Vikublaðið


Vikublaðið - 16.09.1994, Blaðsíða 1

Vikublaðið - 16.09.1994, Blaðsíða 1
Meirihlutinn og fjölmiðlarnir Aróðursmaskína íhaldsins á sterk ítök í fjölmiðluni og það bitnar á nýja meirihlutanum í borgarstjórn. Við því verður að bregðast. Bls. 3 Framsýn Stofhfundur Framsýnar var hald- inn um síðustu helgi og inættu um hundrað manns tíl að stofha nýtt Alþýðubandalagsfélag. Málefiti vérkalýðshreyfingarinnar voru m.a. á dagskrá. Bls. 4-5 KVIKMYNDAHÁTÍÐ EiðN80«ANUM u.«ii.unu fiimiHÍLH SÝNING ARTÍMAR Amnesty 20 ára Fyrir tuttugu árum var stofhuð Islandsdeild mannréttindasam- takanna Amnesty International. Samtökin munu halda uppá afmælið með margvíslegum hætti. Bls. 9 36. tbl. 3. árg. 16. september 1994 Ritstjóm og afgreiðsla: sími 17500 250 kr. Fylgishrun hjá stjóniimii Einn af hverjum þremur stuðningsmönnum orðinn fráhverfur ríkisstjórninni. Kratar búnir að missa tvo af hverjum þremur kjósenda sinna. Jóhanna Sigurðardóttir með 10 prósenta fylgi. Fylgið við ríkisstjóm Davíðs Oddssonar hefur hmnið firá því í sumar samkvæmt nýrri þjóðmálakönnun Félagsvísinda- stofnunar og sýnir sarna könnun að hvor stjómarflokkanna um sig hafi tapað fjórum til fimm prósentu- stigum í fylgi yfir til hugsanlegs framboðs Jóhönnu Sigurðardóttur. I þjóðmálakönnun Félagsvísinda- stofnunar kernur í ljós að stuðnings- mönnum stjórnarinnar fækkar úr því að vera 43,3 prósent í júní í að vera 29,4 prósent nú. Þetta þýðir að ríkis- stjórnin hefur misst tíltrú eins af hverjum þremur stuðningsmanna sinna frá í sumar. Flestir hafa þessir fyrrum stuðningsmenn staðnæmst í bili í flokki hlutlausra í afstöðunni til stjórnarinnar, en andstæðingum stjórnarinnar hefur fjölgað lítillega. Þjóðmálakönnúnin staðfestir að fjölmargir kjósendur hafa áhuga á því að verja atkvæði sínu í þágu Jóhönnu Sigurðardóttur. Hugsanlegt firamboð hennar fær 10,1 prósent fylgi í könn- Jafnaðar- mannafélag Islands vill ræða við Framsýn Talsmenn Jafinaðarmannafélags Islands hafa áhuga á að ræða samstarfvið Framsýn, nýja Alþýðu- bandalagsfélagið í Reykjavík. - Okkur þykir sjálfsagt að tala við Framsýn um möguleika á samfylkingu vinstrimanna, segir talsmaður Jafnað- armannafélagsins. Jafnaðarmannafélagið telur rúm- lega hundrað félagsmenn og það klauf sig úr Alþýðuflokknum fyrir skemmstu vegna óánægju með störf og stefnu forystumanna flokksins. Eftír úrsögn félagsins úr flokknum hafa nokkrir tugir jafnaðarmanna gengið til liðs við Jafnaðarmannafélag Islands. Um helgina ræðst hverjir verða valdir til forystu fyrir félagið en búist er við að þeir Sigurður Péturs- son og Þorlákur B. Helgason verði kjörnir oddvitar félagsins. Margir helstu stuðningsmanna Jó- hönnu Sigurðardóttur fyrrverandi fé- lagsmálaráðherra eru í Jafnaðar- mannafélagi Islands. Sá mikli byr sem Jóhanna hefur fengið í skoðanakönn- unum undanfarið hefur sannfært marga jafhaðarmenn um að núna sé rétti tíminn til að brjóta upp harðlæst flokkakerfi sem ekki lengur þjónar hagsmununt þjóðarinnar. uninni og 1,4 prósent til viðbótar vilja sameiginlegt framboð. Mikill stuðn- ingur við Jóhönnu samfara fylgishruni ríkisstjórnarinnar sýnir svo ekki verð- ur um villst að hún átti drjúgan hlut í því að stjórnin hafði þrátt fyrir allt hljómgrunn meðal margra kjósenda. Nú er Jóhanna farin og þolinmæði kjósenda að bresta. Á miðvikudag var meiðyrðamál Hrafins Gunnlaugs- sonar gegn Hildi Jónsdóttur ritstjóra Vikublaðsins og Alþýðubandalaginu tekið íýrir í Héraðsdómi í Reykjavík. Málið höfðaði Hrafh vegna ýmissa ummæla í blaðinu, en sér í lagi vegna greinar um skýrslu Ríkisendurskoðunar um málefhi Hrafhs. Fyrir utan ómerkingu ummæla krefst Hrafn tveggja milljóna króna í miska- og skaða- bætur og þyngstu refsingar, þ.e. fángelsunar ritstjórans. Ekki er langt síðan dómstólar dæmdu Nýtt Helgarblað til að láta Hrafit fa aur, en aðra fjölmiðla en þessa tvo hefur Hrafh ekki lögsótt. Myndina tók Ólafur Þórðarson við upphaf málflutningsins á miðvikudag. Úttektin á íjánnáluni Haínarfjarðar í skoðun Forystumenn nýja meirihlutans í Hafharfirði hafa fengið í hend- urnar úttekt á stöðu bæjarsjóðs Hafharfjarðar og eru þessa dagana að fara ofan í saumana á niðurstöð- unum. I samtali við Vikublaðið í gær vildi Magnús Jón Amason ekki tjá sig um innihald úttektarinnar. Sem kunnugt er ákvað hinn nýi meirihluti Alþýðubandalagsins og Sjálfstæðisflokksins að láta gera úttekt á fjármálum Hafnarfjarðar og stofn- ana bæjarins eftir valdatímabil Al- þýðuflokksins. Mikið hefur verið rætt um einstök mál kratanna og einkum verk Guðmundar Árna Stefánssonar, en þau mál eru óháð þessari úttekt. Að sögn Magnúsar Jóns munu meiri- hlutamenn skoða niðurstöðurnar og leyfa fulltrúum Alþýðuflokksins að kynna sér þær áður en fjölmiðlum verður kynnt málið á sérstökum blaðamannafundi. Sjá viðtal við Magnús Jón bls. 8-9. Um leið kvarnast verulega úr fylgis- grunni stjórnarflokkanna. Frá því í júní hefur fylgi Alþýðuflokksins minnkað úr 10,4 í 5,8 prósent eða 4,6 prósentustig. Flokkurinn hefur því misst nær annan hvern stuðnings- mann sinn ffá því í suniar og næstum tvo af hverjum þrentur kjósenda sinna frá síðustu kosningum. Fylgi Sjálf- stæðisflokksins hefur um leið minnk- að úr 40,7 í 36,5 prósent eða um 4,2 prósentustig. Breytingar hjá öðrum flokkum eru óverulegar og hefur fvlgi Alþýðubandalagsins verið 13 til 14 prósent allar götur ffá þvf í nóvember síðastliðnum. Framhalds- stofnfundur Regnbogans Regnboginn, Samtök um Reykjavíkurlistann, halda framhaldsstofiifund fimmtudag- inn 22. september á Kaffi Reykjavík í gamla Álafosshúsinu á Vesturgötu 2. Á fundinum verður gengið frá stofnun samtakanna en fi'rri fundur félagsins var haldiim í Súlnasal Hót- el Sögu fyrir þrem vikum og sóttu á milli þrjú og fjögur hundruð manns þann fuitd. Fundurinn á Kaffi Reykjavík mun afgreiða lög félagsins en drög að þeim hafa verið kynnt. Níu manna bráðabirgðastjóm hefur haft undirbúning að ffam- haldstofhfundinum með höndurn en á miðvikudag verður kosin 21. mamia stjórn. Kristín Amadóttir aðstoðarmað- ur borgarstjóra hefur ffamsögu á fundinum um starf Reykjavíkurlist- ans ffam að þessu og búist er við að borgarfúlltrúar muni taka þátt í um- ræðum um málefni borgarbúa. Fundurinn á Kaffi Reykjavík hefst klukkan hálf m'u á miðviku- dagskvöld. Guðmundur Árni spiUtastur Alþýðuflokksmenn krefja Guðmund Áma Stefansson félagsmálaráðherra og vara- fonnann Alþýðuflokksins svara um spillt embættisverk og vilja að hann vfki sem varaformaður ef hann getur ekki þvegið hendur sínar. Guðmundur Ámi Stefánsson félags- málaráðherra og varaformaður Al- þýðuflokksins er spilltasmr allra spilltra í spilltasta stjómmálaflokk landssins, skrifar Jónas Kristjánsson ritstjóri í leiðara DV á þriðjudag. Félag ffjálslyndra jafhaðamianna hefiir sent ffá sér erindi þar sem þess er krafist að Guðmundur Árni svari ásökunum í fjölmiðlum um marghátt- aða spillingu. Formaður félagsins er Margrét Björnsdóttir aðstoðarmaður Sighvats Björgvinssonar iðnaðarráð- herra. „Munurinn á honum [Guðmundi Arnaj og öðmm stjórnmálamönnum, sem daðra við spillingu, er, að hann heldur sig sem mest á gráa svæðinu og leitast við að þenja það út. Hann hefur á skömmum stjórnmálaferli hlaðið upp mun lengri lista spillingarmála en aðrir stjómmálamenn á löngum ferli,“ skrif- arjónas. Ritstjórinn, sem alla jafna er svart- sýnn á siðferðisþrek og vilja almenn- ings til að rísa upp gegn spillingunni, telur ekki loku fyrir það skotið að nú kunni kjósendur að grípa til sinna ráða. „I vetur mun konta í ljós, hvert hlut- verk Alþýðuflokkurinn ætlar spilltasta ráðherranum í kosiúngunum, og í vor mun koma í ljós, hvert hlutverk kjós- endur ætla spilltasta stjórnmálaflokkn- um í kosningunum. Kannski verða menn þá loksins búnir að fá nóg af sukkinu, segir í leiðara DV.“

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.