Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 30.01.1950, Blaðsíða 3

Mánudagsblaðið - 30.01.1950, Blaðsíða 3
Máimdagur- 30. janúar 1950 MÁNUDAGSBLAÐIÐ 3 ÞJOÐ LEI KH USIÐ SENN FULLCERT 1600 umsóknir um hafa borizf Stntt samtal við Þjóðleikbússstjóra Það er ekki ofsögum sagt, að Reykvíkingar hafi beðið með ó- þreyju eftir því, að Þjóðleiklnisið yrði opnað. Gamla Iðnó er fyrir löngu hætt að fullnægja kröfum leikenda og leikhúsgesta. Á síðari árum hefur leiklist- inni hér fleygt geysil. fram, og í hóp íslenzkra leikara hafa nú bætzt ungir hæfileikamenn og konur, sem hafa lært í erlendum leikskólum og eru fullir áhuga á að koma leiklistarmálum okkar á grundvöll sambærilegan við fremstu lönd leiklistarinnar. — íslendingar hafa vegna aukinna samgangna og velmegunar getað ferðazt erlendis og kynnzt og séð af eigin reynd leikstarfsemi þar. Kröfur þeirra á hendur leikurum hafa aukizt, og leikarastéttin hef- ur brugðizt vel við til þess að upp fyila þær kröfur. Tíðindamaður Mánudags- blaðsins brá sér í Þjóðleikhúsið nú í vikunni, til þess að spyrjast fyrir um framkvæmdir þar og til þess að skoða og svo skýra ykkur dálítið frá, hvernig hornsteinn ís- lenzkrar leikhúsmenningar lítur út. Þjóðleikhúsið er fögur bygg- ing. Þegar gengið er inn um að- aldyr þess, kemur maður í stórt anddyri, en þar fyrir miðju er miðasalan. Til beggja handa eru svo breiðir gangar, og þar eru einnig fatageymslur fyrir þá gesti, sem sæti eiga á þeirri hæð aðalsalsins. Breiðir' stig-ar liggja upp á hinar tvær hæðir þess hluta leikhússins, sem crestum eru ætl- aðar. 'Niðri í kjallara hússins er stór veitingasalur og smærri her- bergi til beggja handa, sem ætluð eru einnig til veitinga. Ætlazt er til, að veitingar verði þar á hverj- um degi bæði fyrir gesti leikhúss- ins og aðr3. Sýningarsalur er stór og fagur, og sætafjöldinn er 661. Salnum er skipt í þrjár hæðir, og rúmar sú neðsta 390 sæti, en hin skipt- ast á pallsætin. Fremst beggja megin í salnum eru stúkur tvær sitt hvorum megin, hvor upp af annarri. Neðri stúkan til vinstri er ætluð forseta íslands og gestum hans, en aðrar stúkur gestum. — Veggir salarins eru klæddir brún- um viði og öll sætin bólstruð, og hin þægilegustu. Fyrir framan leiksviðið er svo hljómsveitar- ' gryfjan og rúmar húii milli 30 og 40 manns. Skyggir því hljóm- sveitin alls ekki á sviðið eins og oft bar við í Iðnó. Leiksviðið er stórt og rúmgott. Kallast það hringsvið, því að skipta má því í fjóra hluta og hafa þannig tilbúin fjögur svið, ef leik ritið krefst þess. Þegar fyrsta atr- iði leiksins er búið, þarf ekki ann- ars en snúa ,,senunni“ fjórðung úr hring, og blasir þá við áhorf- endum alveg nýtt umhverfi. — Þetta er ekki einungis tímasparn- aður, heldur og þægilegt fyrir leikstjóra, þar sem þeir verða oft að sleppa atriðum úr leik, þar sem algjör breyting á sviðinu þyk ir of tímafrek. í sumum leikrit- um, eins og t. d. Nýjársnóttinni, er þó allt sviðið notað í einu, en það er oftast gert, þegar um úti- ,,senur“ er að ræða. Fyrir ofan leiktjaldið og til hliðanna getur að líta fjölda ljósa og annarra tækja, sem nota á við ljósabreyt- ingar og önnur áhrif í leiknum. Til öryggis áhorfendum hefur verið smíðað járntjald, sem getur á augnabliki einangrað aðalsalinn frá sviðinu, ef t. d. eldur yrði laus á senunni. Blaðið sneri sér til Þjóðleikhús- stjóra, Guðlaugs Rósinkranz, til þess að spyrjast fyrir um ýmislegt varðandi leikhússtörfin. ,,Er ekki leikhúsið að verða til- búið fyrir sýningar?" „Verkinu miðar mjög vel á- frarn, má segja, að ekki standi á öðru en vélum á leiksviðið til þess að við getum farið að byrja að sýna, en ekki er enn hægt að fullyrða, hvort okkur tekst að opna 1. marz, eins og búizt var við. Þó er unnið af kappi að þvi að fulkera allt, svo að ekki standi á okkur, þegar vélarnar koma.“ „Hvernig verður fyrirkomu- ilagið á sýningunum?" „í ráði er að hafa alltaf tvær eða þrjár sýningar í gangi, sem séu hvor sitt kvöldið eða eftir því ástæður leyfa. Þegar við byrjum að sýna, verða t. d. þrjú leikrit tilbúin, en þau eru Nýárs- nóttin, leikstjóri Indriði Waage, Fjalla-Eyvindur, leikstjóri Har- aldur Björnsson og íslandsklukk- an, leikstjóri Lárus Pálsson.“ „Eitthvað hefur heyrzt um það, að ykkur hafi borizt mikið af umsóknum um miða á frum- sýningar, en að þegar sé búið að ráðstafa þeim. Hefur nokkuð ver- ið ákveðið um það?“ ',,Það er ekki búið að ákveða, hverjir fá frúmsýningarmiða. Þeg ar við ákveðum það, þá verða um- sóknirnar teknar fyrir eftir þeirri röð, sem þær bárust okkur, og nú hafa okkur borizt 1600 um- sóknir. Þjóðleikhúsið verður ekki fyllt af frumsýningargestum, en ákveðið er, að á annað hundrað miðar verði seldir almenningi, svo að gestir í bænum hafi jafnt tækifæri og áðrir til þess að sjá sýningarnar. Fastir frumsýningar gestir eru auðvitað sjálfsagðir. — Miðar á frumsýningar eru 50 % dýrari, og okkur ber skylda til þess að líta á fjárhagshliðina eins og aðrar hliðar þessa máls.“ „Hvað er starfslið Þjóðleik- hússins margt?“ „Fastráðið starfsfólk er 35, en auk þess eru svo leikarar og aðrir, eftir því sem þörf krefur í hvert skipti. Okkur liafa borizt mjög jmunir, sem notaðir eru í leik- jritum. Þá er einnig málarastofa, þar sem leiktjöld eru máluð. Það fer ekki hjá því, að allir þeir, sem leiklist unna, fagná því, að sú stund, sem dyrnar opnast og leiksýningar hefjast,' er senn komin. Með opnun Þjóðleikhússins hefst nýtt tímabil í sögu íslenzkr- ar leiklistar. Leiklistin í sérhverju landi er oft talandi tákh þess menningarstigs, sem þar ríkir. Ungir leikarar og leikkónur eru nú komin heim, eftir að þau hafa menntazt í erlendum leik- skólum. Opnun Þjóðleikhússins gerir þeim kleift að stunda starf sitt óhindrað. Þeim er nú kunn- ugt, að kröfur áhorfenda verða meiri, eftir því senr aðstæður allar batna hjá leikurum. A. B. en satt ér margar umsóknir um stöður við leikhúsið, og daglega berast okk- ur fyrirspurnir þess efnis.“ Þjóðleikhússtjóri sýndi mér nú þann hluta byggingarinnar, sem eingöngu er ætlaður starfsfólki og leikurum. Inn af skrifstofu hans er herbergi, sem er vinstra megin við senuna, sem ætlað er fyrir þá, sem ákveða útlit leik- sviðsins í hverju atriði. Þar eru gerðar áætlanir og mældar út stærðir hvers hlutar, sem á að vera á sviðinu, en það gerir Finnur Kristinsson, aðstoðarmaður Ingva Þorkelssonar, leiksviðsstjóra, í samráði við hann og leikstjóra. Endanlega ákvörðun og tillögur verða að hafa samþykki leiksviðs- stjóra og leikstjóra. Bak við sviðið eru starfsher- bergi leiksviðsstjóra og leikara, en á hæðinni fyrir ofan er bún- ingsherbergi. Á efstu hæðinni í norðurhluta byggingarinnar æfingaherbergi, og þar cru leik- sýningar æfðar unz lokaæfingar og búningsæfingar fara frarn. í leikhúsinu er einnig saumastofa, og þar eru allir búningar saumað- ir. Sem dæmi um, hversu mjög verður að vanda til sýningar, má geta þess, að í Fjalla-Eyvindi þurfa leikendur hvorki meira né minna en 244 flíkur, sem sauma- stofan þarf að gera. í Nýjársnott- ina þarf 30 búninga. Leiksviðs- munir í Fjalla-Eyvindi eru 71 að tölu. Leikhússtjóri skýrði frá því, að eftir að hætt væri að sýna þessi ,,standard“ íslenzk leikrit, eins og Fjalla-Eyvind, yrðu bun- ingar ekki skornir í sundur og saumaðir úr þeim aðrír búningar, heldur yrðu þeir geymdir þar til sýningar tækjust aftur og ef til vill lánaðir leikfélögum úti á Iandi. .. . . að Lindberg var 67. mað- unnn, sem flaug yfir Atlants- hafið án þess að hafa viðkomu. Sir A. Whitton BroWn fláug-ýfir Atlantshafið árið 1919, frá NeW Foundland til írlands, og síðan flugu bæði þýzkir og enskir flug- menn yfir hafið á undan Lind- berg. Það er því eintómur mis- skilningur, að Lindberg hafi fyrst ur manna flogið yfir Atlants- hafið. ★ . . . að Joseph de Mai fædd- ist með tvö hjörtu og seldi skrokk inn á sér til hins brezka Academy of Medicine fyrir um þrjú þús- und dollara. ★ . . . . að árið 1851, þegar Nap- oleon 3 hrifsaði undir sig völdin í Frakklandi, þá kornu skilaboð til hans um, að skríllinn væri um það bil að ráðast á herdeild þá, sem gætti bústaðar konungs. — Einn af vinum keisarans, de St. Arnaud greifi, var nærstaddur °g voðalega kvefaður og sagði um er leið og skilaboðin komu „ma sa- crée toux“ (bölvað kvefið). Sá, sem kom með skilaboðin, hélt, að greifinn hefði sagt „mas- i.sacrez tout“ (drepið þá alla) og fór aftur með skipunina. Þess vegna- skutu hermennirnir á hóp- inn, og þúsundir manna voru drepnar. ★ .... að Dr. ‘ Schmeckegut (bragðast vel) í Vínarborg breytti nafni sínu í Dr. Schmecke besscr (bragðast betur). ★ .... að herra Reinach, einnig Sjálandi, datt og lézt upp úr því 29. apríl 1927. ★ .... að Elizabeth Bathory, greifaynjan fræga í Ungverja- landi, sem kölluð var tígrisdýrið, drap 650 þjónustustúlkur á sex árum. En vegna þess að hún var aðalskona \rar ekki hægt að refsa henni. ★ .... að dóttir Shakespeare var hvorki læs né skrifandi. ★ .... að Madame de Mainten- on, „vinstri" kona Lúðvíks 14. Frakkakonungs, lét sér blæða tvisvar í viku til þess að hún roðn- aði síður af sögunum, sem sagðar voru meðal hirðarinnar. ★ .... að mestu laun, sem nokkrum manni hafa verið greitt fékk Joseph 1. keisari Austur- ríkis. Árslaun hans námu krón- ur 22,060,000 á ári. Þetta voru bara laun hans, svo að ekki má rugla þeim saman við tekjur þær, sem hann hafði af eignum sínum °g öðru. .... að amerískur Ktnverji var svo hrifinn af flugi Lindbergs yf- ir Atlantshafið, að hann kallaði bárnið sitt „One Long Hop“. ★ .... að sú stétt, sem flesta dýflinga hefur framleitt, er leik- arastéttin. St. Genest, St. Arda- leon, St. Porphyre, St. Pelagie. ★ .... að Madame Marie 01- livier, sem var dæmd fyrir að giftast tveim mönnum í einu, hlaut þann dóm, að hafa tvennar í Vínarbprg, var svo titnbraður að ikarlmannsbrækur urn hálsinn á Þegar fram í sækir er áreiðan- legt, að þetta verðúr ódýrasta að- ferðin. Auk saumastofunnar hefur Þjóðleikhúsið einnig smíðastofu, þar sem smíðaðir eru hihý ýmsu hann setti 25 punda ísköggul á höfuðið á sér og lét hann bráðna þar. ★ .... að Cyrus, konungur Pers íu, þekkti hvern hermann í her sínum með nafni. ★ .. . .að „Bobby" Leach, sem fór yfir Niagarafossana í tunnu árið 1911 og vann sér heims- frægð fyrir þetta afrek, steig á bananabötk í Christchur-ch, Nýja sér það sem eftir var ævinnar. ★ .... að það déyja 68 menn á mínútu hverri, 97.920 á dag og 35.740.800 á ári hverju. ★ .... að Murad 4. Súltán Tyrklands, érfði 240 eiginkonur, þegar hanri tók við völdum. — Hann ákvað að losna við þær, og aðferðín, sem' harin notaði var sú, að harin lét þær í poká, cina t einu, og kastaði þeim í Bosporus.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.