Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.2005, Qupperneq 8

Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.2005, Qupperneq 8
K enning Darwins um uppruna tegundanna var sett fram sem líffræðikenning til að út- skýra tilurð og eiginleika dýra og jurta. Hún er und- irstaða nútímalíffræði. En kenningin hefur ekki aðeins haft áhrif innan líffræðinnar heldur líka innan sálfræði, mann- fræði, félagsfræði og fleiri vísinda sem fjalla um mannlífið. Sjálfur ritaði Darwin um mannfræði í bók sinni um Ætterni mannsins (The Descent of Man) sem út kom árið 1871. Þar tekur hann af öll tvímæli um að mennirnir eru hluti af því lífríki sem hann fjallaði um í Uppruna tegundanna og það sem þar segir um eðlishvatir dýra og hvernig þær hafa þróast fyrir náttúruval á líka við um lyk- ilþætti í sálarlífi manna. Raunar víkur Darwin að þýðingu kenningar sinnar fyrir mannvís- indin á síðustu blaðsíðunum í Uppruna teg- undanna þar sem hann segir: Ég held að ný og margfalt mikilvægari rannsókn- arsvið verði til í náinni framtíð. Sálfræðin verður byggð á nýjum grunni, þar sem litið verður svo á að andlegir eiginleikar og hæfni myndist hægt og sígandi. Og nýju ljósi verður brugðið á sögu og uppruna mannsins. (Bls. 659) Eins og nefnt var í fyrri pistli tengdist þró- unarkenning Darwins ýmsum öðrum hug- myndum um sögulega framvindu sem á kreiki voru á seinni helmingi nítjándu aldar. Orðið darwinismi var notað um alls konar þróun- arkenningar, ekki bara þá skoðun að nátt- úruval hefði mótað lífríkið. Margir reyndu að nota darwinisma í þessum víða skilningi til að rökstyðja misgæfulegar stjórnmálaskoðanir. Til dæmis var reynt að réttlæta nýlendu- stefnu Evrópumanna á þeim forsendum að hvíti maðurinn sé „þróaðri“ en t.d. Afríkubúar og það sé í þágu framfara að „þróaðri“ verur ryðji þeim „vanþróaðri“ úr vegi. Tilraunir nítjándu aldar manna til að nota líffræðilegar þróunarkenningar til að rök- styðja stjórnmálaskoðanir eða hugmyndir um mannlífið og mannlegt samfélag eru stundum kallaðar einu nafni félagslegur darwinismi. Hugmyndir af þessu tagi hafa hlotið heldur slæm eftirmæli og gjarna verið tengdar við kynþáttafordóma, hernaðarhyggju, andstöðu gegn velferðarþjónustu og fátækrahjálp og tilraunir til að réttlæta ofbeldi og óréttlæti með þeim rökum að það sé afleiðing nátt- úrulögmála sem ekki tjói að vinna gegn. Vissulega álitu sumir talsmenn félagslegs darwinisma að stríð stuðlaði að þróun mann- kynsins með því að öflugar og sterkar þjóðir útrýmdu þeim aumu og vesælu og sumir þeirra álitu líka að stétt manna og þjóðfélags- staða tengdist atgervi sem gengi að erfðum: Fátækt, sjúkdómar og slæm félagsleg staða væru til marks um lítið atgervi og ef aðstoð við þá sem standa höllum fæti yrði svo mikil að þeim yrði gert auðveldara að auka kyn sitt mundi stofninum hnigna því afkvæmi undir- málsmanna yrðu að jafnaði undirmálsmenn. Best væri því að haga samfélagsskipaninni þannig að lélegasta fólkið hefði sem minnsta möguleika á að fjölga sér. Í nafni svona hug- mynda var talsvert gert af því að gelda þroskaheft fólk langt fram eftir tuttugustu öld. Darwin orðaði sjálfur hugmyndir í þessa veru í bók sinni Ætterni mannsins þar sem hann segir (í 5. kafla þar sem fjallað er um áhrif náttúruvals á siðmenntaðar þjóðir) að í siðmenntuðu samfélagi eignist aumustu ein- staklingarnir börn og enginn sem hafi kynnt sér ræktun húsdýra vefengi að þetta hafi slæm áhrif á mannkynið. Á síðustu áratugum nítjándu aldar og fyrri hluta þeirrar tuttugustu áttu fasismi og kommúnismi vaxandi fylgi að fagna meðal evrópskra menntamanna. Þetta var tími harðra átaka og mikilla öfga í stjórnmálum álfunnar og talsmenn alls konar stjórn- málakenninga reyndu að nota vísindalega þekkingu til að rökstyðja sinn málstað. Þetta á jafnt við um frjálshyggjumenn á borð við Herbert Spencer (1820–1903) í Bretlandi; jafnaðarmenn eins og August Bebel (1840– 1913) í Þýskalandi; og upphafsmenn fasisma og kynþáttahyggju eins og Frakkann Gustave Le Bon (1841–1931). Líffræðilegur skilningur á mannlífinu og hugmyndir um þróun voru einnig notaðar af konum sem mæltu fyrir jöfnum rétti karla og kvenna eins Clémence- Auguste Royer (1830–1902) í Frakklandi og af körlum eins og Friedrich Nietzsche (1844– 1900) sem andmælti jafnrétti á þeim for- sendum að það veikti mannkynið og ýtti undir hnignun þess. Félagslegur darwinismi er ekki nein ein stjórnmálaskoðun heldur fjölbreytilegar til- raunir til að skilja menningu, trúarbrögð, stjórnmál, samfélagsþróun og sálarlíf manna á þeim forsendum að maðurinn sé háður lög- málum líffræðilegrar þróunar rétt eins og aðrar dýrategundir. Þótt félagslegur darwin- ismi sé þekktastur fyrir heldur harðneskjuleg viðhorf sem haldið var fram í nafni hans er hann einfaldlega of fjölbreytilegur til að hægt sé að alhæfa mikið um áhrif hans á stjórnmál og stjórnmálahugsun. Um þetta segir Mike Hawkins í bók sinni Social Darwinism in European and American Thought 1860–1945: „Af því einu að einhver aðhyllist félagslegan darwinisma er ómögulegt að álykta neitt um viðhorf hans eða hennar til hernaðar, kapítal- isma, kynþátta, heimsvaldastefnu eða fé- lagslegrar stöðu kvenna, enda rúmar þessi sýn á heiminn andstæðar skoðanir um öll þessi efni og mörg önnur.“ (Cambridge Uni- versity Press 1997, bls. 35) Þess er áður getið að sumir notuðu þróun- arkenningar til að réttlæta hernaðarhyggju. Þetta á til dæmis við um Le Bon sem áleit að stríð milli þjóða og kynþátta væru forsenda þróunar og framfara. Aðrir höfnuðu þessu. Til dæmis var frjálshyggjumaðurinn Herbert Spencer friðarsinni og hélt því fram að stríð stuðluðu að hnignun mannfólksins því hraust- ustu strákarnir færu á vígvöllinn og féllu án þess að eignast börn, en vesalingarnir yrðu eftir heima hjá kvenfólkinu. Spencer er lík- lega frægasti talsmaður félagslegs darwin- isma á nítjándu öld og í hugum margra er stefnan nátengd nafni hans og orðalaginu „survival of the fittest“ sem hann er höfundur að. Spencer var þó ekki neinn darwinisti í nú- tímaskilningi því hann mótaði hugmyndir sín- ar að mestu leyti áður en Uppruni tegund- anna kom út og fylgdi þróunarkenningu Lamarcks. Eftir að hann las bók Darwins áleit hann, eins og Darwin sjálfur, að bæði náttúruval (eiginlegur darwinismi) og erfðir áunninna eiginleika (lamarckismi) hefðu hlut- verki að gegna. Áherslan var þó fremur á þró- unarkenningu í anda Lamarcks, enda taldi Spencer að samkeppni mundi bæta mann- kynið þar sem hún fengi menn til að leggja sig fram og sú aukna hæfni sem af því leiddi gengi í arf. Meðal annars vegna þess hvernig fé- lagslegur darwinismi tengist stjórnmála- stefnum sem enn vekja sterk tilfinninga- viðbrögð er afar umdeilt að hve miklu leyti líffræðilegar kenningar um þróun mannsins eiga réttmætt erindi inn á svið félagsvísinda. Á síðustu áratugum hefur félagslíffræði (sociobiology) þó verið í nokkurri sókn sem segja má að hafi byrjað árið 1975 með útkomu bókarinnar Sociobiology: The New Syntehsis eftir Edward O. Wilson. Kenningar Wilsons hafa sætt harðri gagnrýni af hálfu annarra fé- lagsvísindamanna. Segja má að talsverður hluti af andmælum þeirra sé af svipuðu tagi og andófið gegn félagslegum darwinisma nítjándu aldar þar sem Wilson er bæði fundið það til foráttu að hann einfaldi flókinn veru- leika meira en góðu hófi gegnir og að hann geri margt af því slæma í mannlífinu, eins og ofbeldishneigð karla og ótryggð þeirra í ást- armálum, að náttúrulögmáli. Að baki síðarnefndu andmælunum býr ef til vill sú hugsun að hvaðeina sem á sér nátt- úrulegar orsakir sé óhjákvæmilegt og því von- laust að vinna gegn því. Þetta er vitaskuld misskilningur. Þótt náttúrulegar orsakir séu fyrir ýmsu sem aflaga fer er ekki þar með sagt að það sé óhjákvæmilegt. Það eru til dæmis líffræðilegar skýringar á því að menn sem eru rauðhærðir og ljósir á húð sólbrenna fremur en þeir sem hafa dökkt litarhaft og svart hár. Af þessu leiðir vitaskuld ekki að rauðhausar séu dæmdir til að sólbrenna held- ur að ef þeir eru í mjög björtu sólskini ættu þeir annaðhvort að klæða sig eða nota öfluga sólvörn. Á sama hátt ættu náttúrufræðilegar skýringar á því að karlar eiga það til að beita konur ofbeldi ekki að leiða til þess að menn sætti sig við ofbeldið eða telji ekkert við því að gera. Rökrétt viðbrögð væru fremur að finna leiðir til að vinna gegn ofbeldishneigð- inni og ala stráka upp í að riddaramennska sé karlmannleg og það sé skammarlegt að níðast á konum. Á síðustu árum hefur sýn fræðimanna á darwinisma í stjórnmálahugsun nítjándu ald- ar breyst. Menn gera sér nú ljóst að þótt hug- myndir um líffræðilega þróun hafi sums stað- ar verið vatn á myllu vafasamra afla er ekki þar með sagt að það hafi að jafnaði haft slæm- ar afleiðingar þegar kenning Darwins hefur verið notuð til að varpa ljósi á mannlífið. Hitt er sönnu nær að alls konar stjórnmálafylk- ingar reyndu að nýta nýjustu vísindi málstað sínum til framdráttar. Líffræðilegur skiln- ingur á mannlífinu var til dæmis bæði notaður til að færa rök með hernaðarhyggju (Le Bon) og á móti henni (Spencer), með kvenrétt- indum (Royer) og á móti þeim (Nietzsche). Jafnframt því sem saga félagslegs darwin- isma á nítjándu öld hefur verið tekin til end- urskoðunar á allra síðustu árum hafa líf- fræðileg sjónarmið unnið á innan félags- vísinda, einkum sálarfræði. Nú er næstum ein og hálf öld síðan hið mikla rit Darwins um Uppruna tegundanna kom fyrir almennings sjónir. Samt held ég að áhrif hugmyndarinnar um að maðurinn sé hluti af lífríki sem hefur mótast fyrir náttúruval séu engan veginn öll komin fram. Svo róttæk breyting á hug- myndum manna um sjálfa sig og lífið á jörðinni tekur nokkrar kynslóðir. Byltingu Darwins er ekki lokið. Hún stendur enn yfir og enginn veit hvaða afleiðingar hún mun hafa innan sálfræði, félagsfræði og annarra mann- vísinda. Félagslegur darwinismi Tilraunir nítjándu aldar manna til að nota líf- fræðilegar þróunarkenningar til að rök- styðja stjórnmálaskoðanir eða hugmyndir um mannlífið og mannlegt samfélag eru stundum kallaðar einu nafni félagslegur darwinismi. Hér er haldið áfram að fjalla um áhrif bókar Darwins um Uppruna tegund- anna. Eftir Atla Harðarson atli@fva.is Reuters Hraustu strákarnir „Til dæmis var frjálshyggjumaðurinn Herbert Spencer friðarsinni og hélt því fram að stríð stuðluðu að hnignun mannfólksins því hraustustu strákarnir færu á vígvöllinn og féllu án þess að eignast börn, en vesalingarnir yrðu eftir heima hjá kvenfólkinu.“ Höfundur er heimspekingur. Uppruni tegundanna #3 Bróðir minn tók ekki annað í mál en að vernda mig. Hann keypti handa systur sinni kjól, sokkabuxur og kápu. Handa sjálfum sér hníf. Þú er litla systir mín. Ef einhver nauðgar þér mun ég opna líkama nauðgarans og hræra í kviðnum með þessum hér. Ég hlakka til. Ég hlakka til. Vonandi að einhver nauðgi þér, litla systir. Ó, nei, ég er grínast. En ef það gerist, ef það gerist, litla systir, þá á bróðir þinn hníf. Sæirðu mig í anda myrða saklausa persónu. Nei, bróðir, þú er hjartahreinn og ég elska þig. Hann kyssti mig á ennið. Ég kyssti hans. Við fórum út að ganga. Í fyrsta sinn í fallega kjólnum og nýju kápunni. Bróðir minn í gallabuxunum og leður- jakkanum með hnífinn í vasanum. Okkur leið vel. Við vorum sjálfsörugg einsog ríka fólkið. Dimmblár himinninn leit útfyrir að vera regnhlíf sem verndaði okkur fyrir hinu illa sem er handan mannlegs máttar. Loftið snerti hár mitt og andlit sem aldrei fyrr og ég hreinlega elskaði lyktina af nóttinni, bensíninu, framandi ilmvötnum og rakspírum, pönnusteikingum og fjölbreyttri eldamennsku, saltaðri hafgolunni. Hvar erum við, spurði ég bróa en mér virtist sem við hefðum ratað inní lukkunnar heim frels- isins fyrir eintóma tilviljun. Hann hvíslaði í eyra mitt: Ég er bróðir þinn sem mun alltaf vernda þig, litla systir. Ég er ekki svikari. Ég er bróðir þinn. Takk bróðir. Og ég er með hníf í vasanum. Takk bróðir. Lyktin af orðunum hans var sú sama og af tvítugum strák sem reykir tíu vindlinga á dag, drekkur þrjá, fjóra bjóra og notar piparmyntutyggjó. Sú lykt. Sú sama. Við héldum áfram göngu vorri. Tunglið í fótspor vor. Síðhærðar konur rannsakandi mig. Rannsakandi hann með rannsóknarlögreglu- legum augum. Hórumangararnir líka rannsakandi okkur. Hvort við vær- um raunveruleg eða gestir úr öðrum heimi, annarri plánetu, en ég hefði verið meira en til í að koma til borgarinnar frá annarri plánetu í félagi við bróður minn. Við tvö. Við gengum inná hótel og bókuðum herbergi. Núm- er hvað man ég ekki. Settumst þögul á hjónarúmið og störðum á vaskinn á meðan bróðir minn lagði handlegginn utan um axlir mér. Ég er með hníf í vasanum, sagði hann áður en hann snerti mig með kossi. Kristín Ómarsdóttir Einu sinni saga Höfundur er rithöfundur. 8 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 29. október 2005

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.