Mánudagsblaðið - 06.02.1950, Síða 4
'4
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
Mánudagur 8. febrúar 1950.
I MÁNUDAGSB L A ÐIÐ
BLAÐ FYRIR ALLA
Ritsljóri og ábyrgðarmaður: Agnar Bogason
| Blaðið kemur út á mánudögum. — Verð 1 króna í lausa-
sölu, en árgangurinn, 52 blöð, 48 krónur
Afgreiðsla: Kirkjuhvoli, 2. hæð, opin á mánudögum.
Sími ritstjóra: 3975,
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
=
=
I
I
Úrsjitin í bæjarsfjómarkosningunum
-■»“» wec 1
n
Það kom flestöllum á ó-
yart, að sigur Sjálfstæðis-
flokksins skyldi verða svona
mikill. Hann fékk um 1000
atkvæðum fleira en almennt
var búizt við. Orsakir þessa
mikla sigurs Sjálfstæðis-
floksins eru h'klega aðallega
tvær. í fyrsta lagi kaus hann
nú fjöldi fólks, sem á’ður
hefur kosið aðra flokka, af
því að það óttaðist algera
ringulreið og upplausn í
stjórn bæjarins, ef Sjálfstæð-
ismenn misstu meirihlutann.
Þetta var áreiðanlega sterk-
asta trompið, sem flokkur-
inn hafði á hendinni í kosn-
ingabaráttunni og miklu á-
hrifameira en bláa barna-
myndabókin, sem flestir
hentu aðeins gaman að. í
öðru lagi stórgræddi Sjálf-
stæðisflokkurinn á frum-
varpi Framsóknar um stór-
íbúðaskatt, það hefur áreið-
anlega fælt fjölda fólks frá
Framsókn yfir til Sjálfstæð-
isflokksins, líklega yfir 500
kjósendur. Eg þekki ekki
neitt sérlega margt fólk, og
þó veit ég um fjórar fjölsk.,
sem kusu Rannveigu í haust,
en nú Sjálfstæðisflokkinn
.vegna stóríbúðaskattsins.
ÚRSLITIN í REYKJAVÍK
Framsóknarflokkurinn beið
JSTÓRKOSTLEGAN ÓSIGUR
í ■ bæjarstjórnarkosningunum
í Reykjavík. Hann missti á
sjöunda hundrað atkvæða
eða meita en fimmta hluta
fylgis síns í bænum: Á hann
þetta fyrst og fremst Rann-
veigu og stóríbúðaskattinum
að þakka, en orsakirnar eru
þó fleiri. Miklar h'kur eru á,
að alln^ar^ir hægrimenn
Framsóknar, svo sem Vil-
hjálmur Þór, Jón Árnason,
Sigurður Kristinsson, Hilm-
ar Stefánsson og Jafnvel Ey-
steinn Jónsson hafi kosið
Sjálfstæðisflokkinn, því að
þeir voru sáróánægðir með
iframboð Sigríðar Eiríksdótt-
nr og töldu það sigur fyrir
Hermann og hálfkommún-
ista hans í Framsókn, ef hún
hefði komizt í bæjarstjórn.
Sigríður hefur þó líklega á
hinn bóginn dregið eitthvað
dálítið af atkvæðum Þjóð-
varnarmanna að Fi'amsókn-
arlistanum. Loks er þess að
gæta, að Rannveig fékk í
haust mikið af atkvæðum frá
kvenfólki og íþróttafólki,
^em nú kaus Sjálfstæðis-
flokkinn. Rannveig má biðja
fyrir sér við næstu Alþing-
iskosningar, ef Framsókn fær
ekki einhver alveg óvænt
tromp á höndina. Kannske
Rannveig taki einhver ný
próf, svo sem doktorsgráðu
í millitíðinni, svo að Tíminn
geti flaggað með nýjum
námsafrekum hennar við
næstu kosningar.
Alþýðuflokkurinn MISSTI
Á FJÓRÐA HUNDRAÐ AT-
KVÆÐA frá því í haust.
Sumir þeirra kjósenda, sem
brugðust flokknum, er lík-
lega kvenfólk, sem var óá-
nægt út af því, að Soffía
Ingvarsdóttir var ekki höfð
í efsta sæti listans. Það
er líka sennilegt, að klíkan
kringum Ásgeir Ásgeirsson,
sem ræður yfir allmörgum
atkvæðum, hafi kosið Sjálf-
stæðisflokkinn vegna tengda
Ásgeirs við Gunnar Thor-
oddsen.
íSósíalistaflokkurinn FÓR
MIKLAR HRAKFARIR, þótt
þær væru ekki eins miklar
hlutfallslega og hjá Fram-
sókn. Hann missti meir en
600 atkvæðijSennilega hafa
þessi atkvæði dreifzt í ýms-
ar áttir. Sigríður Eiríksdóttir
hefur dregið eitthvað af
þeim til sín, þótt þau rey'id-
ust ekki nema dropi í haf-
inu til að bæta upp fylgis-
hrun Framsóknar. Talsvert
af kommúnistum hefur lík-
lega farið til Sjálfstæðis-
flokksins. Á lisía Sjálfstæð-
isflokksins var m. a. Friðrik
Einarsson læknir, sem til
skamms tíma var svæsinn
kommúnisti, en hefur nú
vent sínú kvæði. í kross. Þá
er ekki ólíklegt, að Svein-
björn Hannesson hafi dregið
til sín eitthvað af atkvæð-
um þeirra verkamanna,-sem
alltaf eru að hringla milli
Sjálfstæðisfanna og Sósí-
alistaflokksins, en þeir eru
ekki allfáir. Hermann Guð-
mundsson, Sveinbjörn. Hann-
esson, Axel Guðmundsson og
Sveinn Sveinsson eru dæmi
um menn, sem standa með
annan fótinn í Sjálfstæðis-
flokknum en hinn hjá komm-
únistum.
Margir menn fagna því að
stjórnleysi verður ekki í
Reykjavíkurbæ á næsta kjör-
tímabili. Á hinn bóginn er
bezt að vera ekki og bjart-
sýnn á skörungsskap, fram-
takssemi ög umbótavilja hins
nýja meirihluta í bæjarstjórn
Reykjavíkur.
ÚRSLITIN UTAN
REYKJAVÍKUR
Ekki er auðvelt að dæma
um það í heild, hvert
straumurinn hafi legið við
bæjarstjórna- og hrepps-
nefndakosningar úti á landi.
Þar er víða kosið um smá-
vægileg innansveitarmál og
einstakar persónur, en ekki
mjög um stjórnmálastefnu.
Víða virðist þó halla undan
gæti fyrir kommúnistum.
HAFNARFJÖRÐUR
Þar vann Alþýðuflokkur-
inn mikinn sigur. Hann bætti
við sig á þriðja hundrað at-
kvæða frá því f haust og
hélt meirihluta sínum, en
það kom mörgum á óvænt.
Líklega hafa menn þar °ins
og í Reykjavík óttazt ring-
ulreið, ef enginn flokkur ætti
meirihluta í bæjarstjórn.
Sjálfstæðisflokkurinn missti
talsvert fylgi, enda var fylg-
isaukning hans í Hafnarfirði
í haust að mestu leyti að
þakka hinum miklu persónu-
legu vmsældum Ingólfs
Flygenrings. Sósíalistafl.
fór þó miklu meiri hrak-
farir og missti nærri þriðj-
ung fylgis síns frá því í
haust. Er það fyrst nú að
koma í Ijós fyrir alvöru,
hvílíkur skaði kommúnistum
í Hafnarfirði er að því að
vera búnir að missa Her-
mann Guðmundsson úr
flokknum.
AKRANES
Sjálfstæðisflokkurinn beið
þar mikinn ósigur. Hann
tapaði nærri 100 atkvæða frá
síðustu bæjarstjórnarkosning
um, þrátt fyrir mikla fjölg-
un kjósenda og missti meiri-
hluta sinn í bænum. Nú er
eftir að vita, hvernig fer á
Akranesi, en við síðustu bæj-
arstjórnarkosningar þurfti að
kjósa þar upp aftur vegna
ósamkomulags um val bæj-
arstjóra.
ÍSAFJÖRÐUR
Þar er allt óbreytt. Kom-
múnistar fengu einn mann
kjörinn og þar með odda-
stöðu í bæjarstjórninni. Lík-
lega heldur samstjórn Sjálf-
stæðisflokksins og Sósíalista-
flokksins áfram á ísafirði, en
ýmsir Sjálfstæðismenn þar,
svo sem Marzelíus Bern-
harðsson og Sigurður Hall-
dórsson sjá ekki sólina fyrir
kommúnistum.
SAUÐÁRKRÓKUR
Þar misstu kommúnístar
og kratar dálítið fylgi, en
•enginn flokkur fékk hreinan
meirihluta. Líklega -tekst
samkomulag með Sjálfstæð-
ismönnum og Framsóknar-
■ • *
ti «•
mönnum um stjórn bæjar-
ins.
SIGLUFJÖRÐUR
Framsóknarmenn unnu þar
á frá því í haust, en allir
hinir flokkarnir misstu fylgi
og Sjálfstæðismenn þó mest.
Á Siglufirði er nokkur
samvinna með Sjálfstæðisfl.
Framsóknarfl. og Sósíalistafl.,
og heldur hún ef til vill á-
fram. Hvernig mundi sam-
vinna þessara þriggja flokka
taka sig út í Reykjavík.
Hvernig mundi Guðmundi
Ásbjörnssyni, Þórði Björns-
syni og Katrínu Thorodd-
sen ganga að vinna saman?
ÓLAFSFJÖRÐUR
Sjálfstæðisflokkurinn vann
þar mikið á og tók eitt sæti
af kommúnistum. Enginn
flokkur hefur þó meirihluta,
og líklega vinna Sjálfstæðis-
menn og Framsóknarmenn
saman. Hafa Ólafsfirðingar
verið mjög framtakssamir
siðan þeir fengu kaupstaða-
réttindi, en sú ráðabreytni
bakaði þeim óvild margra
annarra Eyfirðinga.
AKUREYRl
Sjálfstæðismenn unnu eitt
sæti af kommúnistum. Ef
miðað er við kosningarnar í
haust ,hafa þó Sjálfstæðis-
menn og Framsóknarmenn
tapað fylgi, en Alþýðuflokk-
urinn og Sósíalistaflokkurinn
heldur unnið á. Annars eru
allir flokkarnir á Akureyri
klofnar í margar klíkur, sem
eiga í fullum fjandskap inn-
byrðis. Það er því oft erfitt
að átta sig á stjórnmálabar-
áttunni þar, ekki sízt í bæjar-
málum.
HUSAVÍK
Framsóknarflokkurinn og
Sjálfstæðisflokkurinn höfðu
þar sameiginlegan lista, en
náðu þó ekki meirihluta. Al-
þýðuflokkurinn og Sósíalista-
flokkurinn hafa meirihluta í
bæjarstjórn, en líklega geta
þeir ekki unnið saman. Að
líkindum verður Karl Kristj-
ánsson einræðisherra á Húsa-
vík áfram. Karl er harðdug-
legur framkvæmdamaður, en
vinsældir hans á Húsavík eru
ekki meiri en í meðallagi.
Hann á þar þó trygga aðdá-
endur, eins og t. d. séra
Friðrik Friðriksson, sem trú-
ir blint á snilligáfu Karls,
og kvað telja hann mesta
mann, sem fæðzt hafi á ís-
landi!
SEYÐISFJÖRÐUR
Þar náði enginn flokkur
rpeixihlutia, en iSjálfstæðis-
flokkurinn er sterkastur.
Annars er nærri hlægilegt
að sjá atkvæðatölurnar frá
Seyðisfirði. Sjálfstæðisflokk-
* • . *- •• •* v
•> «• v1
urinn fær 4 fulltrúa á 152
atkvæði og Alþýðuflokkur-
inn 3 fulltrúa á 110 atkv.æði.
Seyðfirðingar telja sig þó svo
exklúsiva aristokrata,
að sjálfsagt sé, að hafa níu
menn í bæjarstjórn, en ekki
t. d. sjö eins og Keflvíking-
ar, sem eru þrisvar sinnum.
fjölmennari. Eg vil gera það
að tillögu minni, að hrepps-
nefndarmönnum í Skila-
mannahreppi verði fjölgað ,
upp 1 níu til samræmis við
Seyðisfjörð.
NESKAUPSTAÐUR
Þar höfðu SjálfstæðisfL,
Framsóknarfl. og Alþýðufl.
sameiginlegan lista gegn Sc-
síalistaflokknum, sem hafði
farið með stjórn bæjarins
síðasta kjörtímabil. Þessi
samfylking beið herfilegan
ósigur, eh kommúnistar unnu
eitt sæti til viðbótar og
fengu 6 menn í bæjarstjórn.
Kommúnistar, í Néskaupstað
hafa verið talsvert fram-
kvæmdasamir'í útgerðarmál-
um og Nesfirðingar virðast
trúa á Lúðvík Jósepssons.
Það er líka hætt við því, að
ýmsir í Alþýðufl. og Fram-
sóknarflokknum hafi verið
óánægðir með sambræðsluna.
VESTMANN AEY J AR
Þar beið samfylking Al-
þýðuflokksins og Sósíalista-
flokksins, sem fór með völd- •
in síðasta kjörtímabil, mikinn
ósigur. Fékk hún aðeins þrjá
menn kosna en átti áður
fimm. Framsóknarmenn
unnu mikinn sigur í Vest-
mannaeyjum og fengu nú tvo
fulltrúa en áttu engan áður
og meir en tvöfölduðu at-
kvæðatölu sína. Að einhverju
leyti byggist þetta líklega
á áhrifum Helga Benedikts-
sonar sem atvinnuveitanda.
Að öllum líkindum vinna
Sjálfstæðismenn og Fram-
sóknarmenn saman í Eyjum
næsta kjörtímabil.
KEFLAVÍK
Þar er Sjálfstæðisflokkur-
inn og Alþýðuflokkurinn
nærri jafnsterkir, en Fram-
sóknarmenun hafa odda-
stöðu í bæjarstjórninni.
Líklega vinna þeir frekar
með Alþýðuflokknum
en Sjálfstæðisfl. Kommúnist-
ar eiga litlu fylgi að fagna
í Keflavík. Segja þeir sjálf-
ir, að þetta stafi af því, að
fléstallir Keflvíkingar séu í
ástandinu á einn eða annan
hátt, en sjálfsagt eru þetta
ómakleg ummæli um Kefl-
víkinga.
KAU PTU N1N
Hreppsnefndarkosningar í
kauptúnum vekja yfirleitt
lítinn áhuga hjá Reykvíking-
um, því að pólitískar marka-
línur eru þar oft óskýrar.
í KÓPAVOGSHREPPI var
Framhald á 7. síðu.
— .. ‘f-
•j 8