Vikublaðið - 28.10.1994, Síða 1
Kohl brátt allur
Eins og margir einræðis-
hyggjumenn hefur Kohl saf-
nað um sig hugmynda-
lausum og gagnrýnislausum
jábræðrum en þar getur ein-
mitt fall hans falist. Bls. 6-7
Hver treystir
ríkisstjórninni?
Við birtrnn ræður Ragnars
Amalds og Svavars Gestssonar
við umræðu uin vantrauststil-
löguna sem Davíð þorði ekki ril
atkvæða um á bls. 5
Utangarðs á írlandi
Olafur Gíslason fór til Dyflinar
og skoðaði myndlist og leiklist
sem utangarðs er við megin-
strauma í menningarlífinu eins
og Bretar hafa tekið sér vald til
að skilgreina þá. Bls.8-9
42. tbl. 3. árg.
28. október 1994
Ritstjóm og
afgreiðsla:
sími 17500
250 kr.
VSÍ ílyíur inn samevr-
ópska markað shyggj u
íslenskir atvinnurekendur áskrifendur að samevrópskri markaðshyggju atvinnurekenda: Lægri bætur til atvinnulausra. Meira launabil milb
hæstu og lægstu tekna. Fyrirtækjum gert auðveldara að segja upp fólki. Formaður BSRB og Seðlabankastjóri vara við afleiðingunum.
Vinnuveitendasamband ís-
lands hefur kynnt félags-
mönnum sínum skýrslu
Evrópska vinnuveitendasam-
bandsins, UNICE, þar sem stefha
atvinnurekenda í Evrópu er út-
máluð.
Evrópskir atvinnurekendur vilja
auka samkeppnishæfhi sína meðal
annars með því að auka bilið á milli
hæstu og lægstu tekna launþega,
auðvelda fyrirtækjum að segja upp
starftmönnum og lækka atvinnuleys-
isbætur. Þá hafa þeir horn í síðu um-
svifa hins opinbera og vilja samdrátt í
ríkisrekstri. Opinbert heiti skýrsl-
unnar er Gerum Evrópu samkeppn-
ishæfari (Making Europe more
competitive).
Vinnuveitendasambandið á aðild
að UNICE og Hannes G. Sigurðs-
son aðstoðarffamkvæmdastjóri VSI
segir að umrædd skýrsla hafi verið
kynnt á fundum atvinnurekenda.
Árni keypti atkvæði
Ami Sigfússon notaði daginn
fyrir síðustu borgarstjóm-
arkosningar meðal annars
til þess að framlengja til tveggja
ára uppsögðum leigusamningi á
einbýlishúsi í eigu borgarinnar.
Ekki einasta batt hann þannig
hendur nýs meirihluta og kom í
veg fyrir aðra ráðstöfun hússins í
þágu embættis garðyrkjustjóra,
heldur er leigusamningurinn með
þeim hætti að engin leiga er
greidd.
Viðkomandi fjölskylda er þó ekki á
flæðiskeri stödd, en fjölskyldufaðir-
inn er verkffæðingur. Ef til vill hefur
fjölskyldan verið í vandræðum með
ráðstöfun kosningaréttar síns þessa
góðviðrisstund daginn fyrir kosning-
ar. Alténd framlengdi Ami samning-
inn leigulaust til tveggja ára án sam-
ráðs við embætri garðyrkjustjóra,
sem átti að fá húsið.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri hefur beðið embættis-
menn borgarinnar að yfirfara alla
samninga sem fyrram borgarstjóri
gerði síðustu dagana fyrir kosningar.
Ekki síst beinist athyglin að leiguí-
búðum sem borgarstjórinn úthlutaði
að eigin geðþótta, rneðal annars við
Tjamargötu, þar sem stöndugt fólk á
borð við Súsönnu Svavarsdóttur hef-
ur fengið leigt á vildarkjörum.
Ingibjörg Sólrún segir í samtali við
Vikublaðið að meginatriðið í hennar
huga sé að það sé ekki í verkahring
borgarstjóra persónulega að úthluta
leiguhúsnæði frá skrifstofu sinni.
„Það verða að vera leikreglur sem
allir geta gengið að vísurn. Geð-
þóttaákvarðanir eru óréttlætanlegar í
þessu sambandi“, segir Ingibjörg
Sólrún.
Davíð faUinn í Stjórnmála-
skóla Sjálfstæðisflokksins
Með því að leggja ffam og
fá samþykkta „dagskrár-
tillögu“ um ffávísun á
vantrauststillögu stjómarand-
stöðunnar braut Davíð Oddsson
forsætisráðherra lýðræðisreglur
sem kenndar em í Stjómmála-
skóla Sjálfstæðisflokksins.
Davíð Oddsson flutti sem kunn-
ugt er tillögu um rökstudda dagskrá
sem fól í sér frávísun á vantrauststil-
lögu stjómarandstöðunnar og var
ffávísunin samþykkt 34 gegn 26.
Vantraustið komst því ekki á dag-
skrá.
Með dagskrártillögu sinni braut
Davíð gegn því sem Sjálfstæðisflokk-
urinn boðar sjálfur í stjómmálaskóla
sínum. I þeim skóla er kennt effir
sérstakri handbók sem tekin var
saman fyrir nokkram ámm, meðal
annars af Sigurbimi Magnússyni
sem þá var framkvæmdastjóri þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins. I hand-
bókinni segir: „Enda þótt dagskrár-
tillögur geti verið hentugar til þess
að binda enda á langvinnt málaþras,
Forsætisráðherra braut skráða lýðræð-
isreglu Sjálfstæðisflokksins með því að
vísa vantrauststillögunni frá.
skal hér ekki hvatt til notkunar
þeirra. Tiltölulega lítill meirihluti
getury með ofnotkun dagskrártil-
lagna lokað fyrir málefni minnihlut-
ans og hindrað umræður um þau,
samhliða því sem hann getur vísað
ffá tillögum, sem hann kinokar sér
við að fella. Slík vinnubrögð sam-
rýmast ekki lýðræðisreglum“.
Sigurbjöm Magnússon sagði að-
spurður að hann myndi ekki hvort
hann hefði skrifað þennan kafla eða
ekki. Hann var spurður hvað honum
þætti um dagskrártillögu forsætis-
ráðherra í ljósi þessa námsefnis
stjórnmálaskóla flokksins. „Eg er
ekki tilbúinn til að tjá mig um það“,
var svar Sigurbjörns.
Við atkvæðagreiðsluna uin ffávís-
unina sagði Olafur Ragnar Gríms-
son meðal annars að tillaga Davíðs
væri einstæð atlaga að þingræðis-
venjum. „Með þessum tillöguflutn-
ingi forsætisráðherra er verið að
skapa það fordæmi að Alþingi fái
hugsanlega aldrei að greiða atkvæði
um vantraust á ríkisstjórn eða ein-
staka ráðherra, heldur verði því
ávallt vísað frá. Skref forsætisráð-
herra hér í kvöld er þess vegna atlaga
að þingræðinu og lýðræðinu“, sagði
Olafur Ragnar.
Hann telur að sumt efiii skýrslunnar
eigi við Island en annað ekld. Hann-
es er þeirrar skoðunar að atvinnu-
leysisbætur virki á vissum sviðum at-
vinnuletjandi.
- Til dæmis þekkist það í hótel-
hreingerningum að erfitt sé að fá
fólk til starfa þótt inargir séu á at-
vinnuleysisskrá, segir Hannes.
Ogmundur Jónasson formaður
BSRB varaði við framtíðarsýn mark-
aðshyggjunnar í setningarræðu á 37.
þingi Bandalags starfamanna ríkis og
bæja. Öginundur sagði aukið launa-
misrétti og niðurskurð velferðar-
kerfisins búa til þjóðfélag öfga og ó-
réttlætis. I sama streng tók Stein-
grímur Hermannsson Seðlabanka-
stjóri sem var gestafyrirlesari á þingi
BSRB. Steingrímur sagði að mark-
aðshyggjan tæki ekkert tillit til vel-
ferðar fólks heldur legði hún
mælistiku fjármagnsins á alla hluti.
I stefriu evrópskra atvinnurekenda
er að finna enduróm af bandarískri
umræðu síðustu ára um samkeppni á
milli þjóða. Hinsvegar era Banda-
ríkjainenn núna að snúa baki við
hugmyndinni um að þjóðir standi í
efnahagslegri samkeppni sín á milli.
Ahrifamiklir hagffæðingar, til dæmis
Paul Kmgmann, segja að samkeppn-
ishuginyndin skýri ekki þann vanda
sem atvinnulíf einstakra landa standi
ffammi fyrir. Og það sem verra er;
röng stefnumótun kemur í kjölfar
rangrar greiningar. Evrópskir at-
vinnurekendur em á leiðinni í vit-
lausta átt og þeir íslensku fara í
humátt á eftir.
F élagsmálar áðher r a
hótar Hafnfírðingum
Guðmundur Ami Stefáns-
son félagsmálaráðherra
hótaði bæjarstjóra Hafn-
arfjarðar að standa í vegi fyrir
framgangi hagsmunamála Hafn-
firðinga.
Félagsmálaráðherra er yfirmaður
sveitarstjómamála og Guðmundur
Arni lét þau orð falla í fféttatíma
Sjónvarps á þriðjudagskvöld að hann
ætti sem félagsmálaráðherra efrir að
ræða við Magnús Jón Amason bæj-
arstjóra um ýmis málefni bæjarfé-
lagsins og sagði að það væri eins gott
fyrir bæjarstjórann að hafa félags-
málaráðherra ekki á móti sér.
- Félagsmálaráðherra er komin á
mjög hættulegar brautir með mál-
flutningi sínurn, segir Ólafur Ragnar
Grímsson formaður Alþýðubanda-
lagsins sem tók málið upp utan dag-
skrár á Alþingi.
I fréttatímanum tókust þeir á
Magnús Jón og Guðmundur Ái'ni
um ff amkvæmd Listahátíðar Hafna-
fjarðar í fyrra þegar Guðmundur
Ami var bæjarstjóri Hafnarfjarðar.
Guðmundur Árni liggur undir ámæli
fyrir að hafa sólundað peningum
bæjarsjóðs eins og skýrsla endur-
skoðenda um listahátíðina ber með
sér.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar á efrir
að ræða við félagsmálaráðuneytið
um ffamkvæmd á verkefni um til-
raunasveitarfélag sem Hafharfjörður
tekur þátt í.
- Með hótunum er félagsmálaráð-
herra reyna að tefja fyrir rannsókn á
embættisfærslu hans sem bæjarstjóra
í Hafnarfirði og þetta er grafalvar-
legt mál, segir Ólafur Ragnar
Grímsson.
Össur í
rannsókn
T Tjörleifur Guttormsson og
X JLfimm aðrir þingmenn stjóm-
arandstöðunnar hafa lagt ffam tril-
lögu á þingi um kosningu sérstakr-
ar rannsóknamefhdar þingmanna
til að rannsaka ffamgöngu Óssurar
Skarphéðinssonar umhverfisráð-
herra við ákvörðun urn að flytja
embætti veiðistjóra til Akureyrar.
Akvörðunin var tekin fyrr á þessu
ári og telur Hjörleifúr að ráðherrann
hafi valtað yfir starfsfólk einbættisins
svo brjóti í bága við skráðar og ó-
skráðar reglur úm mannleg samsldpti.
Hjörleifur segir þetta ekki spum-
ingu um flutninginn sem slíkan held-
ur framkomu gagnvart starfefólki. Al-
þingi eigi að grípa inn í, enda ekki í
fyrsta skiptið sem ráðherrann tekur
svona á flutningsmálum stofnana án
þess að taka starfcfólkið með í reikn-
inginn. Hjörleifúr segir málið mjög
alvarlegt, þar sem ákvörðun er teldn
og hún tilkynnt starfcfólki eftir á.
Meðflumingsmenn hans em Finnur
Ingólfcson og Jón Helgason Fram-
sóknarflokki, Kristín Ástgeirsdóttir
og Kristín Einarsdóttir Kvennalista
og Svavar Gestsson.