Mánudagsblaðið - 20.03.1950, Page 1
i
3. árgangur. Mánudagur 20. marz 1950. 12. tölublað.
Hvers á Reykjavlk að gjalda?
Marshall
heioraour
manna
Bæjarráð og skipulagsstjórnin í Reykjavík virðast nú
hafa komið sér saman um, að svonefndir Hallveigarstaðir
verði reistir sunnanvert við tjörnina, þar sem nú er Isbjörn-
inn gamli. Þetta er eitt liið fegursta hússtæði í Reykjavík.
Á það hefur oft verið drepið liér í blaðinu, hve ágætt
starf skipulagið Iiefur unnið hér í Reykjavík. Hefur þar
gætt framsýni og smekkvísi og sýnilegt, að yfirmönnum þar
er Ijóst, að bænum er það nauðsynlegt að vandað sé til um
framtíðarskipulag lians.
Um staðsetningu Hallveigarstaða er þó ljóst, að þessir
aðilar hafa farið villir vegar. Hallveigarstaðir eiga aðallega
að vera gistiliús fyrir kvenfólk utan af landi, fundarstaður
þar sem jafnframt verður rekið einhvers konar gistiliús og
matsala. Ekki er við því að amast, þó kvenþjóðin vilji
byggja einlivers konar gistihús yfir sig, enda verður slíkt
látið hér óátalið. Hitt er spurningin: Hvers vegna er þeim
í té látin ein fegursta lóðin í Reykjavík?
Þó nú séu vart tímar til þess að ræða um stórbyggingar
eða nýtízku hótel, þá má gera ráð fyrir, að sá tími komi, að
í Reykjavík rísi upp gistihús, ekki aðeins fyrir íslenzka
ferðamenn, heldur einnig fyrir erlenda skemmtiferðamenn.
Ekkert væri æskilegra en að einmitt slíkt gistihús yrði
staðsett á þessum stað. Hússtæðið er í hjarta höfuðborg-
arinnar, en þó þannig, að ekki er hætta á að framtíðar-
byggbigar skyggi á það eða eyðileggi útsýni úr gluggum
þess. Tjörnin sjálf hefur fjölda möguleika til verulegrar rijjíj-.av*! Rlíwa?
prýði fyrir bæinn, þótt henni liafi ekld hingað til verið sýnd- iiuood •
ur tilhlýðilegur sómi. Húsin, sem standa í þríhyrningnum
sunnanvert við tjörnina, Tjarnarborg, Sólheimar og tvö
næstu íbúðarhús, eiga eftir að hverfa á næstu árum. —
Tjarnarborg og Sólheimar uppfylla alls ekki framtíðar-
kröfur, sem gerðar verða til slíkra bygginga, en hin hús-
in eru slitin og úr sér gengin. Þarna verður því á næstu
Fclag iðnrekenda og verzlunar
Hollandi hefur nýlega
sæmc George C. Marshall,
fyrrverandi utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, gullmedalíu fé-
lagsins, sem votc um þakklæti
þjóðarinnar fyrir þátt hans í fjár-
hagslegri aðstoð og endurreisn
landsins.
Dr. Stikker, utanríkismálaráð-
herra Hollands, sæmdi Marshall
medalíunni við hátíðlega athöfn
í Washington.
Dr. Fuchs
Tass, hin opinbera fréttastofa
Sovetríkjanna, hefur nú opinber-
lega neitað því, að dr. Klaus
Fuchs, vísindamaðurinn brezki,
sem nýlega var dæmdur í 14 ára
árum einstaklega heppileg lóð fyrir stórt og fagurt liótel, J f;ingelsi fyrir njósnir fyrir Rússa
samboðið ferðafólki og virðingu höfuðstaðarins. Bærinn
hefur áreiðanlega til umráða nægar lóðir, þar sem byggja
mætti Hallveigarstaði og eflaust yrði konunum Ijúft að
breyta til um stað, þegar þær sjá, að það er höfuðborginni
fyrir beztu.
Ný drykkjumannahöll?
hafi haft nokkurt samband við
rússnesku stjórnina eða agenta
hennar. Fréttastofan skýrði svo
frá, að stjórnin hefði heimilað að
Iýsa því yfir, að framburður dr.
Fuchs hefði verið tómur upp-
spuni.
Islenlngar taka þátt í listsýningu
í Helsingíors 22. þ. m.
Hin árlega sýning Norræna listbandalagsins verður
haldin í Helsingfors í Finnlandi 22. þ. m. Þetta er í fyrsta
sinni, sem sýning þessi er haldin í Finnlandi síðan löngu
fyrir stríð og jafnframt í fyrsta sinni, sem íslendingar sýna
í Finnlandi.
Islenzkir málarar, sem senda
myndir á sýninguna eru: Finnur
Jónsson, Guðmundur Einarsson,
Þorvaldur Skúlason, Jóhannes Jó-
hannesson, Snorri Arinbjarnar,
Magnús Arnason, Kjartan Guð-
jónsson, Valtýr Pétursson, Pétur
Friðrik Sigurðsson, Sigurður Sig-
urðsson, Gunnlaugur Blöndal,
Nína Tryggvadóttir, Orlygur Sig
urðsscn, Valdís Kristjánsdóttir,
Barbara Arnason og Kristján
Davíðsson.
Höggmyndarar Sigurjón Ol-
afsson, Tove Ólaísson, Gunnfríð-
ur Jónsdóttir, Magnús Árnason
og Guðmundur Einarsson, auk
þeirra sem gestir Hörður Ágústs-
son og Gerður Helgadóttir.
Félag íslenzkra myndlistar-
manna er meðlimur í Norræna
listbandalaginu og var sýning
þess hér á íslandi árið 1942. í
Finnlandi ríkir mikill áhugi fyrir
sýningu þessari og má búast við
gífurlegri aðsókn. Líkur benda
til þess, að Norræna bandalagið
haldi ekki sýningar í næstu þrjú
ár. Fulltrúar íslands á sýningunni
í Helsingfors eru Guðmundur
Einarsson og Sigurjón Ólafsson.
Áukið kolanám
í Færeyjum
Um þessar mundir er í Fær-
eyjunr hópur námusérfræðinga
frá Bandaríkjunum, og eru þeir
að kynna sér námuvinnslu eyja-
skeggja og gera tillögur um að
auka afköst námanna þar.
H. J. K. Marstrander, yfir-
nraður námusérfræðinganna, er
nú að rannsaka, hvort ekki sé
liæst að auka afköst kolanámanna
úr 1 2.000 tonnum á ári upp í
48.000 tonn. Ef það tækist, þá
yrðu nóg kol fyrir Færeyinga, og
möguleikar á því að selja íslend-
ingum og Dönum eitthvert
magn. Rannsóknir þessar eru
greiddar með Marshall-fé, þ. e.
a. s. úr þeim sjóði, sem styrkir
tekniskar framfarir.
Blaðinu hefur veriö tjáð, að samþykki hafi fengist fyr-
ir því, að festa kaup á Valhöll við Suðurgötu og gera það
að drykkjumannaheimili. Mmi þetta vera meðfram gert
með það fyrir augum, að Hafnarstrætisbúar geti horft á
íþróttaæfingar á íþróttavellinum af þaki hússins og séð þar
eilífa blessun íþróttanna og smánarinnar á Bakkusi.
Að því undanskildu, hversu mjög þessi hugmynd er
vitlaus og byggingin sjálf ófullnægjandi, er þó margt að at-
huga við þessar „ráðstafanir“ gagnvart drykkjusjúklin g-
um. Þótt niikið sé um dryltkjuskap í bænum, eru þó sára-
fáar sálir hér, sem hið opinbera getur raunverulega tekið úr
umferð. Það eru í mesía lagi milli 20—30 sálir, sem að
staðaldri skrcyta „búlur“ Hafnarstrætis, og ef betur er at-
hugað, þá eru flesfir þeirra ekki annað en misskildir lista-
menn, sein heimurinn hefur neitað að viðurkenna, sem
finnst að þeim sé ekki of gott að leita sér að ímyndaðri
hamingju með hjálp Bakltusar konungs.
Ekki gera þeir neinurn manni mein, nema ef vera skyldi
að þeir stundum leituðu fjárhagslegs styrks lijá efnaðri
samborgurum sínum, sem ekki ætti að koma að sök. I stað I
fáeinna aura, veita þeir gefendum ókeypis fróðleik í sltáld- '
skap, bæði buiidnum og óbundnum óg aðrir ræða um nýj-
ustu stefnur í ýmsum listgreinum. Einstaka sýna þakklæti
sitt með bví að syngja eitthvert smálag, og enn aðrir sanna,
að þeir séu laimsyr.ir einhvers stórliöfðingja í Reykjavík.
Og nú á að kaupa undir þá heila höll, dýrum dómum,
og auðvitað endurbæta hana með enn meiri útgjöldum. —
Hvað eiga þeir svo að hafast að?
Ef alvara og hyggja fylgdi hjá þeim, sem að þessum
málum standa, þá stæði nær að koma þessurn fáu sálum
á vinnuheimili, svo eiíthvað gott myndi af þeim leiða, en að
stinga þeim í Valhöll, getur enga blessun haft í för með sér. ,
Sovctheriun í Berlín hélt dag Kauða hersins hátíðlegan. Hér sést heiðursfylking á leið að
hinu stóra iÆríðsininiúsme rki Rússa í Tiergarten. 1