Mánudagsblaðið - 05.06.1950, Page 3
Mánudagur 5. júní 1950.
MANUDAGSBLAÐIÐ
Eg las ritstjórnargrein
„Vísis“ um þessa „skuld“ í
tölublaðinu frá 16. maí, og er
Dönum þar með réttu álasað
fyrir dónalega framkomu í
okkar garð, þegar semja
átti um viðskipti okkar og
þeirra nú á dögunum. Hins
vegar fundust mér þær á-
lyktanir, sem dregnar voru
af þessu atviki, ekki að öllu
réttar. Það er að vísu rétt,
að vilji þjóð, ekki sízt smá-
þjóð einsog íslendingar, kom
ast hjá því að láta auðmýkja
sig í viðskrptum við sumar
aðrar stærri þjóðir, þá er
nauðsynlegt að vera skuld-
laus og óháður fjárhagslega.
Þetta er gullsatt bæði um
ríki og einstaklinga. Því er
bætt við, að jafnvel „norræn
samvinna“ geti ekki komið í
staðinn fyrir efnalegt sjálf-
stæði. Það er alveg rétt, því
hún getur ekki komið í stað-
inn fyrir neitt, svo er það
orðið augljóst, að hún er
ekkert nema kampavínsskála
skvaldur og miðdegisveizlna-
kjaftæði. Og ef út í það fer
er okkur óhætt að muna eftir
því, að skyldleiki okkar við
norrænu þjóðirnar er svo lít-
ill, að hann er varla nefn-
andi, því að við erum Keltar
— það er marg- og nýsannað.
Kitstjórnargreininni lýkur
með þessum orðum: „Sem
ibetur fer er skuldin við Dani
ekki mikil, enda verður að
krefjast þess af gjaldeyris-
yfjrvöldunum, að hún verði
greidd án tafar, svo auðmýkj
andi sem hún er.“
Þetta nær bókstaflega
engri átt! Það á ekki að
borga rauðan eyri af þessu
að sinni. Ástæðan er aug-
Ijós. í fyrra gerðu íslend-
jingar samning við Dani um
gagnkvæm jafnvirðiskaup að
upphæð 22 milljónir króna.
iVið keyptum þá fyrir 44
milljónir hjá Dönum, og er
þar af ógreitt eitthvað á aðra
milljón. En Danir keyptu
hér ekki fyrir nema 7 millj.
kr. Danir hafa því vanefnt
þennan verzlunarsamning við
okkur, og eiga eftir að kaupa
fyrir 15 milljónir króna. Það
er þess vegna alveg ástæðu-
Jaust fyrir okkur að horfa í
gaupni út úr. þessari skuld,
því ef Danir hefðu efnt sarnn
inginn, þá væri skuldin ekki
ítU, og við ættum 13 millj-
'ónir króna inni hjá þeim.
[Það er því og heldur engin
ástæða til þess að skora á
gjaldeyrisyfirvöldin að fara
að hlaupa til og reyna að
láta borga þessa skuld. Þvert
á móti! En það ér ástæða til
þess að skora á þá, sem
ptjórna verzlunarmálum
jlandsins, að biðja utanríkis-
J-áðuneyti vort að krefast þess
mjög éindregið af stjórn
Dana, að hún sjái til þess,
að þeir efni við okkur við-
skiptasamninginn frá í fyrra
og kaupi hið bráðasta fýrir
GuSbrandur Jónsson prófessor:
»SKULDIN« VIÐ DANI
15 milljónir hér. einsog þeir
eru skyldir fil.
Ritstjórnargreinin bendir
réttilega á hið ósæmilega
framferði hinnar dönsku
nefndar í okkar garð, að
birta einhliða yfirlýsingu um
það, að samningarnir hafi
strandað. Þetta getur orðið
til þess að rýra erlendis það
fjárhagslega traust, sem við
eigum skilið þar. Slíkan ut-
anríkispólitískan skepnuskap
eigum við ekki að líða Dön-
um. Utanríkisráðuneyti vort
á að bera sig mjög harkalega
upp undan þessu við utanrík-
isstjórn Dana og krefjast
þess, að beðizt sé eindregið
afsökunar á þessu athæfi.
Þá er það athugunarmál,
hvort okkur sé nokkur akk-
ur í því að gera viðskipta-
samninga við þjóð, sem ekki
er fær um, eða ekki vill
standa við það, sem hún
gengst undir.
Eftir að sambandinu við
Dani var slitið, hafa fslend-
ingar verið óeridanlega um-
burðarlyndir við þá, svo um-
burðarlyndir, að maður
skyldi ætla, að okkur fyndist
við hafa gert á hluta þeirra
með því að skilja við þá.
iMeðan sigurvíman var á
Dönum, rétt eftir ófriðinn,
drápu þeir af okkur menn,
og gáfu svör við fyrirspurn-
um um þau mál, sem engvir
hefðu látið sér lynda af þeim,
nema við. Við reyndum að
sýna þeim alúð, þegar þeir
áttu bágt eftir ófriðinn, en
þeir þökkuðu það með úlfúð
og durtshætti. Þeir halda fyr
ir okkur handritum vorum
og forngripum, en segja
ast nú innan skamms
munu birta nefndarálit frá
sjálfum sér um það mál.
Ýmsir íslendingar hafa ver-
ið að leika sér að því, að fara
að þeim bónarveg í þessu
máli, í stað þess að krefjast
svikklaust hins skýlausa
réttar okkar. Þessir menn
hafa bví verið að stæla
strákinn upp í Dönum, og
við en ekki mennirnir, mun-
um að sjálfsögðu taka það
út á okkur. Það mun nefnd-
arálitið sýna, þegar það
kemur, ef það kemur nokk-
urntíma. Svona er allt hátta-
lag Dana, og við ættum að
vita það af reynslunni —
margfenginni reynslu — að
við höfum aldrei nokkurn
tíma fengið rétt okkar hjá
þeim, nema með illu, — því
miður.
Danir þurfa ekki að setja
á sig greppitrýn vegna þess,
að ísland skildi við Dan-
mörku. Það kom þeim ekki
við, það var einkamál íslend
inga. Sumir, örfáir, þeirra á
meðal ég, voru á móti að
gera þetta í bráð, en allur
þorri íslendinga taldi rétt að
gera það tafarlaust, og þess
vegna var það rétt. Danir
verða nú að skilja, að þeir
eru hættir að vera -herraþjóð
hér, þeir eru hér ekki nema
aðkomumenn og útlendingar.
Við erum ekkert uppá
Dani komnir. Við þurfum
ekkert að kaupa hjá þeim;
allt, sem þeir hafa á boðstól-
um, getum við keypt annars-
staðar. Við þurfum heldur
ekki að selja þeim neitt, það
raknar einhvern veginn fram
úr sölu afurða okkar, án þess
að við förum að gera okkur
að hundum fyrir Dönum.
Danir þrástagast á því, að
við eigum að gleyma því,
sem þeir hafa afbrotið við
okkur á umliðnum öldum, og
það er skylt, en þó því að-
eins að þeir ekki haldi hin-
um forna hætti við okkur,
því þá á að muna.
Danir skulu og muna það,
að Færeyingar hafa fram að
þessu, í skjóli Dana, notið
sérstakra hlunninda hér. Eg
vorkenni Færeyingum að
vera í sambandi við Dani, en
þeir um það. En það er á-
stæðulaust fyrir okkur að
veita Dönum hlunnindi hér
á landi, sem þeir síðan geta
notað til reksturskostnaðar
við undirokun sína á Fær-
eyingum.
En þetta ríður ekki við
einteyming. Síðan Danir
sýndu okkur þetta tillæti, er
skip okkar komið að landi.
Hinn nýi „Gullfoss“ er kom-
inn, og landsmenn fagna hon
um. Hann hefur kostað milli
20 og 30 milljónir króna; er
það lagleg fúlga, og hefur
hún verið greidd að fullu.
Viðtakendur greiðslunnar
eru Danir, og er ekkert við
því að að segja, að þeim sé
greitt rétt kaup fyrir góða
smíð. Danskar skipasmíða-
stö^var mega líta glöðum
erkiengilsaugum til Eim-
skipafélags íslands, því að
þær hafa fengið að smíða
öll þau skip, er félagið hef-
ur látið gera. Það eru því
milljónir á milljónir ofan,
sem ísland hefur mokað í
Dani fyrir smíðina á skipum
þessum, og þarf þó enginn
að gera sér í hugarlund, að
við hefðum ekki getað keypt
þessi skip jafngóð og með
jafngóðu verði hjá öðrum
sem hjá þeim. Frakkar, Bret-
ar og ekki sízt ítalir eru á-
gaetir skipasmiðir, og hefðu
þessar þjóðir sumar hverjar
vel getað keypt af okkur
ýmsar þær vörur okkar, sem
Danir vilja ekki sjá og hafa
reynzt torseldar, og keypt
það magn, sem um munaði.
Eg geri ráð fyrir því, að
danska skipasmíðastöðin
hafi ábatazt af smíðinni á
„Gullfossi“, eins og sjálf-
sagt er í eðlilegum við-
skiptum. Þar með sýnist allt
vera í lófann komið og jafnt.
En einhverjum hefur litizt
á annan veg, því nokkrum
dögum eftir að Danir sýndu
okkur þessa alveg óheyrðu
móðgun 1 viðskiptasamning-
unum, þá eru tveir Danir,
starfsmenn skipasmíðastöðv-
ar þeirrar, er gerði „Gull-
foss“, sæmdir Fálkaorðunni,
annar stórriddarakrossi, en
hinn riddarakrossi. í viðlög-
um er það kallað svo, að
Eimskipafélagið sé eign allra
íslendinga, þótt Guð einn
viti, hvar hlutabréfin eru nið
ur komin, enda er það einka-
mál eigendanna — og
skattayfirvaldanna. Það sem
nú mun sagt er ekki talað
til þess að blanda beizkju í
gleðikaleik þessara tveggja
Dana, ef þeir hafa nokkra á-
nægju af krossum sínum, því
þeir eru vafalaust meinlaus-
ir skikkelsismenn og bera að
sjálfsögðu ekki sína krossa
lakar en urmull annarra
Dana, sem fengið hafa Fálka
orðuna, án þess að nokkur
maður hér hafi getað rennt
grun í, fyrir hvað væri verið
að þakka þeim. Það er t. d.
mörgum minnisstætt, þegar
svo til heil skipshöfn á einni
af lekabyttum danska flot-
ans var sæmd íslenzkum
heiðursmerkjufn — hvort
skipskötturinn fékk nokkuð,
man ég ekki. Hitt man ég,
að það var látið heita svo,
að það væri gert í þakklætis-
skyni fyrir störf danskra
varðskipa til varnar íslenzkri
landhelgi. Það stökk sumum
bros, þegar þeir heyrðu þetta,
en flestir skelltu upp úr.
Það vissu sem sé allir, að ís
lendingar'‘höfðu ' síðan 1918
viljáð vera lausir við þessa
dörisku þjónustu, en Danir
höfðu hins vegar viljað halda
í hana dauðahaldi, til þess að
út á við gæti sýnzt svo, sem
þ^ir hefðu enn einhver yfir-
ráð hér. Hitt vissu allir, að sú
þjónusta var blindónýt, því
að varðskipin dönsku héldu
laldrei lengta úr íslenzkri
höfn en það, að hægt væri að
snúa þangað aftur, áður en
kaffirjómi skipherrans næði
að súrna. Það er sannast
að segja rétt einsog íslend-
ingar væru að bæta einhvern
Höskuld Hvítanesgoða við
Dani, þegar þeir borga þeim
20—30 milljónir fyrir „Gull-
foss“, og að hinn spaki Njáll
legði silkislæður og bóta
á hrúguna. Flosi var viðtak-
andinn þegar Njáll gerði
þetta, og hafði Njáll lítið til
hans að segja, nema illt eitt;
hann hefði því átt að vita,
við hverju var af Flosa að
búast. Það brauzt og þegar
á eftir út kauðaeðli Flosa,
því að hann fór háðulegum
og illmannlegum orðum um
Njál upp yfir alla fyrir vik-
ið. Skarphéðinn þreif til sín
slæðurnar og sletti bláum
brókum í Flosa í staðinn.
Þar fór Skarphéðni óvitur-
lega, því að hann átti að
glotta, þegja og strjúka í
laumi eggjarnar á Rimmu-
gýgi. En óviturlegast fór hin-
um spaka Njáli, því að hann
átti að láta það duga að
greidd væri fúlgan vel og
heiðarlega, en reyna fyrsfc
Flosa að drengskap, áður en'
hann legði silkislæður og
bóta á fúlguna. Oss er vitan-
lega hagur, að landið hafi
eignazt gott skip, og það
hefði mátt fá allsstaðar, en
Dönum var meiri hagur af að
fá verkið og hljóta ábatann
af því, en oss að eiga þessi'
kaup við þá frekar en aðra.
Þeim hefði því verið nær
að leggja drengskap ofan ál
skipið, en okkur að leggja
silkislæður ofan á ábata
þeirra. En það var öðru nær
en að þeir gerðu slíkt; þakk-
læti þeirra hefur ekki einu
sinni birzt í hnappagötum
forstöðu'manna Eimskipafé-
lags íslands, sem var útiláta-
lítið, og er þó bættur skað-
inn.
Hið góða, fallega skip
„Gullfoss“ á nú að hefja ferð-
ir um Leith til Kaupmanna-
hafnar. En hvaða erindi á
það þangað? Danir viljæ.
ekkert af okkur kaupa ogr
við getum því ekkert af þeim
keypt, enda þurfum við þess
ekki. Skipið hlýtur því að
renna galtómt milli Dan-
merkur og íslands, og það*-
hlýtur að verða eintómt tap
á ferðunum. Væri ekki jafn-
gott að lofa Sameinaða gufu-
skipafélaginu að sitja einu að
því tapi og láta „Gullfoss“
ekki fara lengra en til Leith..
Einhver kann að benda: á
farþegaflutninginn, en úr því'
viðskipti eru engin landannai
á milli, þá er óljóst, hverfc
erindi Danir eiga hingað, og~
enn síður hvaða erindi ís-
lendingar eiga til Danmerk-
ur, nema ef það skyldi véra
að glugga í handritin okkar
og skoða forngripina okkar,
sem Danir halda fyrir okkur
með röngu. En ef landarr
vilja skoða heiminn, skulit
þeir íara til þeirra landar
sem eru menningarmiðstöðv—
ar hans, til Frakklands, ítaÞ*
Framhald á 8. síðu