Mánudagsblaðið - 13.02.1950, Page 7
Mánudagur 13. febrúar 1940
MÁNUDAGSBLAÐH)
7
Greinargerð Guðmundar
Framhald af 3. síðu.
Um kl. 0100, aðfaranótt 19.
janúar, síðstliðins, hringir
þessi sama stúlka til mín, og
segir mér, að nú só síra Pétur
enn kominn og reyni hann að
opna herbergisglugga hennar,
en stúlkan virtist vera mjög
hrædd. Segi ég henni að
hringja strax til götulögregl-
unnar og lofa að koma sjálfur
á vettvang. Nokkru síðar komu
lögreglumenn á staðinn, og
leituðum við síra Péturs þarna
í nágrenninu, en fundum ckki.
Nú má segja að hér hefði
mátt staðar nema, og get ég
vel fallizt á, að réttara hefðþ
verið að bíða til morguns með
að hafa tal af síra Pétri, en
röksemdir mínar fyrir þeirri á-
kvörðun að hitta hann strax,
voru meðal annarra þessar:
I. Maður, sem tvívegis hafði
gert tilraun til að troðast um
hánótt inn til stúlku, sem hann
átti ekkert vingott við, og
halda með því fyrir henni vöku
og hræða hana, virtist vera
þannig andlega á sig kominn,
að nauðsynlegt væri að láta
hann stinga við fótum, bæði
vegna öryggis annarra borg-
ara, svo og til að firra sjálfan
hann öðrum og háskalegri verk
um, sömu tegundar.
II. Með því að hafa strax
tal af manninum, var sennilegt
að unnt yrði fremur að gera
sér grein fyrir ástandi hans
almennt, og meðal annars því,
hvort drykkjuskapur ætti sök
á framkomu hans, auk þeirrar
almenmi reglu, að því fyrr, sem
hafizt er handa um rannsókn
máls, verður oftast auðveldara
að leysa það.
Eg aflaði mér nú upplýsinga
um heimilisfang síra Péturs,
hringdi til Páls, lögfræðings,
bróður. hans sagði honum hvað
til stæði og bað hann koma
heim til síra Péturs eða hafa
samband við mig á ldgreglu-
stöðinni, og fró svo á-
samt lögregluþjónum, heim
til hans. Eg bankaði á
Iierbergisdyr, og var okkur
þá boðið inn að ganga. Eg vil
ekki þreyta lesendur þessarar
greinar á löngum lýsingum
þess, sem gerðist í herbergi
síra Péturs. Hafa vitni þau,
sem þar voru, um það borið,
og vitanlega á allt annan veg
en þann, sem síra Pétur vill
vera láta. Eg vil nú taka þetta
fram:
I. Síra Pétur var alls ekki
„handtekinn" af mér eða fylgd
armönnum mínum, helaur
skýrði ég honum frá, að ég
teldi heppilegt að við gætum
ræðzt við í skrifstofu minni.
Kvaðst hann fús til þess, og
kom því með okkur.
II. Allt tal síra Péturs um
hótanir af minni hálfu og ann-
an dólgshátt. hefur þegar ver-
ið afsannaður með framburði
lögreglumaunannn og hirði ég
því ekl?i að skattyrðast við
hann um það. Allt háttarlag
sira Péturs frá því er við hitt-
einkenndisi
viðleitni til að
forðast kjarna máisins en snér-
ist hinsvegar um „dulbúna
kommúnistiska samsærismenn,“
og annað óráðshjal,
III. Strax og ég sá síra Pét-
ur þarna í herberginu styrktist
sá grunur minn að frásagnir
stúlkunnar og föður hennar
væru réttar, því hann var auð
sjáanlega sami maðurinn og sá
sem ég hafði séð, laust eftir
miðnætti aðfaranótt mánudags
ins 16. janúar, eigi alllangt
frá Óðinsgötu 18 A, en hann
virtist þá undir áhrifum áfeng-
is og sönglaði þýzka drykkju-
vísu, þar sem hann slangraði
eftir götunni, en samkvæmt
frásögn stúlkunnar virtist
hann hafa komið að glugga
hennar rétt á eftir.
Samkvæmt upplýsingum Veð
urstofunnar byrjaði ekki að
rigna, fyrr en eftir kl. 1 aðfara
nótt fimmtudagsins 19. janúar
lögregluþjónar bera fyrir rétti
að regnlilíf prestsins hafi ver-
ið blaut.
Páll, bróðir sdra Péturs, kom
nú áður en við fórum úr her-
bergi síra Péturs og fylgdist
hann með okkur úr því. Er
þáttur hans í málinu kapítuli
út af fyrir sig, sem er í senn
skammarlegur og vafalaust
refsiverður, enda hefi ég þeg-
ar kært Pál fyrir framkomu
hans, sem var, vægast sagt,
með endemum, af manni, sem
gera verður einhverjar lág-
markskröfur til, vegna langrar
skólasetu.
Eftir að vera kominn í skrif
stofu mína, reyndi ég að tala
við séra Pétur, en hann var
þar alls ekki við mælandi og
olli því tvennt: Ofsi hans, og
svo hitt, að hann hélt jafnan
uppi mærðar og ofstækisfull-
um ræðuhöldum, um allt annað
en tilefni viðtals okkar, svo
sem „kommúnistiskar ofsókn-
ir,“ og annað það, sem þessu
máli var óviðkomandi.
Það hefur verið á það minnzt
i einhverju blaði, hversu farið
hefði ef hér hefði átt í hlut
umkomulítill verkamaður r stað
séra Péturs Magnússonar. Eg
fullyrði að ef í hlut hefði átt
bara venjulegur, sæmilega.ær-
legur maður, í hvaða stétt sem
var, þá hefði hann viðurkennt
brot sitt, og beðið gott fyrir
það, og ég fullyrði að jafnvel
séra Pétur hefði líka lokið við
þá játningu sína, sem hann var
byrjaður á, ef ekki hefði komið
til Páll bróðir hans, sem með
framkomu sinni fyrirmunaði
séra Pétri þá leið, sem ein var
honum, stöðu sinnar vegna,
sæmileg.
Eg sá nú að tilgangs
laust var að ræða frekar yið
séra Pétur, og lét hann því
fara. Það er rétt, að ég hafði
ekkert á móti að mál þetta
félli þar með niður, og olli því
tvennt: I fyrsta að ég vonaði
að það, sem þegar hafði gerzt,
yrði séra Pétri sú áminning, að
hann myndi eftirleiðis hugsa
sig tvisvar um, áður en hann
raskaði næturró fólks, með an-
kannalegu hátterni sínu. 1 öðru
lagi vissi ég að síra Pétur
mvndi hafa skömm af þessu
máli, ef það vrði almenningi
RADDIR
LESENDANNA
Rvík, 6/2 ’50.
.... þökkum prýðilega for-
síðugrein í blaðinu í dag og lýs-
um okkur 100% sammála yður
um rannsókn á störfum lögregl-
unnar. Óánægja er nú orðin svo
megn með störf lögreglunnar, að
henni er greiði gerður, ef þeir
menn innan hennar, sem komið
hafa á lögregluna óorði í heild,
séu fjarlægðir."
Pétur, Gunnar.
7/2 1950.
„Ekki er svo, að skilja, sem
hér sé um neitt nýtt að ræða frá
hálfu lögreglunnar. Þótt í hcild
megi segja, að lögreglumenn séu
samvizkusamir í starfi, þá eru
umkvartanir almennings um ó
löglegar aðgerðir einstakra lög-
regluþjóna gagnvart ýmsum bæj
arbúum, orðnar of almennar til
þess að þetta mál verði þagað í
hel.
Bretlandi og Bandaríkjunum yrði
svona athæfi þolað, jafnvel þótt
presturinn yrði sannur að þeim
dylgjum, sem rannsóknarlögreglu
þjónninn lætur skína í. Hann
(Guðmundur) hefur framið ó-
heyrilegt brot á frelsi einstakl-
ingsins.“
6/2 1950.
....Við hérna á skrifstofunni
jhöfum rætt þetta mál fram og
aftur síðastliðna viku og erurp
allir sammála um, að það þarf að
hreinsa til innan lögreglunnar.
Mál sr. Péturs verður prófmál
dómsmálaráðuneytisins. Vefður
þetta land lögregluríki eða ekki?
Það er spurningih.- :
Skfifátöfiifólk.“
.... enda hefur logrpglan í
þessu fámenna landi þá'sérstöðu,!
_________________________
að hafa fyrst lamið og brotið
þekktan iögfræðing, síðan læknir
og nu síðast ráðist inn á heimili
eins af prestum þjóðkirkjunnar.
En þessir menn eru allir mennt-
aðir og mega síns nokkuð í þjóð-
félaginu. Hvar stöndum við, sem
ekki erum skólagengnir og þekkj
um ekki annað en áhrifalausa al-
múgamcnn? Menn innan okkar
hóps hafa oft verið beittir órétti,
án þess að geta rönd við reist.
Okkar skýringar eru ekki teknar
til greina, þegar við stöndum
gegn einróma framburði lögreglu
maniia. Eg rengi ekki lögfræðing-
inn, iæknirinn eða prestinn. ííg
vðit, að þeir segja satt, þótt það
se ekki mití að sanna það.
Það er ekki gengið fram hjá
okkur, þegarfcríkissjóður þarf á
fé ao halda og það minnsta, sem
við geíum gert kröfu til, er að
hið opinbera ráði í þjónustu lag-
anna menn, sem vernda réttindi
okkar, en brjóta þau ekki. Það
eru okkar peningar, sem þeir-
taka í kaup.
Sjómaður.“
ljóst, óg um það kærði ég mig
ekki. Eg átti ekkert sökótt við
hann persónulega, enda myndi
ég engum manni vilja það, að
almenningur bæri honum að
nauðsynjalausu leiðindasögu.
Séra Pétur hefur nú tekið
þann kost, að leggja mál þetta
í dóm almennings og á þann
hátt, sem séra Pétri var sam-
boðnastur.
Um hinar upprunalegu sakar
giftir í máli þessu hefur al-
menningur þegar dæmt........
að vísu nokkuð á annan veg
en þann sem síra Pétur mun
hafa vonað, og munu þar um
engu breyta nýjar tilraunir
hans til afsönnunar. Eg vona
að ég hafi nú með þessari
grein skýrt þau aðal atriði, sem
kunn þurfa að vera, áður en ég
kann að vera sakfelldur. Eg vil
taka fram, að ef um er að
ræða „sök“ nokkurs lögreglu-
manns, í þessu máli, þá ber
hún mér einum. Þeir göltulög-
reglumenn, sem með mér voru
þessa nótt, unnu samkvæmt
þeirri gömlu og hefðbundnu
vinnuvenju að styrkja rannsókn
arlögreglumenn til hverra
þeirra verka er þeir telja sig
þurfa að framkvæma. Hefur
það aldrei komið að sök, og
verða þeir því með engu móti
réttilega ásakaðir, þótt ég
kunni að verða sakfelldur, en
fari svo, þá er fráleitt að nota
það tilefni til ásakana á hendur
lögreglunni í heild. Yrði það
fyrst og fremst sönnun þess að
ég hefði farið út fyrir þau tak-
mörk, sem almennt eru, og
hafa verið viðurkennd í störf-
um lögreglunnar, en vegna þess
væri jafn ranglátt að fordæma
lögregluna eftir þessu eina
máli, af mörgum, sem ég hefi
unnið við, og það væri að afla
upplýsinga um síra Pétur
Magnússon, allt frá skólaárum
hans, til þessa dags, og segja
svo: „Þarna hafið þið það,
kæru bræður. Svona eru prest
amir á lslandi.“ Nei, það ætti,
senú’ betur fer, enginn heilvita
maður að gera.“
Guðmundur Arngrímsson.
Svo á ísSanii
fylli um andlegt frelsi, án
þess að þar kæmi til annað
eins tilefni og vorið 1948.
þá er Arnulf Överland
kveikti kyndil frjálsrar hugs-
unar og heilbrigðrar skyn-
semi og hóf hann svo hátt,
að bjarma bar ekki aðeins
yfir Reykjavík og nágrenni,
heldur vdtt um land. Á fundi
þessum fluttu tólf mennta-
menn ræður, og fulltrúar
„h ins austræna lýð-
r æ ð i s“ hnipruðu sig í kút,
þegar þeir voru beðnir að
svara spurningum, sem þann-
ig voru valdar, að þögnin
ein saman nægði sem óræk
afneitun á Stalínismanum
sem samboðnum unnendum
andlegt frelsis — og um leið
var hún fullkomin sönnun
þess, að eitthvað annað en
skynsemi og dómgreind
þeirra Andréssona og ann-
arra brennumanria hefur ráð-
ið afstöðu þeirra. Einungis
einn þeirra reyndist svo svín-
beygður undir ok forherð-
ingarinnar að hann gerðist
til að fótum torða skynsemi
sína og sjálf sitt frammi
fyrir fundarmönnum. Og
asni"
þegar svo kom til atkvæða-
greiðslu um tillögu frummæl-
enda, borna fram sem niður-
stöðu langrar fordæmingar-
ræðu á hinu rússneska und-
irokunarkerfi alls andlegs
frelsis, þá dirfist enginn —
e n g i n n af þeim Stalíns-
sveinum að greiða mótat-
kvæði!
Þessi er þá orðinn árang-
urinn af kynningu á raun-
verulegum staðreyndum
þess, sem fram hefur farið
í Rússlandi og leppríkjum
Rússa — og raunar meðal
allra þjóða, að því leyti sem
Moskvuhrammurinn fær sér
við komið. Og það, sem gerzt
hefur í Danmörku út af sein-
ustu bók Haralds Herdals,.
er deginum Ijósara dæmi
þess, að hvarvetna, svo á
íslandi sem 1 Danmörku og
hverju öðru landi, er hver
sá, sem elcki hefur „1 o s n a ð
undan blekkingu per-
sónuljeika n s“, gripinn
steinbítstaki — og það er
reynt að beygja hann og
síðan kefla af makt ‘myrkr-
anna í Moskvu, beinum arf-
taka Attila og Dhjengis
Khan.
Kbh. 30. 1. ’50.
Guðm. Gíslason Hagalín.
Leikkvöld Menntaskólans 1950
v
Gamanleikur 1 5 þáttum.
L. HOLBERG
Leikstjóri: BALDVIN HALLDÓRSSON
Verður sýndur í Iðnó þriðjud. 14. feb. kl. 9.30.
Aðgöngumiðar seldir í Iðnó mánudag 13. feb. kl.
4—7 og þriðjudag frá kl. 2.