Lesbók Morgunblaðsins - 09.07.2005, Qupperneq 6
6 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 9. júlí 2005
E
itt af hverfum Mexíkó-
borgar er listamanna-
hverfið Coyoacan.
Coyoacan var áður lítið
þorp fyrir utan borgina
en á síðustu áratugum
hefur borgin vaxið það
hratt að hún umlykur
nú bæinn á alla kanta. Það sem þetta hverfi er
þekktast fyrir er að þar áttu heima um tíma
myndlistarmennirnir og hjónin Frida Kahlo
og Diego Rivera. Heimili þeirra er afar sér-
stakt, heiðblátt á lit og er þess vegna almennt
kallað Bláa húsið. Aðeins þarf að rölta í um
það bil 10 mínútur frá
miðtorgi Coyoacan til að
komast að húsinu og er
það vinsæll áfanga-
staður ferðamanna. Þar er núna safn, til-
einkað ævi og verkum Fridu Kahlo. Innan-
dyra eru flestir upprunalegir
innanstokksmunir þeirra hjóna; málverk,
teikningar og ýmis handavinna eftir þau bæði,
þó aðallega eftir Fridu, því Diego Rivera-
safnið er annars staðar í borginni.
Kahlo og Rivera voru virkir kommúnistar
og í Bláa húsinu þeirra eru enn í dag fjöldinn
allur af málverkum og ljósmyndum af ýmsum
fyrrverandi leiðtogum kommúnista. Húsið
sjálft er laust við allan íburð en er þrátt fyrir
það sérstaklega bjart, litríkt og líflegt. Stór
garður er í húsinu miðju með fjölda högg-
mynda. Leyfilegt er að ganga um flest her-
bergi hússins að vild.
Trotskí fær pólitískt hæli í Mexíkó
Í útjaðri Coyoacan, í um 15 mínútna göngu-
færi frá húsi Kahlo og Rivera, er safn til-
einkað rússneska byltingarleiðtoganum Leo
Trotskí. Eftir að hafa flúið frá Sovétríkjunum
hraktist hinn útskúfaði foringi rússnesku bylt-
ingarinnar til Tyrklands, þaðan til Frakklands
og til Noregs. Vegna þrýstings frá Sovét-
mönnum vísuðu Norðmenn honum úr landi en
Trotskí fékk loks pólitískt hæli í Mexíkó árið
1936, ásamt Nataliu Sedovu, eiginkonu sinni.
Það var einmitt Diego Rivera ásamt fleirum
sem beittu áhrifum sínum til að þrýsta á Láz-
aro Cárdenas, þáverandi forseta Mexíkó, til
að veita Trotskí hæli, þegar ekkert annað land
treysti sér til þess. Eftir um mánaðar siglingu
frá Noregi kom Trotskí og fylgdarlið til
Tampico við Mexíkóflóa. Cárdenas forseti
hafði sent einkalestarvagn sinn eftir honum til
að flytja til Mexíkóborgar, en eftir að hafa
fengið kaldar kveðjur í Noregi treysti Trotskí
sér ekki til að ganga frá borði af ótta við að
brögð væru í tafli og að setið væri um líf hans.
Á endanum gekk Frida Kahlo sjálf um borð
og fullvissaði Trotskí-hjónin um að öllu væri
óhætt. Til er fræg mynd þegar þau ganga öll
frá borði, Leo, Natalia og Frida, og birtist
hún meðal annars í dagblöðum hér á landi
sem fylgdust nokkuð vel með gangi mála.
Settust Trotskí-hjónin að í Coyoacan og
bjuggu um tíma í Bláa húsinu ásamt Kahlo og
Rivera. Trotskí-hjónunum leið fyrst um sinn
vel í sambúðinni með Kahlo og Rivera, enda
höfðu þau um alllangt skeið verið á flækingi
milli landa og höfðu hvergi verið velkomin.
Áður en langt um leið fór þó á kreik orðrómur
um að Frida Kahlo og Leo Trotskí ættu í
ástarsambandi og Trotskí-hjónin fluttu fljót-
lega úr Bláa húsinu. Ekki er þó talið að það
hafi endilega verið vegna hins meinta ástar-
sambands sem Trotskí flutti í burtu því lík-
lega hefur kastast í kekki á milli Rivera og
Trotskís af öðrum ástæðum. Rivera og Kahlo
fóru í auknum mæli að snúast að stalínisma á
þessum tíma, þótt Frida ætti eftir að afneita
Stalín síðar, og var Rivera að einangrast í
kommúnistaflokki Mexíkó vegna þess að hann
hafði erkióvin Stalíns, sjálfan Trotskí, á heim-
ili sínu. Í ofanálag var beinlínis hættulegt að
hafa Trotskí sem gest á heimili sínu vegna
þess hversu mikið var sótt að lífi hans. Sífelld
ógn stóð af því að sovéskur útsendari gæti
reynt að ráða Trotskí af dögum enda krumla
Stalíns bæði löng og ófyrirleitin.
Hataður bæði af kommúnistum
og and-kommúnistum
Trotskí var afar umdeildur í Mexíkó, hataður
bæði af kommúnistum og and-kommúnistum,
og fór sjaldan út úr húsi og þá aðeins huldu
höfði og í fylgd lífvarða. Hafði hann þann hátt-
inn á að liggja á gólfi bifreiðarinnar sem hann
var farþegi í og leit ekki upp fyrr en komið
var vel út fyrir borgarmörkin.
Trotskí-hjónin fluttu því brátt í annað hús
skammt frá og bjó Trotskí þar síðustu ár ævi
sinnar. Þar er í dag safn tileinkað honum eins
og áður segir. Trotskí-safnið er ekki eins vin-
sæll áfangastaður og Bláa húsið, en vel þess
virði að fá sér göngutúr þangað. Trotskí-
húsið, sem er afar lítið og fábrotið, er um-
kringt háum varnarmúrum á alla kanta sem
áttu að verja hann árásum. Safnhús með ýms-
um persónulegum munum Trotskís og ljós-
myndum af honum er byggt við einn vegg
varnarmúrsins. Úr safninu er svo gengið inn í
hinn afgirta garð. Trotskí stytti sér stundir í
útlegðinni við að rækta kanínur og eru búrin
ennþá á sínum stað. Hann safnaði einnig og
ræktaði kaktusa í garðinum sínum og þá
sjaldan sem hann fór úr húsi reyndi hann að
taka með sýnishorn til að hafa heima hjá sér
og má enn sjá þess merki.
Úr garðinum er gengið inn í sjálft húsið og
er þar reynt að halda sem flestu í upp-
runalegri mynd. Úr garðinum er gengið inn í
bókasafn Trotskís og ofan á því er varðturn.
Hinum megin í garðinum og innan varnar-
múrsins er sérstök bygging þar sem lífverðir
og aðstoðarmenn Trotskís höfðu sín híbýli.
Trotskí var í útlegð sinni snauður og vinafár
og varð að treysta á sífelldan straum sjálf-
boðaliða, aðallega frá Bandaríkjunum, sem
komu í mislangan tíma í einu til Mexíkó til að
gæta lífs hans og sinna öðrum störfum.
Frá bókasafninu er gengið inn í sjálfar vist-
arverurnar. Sést glöggt á einfaldleika hússins
hversu hátt fall Trotskís var, því húsið er al-
veg sérstaklega einmanalegt, kuldalegt og fá-
brotið. Það er í hrópandi andstöðu við Bláa
húsið sem er enn fullt af lífi og litum þrátt fyr-
ir einfaldleika sinn og þó að íbúar þess séu nú
látnir.
Setið um líf Trotskís
Þeim gluggum í húsi Trotskís sem sneru út að
götu var lokað með múrsteinum af ótta við
skotárásir. Skrif Trotskís frá Mexíkó komu
Stalín illa og meðan Trotskí var á lífi fannst
Stalín hann ekki vera öruggur sem ótvíræður
leiðtogi Sovétríkjanna. Í rauninni voru Sovét-
menn með nokkra hópa í Mexíkó sem unnu
hver í sínu lagi og vissu jafnvel ekki hver af
öðrum. Einn þessara hópa stalínista náði að
koma manni á sínum vegum inn á meðal líf-
varða Trotskís undir fölsku flaggi. Nótt eina
opnaði hann hlið að húsinu fyrir litlum hópi
manna sem stilltu vélbyssu upp fyrir framan
svefnherbergisglugga Trotskí-hjónanna og
létu kúlnahríð dynja inn um hann. Fyrir til-
viljun sluppu þau bæði og barnabarn þeirra
við meiðsli, en kúlnagötin eru enn sjáanleg á
veggjum svefnherbergisins. Árásarmennirnir
sluppu á flótta en meðal hinna grunuðu voru
Diego Rivera og David Alfaro Siqueiros, ann-
Hús Fridu Kahlo Húsið stendur við Londres-götu í Coyoacan, og er bjart, litríkt og líflegt.
Skrifstofan Trotskí sat við skrifborðið og Mercader sneri baki í gluggann þegar hann stóð yfir honum
og hjó í höfuð hans.
Svefnherbergið Greina má kúlnagöt eftir árásina sem
Í Mexíkóborg er að finna safn sem tileinkað
er ævi og verkum Fridu Kahlo, í húsi sem var
heimili hennar og eiginmanns hennar Diego
Rivera, en þau eru meðal frægustu mynd-
listarmanna landsins. Þegar Leo Trotskí var
landflótta fékk hann hæli í Mexíkó og bjó um
skeið, ásamt eiginkonu sinni, með þeim hjón-
um. Greinarhöfundur heimsótti Bláa húsið
þeirra Kahlo og Rivera og síðan safn í ná-
grenninu tileinkað Trotskí sem var sögusvið
síðustu stunda hans.
Eftir Stefán
Svavarsson
stefsva@hi.is
Útlegð Trotskís í