Mánudagsblaðið - 05.06.1950, Page 4
4
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
Mánudagur 5; júní 1950. -
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
BLAÐ FYRIR ALLA
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Agnar Bogason
Blaðið kemur út á mánudögum. — Verð kr. 1,50 í lausa-
sölu, en árgangurina, 52 blöð, 48 krónur
Afgreiðsla: Kirkjuhvoli, 2. hæð, opin á mánudögum.
Sími ritstjóra: 3975.
Prentsi ðja Þjóðviljans h.f.
Cjaldeyrisnefndin
f Framhald af 1. síðu.
| að minnsta kosti ef þeir
[ nenna ekki að. áfrýja til
| liæstaréttar, og verðum
| við því að álykta, að nefnd-
[ armennirnir vinni strang-
heiðarlega eftir settum
reglum!!
En hvernig skyldu þá
þessar furðulegu reglur
vera, fyrst dómurinn féll
á þessa leið? Eg veit það
ekki, og ég hugsa, að flest-
ir lesendur mínir viti það
efcki heldur. Við verðum
því að gera okkur í hugar-
lund, hvernig þær líti út.
Mín persónulega skoðun er
sú, að þessar „settu regl-
ur“ séu einhver dæmalaus
vanskapnaður og saman-
setningur, og það sé hunda
heppni, ef þær hafa ekki í
gáleysi verið gripnar upp
úr okkar ágæta blaði
„Speglinum“. Eg ætla að
minnsta kosti að bregða
upp nokkrum spegilmynd-
um af störfum GIVF, eins
og þau hafa komið mér fyr-
ir' sjónir í sambandi við þau
viðskipti, sem ég hef neyðzt
til þess að eiga við GIVF
undanfarin ár. Eg efast
ekki um, að flestir lesend-
ur þessa blaðs eigi margar
furðulegar minningar um
sín viðskipti við nefndina,
og getur því hver og eiun
reynt að gera sér hug-
myndir um reglur þessar,
sem GIVF á að starfa eftir,
og hefur gert, eftir því sem
rétturinn segir.
Við verðum að sætta okk
ur við fógetadóminn um
GIVF/4, en marga menn
vissi ég hlæja mikinn, er
þeir lásu hann, og ýmsum
þótti. hann fyndnasta
skrýtlan, sem komið hafði
í Morgunblaðinu árum sam
an. Maður neyðist stund-
um til þess að finna skop-
ið í alvarlegustu atburðum,
þótt sú iðja virðist nokkuð
kaldhæðnisleg.
Fyrir um tveim árum
tók GIVF þá ákvörðun
að setja verk sín á meta-
skálar. Með auglýsingum í
dagblöðum og út varpi kall-
aði mefiulia inn öll þau
leyfi, sem væru í umferð.
Það var þegar orðið Ijóst,
að of mikið hafði verið gef-
ið út af þeim bláu sneplum.
Enda kom í Ijós, þegar far-
ið var að telja saman, að
GIVF var búin að gefa út
gjaldeyrisleyfi fyrir tug-
um milljóna króna fram yf-
ir það, sem til var af er-
lendum innstæðum. — Fá-
fróðir og embættislausir
fuglar eins og ég, spyrja í
einfeldni: Hafði GIVF með
öUu sínu fjölmenna skrif-
stof uliði ekkert bókhald
haft yfir það, hvað eyddist
af gjaldeyri þjóðarinnar?
Var það þá satt, sem allir
fuUyrtu, að sérhver nefnd-
armaður og ýmsir fulltrú-
ar GIVF sætu kófsveittir
við skriftir, við að gefa út
leyfi upp á eigin spýtur til
vina, ættingja og kunn-
ingja, og án þess að það
kæmi fyrir nefndarfundi?
Hvaða skýring er önnur til
á svona vinnubrögðum ? Eg
trúi því varla, að þeir hafi
verið SVO kærulausir og
heimskir, (við öUu er ]>ó að
búast), að þeir hafi gefið
út leyfin á síldarpeninga, á
meðan sUdin var enn ó-
veidd einhversstaðar úti í
hafi. Það þætti líklega ekki
gáfulegt af embættislaus-
um almúgamanni, sem spil-
aði til dæmis í háskólahapp
drættinu, ef hann tæki upp
á þeim skratta að fara að
•eyða og sóa háum vinningi
áður en búið væri að draga
og áður en hann vissi hvort
vinningurinn félU í hans
lilut.
Það er margt, sem bend-
ir til þess, að vinnubrögð
GIVF hafi fyrr og síðar
verið með þeim endemum,
að slíkt og þvílíkt sé ó
þekkt á nokkurri annarri
0 opinberri skrifstofu hér á
landi, og er þá mikið sagt.
Mín reynsla er að minnsta
kosti sú, að ég hef aldrei
kynnzt annarri eins upp
lausn, ókurteisi og ósann
sögU. Þetta stafar eflaust
ekki af lélegu innræti eða
eðU starfsfólksins, því
sumir hver^r eru alúðin
sjálf ofan í tær, en það virð
ist enginn vita neitt og eng-
inn vera skyldugur tU þess
að taka tilUt til þess, að
tími viðskiptamanna
nefndarinnar sé einhvers
virði. Eg efast ekki um, að
margt af starfsfólkinu
vinni eins og fyrir það er
lagt, og Uka þegar það
skrökvar því að okkur, að
þeir menn séu ekki við, sem
spurt er eftir. Ekki veit ég,
hver réð því, að aldrei
þurfti ég að búast við því,
að ég fengi svar við um-
sókn, sem ég sendi inn til
GIVF á þeirra eigin eyðu-
blöðum. Maður varð að
fara aftur og aftur í bið-
raðir, til þess að fá að tala
við þá háu herra, sem
„tóku á móti“, og ef þeir
fengust til viðtals, þá varð
að knékrjúpa fyrir þeim,
og helzt að kyssa þá á stóru
tána og bið ja þá náðarsam-
legast að svara umsóknun-
um. I hverri ferð varð ég
að leggja inn afrit af um-
sókninni, því auðvitað kom
það ekki til mála, að hægt
væri að finna þær umsókn-
ir, sem áður var búið að
leggja inn. Nefndarmenn-
irnir, sem voru útblásnir af
elskulegheitum, lofuðu að
TAKA UMSÓKNINA FYK
IR Á FUNDI, því þetta var
stórt útflutningsfyrirtæki,
sem ég sótti um fyrir. Ekki
var hægt að afgreiða MIG
á stundinni, því ég var ekki
í neinum f jölskyldutengsl-
um við neinn þeirra og
hafði sóma míns vegna
forðazt að komast I kunn-
ing -iskap við meðlimi GIVF.
Þessar ferðir var maður
neyddur til þess að END-
URTAKA nokkrum sinn-
um, því auðvitað kom ekk-
ert svar, þrátt fyrir gefin
loforð.
Stundum stríddu þeir
mér með þvl í nokkrar vik-
ur að segja, að umsóknin
lægi hjá Fjárhagsráði til
umsagnar, en þegar ég fór
þangað ,sagði Fjárhagsráð,
að mnsóknin væri hjá
GIVF. Það var innilega
leiðinlegt að rölta á miUi
þessara herra og láta hafa
sig þannig að fífli, þar sem
ég vissi, að hvorugur aðil-
inn treysti sér til þess að
finna umsóknina eða
nennti því ekki, og þótti
því þægilegra að taka ó-
sannindin í þjónustu sína.
Það var heldur ekki heigl-
um hent að ná tali af
„æðstu prestunum“, því t.
d. í Fjárhagsráði þurfti
maður fyrst að snúa sér til
láglegrar stúlku, sem sat
inni í afgirtum krók, og
hafði það hlutverk áð vtsa
váðskiptavinum ’ inn til
manns, sem var í öðru her-
bergl og hafði þann starfa
að vísa okkur viðskiptavin-
unum inn til fulltrúans, sem
ekki var við, eða þá upp-
tekinn á fundi úti í bæ.
Lokasennan stóð svo um
það; nefndarmenn sögðu
leyfið vera afgreitt, en af-
greiðslustúlkurnar sóru og
sárt við lögðu, að það hefði
ekki komið fyrir augu
þeirra. Það var oft erfitt
að fá þessa tvo aðila til
þess að syngja sömu rödd,
en ég er helzt á því, að
stúlkurnar hafi haft rétt-
ara fyrir sér, nema hvað
þær leituðu stundum mjög
kæruleysislega í tugum eða
hundruðum leyfa, sem ekki
virtist raðað eftir stafrófs
röð. En ég gerði mér í hug-
arlund, að þeim leiddist
innilega þessi sísuðandi
mannskapur fyrir framan
borðið, og mér fannst það
nærri því eðlilegt, því þeir
voru oft fram úr hófi þrá-
ir. Oftast fékkst þó leyfið
tveim til f jórum mánuðum
síðar en bráðnauðsynlegt
var.
Eitt vorið, þegar ég var
að eltast við stúlkumar hjá
GIVF og néfndina sjálfa,
varð ég þess vís, að mikil
og óhugguleg pest geisaði
um höfuðstaðinn. Ekki
vissi ég, hvernig hún verk-
aði á sjúklingana, en bólu-
setningar og súlfatöflur
dugðu víst ekki til þess að
lækna.
Hið eina, sem virtist
duga, var að senda sjúkl-
ingana til útlanda sér til
heilsubótar. — Hundruð
manna stormuðu upp í
skrifstofur GIVF og veif-
uðu læknisvottorði framan
í starfsfólkið og kröfðust
þess að fá erlendan gjald-
eyri út á þessi plögg, svo
þeir mættu lífi og limum
halda. Auðvitað urðu svona
alvarleg tilfelli!! að ganga
fyrir öðrum ónauðsynlegri
greiðslum. Allir aðrir en
meðlimir GIVF vissu upp
á sína tíu fingur, að hér
voru óheiðarleg vottorð á
ferðinni. GIVTF jós pening-
um á báða bóga I þessar
heilsubótarferðir. Eg er
ekki að fárast yfir því, að
Islendingar fái tækifæri til
þess að fara utan og skoða
sig um, því að það er hollt
og nauðsynlegt hverjum
manni; é g er aðeins að
benda á það furðulega fyr-
irbæri, að eltki var hægt að
fá til þess leyfi nefndarinn
ar nema með blekkingum.
Og furðulegt var það, að
læknar skyldu fást til þess
að misnota ábyrgðarstöðu
sína í þjóðfélaginu og mis-
bjóða virðingu sinni með
slíkum ritstörfum. Þegar
svo GIVF fór að skammast
sín fyrir þetta, sneri hún
blaðinu svo hreinlega við,
að oft var erfitt að fá g jald
eyri til lækninga í lífsnauð-
syn, nema með ærinni fyr-
irhöfn.
En það þarf ekki vottorð
tU þess að blekkja GIVF,
því enn þann dag í dag fer
fólk út um allar álf ur í lúx-
usflakk með bíla sína, fólk,
sem gerir sér það að reglu
að FARA ÁRLEGA til út-
landa að gamni sínu. Það
má vel vera, að sumir þess-
ir flækingar biðji ekki imi
neinn gjaldeyri og geti far-
ið án þess. En ég hef aldrei
heyrt þess getið, að gjald-
eyriseftirlitið spyrji þá við
heimkomuna fyrir hvaða fé
þeir hafi lifað og leikið sér.
Það er víst engum, sem
kemur það við, og ef til
viU hefur gleymzt að setja
ákvæði um það í lagabók-
stafinn. Þess ber og að
gæta, að gjaldeyrisþjófarn-
ir eru meira og minna úr
öUum stjórnmálaflokkun-
um og þessi „smáatriði“
eru því dregpn út úr deilu-
málunum, af því að þau
eru kaup-kaups, eins og svo
margt annað, sem sam-
komulag næst um að þegja
yfir í öUum stjórnmála-
flokkunum.
GIVF á líka mikia sök á
þessu, þar sem ýmsir telja
það ekld saknæmt að draga
erlendan gjaldeyri undan
handarjaðri þeirra, vegna
þess að nefndin noti hann
hvort sem er aðeins á rang-
látan og fyrirlitlegan hátt
handa vinum sínum og
kunningjum, án tiUits til
þess, hvar þörfin sé brýn-
ust.
Innflutningur á liðnum
árum hefur verið furðuleg-
ur. Það er oft búið að skrifa
um það, að GIVF virðist
aldrei liafa gert sér það
Ijóst, hvað okkur Islending
um væri liollt að flytja inn
margar bifreiðar. Enn
þann dag í dag er verið að
flytja inn nýjar lúxusbif-
reiðar. Það er víst ekki
nærri komið nóg. En liverj-
ir fá að flytja inn þessa
vöru? Vinir og kunningjar?
Það er að minnsta kosti
þýðingarlaust fyrir hvern
óbreyttan borgara að
sækja um leyfi til þess. Ef
umsækjandi er ókunnur,
heiðarlegur og hrekklaus,
og vill ekki fara neinar
krókaleiðir, þá fær hann að
eins blátt eg kalt N(EI, og
það er jafnvel hlegið að
barnaskap hans. Nei, það
er jafn nauðsynlegt fyrir
hann að.fágott „samband“
Framhald 4 7. siðu.