Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 29.01.1950, Qupperneq 7

Mánudagsblaðið - 29.01.1950, Qupperneq 7
Sunnudagur 29. janúar 1950. MÁNUDAGSBLAÐH) 7 BLAÐ FYRIR ALLA óska eftir að gerast áskrifandi að Ég undirrit Mánudagsblaðinu. Heimili Staður Utanáskrift: Mánudagsblaðið Reykjavík Lesendum blaða hér á landi er nú þegar kunnugt, að hér er aðeins eitt blað, sem fjallar jafnt um þjóðmál sem önnur mál og heldur hlutleysi sínu. Öll þau mál, sem skipta hag almennings, eru rædd í Mánudagsblaðinu, og okkur er jafnan Jjúft að birta allar liliðar þeirra mála, sem mest eru rædd. Fastir dálkar í blaðinu hafa náð miklum vinsældum. Dálkar Jóns Reykvík- ings, sem birtir eru í nær hverju blaði, Kvennadálkur Clíós og greinaflokkur eftir Ajax um ýmis málefni hafa vakið umræður meðal lesenda. m Fyrir þá lesendur, sem ekki fylgjast með stjórnmálum eða öðrum þjóðmál- um að staðaldri, er líka nóg efni. Nægir þar að benda á kvikmyndagagnrýni, spennandi sögur, fréttir og upplýsingar á sérstökum sviðum, og nú í haust hef j- ast á ný leikarafréttir, sem áttu miklum vinsældum að fagna meðal yngri lesenda. Mánudagsblaðið getur því sannarlega kallazt BLAÐ FYRIR ALLA. Nokkur eintök eru enn til af síðasta árgangi Mánudagsblaðsins, og verða þau send ykkur, ef þið óskið þess. Árgangurinn kostar 48 krónur. Nú er kominn vetur og því allra veðra von. Ekki er þá við að búast, að jafn- margt fólk verði á götunum á mánudagsmorgnum, þegar sölubörn bjóða blaðið. Til þess að þið þurfið ekki að missa af blaðinu, bjóðum við ykkur að gerast áskrif- endur og fá blaðið sent heim á mánudagsmorgnum. Ef þið vifjið verða áskrifendur blaðsins, þá gerið eitt af tvennu: Hrihgið í sima 3975 og gefið upp nafn og heimilisfang eða fyllið út eftirfarandi áskriftar- lista. Kennarinn: E£ hann faðir þinn ynni sér inn 400 krónur á viku og fengi henni móður þinni þrjá fjórðu hluta af því, hvað mundi hún þá fá? Lcerisveinninn ákveðinn: Hjarta- slag. ★ Anna: Hann sagðist skyldi elska mlg alla ævi. Sigrtður: Amen. ★ Efnafræðingurinn: Látið þér mig fá dálítið af sedi cacidester a£ salycyl sýru. Eigið þér via- spirin? spurði efnafræðingurinn. Já einmitt. „Þetta dilkakjöt virðist ekki eins gott og t síðustu viku.“ ,,Nú sérðu hvernig sumu fólki skeikar. Þetta er alveg sama dilka kjötið og síðustu viku.“ ★ Viðskiptamaður: Er for-stjór- inn viðstaddur? Kannske hann hafi meiri vitglóru en þú? Búðarmaðurinn: Þáð liefur hann vissulega, því að hann fór út í því er þú komst inn. ★ Maðurinn var rekinn og var að karpa um það. — Hvers vegna er ég rekinn? Eg hefi ekki gert neitt. — Þess vegna eruð þér líka rekinn, -sagði framkvæmdastjór- inn. ★ Sigga: En hvað þetta er yndis- leg hálsfesti. Hvað kostaði hún? Anna: Þrjú móðursýkisköst. — Nú er ég búin að gleyma hinu, sem ég var'send eftir, sagði lítil telpa, sem kom í nýlendu- vörubúð. Kaupmaðurinn revndi að hjálpa henni og sagði: — Var það ostur, svínafeiti, smjör, margaríni, svínsflesk, mar- melaði, kex, reykt síld, niður- söðið kjöt, bökunarduft, sápa, kaffi, te, kókó, sykur, sódi, krydd, hrísgrjón, kúrenur, rúsínur? — Nú man ég hivið þáð vár. Það var, geturðu1 sá|9 mér hvað klukkan er? ★ Aíamma: Litli stráksi ætlar að verða uppboðshaldari, þegar hann er orðinn stór. Maðurinn: Hvernig veiztu það? Aíamma: Hann er strax farinn að bjóða upp úrið þitt. ★ Drengur (ætlar að kaupa litla jóiagjöf): — Mig langar til að kaupa flibba handa pabba. — Eins og þann, sem ég er með, sagði afgreiðslumaðurinn. — Nei, hreinan, ef þér hafið hann til.

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.