Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 20.03.1950, Side 1

Mánudagsblaðið - 20.03.1950, Side 1
i 3. árgangur. Mánudagur 20. marz 1950. 12. tölublað. Hvers á Reykjavlk að gjalda? Marshall heioraour manna Bæjarráð og skipulagsstjórnin í Reykjavík virðast nú hafa komið sér saman um, að svonefndir Hallveigarstaðir verði reistir sunnanvert við tjörnina, þar sem nú er Isbjörn- inn gamli. Þetta er eitt liið fegursta hússtæði í Reykjavík. Á það hefur oft verið drepið liér í blaðinu, hve ágætt starf skipulagið Iiefur unnið hér í Reykjavík. Hefur þar gætt framsýni og smekkvísi og sýnilegt, að yfirmönnum þar er Ijóst, að bænum er það nauðsynlegt að vandað sé til um framtíðarskipulag lians. Um staðsetningu Hallveigarstaða er þó ljóst, að þessir aðilar hafa farið villir vegar. Hallveigarstaðir eiga aðallega að vera gistiliús fyrir kvenfólk utan af landi, fundarstaður þar sem jafnframt verður rekið einhvers konar gistiliús og matsala. Ekki er við því að amast, þó kvenþjóðin vilji byggja einlivers konar gistihús yfir sig, enda verður slíkt látið hér óátalið. Hitt er spurningin: Hvers vegna er þeim í té látin ein fegursta lóðin í Reykjavík? Þó nú séu vart tímar til þess að ræða um stórbyggingar eða nýtízku hótel, þá má gera ráð fyrir, að sá tími komi, að í Reykjavík rísi upp gistihús, ekki aðeins fyrir íslenzka ferðamenn, heldur einnig fyrir erlenda skemmtiferðamenn. Ekkert væri æskilegra en að einmitt slíkt gistihús yrði staðsett á þessum stað. Hússtæðið er í hjarta höfuðborg- arinnar, en þó þannig, að ekki er hætta á að framtíðar- byggbigar skyggi á það eða eyðileggi útsýni úr gluggum þess. Tjörnin sjálf hefur fjölda möguleika til verulegrar rijjíj-.av*! Rlíwa? prýði fyrir bæinn, þótt henni liafi ekld hingað til verið sýnd- iiuood • ur tilhlýðilegur sómi. Húsin, sem standa í þríhyrningnum sunnanvert við tjörnina, Tjarnarborg, Sólheimar og tvö næstu íbúðarhús, eiga eftir að hverfa á næstu árum. — Tjarnarborg og Sólheimar uppfylla alls ekki framtíðar- kröfur, sem gerðar verða til slíkra bygginga, en hin hús- in eru slitin og úr sér gengin. Þarna verður því á næstu Fclag iðnrekenda og verzlunar Hollandi hefur nýlega sæmc George C. Marshall, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gullmedalíu fé- lagsins, sem votc um þakklæti þjóðarinnar fyrir þátt hans í fjár- hagslegri aðstoð og endurreisn landsins. Dr. Stikker, utanríkismálaráð- herra Hollands, sæmdi Marshall medalíunni við hátíðlega athöfn í Washington. Dr. Fuchs Tass, hin opinbera fréttastofa Sovetríkjanna, hefur nú opinber- lega neitað því, að dr. Klaus Fuchs, vísindamaðurinn brezki, sem nýlega var dæmdur í 14 ára árum einstaklega heppileg lóð fyrir stórt og fagurt liótel, J f;ingelsi fyrir njósnir fyrir Rússa samboðið ferðafólki og virðingu höfuðstaðarins. Bærinn hefur áreiðanlega til umráða nægar lóðir, þar sem byggja mætti Hallveigarstaði og eflaust yrði konunum Ijúft að breyta til um stað, þegar þær sjá, að það er höfuðborginni fyrir beztu. Ný drykkjumannahöll? hafi haft nokkurt samband við rússnesku stjórnina eða agenta hennar. Fréttastofan skýrði svo frá, að stjórnin hefði heimilað að Iýsa því yfir, að framburður dr. Fuchs hefði verið tómur upp- spuni. Islenlngar taka þátt í listsýningu í Helsingíors 22. þ. m. Hin árlega sýning Norræna listbandalagsins verður haldin í Helsingfors í Finnlandi 22. þ. m. Þetta er í fyrsta sinni, sem sýning þessi er haldin í Finnlandi síðan löngu fyrir stríð og jafnframt í fyrsta sinni, sem íslendingar sýna í Finnlandi. Islenzkir málarar, sem senda myndir á sýninguna eru: Finnur Jónsson, Guðmundur Einarsson, Þorvaldur Skúlason, Jóhannes Jó- hannesson, Snorri Arinbjarnar, Magnús Arnason, Kjartan Guð- jónsson, Valtýr Pétursson, Pétur Friðrik Sigurðsson, Sigurður Sig- urðsson, Gunnlaugur Blöndal, Nína Tryggvadóttir, Orlygur Sig urðsscn, Valdís Kristjánsdóttir, Barbara Arnason og Kristján Davíðsson. Höggmyndarar Sigurjón Ol- afsson, Tove Ólaísson, Gunnfríð- ur Jónsdóttir, Magnús Árnason og Guðmundur Einarsson, auk þeirra sem gestir Hörður Ágústs- son og Gerður Helgadóttir. Félag íslenzkra myndlistar- manna er meðlimur í Norræna listbandalaginu og var sýning þess hér á íslandi árið 1942. í Finnlandi ríkir mikill áhugi fyrir sýningu þessari og má búast við gífurlegri aðsókn. Líkur benda til þess, að Norræna bandalagið haldi ekki sýningar í næstu þrjú ár. Fulltrúar íslands á sýningunni í Helsingfors eru Guðmundur Einarsson og Sigurjón Ólafsson. Áukið kolanám í Færeyjum Um þessar mundir er í Fær- eyjunr hópur námusérfræðinga frá Bandaríkjunum, og eru þeir að kynna sér námuvinnslu eyja- skeggja og gera tillögur um að auka afköst námanna þar. H. J. K. Marstrander, yfir- nraður námusérfræðinganna, er nú að rannsaka, hvort ekki sé liæst að auka afköst kolanámanna úr 1 2.000 tonnum á ári upp í 48.000 tonn. Ef það tækist, þá yrðu nóg kol fyrir Færeyinga, og möguleikar á því að selja íslend- ingum og Dönum eitthvert magn. Rannsóknir þessar eru greiddar með Marshall-fé, þ. e. a. s. úr þeim sjóði, sem styrkir tekniskar framfarir. Blaðinu hefur veriö tjáð, að samþykki hafi fengist fyr- ir því, að festa kaup á Valhöll við Suðurgötu og gera það að drykkjumannaheimili. Mmi þetta vera meðfram gert með það fyrir augum, að Hafnarstrætisbúar geti horft á íþróttaæfingar á íþróttavellinum af þaki hússins og séð þar eilífa blessun íþróttanna og smánarinnar á Bakkusi. Að því undanskildu, hversu mjög þessi hugmynd er vitlaus og byggingin sjálf ófullnægjandi, er þó margt að at- huga við þessar „ráðstafanir“ gagnvart drykkjusjúklin g- um. Þótt niikið sé um dryltkjuskap í bænum, eru þó sára- fáar sálir hér, sem hið opinbera getur raunverulega tekið úr umferð. Það eru í mesía lagi milli 20—30 sálir, sem að staðaldri skrcyta „búlur“ Hafnarstrætis, og ef betur er at- hugað, þá eru flesfir þeirra ekki annað en misskildir lista- menn, sein heimurinn hefur neitað að viðurkenna, sem finnst að þeim sé ekki of gott að leita sér að ímyndaðri hamingju með hjálp Bakltusar konungs. Ekki gera þeir neinurn manni mein, nema ef vera skyldi að þeir stundum leituðu fjárhagslegs styrks lijá efnaðri samborgurum sínum, sem ekki ætti að koma að sök. I stað I fáeinna aura, veita þeir gefendum ókeypis fróðleik í sltáld- ' skap, bæði buiidnum og óbundnum óg aðrir ræða um nýj- ustu stefnur í ýmsum listgreinum. Einstaka sýna þakklæti sitt með bví að syngja eitthvert smálag, og enn aðrir sanna, að þeir séu laimsyr.ir einhvers stórliöfðingja í Reykjavík. Og nú á að kaupa undir þá heila höll, dýrum dómum, og auðvitað endurbæta hana með enn meiri útgjöldum. — Hvað eiga þeir svo að hafast að? Ef alvara og hyggja fylgdi hjá þeim, sem að þessum málum standa, þá stæði nær að koma þessurn fáu sálum á vinnuheimili, svo eiíthvað gott myndi af þeim leiða, en að stinga þeim í Valhöll, getur enga blessun haft í för með sér. , Sovctheriun í Berlín hélt dag Kauða hersins hátíðlegan. Hér sést heiðursfylking á leið að hinu stóra iÆríðsininiúsme rki Rússa í Tiergarten. 1

x

Mánudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.