Mánudagsblaðið - 06.02.1950, Side 7
Mánudagur 6. febrúar 1950.
MÁNUDAGSBIAÐIÐ
Úrslitin i bæjarstjórnarkosninginum
Framhald af 4. síðu.
feamfylking Framsóknar-
manna oð komúnista undir
stjórn Finnb. R. Valdimarss.
Náði hún meirihluta í hrepps
nefndinni, enda sviku sumir
Sjálfstæðismenn flokk sinn
og kusu með kommúnistum.
Á SELTJARNARNESI hélt
Sjálfstæðisflokkurinn meiri-
hluta sínum. Annars er
heimskulegt að innlima ekki
þessi úthverfi Reykjavíkur í
bæinn, þó að það hefði ef til
vill nokkurn aukakostnað í
för með sér fyrir Reykvík-
inga.
! BORGARNESI misstu
Sjálfstæði^m. meirihl., en Al-
þýðuflokkurinn vann eitt
sæti. Síðasta kjörtímabil réð
Friðrik Þórðarson öllu í Borg
arnesi. Hann et harðvítugur
áhlaupamaður, en metnaðar-
gjarn og öfs'tækisfullur í
stjórnmálum. Ekki er vitað,
hvort Framsóknarmenn í
Borgarnesi vinna með Sjálf-
stæðisflokknum eða vinstri
flokkunum. Það er ekki ó-
sennilegt, að þeir gangi í
flatsæng með kommúnistum
því að leiðtogar þeirra, Þórð-
ur Pálmason og Hervald
Björnsson eru báðir Her-
mannsmenn. Þó verður lík-
lega ekki auðvelt fýrir þá að
tjónka við kommúnista í
Borgarnesi, því að aðalmenn
þeirra, Jónas Kristjánsson og
Olgeir Friðgeirsson eru of-
stækisfullir réttlínumenn. —
I ÓLAFSVÍK hélt samfylk-
ing Framsóknar og Alþýðu-
flokksins völdum, en tapaði
þó fylgi, en Sjálfstæðismenn
héldu STYKKISHÓLMI, og
eiga vinsældir Sigurðar Á-
gústssonar sinn þátt í því.
r ■
í BOLUNGAVÍK fengu
einnig Sjálfstæðismenn meiri
• hluta á ný. Þar ræður lögum
og lofum Einar Guðfinnsson,
sem f raun og veru á Bol-
ungavík eins og hún leggur
sig. Einar er að mörgu leyfi
merkilegur maður, hefur haf-
izt úr fátækt til mikilla
efna og mun nú vera einn
auðugasti maður á Vestfjörð-
um. Aðalanöstæðingur hans
er Steinn Emilsson, leiðtogi
Alþýðuflokksins í Bolunga-
vík. Steinn er gáfaður og
sérkennilegur, gat sér á yngri
árum mikinn orðstýr fyrir
náttúrurannsóknir , en hef-
ur nú dvalizt lengi í Bol-
ungavík. Einhvernveginn
finnst manni, að' Steinn sé
ekki á réttri hillu þar, og að
hann eigi annað starfssvið
skilið. Á HÓLMAVÍK sigruðu
Sjálfstæðismenn Framsókn
með eins atkvæðis meiri-
hluta. Mestur valdamaður á
Hólmavík á næstunni verður
Kristinn Guðjónsson, kaup-
maður, hættulegasti andstæð-
ingur Hermanns Jónasson-
ar í Strandasýslu. Framsókn
hélt völdum á Hvammstanga
en Sjálfstæðisflokkurinn á
BLÖNDUÖSI. — Á DALVÍK
hafa Sjálfstæðismenn odda-
stöðu milli Alþýðuflokksins
og Framsóknarfl. Hatrið milli
Sjálfstæðis- og Framsóknar-
manna er svo magnað í Eyja-
firði, að líklega vinna Sjálf-
stæðismenn þar fremur með
Alþýðuflokknum. Aðalmaður
Framsóknar á Dalvík, Stein-
grímur, sonur Bernharðs al-
þingismanns er líka Her-
mannsmaður og á líklega
ekki gott með að vinna með
Sjálfstæðisflokknum, en ann-
ars getur Þórarinn Eldjárn
á Tjörn haft Steingrím í vasa
sínum, ef honum býður svo
við að horfa. Á ESKIFIRÐI
eru kommúnistar alltaf
sterkir, en á FÁSKRÚÐS-
FIRÐI sigraði samlisti Fram-
sóknar og Alþýðuflokksins
undir forustu Eiðs Alberts-
sonar, sem er smáhitler á
borð við Karl Kristjánsson.
Sagt er að Fáskrúðsfirðing-
ar hlýði boði Eiðs og banni
svo mjög, að hann geti ráð-
stafað 100 atkvæðuni á hvern
veg, sem hann vill við al-
þingiskosningar. Pólitískir
spekúlantar, sem hafa freist-
að gæfunnar í Suður-Múla-
sýslu, hafa því gengið á eft-
ir Eiði með grasið í skónum,
en hann þykir í pólitískum
ástum hverflyndur eins og
gleðikonur.
«
Á Selfossi var * Sjálfstæð-
isílokkurinn sterkastur, en
náði þó ekki meirihluta.
Hann mun þó geta stjórnað
með aðstoð Hriflu-manna,
Egils í Sigtúnum og Páls
sýslurnanns.
í Hveragerði eru Sósíalist-
ar öflugir, en þar dveljast
nú ýmsir leiðtogar íslenzkra
kommúnista, svo sem Jóhann
es skáld úr Kötlum og síra
Gunnar Benediktsson. Al-
þýðufl. hefur meirihluta á
Eyrarbakka, en á Stokks-
eyri eru Sjálfstæðismenn og
Framsókn í meirihluta. Skrít-'
ið er það, að Eyrbekkingar,
sem eru stoltir og aristó-
kratiskir í framkomu, eru
miklu róttækari í pólitík en
hinir alþýðlegu og demo-
krajtisk’U Stokkseyringar. í
SANDGERÐI fékk Alþýðu-
flokkurinn meirihluta, en
Sjálfstæðisfl. í NJARÐVÍK
UM. Fylgi kommúnista í
Sandgerði hefur rénað mikið,
en þar var lengi aðalvígi
þeirra á Suðurnesjum. Kom-
múnistar skýra þetta líklega
með því að amrískur fas-
ismi smiti í allar áttir
frá Keflavíkurflugvelli, svo
að skrúðblóm kommúnismans
fái ekki þrifizt í þeim eitur-
gufum.
A J AX.
fundur í Irak breytir sö
sfærðfræðínnar
Hin fræga Pythagorasarragla 1566 ár-
um eldri en höfundurinn
Stórblaðið New York Times flytur nýlega stórmerka
I
frétt frá Irak. Fréttin er samkvæmt skeyti frá fornleifa-
fræðingum þar og er í sambandi við stórmerkan fornleifa-
fund. Þeir hafa fundið í rústum borgar, sem er frá 2000
fyrir Krist, töflur skólabarna frá þeim tímum, en á þessum
töflum er m. a. hin fræga stærðfræðiregla Pythagorasar,
gríska stærðfræðingsins og heimspekingsins. Sýnir forn-
leifafundur þessi að höfundur hinnar frægu reglu gem er
fæddur 580 f. Kr., hefur verið 1500 árum á eftir tímanum,
þegar hann uppgötvaði hana, jafnframt því að fundur þessi
gjörbreytir sögu stærðfræðinnar.
Pythagorasarregla, eins og
hún er almennt kölluð í
skólum, er á þá leið, að í rétt-
hyrndum þríhyrningi er
langhliðin í 2. veldi jöfn
summu skammhliðanna í 2.
veldi.
BABYLONIUMENN
BYGGÐUIRAK
Babyloniumenn lögðu und-
ir sig Irak í kringum árið
2000 f. Kr., en Sumerarnir
sköpuðu fyrstu menninguna
þar. Hvort það heldur eru
Babyloníumenn eða Sumer-
arnir, sem á eftir þeim komu,
sem taka þannig heiðurinn
af því, sem hingað til hefur
verið álitin grísk stærðfræði-
uppfinding, verður ekki sagt
fyrr en frekari rannsóknir
hafa verið gerðar á fornleifa-
fundinum.
Það er þýðingarmikið, að
töflur þær, sem fundust, eru
töflur fyrir skólabörn og
sýnir það, að stærðfræðivís-
indin hafa þá verið á svo háu
stigi í Irak, að skólabörn-
um var kennt þessi fræga
| regla.
VILL AMERÍSKA
HJÁLP
Stjórnandi fornleifastofn-
vmarinnar í Irak, dr. Najl-al-
Asil. hefur nú farið þess á
leit. að The American School
of Oriental Research hjálpi
til þess að þýða töflur þess-
ar, en þær eru ekki færri en
2400 og' fundust í þorpinu
Shadipur. Stærðfræðingar,
sem byrjað hafa á því að
þýða töflurnar, hafa þegar
staðhæft, að menn hefðu
aldrei getað ímyndað sér að
stærðfra*ðivísindi hefðu verið
á svo háu stigi í Irak sem
raun ber vitni um. Það hafa
þegar hevrzt raddir um það,
að þessi fundur verði til þess
að sögu vísindanna ,og jafn-
vel menningarinnar yfirleitb
verði að skrifa á ný.
(Endursagt úr Politiken)’
PDRÆTT!
Árleg vinniagatala er 5000. að verðmæSi króirar
1.200.000,00. — Hæsti vmningur 25 þúsund kr.
Verð miðans, 16 kr, endurnýjunar-
gjald 16 kr. — írsmiðs 66 kr.
Vömhappdrætíi S.I.B.S. gefur góðar hagnaðarvonir,
og margir mnnu auðgazt á því fjárhagslega, en
aðalvinninginn mun íslenzka þjóðin ávalli hljóta,
en hann eT Reykjalundur, þar sem sjúkir menn
gerast bjargálna og þar sem gleymdir draumar
um lííshamingju endurheimtast.