Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 06.02.1950, Qupperneq 5

Mánudagsblaðið - 06.02.1950, Qupperneq 5
Mánudagur 6. febrúar 1950. MÁNUDAGSSLAÐIÐ 5 "MMumn'.mrrtiiHc' „HOROSKOP“ YÐAR FYRIR ÁRIÐ 1950. Mér hefur borizt úrklippa úr þýzku blaði, þar sem ein- hver vitringurinn tekur það á sínar herðar að spá um árið 1950. Ég ætla nú að gamni mínu að þýða lauslega þennan vds- dóm hér, ef einhver kynni að hafa ánægju af því að „skyggnast inn í framtíðina“, þ. e. komast að því, hvernig honum muni vegna á árinu 1950. (Þó vil ég ráðleggja öllum, að taka ekki alltof mikið mark á þessu!) „Horoskopið“ nær yfir tírna bilið 23. des 1949 til 22. des. 1950. Leitaðu uppi afmælis- dag þinn í því sem hér fer á eftir og þá muntu fá að „vita“ eitthvað um það, sem fyrir þig muni bera á líð- andi ári. STEINGEITAÚMERKIÐ 23. 12. — 21. 1. Áhrif stjarnanna Marz og og Venus valda því, að þér þurfið að ganga í gegnum marga erfiðleika á árinu 1950, áður en þér öðlist ham- ingjuna. Reynið a. m. k. að viðhalda gömlum sambönd- um og bæta þau. Verið á verði gagnvart nýjum kunn- ingjum án þess þó að sýna tortryggni. í viðskiptum mun yður ganga fremur vel á árinu, en gætið heilsu yð- ar vel, því að sjúkdómar ógna yður í árslok 1950. VATNSBERAMERKIÐ 22. 1. — 19. 2. Gætið yðar! í ársbyrjun eruð þér í hættu staddur. Með gætni og atorku getið þér losnað úr henni, — en rasið þó ekki um ráð fram. I viðskiptamálum þurfið þér ekki að hafa neinar sérstak- ar áhyggjur. Röggsemi og góð girni munu geta- unnið bug á öilum vandamálum yðar. I júlí muriuð þér verða fyr- ir einhverjum áhyggjum út af ástamálum eða öðrum til- finningamálum, — en það mun lagast af sjálfu sér eft- ir stuttan tíma. Þér þurfið ekki að bera neinn kvíð- boga fyrir heilsu yðar á ár- inu. Á miðju ári mun yður verða falið eitthvert virðing- arstarf, sem þér og munuð leysa vel af hendi. FISKAMERKIÐ 20. 2. — 20. 3. Menn munu vilja yður illt á árinu._ En látið það ekki á yður fá, og látið sem þér vefðið þess ekki einu sinni • var. Mótslöðumenn yðar eru ■ sterkir, en missið ekki kjark- inn! Yður mun vegna vel í stöðu yðar á þessu ári. Þér • munuð kýnnast mörgu fólki og eignast einn góðan viri. • Gætið þess þó, að vera ekki • of fljótur á yður að gefa X TA ást yðar. íhygli mun verða yður happadrýgst á öllum sviðum. -Heilsu yðar er eng- an veg hætta búin, ef þér ekki farið mjög ógætilega með yður. HRIJTSMERKIÐ 23. 3. — 20. 4. í byrjun ársins má búast við að þér verðið happa- sæll og berið góðan árang- ur úr býtum, — en látið það ekki gera yður dramb- saman eða grobbinn. Þér verðið að berjast á móti þrejdu og lífsleiða, sem mun ásækja yður um stund- arsakir; það mun koma yð- ur að góðum notum ef yður tekst að vinna bug á því. Gætið þess, að gera sam- starfsmönnum yðar ekki á móti skapi eða særa þá. Mik- il hætta er á að þér verðið alvarlega ástfanginn, — en látið það þó ekki orsaka það, að þér forðist fólk eða farið einförum. Þegar líður að árs- lokum munuð þér þurfa að taka mikilvæga og erfiða á- kvörðun. íhugið þá vel, hvað bezt er að gera, en verið i samt fljótur að ákveða yð- ) ur. Á miðju ári munuð þér verða fyrir ýmsu mótlæti. en það mun fljótlega rætast úr því. N AUTSMERKIÐ 21. 4. — 21. 5. Þér munuð finna félaga, sem muri verða yður mjög vel að skapi. Þér munuð missa kunningja, en eign- ast nýja. Þér munuð gera glappaskot, sem mun hafa eríiðar afleiðingar fyrir yð- ur. Þá er undir yður kom- ið, að bæta úr og miðla mál- um. Hugsandi, andlegu fólki mun vegna vel á þessu ári, þó mun það til þess þurfa að láta eigin hagsmuni sitja á hakanumj. Andstæðingúr mun qfunda yður. ÍBjóðið honum byrginn, því að það mun áreiðanlega borga sig. Einbeitið y’ður að 'aðalatrið- inu, starfi yðar, því að fyrst um sinn er það mikilvægast og mun færa yður gæfu. Heilsu yðar er engin hætta búin, en þó munuð þér verða fyrir óhappi eða slysi, sem ekki mun hafa neinar slæmar afleiðingar. TVÍBURAMERKIÐ , , 22. 5. — 21. 6. Mikil skylda mun hvíla á herðum yðar þetta ár. Þó mun yður lánast að inna hana af hendi. Fy'rri hlutaj árs .skuluð þér gæta yðarl vel fyrir hinu kyninu! Yður mun heppnast með tímanum að gera áform yðar að veru- leika. Þér munuð koma að vegamótum,. o.g ættuð þá að að íhuga nákvæmlega, hvora leiðina þér ætlið að velja. Látið þó engan hafa áhrif á yður í valinu, heldur verið óhlutdrægur. Á miðju ári munuð þér verða ákaflega ástfanginn, en þó er lítil von til þess að ást yðar verði endurgoldin. Hin mikla ham- ingja mun yður þó hlotnast nokkru seinna. Þolinmæði er eiginleiki, sem mun borga sig fyrir yður að temja yð- ur. KRABBAMERKIÐ 22. 6. — 23. 7. Vatnið eða sjórinn hefur á- hrif á það fólk, sem fætt er undir kraibbamerkinu. Mjikill óstöðpgleiki tilfinn- inganna er yður í blóð bor- inn. Þér munuð verða fyrir tjóni á þessu ári vegna hörku og einþykkni. Þér óskið op- inberrar viðurkenningar og hana munuð þér einnig öðl- ast.. Þótt þér verðið fyrir nokkrum veikindum, þá meg ið þér ómögulega gera yður svona miklar grillur út af þeim. Umfram allt missið ekki kjarkinn og vinnið á- fram að velgengni 1 starfi yð- ar. Þér sjáið þegar árangur- inn. Lævísir cg brögðóttir and- stæðingar munu reyna að vinría yður tjón, en þeim mun ekki heppnast það. Þeg- ar á allt er litið, getið þér verið ánægður með árið 1950. LJÓNSMERKIÐ 24. 7. — 23. 8. Hin mikla lífsorka yð- ar mun hjálpa yður til þess að yfirvinna ýmsa erfiðleika, sem bráðlega munu verða á vegi yðar. Reynið á þessu ári að gera hugsjónir vðar ; að veruleika. Látið ekki of mikið eftir valdafíkn yðar. | í ástamálum munuð tér i verða fyrir mikilli hamingju : á árinu 1950, — en einnig j fyrir talsverðum vonbrigð- | um. Látið þá ekki ástríðu yðar hlaupa með yður í gön- ur. Menn munu tala mikið um yður. Nokkrum sinnum munuð þér fá tækifæri til að sýna listagáfu yðar á op- inberum vettvangi. Yður stafar hætta af vatni eða sjó, — og einum kvenmanni. Gætið þess að gleyma ekki alvarlegri hliðum lífsins vegna skemmtanafíknar yð- ar. MEYJARMERKIÐ 24. 8. — 23. 9. Árlð 1950 virðist munu verða ■ yður gleðilegt að mörgu leyti. Þó er það að mestu leyti undir yður sjálf- um komið, því að þér ráðið því að miklu leyti, hvað fyr- ir yður kemur. Notið tæki- færin vel. Starf yðar á þessu ári mun aðallega verða í þágu heildarinnar. Hagsýni yðar mun ráða úrslitum um það, hvernig yður vegnar á árinu. Hamingjan mun verða yður hliðholl, en þó munuði þér eiga við einhverja erf-j iðleika að stríða á miðju ár- inu. Veðrið mun hafa mikil áhrif á yður. Ekki megið þér undir neinum kringum- stæðum leggja út í neina fífldirfsku. MET ASKÁLAMERKIÐ 24. 9. — 23. 10. Þér þurfið að berjast ötul- lega móti sjúkdómi, sem stendur í sambandi við á- hrif loftstrauma. Á þessu ári væri betra fyrir yður að láta yður nægja að horfa á, í stað þess að vera virkur þátt- takandi sjálfur. Þér munuð eignast óvini, er þér berj- ist fyrir friðarhugsjón yðar. Góður smekkur yðar mun fá að njóta sín. Nokkrir lævís- ir andstæðingar sitja um að gera yður mein. í maí munj mikil hamingja verða á vegi! yðar. Gangið ekki fram hjáj henni í hugsunarleysi. Eitt-i hvað mjög óþægilegt munj koma fyrir yður nokkrum | dögum seinna, en fljótt munj úr því rætast. Að öðru leyti verður árið gott fyrir yður. SPORÐDREKAMERKID 24. 10. — 22. 11. . Rétt! ætiskenndin, sem er yðar sterkasti veikleiki, mun verða mjög áberandi á ár- inu 1950. Végna hennar mun- uð þér eignast óvini og efla i óvild þeirra með kæruleysi. Látið ekki leiðast út í of mikla gagnrýni, heldur ver- ið. óhlutdrægdr. Viðkvæm mál munu koma hjarta yð- ar úr jafnvægi. Ástars^rg- ir munuð þér verða að þola, en þær munu líða hjá. Þér munuð þroskast mikið and- lega í vor, því að þá mun reyna mjög á þolgæði yð- ar. A fyrra helmingi ársins munuð þér einhverntíma þjást af öfund eða afbrýði- semi. Þér getið gengið að því vísu, að yður mun vegna vel í starfinu, en gæt- ið þess samt að verða ekki of kærulaus. BOGAMANN SMERKIÐ 23. 11. — 22. 12. Umfram allt megið þér ekki sífellt vera að skipta um skoðun. Fyrri helming- ur ársins verður yður yfir- Jeitt óhagstæður. Þér mun- uð þá eiga við missætti og deilur að stríða, en þér mun- uð komast yfir það. Gætið heilsu yðar sérlega vel með vorinu. Sjóndeildar- hringur \?ðar mun víkka, og það mun verða yður til góðs síðar. Ýmis smáatvik fortíð- arinnar munu einnig. um tíma hafa áhrif á yður. og gera yður grammt í geði; aðallega munu nokkrar persónur af hinu kyninu verða þess vaid- andi. Þegar líður að árslok- um munu koma erfiðir tímar fyrir yður, sem krefjast muiiu allrar orku yðar og hug- rekkis. Gætið umfram alJt peninga yðar og góðs úilits. Þér munuð þurfa nauðsyn- lega á hvorutveggja að haida á miðju árinu. Varkárni man verða happadrýgst í október, en þó ekki í svo ríkum mæli. að þér verðið hikandi. Og þetta var þá spadóm- urinn mikli! Ég endurtek, að ég vona að lesendur láti’ það ekki hafa óþarflega mik- il áhrif á sig þótt þeim „stafi hætta af vatni“ eða þótt „lævísir andstæðingar1 séu á hnotskóg eftir þeim'! Þó bíst ég við að góðu ráðin geti engan sakað, þótt farið væri eftir þeim. CLIO. Ég undirrit ..... óska effir a3 gerast áskrifandi að MánudagsblaS i nu. Nafn........... I : * L sSr- Heimili ...... r." Staður ........... Utanáskrift: Mánudagsblaðið Reykjavík

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.