir voru níu flugráðs-
menn látnir með n.k. galdraofsóknum
skrifa undir yfirlýsingu um að þeir
hefðu ekki talað við Vikublaðið, sem í
síðustu viku hafði uinmæli efdr ónafn-
Að sögn Arthúrs Morthens, sem á
sæti í atvinnumálanefnd, er hugmynd-
in að starfsmennirnir sinni atvinnu-
uppbyggingu og veiti ráðgjöf og upp-
lýsingar í nývirkjamiðstöð. „Mark-
ntiðið er að auka atvinnu, t.d. með því
að örva smáiðnað. Þarna á að sinna
bæði fólki í atvinnuleit og smáfyrir-
tækjuin sem vilja vinna að nýjum
verkefnum. Við höfum sagt að
Reykjavíkurborg sé með fjölda manns
greindum flugráðsmanni. Af þessu dró
flugráð þá ályktun að viðhöfð ummæli
væru marklaus. Vikublaðið tekur fram
að sú ályktun flugráðs er röng og hef-
ur ekkert komið ffam sem rengir efni
fféttar blaðsins í síðustu viku.
í vinnu við að sinna ýrnsum verkefn-
um, t.d. við að eyða meindýrum, en
enga til að byggja upp atvinnu og veita
ráðgjöf í þessum málaflokki“, segir
Arthúr.
Meirihlutinn var áður búinn að
ráða tvo ráðgjafa til Vinnumiðlunar
Reykjavíkur, en sú stofhun hefur ekki
atvinnusköpun á sinni könnu og því er
nú að myndast vísir að atvinnumála-
deild.
Borgin ræður ráð-
gjafa í atvinnuináliiin
Verkalýðssinnar stofna
Alþýðubandalagsfélag
Alaugardag verður Alþýðu-
bandalagsfélagið Framsýn
stofnað á Hótel Sögu. Að fé-
Iaginu standa trúnaðannenn úr
röðum Iaunþegasamtakanna og
menntamenn sem Iítið hafa starfað
að stjómmálum undanfarið.
Undirbúningshópur boðaði til
blaðamannafundar í sal Dagsbrúnar á
miðvikudag og þar kom fram að hug-
inyndin að félagsstofhuninni liafi
kviknað fyrir ári. Tilgangur félagsins
er að taka þátt í þeirri gerjun sem er á
vinstri kanti íslenskra stjórnmála og
beita sér fyrir samvinnu vinstrimanna.
- Við erum sannfærðir um að
breiðfylking vinstrímanna verður ekki
til án þátttöku Alþýðubandalagsins,
segir Halldór Guðmundsson útgáfu-
stjóri Máls og ntenningar en hann
hefur starfað í undirbúningshópnum.
Tvö almenn félög Alþýðubanda-
lagsins eru þegar starfandi í Reykja-
vík, Alþýðubandalagsfélag Reykjavík-
ur (ABR) og Birting.
Björn Grétar Sveinsson formaður
Verkamannasambandsins sagði að
fjöldi fólks hafi ekki viljað koma til
starfa á vettvangi Alþýðubandalagsins
í Reykjavík vegna ágreinings sem hafi
verið á milli ABR og Birtingar. Frain-
sýn vilji brjóta upp stöðuna og segja
skilið við fornar eljaraglettur.
- Við viljurn ræða stjórnmál, hvort
heldur þau eru um menningarmál eða
verkalýðspólitík, en ekki að karpa við
félaga okkar, segir Björn Grétar.
I drögum að stefnuskrá Framsýnar
kemur fram að félagið hugsar sér að
vera vettvangur umræðu um róttæka
umbótastefnu í þjóðmálum og beita
sér fyrir nýjum hugmyndum í stjórn-
málabaráttu. Félagið mun leggja
áherslu á umbætur í efiiahagsmálum,
lifandi menningarstefnu, lýðræðislega
skipan almannavalds, mannúðlega
skynsemisstefnu í velferðarmálum,
raunhæf svör í umhverfismálum og
nýsköpun Islendinga í samfélagi þjóð-
anna.
Undirbúningshópur kynnir fyrirhugaða stofnun Framsýnar: Þorsteinn Óskarsson, Sigríður Þorsteinsdóttir, Björn Grétar Sveins-
son, Bryndís Hlöðversdóttir, Halldór Guðmundsson, Róbert Marshall og Leifur Guðjónsson.
Jafnaðar-
maiuiafé-
lag íslands
hafnar Al-
þýðuflokki
Jafhaðarmannafélag Islands
hafnaði á mánudagskvöld
aðild að Alþýðuflokknum en
áður hafði félaginu verið veitt
innganga í flokkinn með því
skilyrði að það felldi út „ís-
land“ í nafni sínu.
Jafhaðarmannafélag íslands er
liðlega hundrað manna félag sem
skipað er mörgum Alþýðu-
flokksmönnum er telja sig til
vinstri við núverandi flokksfor-
ystu. Fyrrum félagsmálaráðherra
og varaformaður Alþýðuflokks-
ins, Jóhanna Sigurðardóttir, er
meðal stofnfélaga Jafnaðar-
mannafélagsins.
I kjölfar úrsagnar félagsins úr
Alþýðuflokknum hefur Jón
Baldvin Hannibalsson formaður
flokksins gert opinberlega þá
kröfu á hendur Jóhönnu að hún
lýsi því yfir hvort hún sé með eða
á móti Alþýðuflokknum.
Talsmenn Jafnaðarmannafé-
lagsins segja allt óráðið með
framtíðarstöðu félagsins. Það
sem gerst hafi á ntánudagskvöld
hafi einfaldlega verið staðfesting
á því að vaxandi fjöldi Alþýðu-
flokksmanna telji þörf á því að
sýna með áþreifanlegum hætti ó-
ánægju sína ineð störf og stefhu-
rnótun ráðherra flokksins í ríkis-
stjórn Davíðs Oddssonar.
Þrýst-
ingur á
vextina
Ekkert spariskírteini til 10
ára var selt í útboði Lána-
sýslu ríkisins í fyrradag. Að-
eins var tekið tilboðum að
upphæð 162 milljónir króna í
flokk 5 ára skírteina.
Að fyrirmælum fjármálaráð-
herra tekur Lánasýslan ekki til-
boðum sem krefjast hærri ávöxt-
unar en 5% til að verja vaxta-
stefnu ríkisstjórnarinnar.
Verðbréf sem bera fimm pró-
sent vexti seljast æ verr á opnum
markaði og hefur Húsnæðis-
stjórn ekki selt eitt einasta bréf
ffá því í vor. Verðbréfamiðlarar
segja að fjárfestar búist við vaxta-
hækkunum hvað úr hverju og
vilji því ekki festa fé sitt á lágum
vöxtum.
Lífeyrissjóðirnir eru stærstu
fjárfestarnir og þeir kaupa ekki
langtímabréf með 5% vöxtum.