Lesbók Morgunblaðsins - 09.07.2005, Page 2
2 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 9. júlí 2005
!
Ég hitti Lou Reed í Genúa
fyrir réttu ári. Hann var
mættur með fríðu föruneyti á
Alþjóðlegu ljóðahátíðina í
Genúa en borgin var þá menn-
ingarborg Evrópu – eins og
Reykjavík hér um árið. Nema
hvað, Lou Reed var manna
leiðinlegastur á þessari hátíð, og er þá
ekki endilega átt við upplestur hans
heldur framkomu almennt og viðmót.
Til dæmis: Herra Reed var sóttur í
loftkældri límósínu til Mílanó og á
miðri leið hringdi aðstoðarkona hans í
hátíðarhaldara með eftirfarandi kröfur:
Við komuna vill Lou
Reed fá aðgang að
sundlaug, líkams-
ræktarsal og nudd-
ara og á hótelher-
berginu skal vera til reiðu rjúkandi
kvöldmatur og Monte Carlo-vindill.
Allt fór í panikk í herbúðum skipu-
leggjanda, á miðborgarhótelinu dýra
sem pantað hafði verið fyrir hinn fræga
gest var engin sundlaug og því síður
nuddari. Kölluð var út ung nuddkona,
sem skömmu síðar gekk titrandi um
gólf í lobbýinu meðan hún beið komu
Reeds, tuldraði að hún hefði aldrei
nuddað svo frægan mann og vinir
hennar ítrekuðu hughreystandi: Hey!
Ímyndaðu þér að hann heiti John
Smith! John Smith!
Ég flæktist inn í þennan undirbúning
því ég tók að mér að hlaupa út í tób-
aksbúð með hátíðarhöldurum og kaupa
Monte Carlo-vindilinn. Hvaða stærð?
spurði karlinn í búðinni og það höfðum
við ekki hugmynd um. Glatað að klikka
á smáatriðum. Úff.
Ekki tók betra við í leikhúsinu, sem
fylltist af fólki þótt Lou Reed væri ekki
mættur með hljómsveit til þess að
spila, heldur einn með ljóðabók sína,
The Raven, til upplestrar. Hann harð-
bannaði allar myndatökur og tilkynnti:
Ef ég sé svo mikið sem eitt leifturljós
geng ég út! Og honum var trúandi til
þess eftir fúllynda byrjunina. Vildi
heldur ekki snæða með okkur hinum
hátíðarupplesurunum á veitingahúsi
Napóleons, settist alltaf við sérborð.
Gott og vel, frægari en við, ókei. En að
hátíðarhaldarar þyrftu að skrópa á
marga af viðburðum sinnar eigin hátíð-
ar, til þess að redda fáránlegum hlutum
fyrir Lou Reed, var bara einum of. Ég
meina, þetta var ljóðahátíð – óþarfi að
hjakka svona í rokkmýtunni.
Mér finnst Perfect Day víðáttufallegt
lag, mér finnst Lou Reed syngja Sweet
Jane fantavel, mér fannst hann
skemmtilegastur karaktera í Blue in
the Face … ég vildi að ég hefði ekki
hitt hann í Genúa og þurft að kaupa
handa honum tilgerðarlegan vindil.
Nei, menn skyldu ekki halda að snill-
ingar á listrænu sviði séu alltaf stór-
brotnir persónuleikar. Sumir eru meira
að segja fífl, segja mér kunnugir í þess-
um bransa. Vinur minn tók einu sinni
viðtal við Thom Yorke, sem ber uppi
hina mögnuðu sveit Radiohead, og
sagðist aldrei hafa orðið fyrir viðlíka
vonbrigðum. Og þið sjáið hvað Michael
Jackson virðist eitthvað rislágur miðað
við töfrum slungnar tónsmíðarnar.
Menn skyldu fara varlega með sama-
semmerkin. Þeir skyldu jafnvel vara
sig á því að fullyrða að allar kven-
persónur í samtímalögum Bubba
Morthens heiti Brynja. Kannski er
hann stundum að syngja um ástina
sjálfa, stundum allar konur, stundum
um móður sína, frænkur eða minn-
ingar. Maður veit aldrei. Ljóðmæland-
inn er ekki endilega ljóðskáldið sjálft.
Ójá. Þetta heitir á fræðimáli að hafna
ævisögulegri greiningu, þetta heitir
strúktúralismi, þetta heitir póststrúkt-
úralismi, höfundurinn er dauður þótt
hann lifi. Ég veit ekki hvað þetta heitir.
Ég veit bara að Lou Reed hélt fína tón-
leika í Laugardalshöll mánuði síðar og
mér skilst að þá daga hafi hann verið
hvers manns hugljúfi. En í Genúa …
æi, úti í Genúa.
Alveg
glataður
snillingur
Eftir Sigurbjörgu
Þrastardóttur
sith@mbl.is
Fyrstu fréttir sem gáfu raunsæjamynd af hryllingi stríðsátaka ogbárust almenningi fyrir tilstilli fjöl-miðla voru í formi fréttaljósmynda
af borgarastyrjöldinni í Bandaríkjunum og frá
Krímstríðinu. Þá fékk fólk í fyrsta sinn myndir
af hryllingi vígvallarins heim í stofu til sín.
Talsverð fjarlægð var þó á milli lesenda þess
efnis og sjálfra atburðanna, ekki síst vegna
þess að töluvert langur
tími var liðinn frá því at-
burðirnir áttu sér stað.
Allt frá þeim tíma hefur
fréttaflutningur af átök-
um, ófriði og stríðsrekstri verið drjúgur þáttur
í áhrifamesta fréttaflutningi fjölmiðla; stríðs-
fréttaritarar og -ljósmyndarar hafa fært fólki
heim sanninn um það með óyggjandi hætti
hversu átakanlegur heimurinn er þar sem
slíkar kringumstæður ríkja. Óttinn, umkomu-
leysið og hryllingurinn sem umlykur fólk í að-
stæðum þar sem vegið er að lífi þess og heims-
mynd er því nokkuð sem allir þekkja í dag –
jafnvel þótt þeir hafi aldrei verið í slíkum spor-
um sjálfir.
Næstu tímamót í flutningi fjölmiðla á stríðs-
fréttum er Víetnamstríðið. Það var það stríð
sem fyrst bar fyrir augu almennings á dag-
legum grundvelli í gegnum sjónvörpin á heim-
ilunum. Vegna þess hversu fréttirnar bárust
fljótt gat fólk samsamað sig ákveðnum mál-
stað, hugsjónum og lífsgildum í daglegri fram-
vindu fréttanna. Heimurinn skiptist í tvennt
eftir því með hverjum var haldið og í þeim
skilningi náði styrjöldin langt út fyrir landa-
mæri Víetnam – áróðursstríðið var háð um
heim allan.
Auðvelt er að líta svo á að þriðju tímamótin
á þessu sviði hafi verið árásirnar á tvíbur-
aturnana í New York 11. september 2001. Þá
fylgdist heimurinn – í það minnsta hinn tækni-
væddi heimur – með því í beinni útsendingu er
ráðist var á eina mestu stórborg veraldar-
innar. Sú reynsla lét engan ósnortinn. Áróð-
ursstríðið sem fylgdi í kjölfarið varð þó enn og
aftur til þess að skipta heiminum í tvennt og
skapa gríðarlega spennu meðal Vestur-
landabúa og þeirra í heimi múslima sem hugs-
anlega gætu talist óvinir þeirra.
Undanfarnir tveir dagar hafa enn og aftur
skekið heimsbyggðina. Áhrifin af árásunum
sem gerðar voru í Lundúnum sl. fimmtudag
eru gríðarleg og þáttur fölmiðlanna er stór á
slíkum stundum. Kraftur fjölmiðlanna færir
ókunnugt fólk nær hvert öðru; allir líta upp úr
sínum persónulega heimi til að taka þátt í ör-
lögum annarra að svo miklu leyti sem það er
hægt úr fjarlægð. Heimsbyggðin leggur
ágreining um „smáatriði“ til hliðar og þjappar
sér saman í garði nágrannans til að deila hlut-
skipti hans þegar á reynir. Á slíkum stundum
gegna fjölmiðlar göfugu hlutverki; þeir skipta
máli og enginn getur án þeirra verið.
Þegar athyglin sem fjölmiðlarnir fá á slíkum
stundum er jafn óskipt og hún hefur verið á
síðustu árum er meðalvegurinn vandrataður.
Engu má skeika til þess að fréttaflutningur
sem veldur samstöðu og samhygð á yfirborð-
inu verki ekki þannig á stóran hluta heimsins
að hann upplifi hatur og heift. Á tímum sem
eru jafn alvarlegir og þeir sem heimurinn hef-
ur verið að upplifa undanfarna tvo sólarhringa
eru alhæfingar óneitanlega áhrifaríkt tæki til
þess að vekja athygli heimsins á örlögum fórn-
arlambanna sem einstaklinga. En þær eru
einnig ótrúlega árangursríkt tæki til að má út
einstaklingseinkenni þeirra sem bera raun-
verulega sök þannig að allir sem tilheyra sama
þjóðfélagshópi og þeir, sömu trúarbrögðum
eða sama þjóðerni séu gerðir tortryggilegir. Á
stundum eins og þessum verða fjölmiðlar að
axla þá ábyrgð er fylgir áhrifamætti þeirra
með því að kynda ekki undir hatri og hleypi-
dómum.
Í fréttaskýringarþætti sem undirrituð
hlustaði á í BBC-útvarpinu sl. fimmtudag var
aldraður maður spurður hvort hann teldi að
Lundúnaborg myndi breytast í kjölfar þessar
árása – hvort árásirnar yrðu til þess að stía
annars tiltölulega samstíga brotum fjölmenn-
ingarsamfélags Bretlands í sundur. Hann
benti á að Lundúnir hefðu orðið fyrir
sprengjuárásum reglulega í hálfa öld. Fyrst
frá hendi Þjóðverja og síðan um þrjátíu ára
skeið af völdum írska lýðveldishersins. Í þau
þrjátíu ár hefði fæstum Lundúnabúum dottið í
hug að hata alla Íra eða líta með óvild til írskra
nágranna sinna; þeir vissu sem var að hryðju-
verkamennirnir voru einstaklingar sem töluðu
ekki fyrir munn alls fjöldans. Hann lauk orð-
um sínum á þeirri áminningu að þannig væri
því einnig farið nú.
Samstaða og samhygð eða heift og hatur
’Á stundum eins og þessum verða fjölmiðlar að axla þáábyrgð er fylgir áhrifamætti þeirra með því að kynda
ekki undir hatri og hleypidómum‘
Eftir Fríðu Björk
Ingvarsdóttur
fbi@mbl.is
I Það er ekkert nýtt að einn miðill taki á sigmynd annars í listum. Sú þróun hefur verið
ein birtingarmynda samtímans í nokkra ára-
tugi, en vekur alltaf þegar vel til tekst jafn
mikla eftirtekt. Þannig er því einmitt farið
með kvikmyndagerð teiknimyndasögunnar
Sin City, sem sagt er frá í Lesbók í dag. Í
grein Gunnars Theo-
dórs Eggertssonar
kemur fram að ólíkt því
sem yfirleitt er þegar bækur eru færðar í
búning kvikmyndanna og sniðnar að lög-
málum kvikmyndaheimsins, þá vildi leikstjór-
inn í þessu tilfelli, Robert Rodriguez, heim-
færa lögmál teiknimyndasagna yfir á
kvikmyndamiðilinn. Margir telja að hér sé
brotið blað í listrænum skilningi, því oft á tíð-
um hafa kvikmyndir sem gerðar eru upp úr
teiknimyndasögum misst marks sem slíkar og
einungis orðið að útvötnuðu Hollywood-
drama þar sem búningarnir mynda helstu
tengslin við upprunalegu söguna.
II Einn helsti frumkvöðull kvikmyndasög-unnar, Orson Welles, er einnig til umfjöll-
unar í Lesbók í dag, en hann gerði þá
ógleymanlegu mynd Borgari Kane, sem er án
efa eitthvert helsta stórviki kvikmyndasög-
unnar. Ný bók um líf hans og verk leiðir að
því líkur að höfundarverk hans hafi ekki
fengið að standa eins og hann ætlaði því.
Hugmyndir hans þóttu m.ö.o. ekki nægilega
söluvænar – sem í dag mætti túlka sem svo
að áhorfendum hafi ekki verið treyst nægi-
lega vel – og því var hugmyndafræði Welles
þröngvað í stakk sem hann hafði ekki valið
sjálfur. Umræða um helstu jöfra kvikmynda-
sögunnar og endurmat á verkum þeirra er
auðvitað mikilvægt; því þótt kvikmyndir eigi
sér tiltölulega stutta hefð í sögunni miðað við
flest önnur listform hafa þær haft gríðarleg
áhrif á heimsmenninguna. Lestur sumra
skáldverka er til að mynda með þeim hætti
að augljóst er að þau hefðu aldrei getað verið
skrifuð áður en kvikmyndin kom til sögunnar,
kröfurnar til lesenda eru með þess eðlis. Það
má velta því fyrir sér upp að hvaða marki
upplifun lesenda við lestur á textum er háð
þekkingu þeirra á öðrum miðlum en bók-
menntunum sjálfum – án þess að þeir geri
sér grein fyrir því.
III Í ljósi þess hversu kvikmyndir eru stór-kostlegur miðill er ekki nema rökrétt að
spyrja af hverju svo lítið ratar hingað til
lands af bitastæðum myndum nema þegar
kvikmyndahátíðir eru í gangi? Sumartíminn
er eins og eyðimörk hvað þetta varðar – þótt
nú megi auðvitað bregða sér á Sin City eða
Fullorðnar manneskjur Dags Kára – og vand-
séð hverju það sætir. Er ekki fólk að leita sér
að afþreyingu á sumrin líkt og yfir vetrartím-
ann?
Neðanmáls
Við horfum á heiminn, m.a. í gegnum fréttaljósmyndir. Viðhöfum ekki tækifæri til þess að berja ástandið augum sjálfen höfum hugmyndir um það. „Við“ erum hér, með blaðið í
fanginu eða skjáinn fyrir augunum – „þau“ eru þarna hinum meg-
in, í hringiðu átaka, hörmunga og heimurinn er vondur þá stundina
og „við“ erum fegin að vera okkar megin. Fréttamyndir móta
skilning okkar. Þær eru ómótuð afstaða þar til fréttin sjálf myndar
samhengi þeirra. „Narratives can make us understand. Photo-
graphs do something else: they haunt us,“ skrifar Susan Sontag.
Ljósmyndir geta samt haft meiri áhrifamátt en orð, aðstæður eru
síður véfengdar. Þess vegna voru myndirnar úr Abu Ghraib áhrifa-
meiri heldur en orðrómur um misbeitingu valds. Og myndirnar
hverfa ekki, þær svífa fyrir hugsskotssjónum okkar þegar þær
hafa á annað borð öðlast gildi. Að baki þeim býr einnig grunurinn
um það sem aldrei var fest á filmu eða minniskubb, ósögðu sög-
urnar. Sú skaddaða ímynd sem fólk hefur nú af framkomu banda-
rískra hermanna er ekki hvað síst lituð af því sem gæti hafa gerst
fremur en því sem raunverulega hefur fengist staðfest eða fólk
hefur verið dæmt fyrir.
Líkt og minningar kallast ljósmyndir á og samtíminn sem hefur
sínar flæðandi tilhneigingar grundvallar einhvern sameiginlegan
skilning á þeim myndum sem birtast í blöðum og tímaritum. Sum-
ar myndir eru kunnuglegri en aðrar. Sem dæmi um slíkar eru
myndirnar sem birtar eru frá Afríku. Kynslóðin mín sem ólst upp
við fréttir af hungursneyð í Eþíópíu hefur líklega enn steríótýpíska
hugmynd um heimsálfuna Afríku, m.a. vegna þess að fréttaflutn-
ingur þaðan er mjög einsleitur. Kannski svipar ástandinu til þess
þegar Bandaríkjamenn tala um að ferðast til Evrópu. Núna sveima
þessar myndir af þjáningu barnanna í Afríku aftur fyrir hugskots-
sjónum mínum. Það á aftur að rokka fyrir Afríku, Live 8 er um
helgina en myndirnar af sveltandi börnunum með flugurnar í aug-
unum ásækja mig aftur. Ég vil ekki gera lítið úr þjáningu
barnanna í Afríku, en verndartollar og spilltir ráðamenn myndast
ekki jafn vel og börn.
Kristrún Heiða Hauksdóttir
kistan.is
Fréttir og
fréttamyndir
Morgunblaðið/Jim Smart
Í sundi.