Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.2005, Side 6
6 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 29. október 2005
JÓHANNES S. Kjarval er án efa höfuðlista-
maður Íslands enda sá listamaður sem hefur
grafið sig hvað dýpst inn í íslenska náttúru og
jafnvel kennt Íslendingum að horfa á náttúruna
og meta hana. Hann var jafnframt hæfileikarík-
astur af frumherjum okkar og í ábæti var hann
sérvitur mjög sem hefur gert hann að mestu
goðsögn íslenskrar myndlistarsögu. En sér-
viska listamanna hefur alltaf verið stór þáttur í
því að skapa goðsögur þeirra, s.br. Rembrandt
Van Rijn, Leonardo da Vinci, Michaelangelo,
Vincent Van Gogh og svo má lengi telja.
Sýningar á verkum Jóhannesar Kjarvals
hafa verið tíður viðburður á Kjarvalsstöðum og
gegn um tíðina hefur hann verið mest sýndi
myndlistarmaðurinn á Íslandi. Utan fastra sýn-
inga úr safneigninni í austursal safnsins hefur
safnið þó ekki verið lagt undir verk meistarans
á þessari öld fyrr en nú. Sýningin er haldin í til-
efni þess að 120 ár eru liðin síðan Kjarval fædd-
ist. Nefnist sýningin „Essens“ sem er fengið úr
engilsaxnesku og þýðir „Kjarni“. En Kjarval ku
sjálfur hafa notast við orðið „Essensisma“ sem
kjarna lífs og tilveru sem væri að finna í listinni.
Það er ekki vandalaust að ætla að setja upp
enn eina yfirlitssýningu á listaverkum Kjarvals
á Kjarvalsstöðum og vill sýningarstjóri væntan-
lega gefa verkum hans einhverja nálgun sem
hvetur fólk til að koma. Hefur Eiríkur Þorláks-
son, sýningarsstjóri og fyrrverandi forstöðu-
maður Listasafns Reykjavíkur ákveðið að höfða
til sem breiðasta hóps og vekja áhuga nýrra
kynslóða á Kjarval. Hann gerir verkum hans
nokkuð skörp og aðgengileg skil. Teikningar og
vatnslitamyndir eru sýndar í Norðursal. Í mið-
rýminu eru nokkur verk Kjarvals sett í sam-
hengi við ýmsa atburði mannkynssögunnar til
að varpa ljósi á hve langan tíma listferill hans
spannar. Verkunum í aðalsýningarsölunum er
síðan skipt í flokka. Austursalur er merktur
„Lífið í landinu“ og skiptist í 4 flokka. Þar er
margt um draumkenndar og dularfullar
áherslur hjá listamanninum sem tengjast trú og
þjóðsögum. Fyrst ber að nefna flokkinn „Á
hulduströnd“ sem inniheldur verk eins og
„Skógarhöllin“ (1918), „Flugþrá“ (1935–54) og
„Á hulduströnd “ (1935). Annar flokkur nefnist
„Úti og inni: Fyrirburðir í hrauni“ og hefur að
geyma ýmsar af felumyndum listamannsins. Sá
þriðji nefnist „Ævintýri um ævintýri“ og fjórði
flokkurinn er „Hver er maðurinn?“ sem saman-
stendur af portrettmyndum. Vestursalurinn er
svo undirlagður landslagsmálverkum og er
þeim skipt eftir landsvæðum. Þ.e. „Þingvellir“,
„Snæfellsnes“, „Nágrenni Reykjavíkur“ og
„Fyrir austan“.
Margskonar gullkorn sem meistarann hefur
látið hafa eftir sér eða ritað sjálfur eru skrifuð
hátt á veggi sýningarsalanna og spurningar fyr-
ir börn ritaðar í um metrahæð pirruðu mig all-
nokkuð. Það hlýtur að vera önnur leið til að ná
til barnanna og gera málverkin spennandi fyrir
þau en að skrifa gátur á veggina þar sem mynd-
irnar hanga. Uppsetningin virkar annars eins
og kaflaskipt bók.
Hvað verkin varðar virðist hvert lykilverkið
fylgja á eftir öðru svo ég velti fyrir mér hvaða
listaverk þessa höfuðlistamanns Íslands sé hið
raunverulega íslenska listaverk, eins og „Ópið“
er hjá Edward Munch, „Næturverðirnir“ hjá
Rembrandt, „Davíð“ hjá Michelangelo, „Mona
Lísa“ hjá Leonardo o.s.frv. Sennilega er það
„Fjallamjólkin“. Hún er allavega fremsett á
besta stað í vestursalnum, til móts við inngang-
inn. Hún er líka umræddasta listaverk Kjarvals
eftir að MOMA vildi kaupa það á sínum tíma en
Ragnar í Smára kom í veg fyrir það, eins og
frægt er orðið. Fjallamjólkin er líka oftast per-
Aldrei nóg af Kjarval
MYNDLIST
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir
Opið alla daga frá 10–17. Sýningu lýkur 19. mars
2006.
Jóhannes S. Kjarval
„Bláberjahrísla á Snæfellsnesi“ Glöggt má sjá á sýningunni hve heildrænn listamaður Kjarval hefur verið.
NÚ stendur yfir í Gerðarsafni sýning á grip-
um og listaverkum úr eigu Romanov-ættar-
innar sem var við völd í Rússlandi í þrjár aldir.
Persónulegur smekkur og áhugasvið hinna
ýmsu Romanova átti ekki hvað síst þátt í að
móta rússneska listasögu, allt fram yfir alda-
mótin 1900 þegar víðsýni og undanlátssemi
Nikulásar annars varð óbeint hluti af atburða-
rásinni sem varð til þess að honum var steypt
af stóli 1917 og öll fjölskyldan líflátin árið eftir.
Tími Romanovanna við völd í Rússlandi
hófst árið 1613 með Mikhail Fjodorovitsj en
það var þó tæpast fyrr en með tilkomu Péturs
mikla á síðari hluta 17. aldar að Romanovarnir
fóru að setja mark sitt fyrir alvöru á listalíf og
menningu rússnesku þjóðarinnar. Pétur mikli
opnaði Rússland fyrir Evrópu, með því að leita
til vesturs eftir listamönnum og arkitektum og
ekki síst með því að senda innfædda til Evr-
ópu til náms. Pétur mikli lét byggja Péturs-
borg og næstu aldirnar létur Romanovarnir
byggja sér hallir í gríð og erg, vetrarhallir en
ekki síður hallir og hús á borð við sumardvala-
staðinn Tsarkoje Selo en það var Elísabet
dóttir Péturs sem lét byggja þar þegar hún
tók við völdum 1714. Íburðurinn og magn inn-
fluttra og innlendra listaverka voru gífurleg
en Elísabet hreifst mjög af barokkstefnunni.
Katrín önnur eða Katrín mikla, en á hennar
tíma óx veldi Rússlands mjög, var við völd síð-
ar á 18. öld. Hún safnaði miklum fjölda lista-
verka sem hún hafði til sýnis í höllum sínum.
Smekkur Katrínar var annar og strangari og
mótaði mjög allan arkitektúr hennar tíma. El-
ísabet og Katrín voru báðar hrifnar af skart-
gripum og skrautmunum. Elísabetu var í mun
að koma á laggirnar postulínsverksmiðju og
Katrín fylgdi starfi hennar eftir. Elísabet kom
einnig af stað vefnaðarframleiðslu af bestu
gerð, þar sem framleitt var silki sem jafnaðist
á við það franska, að öllum líkindum undir
stjórn erlendra vefara. Þegar Pétur mikli tók
við á 17. öld leið málaralistin í Rússlandi fyrir
sterka íkonahefð og átti erfitt með að taka
stökkið frá henni og inn í málaralist Evrópu.
Erlendir málarar sem settust að í Rússlandi
flýttu þó fyrir þeim breytingum sem áttu sér
stað með auknu frjálsræði. Í Gerðarsafni eru
flest málverkanna eftir erlenda málara, en líka
eftir innlenda, td. málverk af Pétri mikla eftir
einn af þeim sem hann sendi erlendis til náms,
Ivan Nikitin. Katrín fyrsta kom listaskólanum
sem Pétur hafði sett á laggirnar skrefi lengra,
en Katrín mikla gerði hann að Akademíu
fagurlista 1767. Hún lagði áherslu á að mark-
mið lista ætti að vera að sýna dyggðir og
hetjudáðir, því miður lagði hún ekki áherslu á
persónulega þróun listamanna. Eitt af því sem
lífgaði upp á listirnar á 19. öld var aukin út-
breiðsla bóka og prentmynda, svokallaðra „lu-
bok“ en með þeim komu líflegri litir. Sögulegt
málverk og landslagsmálverk varð síðan til á
nítjándu öld, helst með tilkomu einstakra
listamanna. Þegar komið var fram á nítjándu
öld varð aukin þjóðfélagsleg meðvitund einnig
til þess að listamenn fóru í auknum mæli að
mála listaverk sem ekki hefðu passað inn í
safn Romanov-ættarinnar vegna vaxandi and-
stöðu við ríkjandi stjórnarfar. Þau listaverk
sem sjá má í Gerðarsafni takmarkast auðvitað
við eign fjölskyldunnar og er ekki ætlað að
birta mynd af rússneskri listasögu.
Sýningin í Gerðarsafni er valin og sett upp
af starfsfólki Ríkisminjasafnsins í Tsarkoje
Selo og sýnir margt þaðan. Hún er sett upp í
tímaröð og vert að fylgja þeirri uppsetningu
við skoðun hennar. Það er vægast sagt
skemmtilegt að skoða það samansafn mál-
verka, búninga, skrautmuna og borðbúnaðar
sem svo vel er stillt upp í safninu. Hið sögu-
lega gildi þessara muna eykur mjög a drama-
tíkina, tilkomumikill íburðurinn og síðan
hörmuleg endalok fjölskyldunnar snerta
áhorfandann um leið og ekki er annað hægt en
að dást að fegurð og handbragði þeirra muna
sem sýndir eru. Hér eru ekki málverk eftir
bestu málarana en þau verk sem sjá má gefa
góða mynd af umhverfi fjölskyldunnar. Mál-
verk Rotokovs af Katrínu miklu hefði auðgað
sýninguna en það er staðsett í öðru safni. En
málverkið af Nikulási öðrum er skemmtilega
Fjölskyldualbúm
Morgunblaðið/Sverrir
Gerðarsafn „Sýningin er eins og rússíbani gegnum þrjár ótrúlegar aldir í sögu Rússlands og um leið
kynning á mögnuðum persónum í mannkynssögunni,“ segir í umsögn Rögnu Sigurðardóttur.
MYNDLIST
Gerðarsafn
Til 4. desember. Opið alla daga nema mánudaga frá
kl. 11–17.
Tími Romanov ættarinnar í Rússlandi