Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.2005, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.2005, Blaðsíða 13
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 26. febrúar 2005 | 13 Þ ær voru blendnar, tilfinningarnar sem hrísluðust um höfund þessa pistils er hann frétti af end- urkomu rokksveitarinnar Slint en sveitin er gestgjafi á neðanjarð- artónlistarhátíðinni All Tomorr- ows Parties sem fram fer nú um helgina í Suð- ur-Englandi. Ástæðan fyrir þessu tilfinningaróti er sú að Slint hefur verið sem nokkurs konar hálfguð í jaðarrokkheimum síðustu fimmtán ár, og það vegna einnar plötu sem út kom árið 1991 og ber heitið Spider- land. Slint var svo gott sem óþekkt á starfstíma sínum, árin 1985 til 1991, en skömmu eftir að Spiderland kom út hætti sveit- in. Og Spiderland sjálf lá lengi vel í þagnargildi, það var ekki fyrr en um síðustu aldamót sem nafn hennar varð æ algengara í umræðum og greinaskrifum um framsækna rokktónlist og í hana vísað sem hið heilaga gral í þeim efnum. Það er heldur engum ofsögum sagt að Spider- land sé merkilegasta rokkplata síðustu tuttugu ára eða svo. Auk þess að hafa reynst gríðarlega áhrifarík og í raun getið af sér heila tónlist- arstefnu og stefnur ef út í það er farið er hún sem slík hreint stórkostleg verk og nánast er hægt að tala um fullkomnun. Trúið mér, þetta eru engin gífuryrði. Svo við byrjum á sjálfri arfleifðinni á síðrokk- ið svokallaða (Godspeed you black emperor!, Labradford, Mogwai, Sigur Rós, Tortoise o.s. frv.) mikið undir plötunni. Á tímabili var ótrú- legt að fylgjast með því hvernig heilu hljóm- sveitirnar byggðu feril sinn nánast á beinni af- ritun af þessari einu plötu. Fyrsta lag Spiderland heitir „Breadcrumb Trail“ og er það einkar hæfandi nafn í ljósi þeirrar þróunar sem átti eftir að verða. Eins og með flestar stefnumarkandi plötur var Spiderland engu lík er hún kom út. Lögin sex ósungin að mestu, eintóna og naumhyggju- leg en brotin upp með flóknum en einkar mel- ódískum gítarköflum, auk þess sem hún sveifl- ast frá hinu mjög svo lágværa yfir í tilfinningaþrunginn hávaða. Það liggur skuggi yfir öllum lögunum, framvinda þeirra er spennuþrungin en undir öllu saman hrikaleg fegurð sem þó erfitt er að festa hendur á, hvað þá að hægt sé að lýsa henni. Það sem gerir þó Spiderland fyrst og síðast er hversu mögnuð hún er, frá fyrstu nótu til þeirrar síðustu. Það er alveg sama hvað maður setur „Don, Aman“ oft á, maður er alltaf á nál- um. Lokalagið, „Good Morning Captain“ er í dag jafn rosalegt og þegar maður heyrði það fyrst. Það er leitun að jafn magnþrungnum endi á plötu og sagan segir að leiðtogi sveitarinnar, Brian McMahan, hafi fengið taugaáfall eftir að hann var búinn að taka upp sönginn. Steve Albini, einn fremsti upptökustjóri neð- anjarðarrokksins og fyrrum aðalmaður Big Black og Rapeman og nú Shellac skrifaði dóm um Spiderland í Melody Maker skömmu eftir útkomu plötunnar þar sem hann fer hamförum yfir snilldinni. Hann hefur látið hafa það eftir sér að Spiderland sé eina platan sem hafi fengið hann til að tárast þótt harður sé. Eitt er víst að Spiderland stendur fullkomlega undir lofinu sem á hana hefur verið ausið öll þessi ár – er svo sannarlega sígild plata sem hægt er að koma að aftur og aftur, því að svo virðist sem aldrei ætli að fenna yfir ferskleik- ann, kraftinn eða frumleikann sem þessi ótrú- lega plata býr yfir. Hrikalega fallegt Poppklassík Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is H ljómsveitin The Mars Volta reis eftirminnilega úr rústum At the Drive-in með plötunni De-Loused in the Comator- ium, eftirlæti tónlistar- gagnrýnenda árið 2003. Önnur breiðskífa sveitarinnar, Frances the Mute, kemur út á þriðjudaginn og heldur The Mars Volta enn uppi merki kraftmikillar og fram- sækinnar tónlistar. Þrátt fyrir að á plötunni séu aðeins fimm lög er hún 77 mínútur að lengd enda eru flest laganna kafla- skipt. Langstysta lagið, „The Widow“, er það sem hljómað hefur á öldum ljósvakans að und- anförnu til að kynna plötuna. Lagið er „aðeins“ fimm mínútur og fimmtíu sekúndur og fer þar með langt yfir lengd hefðbundins rokklags í settinu hjá Jay Leno. Þrátt fyrir lagalengdina og kaflaskiptingar er platan fremur aðgengileg. The Mars Volta hefur frá upphafi heillað með því að fara á móti straumnum og synda í nýjar listrænar áttir. Það að sveitin fetar ekki beina markaðs- braut gerir hana meira aðlaðandi og er stór hluti af því sem laðar hlustendur til hennar. Að minnsta kosti náði De-Loused að seljast í 500.000 eintökum. Sjónræn sýn og tilfinningar Saga sveitarinnar hefst í El Paso í Texas þar sem ýmsir menningarstraumar mætast og At the Drive-In var stofnuð. Í sveitinni voru Cedric Bixler Zavala og gítarleikarinn Omar A Rodriguez-Lopez en sveitin hætti á barmi heimsfrægðar eftir að eigin sögn hafa gengið of hart að sér á endalausum tónleikaferðalög- um. At the Drive-In starfaði í sex ár en Omar vildi hætta því tónleikar kölluðu ekki fram neinar tilfinningar hjá honum lengur. Hann tók Cedric með sér og þeir félagar stofnuðu The Mars Volta árið 2001 en hinir þrír stofn- uðu aðra sveit, Sparta. Nafngiftin The Mars Volta er til heiðurs ítalska kvikmyndagerðarmanninum Federico Fellini, sem er áhrifavaldur í tónlist sveit- arinnar. Þess má geta að Omar leikstýrði ein- mitt myndbandinu við hið tilfinningaþrungna og grípandi lag, „The Widow“. Hinn fjölhæfi Omar var jafnframt upptökustjóri plötunnar en um hljóðblöndum sá Rich Costey. Platan var tekin upp á átta mismunandi stöðum í Kaliforníu, Puerto Rico, Ástralíu og New York en hefur samt á sér heildarsvip. Platan ber fjölmenningarlegum bakgrunni sveitarinnar vitni, tónlist hennar fer yfir mörg mörk og blandar saman tónlistarstílum. Á Frances the Mute er lag sem er sungið að mestu á spænsku, „L’ Via l’Viaquez“, og ber suðrænum bakgrunni meðlima vitni, en Cedric er ættaður frá Mexíkó og Omar frá Puerto Rico. Lagið fyllir rúmlega 12 mínútur og er ákveðinn hápunktur plötunnar. Cedric og Omar kynntust á unglingsaldri og náðu strax vel saman. Tónlistarlegt hjónaband frá himnum var það heillinn og straumarnir leyndu sér ekki. Auk Omars, sem semur tón- listina, og Cedrics, sem sér um textana, eru í sveitinni á þessari plötu, trommarinn Jon Theodore, bassaleikarinn Juan Alderete, hljómborðsleikarinn Ikey Isiah Owens og trommarinn Marcel Rodriguez-Lopez, sem er yngri bróðir Omars. Nokkrir góðir gestir koma við sögu á plöt- unni, þar af eru tveir úr Red Hot Chili Pepp- ers. John Frusciante á fyrstu tvö gítarsólóin í „L’ Via l’Viaquez“ og Flea spilar á trompet í „The Widow“ og „Miranda That Ghost Just Isn’t Holy Anymore“. Hljómsveitin hefur líka gengið í gegnum ýmsilegt eins og eiturlyfjafíkn og fráfall eins meðlims, Jeremy Ward, sem lést af of stórum skammti eiturlyfja. Til viðbótar framdi góður vinur sveitarinnar, Julio Venegas, sjálfsmorð árið 1996. Fyrsta plata sveitarinnar á einmitt að segja frá ævi og dauða Julio þó fólki hafi fundist það komast mismunandi vel til skila. Dularfull dagbók Upphafspunktur Frances the Mute er dagbók sem Jeremy fann. Dagbókin segir frá lífi og tilfinningum stráks sem var ættleiddur og leit hans að líffræðilegum foreldrum sínum. Je- remy var líka ættleiddur og fannst dagbókin lýsa óhugnanlega vel hans eigin tilfinningum og reynslu. Hann geymdi dagbókina og sagði félögum sínum frá henni. Lögin á plötunni heita eftir fólki í dagbókinni en fólkið sem hann hittir beinir honum í áttina að foreldrum hans. Textarnir eru oft og tíðum óhugnanlegir og flóknir og hægt að liggja yfir þeim eins og tón- listinni. Gagnrýnandi Q lýsti tónlistinni nokkuð vel í fjögurra stjörnu dómi, „[Platan] hljómar oft eins og Led Zeppelin, Smashing Pumpkins og Frank Zappa að flytja verk Edgar Allan Poe í Buena Vista Social Club.“ „Þetta er saga þess að vera yfirgefinn og saga fíknar,“ lýsir Cedric yfir á vef sveit- arinnar, www.themarsvolta.com. „Hvort eitt- hvað af þessu gerðist er ekki öruggt. Það er nokkuð sem hlustandinn verður að finna út sjálfur. Við getum aðeins komið með brotin.“ Framsæknir Marsbúar The Mars Volta sendir frá sér sína aðra breið- skífu á þriðjudaginn. Frances the Mute stendur undir væntingum. Tónlistarbræðurnir Cedric Bixler Zavala og Omar A Rodriguez-Lopez eru forsprakkar The Mars Volta. Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is Popppönksveitin Blink 182 er far-in í frí og er það opið í annan endann eins og segir í yfirlýsingu frá sveitinni. Blink 182 er án efa farsæl- asta sveitin sem spratt upp úr bylt- ingu þeirri sem Dookie, plata Green Day frá 1994, hratt af stað þar sem dagskipunin var melódískt og gríp- andi léttpönk. Með- limir Blink ætla að ein- beita sér að fjölskyldumálum en keyrslan ku hafa verið mikil undanfarin tíu ár. Sex plötur hafa runnið undan rifjum sveitarinnar þessi tíu ár og á meðal vinsælla laga hennar má nefna „All The Small Things“, „What’s My Age Again“ og „The Rock Show“. Síð- ustu tvær plötur, Take off Your Pants and Jacket (2001) og Blink 182 (2003), báru með sér þyngri undiröldu en áður og t.a.m. gestaði Robert Smith úr Cure á síðustu plötu.    Rafdúettinn Autechre, sem hefurverið ánafnaður sá heiður að hafa fundið upp glitstónlistina („glitch“) sem hefur verið afar áber- andi í raftónlistarsköpun undanfarin tíu ár eða svo snýr aftur í apríl með nýja plötu í farteskinu. Síðasta plata, Draft 7.30, kom út fyrir tveimur árum en þar beygði dúettinn dálítið af kunnuglegum tónaslóðum. Nýja platan kemur út á vegum Warp og kallast Untilted og ætla hinir venjulega hlédrægu meðlimir að fara í umfangsmikið tónleika- ferðalag til að fylgja plötunni eftir og troða m.a. upp á Hróarskeldu.    Sjónir manna í tónlistarkreðsunnihafa nú beinst að tónlist- arstefnu sem hægt væri að kalla sveimþungarokk eða „ambient met- al“. Stórgóð plata Bostonsveit- arinnar Isis á síðasta ári, Panopti- con, olli því að tónlist sveita eins og Isis, Cult of Luna og Jesu hefur smitast yfir til miðla og áhuga- hópa sem hafa hingað til ekki gef- ið gaum að téðri tónlist. Þannig fjallar mekka allra handa neðanjarð- artónlistar í Bandaríkjunum, vefmiðillinn Pitch- fork, um nýjustu plötu Jesu sem er nýtt verkefni Justin nokkurs Broad- rick. Hann leiddi eitt sinn vélrokks- veitina Godflesh en plata hennar frá 1990, Streetcleaner, þykir mikið meistaraverk. Hann var áður í mulningssveitinni áhrifamiklu Napalm Death. Jesu gaf út fyrstu breiðskífu sína í síðasta mánuði undir merkjum Hydra Head Records, sem gefur einnig út Isis og er rekið af for- sprakka hennar, Aaron Turner. Fyrsta útgáfa Jesu var hins vegar tveggja laga plata, Heart Ache, og innihélt hún tvö tuttugu mínútna lög sem eru mjög áþekk því sem Broad- rick var að gera í Godflesh. Erlend tónlist

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.