Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 20.02.1950, Blaðsíða 4

Mánudagsblaðið - 20.02.1950, Blaðsíða 4
MÁNUDAGSBLAÐIÐ Mánudagur 20. fcbrúar 1950. M Á NUDAGSBLAÐIÐ BLAÐ FYRIR ALLA Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Agnar Bogason Blaðið kemur út á mánudögum. — Verð 1 króna í lausa- sölu, en árgangurinn, 52 blöð, 48 krónur Afgreiðsla: Kirkjuhvoli, 2. hæð, opin á mánudögum. Sími ritstjóra: 3975. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Hættuleg braut BR Lögreglan 09 umferðarljósin - Miðs vefrarpróf í framhaldsskólum Eg þori aS fullyrða, að ef Reyk- Lítil klíka í fríkirkjusöfn- uðinum í Reykjavík hefur klofið söfnuðinn og kallar sig nýjan söfnuð. Mun hún þó varla ráða yfir meiru en 5— € prós. af meðlimum safn- aðarins. Þeir, sem standa að þessari klofningsstarfsemi í kirkjumálum Reykjavíkur voitu stuðningsmenn Emils Björnss. við prestskosning- arnar á dögunum, og eru þeir þó ekki nema lítill hluti af af þeim, er greiddu honum atkvæði þá. Þessi klofnings- klíka starfar ekki að neinum; hugsjónum né áhugamálum, heldur er öll stefna hennar algerlega neikvæð, hið eina, sem sameinar hana, er ill- girni og hatur í garð frí- kirkjusafnaðarins og hins löglega kjörna presta hans, séra Þorsteins Björnssonar. Það er leiðinlegt, að Andrés Andrésson skuli láta sér verri menn ota sér út í þennan ófögnuð, því að Andrés er bezta sál. Ekki verður annað sagt en að það sé ófögur kirkjustarfsemi, sem byggist á hatri einu og niðurrifi. Þó lætur biskup íslands, sá hjartagóði, en trú- gjarni og barnalegi maður, sér sæma að vígja Emil til prests til að stunda þessa klofningsstarfsemi. Menn skyldu þó ætla að eining, en ekki sundrung kirkjunnar, væri áhugamál hans. Ofan á allt annað hefur klofnings- klíkan farið fram á að fá að stunda iðju sína í fríkirkj- unni sjálfri og reyna þar að grafa undan fríkirkjusöfnuð- inum og presti hans og er steinhissa á að fá neitun safnaðarstjórnar við þeirri málaleitan. Það virðist lítill vafi geta leikið á því, að Emil Björns- son stendur sjálfur að baki klofningnum. Hann sýnir •annað innræti en séra Árelí- us Níelsson, sem skoraði á stuðningsmenn sína að stuðla -að friði og einingu í söfnuð- inum, og stóð liann þó miklu nær því að ná kosningu en Emil. Hið sama gerði séra Ragnar Benediktsson. Það er heldur ógeðslegt hugarfar, sem lýsir sér í því að nota trúmálin til að valda sundr- ungu, illindum og hatri í þeim tilgangi einum að svala gómaskap. Það er varla ein leikið, hvílíkur órói og ill- indi skapast í kringum Emil Björnsson, hvar sem hann hann kemur fram á sjónar- sviðið. Hann hefur kolfalið við þrennar prestskosningar, og allstaðar hefur sama sagan endurtekið sig. Fyrst féll hann í Grindavík, og þar spratt af framboði hans órói og ólga í söfnuðinum. Ekki tók betra við í Mosfellspresta kalli í Grímsnesi, en þar féll Emil einnig. Helzti stuðnings maður hans þar var Stefán Diðriksson á Borg, sem með- al annars er frægur fyrir að hafa verið í öllum stjórn- málaflokkum á íslandi á einu kjörtímabili. Eftir hrak- farir Emils í Grímsnesi reyndi Stefán vinur hans að kljúfa söfnuðinn og mynda klíkusöfnuð um Emil. Átti Emil að sitja á Laugarvatni í skjóli venzlafólks Stefáns og grafa þaðan undan sókn- arpresti og þjóðkirkju. Var í þesari herferð beitt allskon- ar rógi gegn hinum löglega kjörna sóknarpresti, séra Ingólfi Ástmarssyni, og ýms um stuðningsmönnum hans, einkum hinum vinsæla hér- aðshöfðingja, Halldóri Gunn- laugssyni á Kiðjabergi. Þessi þokkalega iðja bar þó lítinn árangur, og varð Emil að gefa upp alla von um að verða klofningsprestur á Laugavatni. Þriðji ósigur Emils varð svo í fríkirkju- söfnuðinum í Reykjavík, en hér tókst honum þó það, sem ekki heppnaðist í Grinda- vík og Grímsnesi, að mynda lítinn klofningssöfnuð, sem á þó líklega eftir að verða minni. Hversvegna unir Em- il sér ekki við útvarpið? þar er hánn í röð skárri starfs- manna, þó að reyndar sé ekki mikið sagt með því. Þetta klofningsmál í frí- kirkjunni vekur annars hjá manni ýmsar hugleiðingar. Eru íslendingar almennt að hætta að geta sætt sig við að vera í minnihluta? það er þó einn helzti hyrningarsteinn alls Iýðræðis, að minnihlut- inn sætti sig við aðstöðu sína og viðurkenni rétt meirí hlutans. Ef út af þessu bregð urýer komið úr á hættulegar brautir. Ef hver óánægð Hr. ritstjóri! Eg þekki marga menn, sem hafa valið mánudaginn til þess að vera leiðinlegasta dag vikunn- ár. Ekki veit ég hvort það er vegna þess að þá er svo fjári langt til næsta sunnudags, eða hvort það er af því að engin dagbloð láta sjá sig fyrri hiuta þessa dags. Sennilega hafa menn þjáðst af hvortveggja meininu, eða allt til þess dags að þú bjargaðir öðru máiinu, með því að setja á stofn Mánudagsblaðið. Það var svo hressilega gert, að fjöldi folks skemmtir sér betur við tilveruna mánudagsmorgnana heldur en aðra daga vikunnar að jafnaði. mynda um sig sérstakan uppreisnarfélagsskap eins og hér hefur átt sér stað, hlýt- ur það að leiða til algerrar upplausnar í þjóðfélaginu. Hvernig hefði farið, ef séra Árelíus Níelsson og séra Ragnar Benediktsson hefðu líka myndað um sig klofnings söfnuði? þá hefðu fríkirkju- prestarnir þegar verið orðnir fjórir, og fríkirkjan gæti klofnað í 15—20 klíkur á stærð við klofningssöfnuð Emils. Á sama veg gæti svo farið um þóðkirkjuna. Hvern ig yrði ástandið í kirkjumál- um, ef eitthvað svipað þessu skeði um land allt? þar yrði hrein uþplausn, þó að biskup íelands virðist ekki koma auga á hættuna af þessari þróun. Hvernig þætti honum t. d. að hafa 4—5 klíkupresta á borð við Emil í Rafnseirar- prestakalli, þar sem búa 50— 60 sálir? Það hefði reyndar þann kost, að allir í sókninni gætu komizt í sóknarnefndir, sem yrðu þá á borð við „safn aðarstjórnina“ í klíkusöfnuði Emils, en í henni sitja, að Andrési Andréssyni undan- skildum, eintómir metorða- gjarnir ómerkingar, sem þyk ir hinn mesti frami að svona vegtyllum. Afleiðingin verður algert upplausnarástand í kirkjunni ef ýtt er undir metorðagjarna og ábyrgðarlausa klofnings- menn af þessu tagi. Með þessu framhaldi yrði íslenzka kirkjan gerð að hlægilegi'i skrípastofnun, en allir ís- lendingar, sem unna kirkju sinni, vona að svo verði ekki. En til að koma í veg fyrir þetta, verður að kveða nið- ur þegar í upphafi alla klofn ings- og klíkustarfsemi kirkjunni. Slík iðja er hvort sem er sprottin af valda- græðgi, afbrýðisemi eða öðr- um illum hvötum. AJAX. víkingar ættu þess kost að velja um það, hvort þeir ættu að fá aukaútgáfu af dagblöðunum fjór- um á mánudögum eða þetta unga blað, að þá myndir þú halda velli og stæðir með pálmann og Mánu dagsblaðið í höndunum. Þetta er líka ekki nema eðli- legt, því það er vægast sagt bráð- nauðsynlegt að hafa að minnsta kosti eitt blað, sem ekki er múl- bundið af einni ákveðinni stjórn- málastefnu, og þarf því ekki að fara eftir föstum og fyrirfram ákveðnum reglum, þegar það tek- ur afstöðu til liinna margvíslegu vandamála. Við sjáum það bezt á dagblöðunum, að íslenzkir stjórn- málamenn eru pikkfastir hver í sínu feni og vilja sig þaðan ekki hræra. Það er vitað, að íslenzka þjóð- in hefur falið þessum mönnum að yrkja og auðga fósturjörðina og stuðla að aukinni velmegun og menningu þjóðarinnar í heild. En hvernig leysa þessir háu herrar störf sín af hendi? jú, með því að sletta aur og skít hver á annan, milli þess sem þeir nota tímann til þess að skara eld að sinni eigin köku. Þetta er höfuðorsök þess að við stöndum nú frammi á brattri klettabrún og þlirfum ekki nema óþægilegan gust til þess að þeyta okkur fram af. Dagblöð þessa bæjar hafa unnið dyggilega að því að deyfa skilning manna á ástandi liðinna ára og hvert um sig að sýna sínum lesendahópi fram á það, að allar hörmungar séu pólitískum andstæðingum að kenna. Iðja dagblaðanna og stjórnmálamannanna undanfarin ár, hefur verið það að blekkja sem mest og þeyta upp mold- viðri til þess að reyna að haida í háttvirta kjósendur. — Og það er mesta furða, hvað landslýðurinn hefur látið bjóða sér í þeim efn- um. En reyndin er sú, að það and lega fóður, sem okkur er úthlutað sex morgna vikunnar, hefur unn- ið of mikið á. Þetta samansafn af vatnsgutli, hræsni, blekkingum og áróðri hefur ruglað heilbrigða skynsemi manna, þeir taka því með þökkum, sem að þeim er rétt. Eg er þó einn af þeim, sem ekki kingi neinu úr þessum blöð- um, án þess að japla á því um stund, og geri ég lítinn greinar- mun á því, hvaða flokksiit þessi blöð sýna. Eg var orðinn það svekktur á þeim, að mér fannst það sem „hressandí svaladrykk- ur“ að fá einu sinni í viku að rýna í blað^ sém túlkaðisítur iigin skoðanir á mönnum og málefn- um, eingöngu eftir eðli þeirra og raunverulegri framkomu, en án tillits til þess, hvort einum eða öðrum klæjaði undan. Meinin í okkar þjóðfélagi eru því miður svo mörg, að það þarf víða að stinga á. Eg vona, að Mánudags- blaðið haldi áfram að draga ýmis- legt það fram í dagsljósið, sem illu heilli hefur verið reynt að hylja í skugganum. Mig langar að þessu sinni að minnast á tvennt, sem ég tel að sé okkur bæði til skammar og tjóns. ...5/ j. s> Lögreglan og umferðarljósin. Undanfarnar vikur hefur Mánu dagsblaðið talað all digurbarka- lega um lögregluna okkar hér í Reykjavík, svo að mér og öðrum hefur. jafnvel fundizt nóg um. Þetta varð þó til þess, að ég fór að hugsa betur um þessi mál en áður og reyna að mynda mér skoðun um það, hvort þetta ætti nokkra stoð í veruletkanum. Þá ber mér fyrst og fremst að minn- ast þess, að reykvíska lögreglan hefur aldrei gefið mér. utan und- ir, aldrei beinbrotið mig og aldrei snúið upp á handlegginn á mér, enda hejd ég, að ég hafi reynt að smjúga í gegnum umferðina á götunum eins liðlega og lítið áberandi og mér hefur verið unnt. En satt að segja held ég, að lögregluþjónarnir okkar séu fram úrskarandi latir, svo að fullyrða megi, að þeir vinni alls ekki fyrir kaupinu sínu. Eg kalla það leti, að nenna ekki að stjórna götu- umferðinni 51 viku ár hvert, en aðerns bera það við þessa einu „umferðaryikuv, sem auglýst er á hverju sumri, einkanlega ef frú Theresía hefur lofað blíðskapar- veðri næstu dægur. Ef þér, lesandi minn, þykir ég segja of mikið og ómaklegt, þá virtu fyrir þér umfcrð gangandi fólks við umferðarljósin. Það er viðburður, ef nokkur gangandi maður tekur umferðarreglurnar til greina. Þegar bifreið ekur hik- laust áfram, af því að ljósin gefa henni rétt til þess, þá má öku- maðurinn alltaf reikna með því að vegfarandinn hlaupi beint fyrir hjólin. Það er ekkcrt óryggi leng- ur að Ijósunum, aðeins má segja, að bifreiða-umferð er nú mun greiðari en áður var. Það er stað- reynd, að tíu dögum eftir að um- ferðarljósin voru sett upp, nennti lögreglan ekki Iengur að kenna fólkinu að hlýða merkjunum. Eg fer um miðbæinn oft á dag, og hef ég aldrei undanfarnar vikur séð lögregluþjóna blaka hendi við Arambalkl á 7, siðu. æaetozðagirml. sinni og hé- xnmnihlutaklíka fer að

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.