Morgunblaðið - 03.01.2005, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 2005 43
Örlagalínan 908 1800 & 595 2001.
Miðlar, spámiðlar, draumráðning-
ar, tarotlestur. Fáðu svör við
spurningum þínum. Örlagalínu-
fólkið er við frá 18-24 öll kvöld
vikunnar. Vísa Euró, s. 595 2001.
Stratatæki. Nýlegt og lítið notað
stratatæki til sölu. Uppl. í síma
698 5206.
NÝTT NÝTT NÝTT
Viltu léttast hratt og örugglega?
Anna Heiða léttist um 35 kg, ég
um 25 kg, Dóra um 15, þú?
www.diet.is-www.diet.is
Hringdu! Margrét s. 699 1060.
Herbalife/ShapeWorks: Nýtt
lífsstílskerfi. Sérsniðin áhrifarík
prógrömm. Viltu grennast,
þyngjast, öðlast aukna orku?
Óska eftir dreifingaraðilum.
Hanna hjúkrunarfr./höfuðbeina-
og spjaldhr.meðferð/svæðanudd.
S. 897 4181 cranio@internet.is
www.internet.is/heilsa.
Herbalife er sko ekkert plat.
Halló, viltu aðstoð við að ná af
þér kílóum? Þú getur léttst hratt
og örugglega. www.slim.is.
Hringdu 699 7383 og 565 7383.
Herbergi m/húsgögnum á svæði
111. Eldhús, þvottahús, sjónvarp,
Stöð 2, Sýn og internet. Stutt í
þjónustu og strætó. Leigutími
mánuðir eða gistinætur.
Sími 892 2030.
2ja herb. íbúð til leigu. Íbúðin er
leigð með öllum húsgögnum og
húsbúnaði. Um langtímaleigu get-
ur verið að ræða. Íbúðin er í ný-
legu fjölbýlishúsi skammt frá
Kennaraháskólanum og Hlemmi.
Íbúðin er á 1. hæð með sér hell-
ulagðri lokaðri verönd. Á baðher-
bergi er þvottavél og þurrkari.
Mikið skápapláss og einnig er sér
geymsla í íbúð. Einungis reglu-
samir aðilar koma til greina. Íbúð-
in er laus frá 15.1. 2005.
Tilboð ásamt nafni og kennitölu
sendist fyrir 10.1. 2005 á net-
fangið evlaliak@isl.is .
Spánn/Alicante/Torrevieja. Góð
og ný, 2003, íbúð, jarðhæð til
leigu 40 km frá Alicante. Sæki
fólk á flugvöll. Geymið auglýsing-
una. Sólrún, 482 1835/898 1584/
hofs@simnet.is.
12-16 hesta hús óskast til leigu
á stór-Reykjavíkursvæðinu. Fyrir-
framgreiðslu heitið. Upplýsingar
í síma 698 5713.
Jógastöðin Bæjarlind 12, Kópa-
vogi. Námskeið að hefjast. Byrj-
endanámskeið - Framhaldstímar.
Meðgöngujóga. Mjúkar, styrkj-
andi æfingar, slökun og kyrrð.
Kennari Kolbrún Þórðardóttir hjfr.
Sími 861 6317.
www.hjukrunogheilsa.is.
Fjarnám - Heimanám. Þú getur
byrjað hvenær sem er! Bókhald
og skattskil - Launabókhald - VSK
- Excel - Access - Skrifstofu-
tækni - Tölvuviðg. - Photoshop
o.fl. o.fl. S. 562 6212.
www.heimanam.is.
Dáleiðsla - sjálfstyrking.
Frelsi frá streitu og kvíða.
Reykingastopp, afsláttur fyrir
hjónafólk.
Viðar Aðalsteinsson, dáleiðslu-
fræðingur. Sími 694 5494.
Skattskýrslur, bókhald, laun,
vsk, eldri framtöl, stofnun ehf.,
afsöl og fleira. Góð/ódýr þjón-
usta. Sími 699 7371, Lauf ehf.
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslimælar fyrir heitt
og kalt vatn.
Boltís sf.,
s. 567 1130 og 893 6270.
Eldri borgarar - Uppsetning
Myndir, málverk, speglar og
skápar. Hillur í stofu og geymslu
Viðgerðir
Eldhús - Fataskápar - Svalahurðir.
Lími stóla og önnur húsgögn. Skipti
um skrár og lamir í hurðum. Uppl.
í síma 554 0379, Guðlaugur, hús-
asm.
VW árg. '98, ek. 123 þ. km. Ný-
skráður 1/1998. Næsta skoðun
2005. Verð 590 þús. Blár. Bensín,
skráður 5 manna, 1400cc. 5 dyra,
beinskiptur, 5 gíra, 4 heilsárs-
dekk. Uppl. 894 4928.
Nissan Micra, árgerð '95, 4ra
dyra, ekinn 70.000, til sölu. Sjálf-
skiptur, sumar- og vetrardekk, ný
skoðaður.
Upplýsingar í síma 699 3097.
MMC Pajero 2.8Tdi, langur, til
sölu Reyklaus, 7 manna, 5 gíra,
4wd m. læs., nýyfirfarinn af um-
boði og mikið endurn., þjónustu-
bók fylgir, ný heilsársdekk. Vel
með farinn og heillegur toppbíll.
Sími 821 2979.
Aðeins 998.000 kr. Góður og
sparneytinn jeppi á fínu verði.
Opel Frontera, árg. ´98, ek. 96.000
km, dökkblár, beinsk., 5 gíra, hátt
og lágt drif, sjálfvirkar framdrifs-
lokur, álfelgur, dráttarkrókur, NÝ
DEKK, viðhaldsbók, fjarlæsingar,
rafdrifnar rúður og speglar. Bíll
í góðri hirðu frá upphafi. Uppl. í
síma 821 8100.
Korando 2900 túrbó dísel árg.
2000. Til sölu mjög gott eintak af
33" breyttum Korando 4x4. Góður
í snjónum. Verð 1.590 þús. Skipti
skoðuð. Upplýs. í síma 861 5655,
onyx@simnet.is.
Glæsileg ný kennslubifreið,
Subaru Impreza 2004, 4 wd.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
símar 696 0042 og 566 6442.
FJARLÆGJUM STÍFLUR
VALUR HELGASON ehf.
Sími 896 1100 - 568 8806
Röramyndavél til að skoða og
staðsetja skemmdir í frárennslislögnum
DÆLUBÍLL
úr vöskum, wc-lagnir, baðkerum,
niðurföllum, þak- og drenlögnum
Subaru Legacy Sedan, árg. '01,
ek. 36 þús. Vel með farinn. Út-
varp/cd, rafmagn í rúðum, rafm.
útispeglar, vökvastýri, abs, sam-
læsingar, höfuðpúðar í afturs.,
spoiler, dráttarkrókur, vetrardekk
á felgum og sumardekk á álfelg-
um. Uppl. í síma 899 4089.
ROPE YOGA Námskeið
Hefst 5. janúar 2005 að Hólmgarði
34, húsi skátafélagsins Garðbúa.
LEIÐBEINANDI er Katrín Sigurð-
ardóttir ROPE YOGA, kennari.
Skráning og nánari upplýsingar
í síma 8211399 og 5531064 og á
ida@mmedia.is.
Til leigu 90 ferm. íbúð í Málmey
Íbúðin er nálægt miðbænum og
lestarstöð. 20 mínútur til Kaup-
mannahöfn með lest.
Leigist frá 1. febrúar 2005 til eins
árs með eða án húsgagna.
Leiga 65.000 ísl. kr.
Upplýsingar í síma 587 4826.
Andleg leiðsögn, miðlun, tarot,
draumráðningar og huglækning-
ar. Er við frá 13-1.
Hanna s. 908 6040.
mbl.is
ingu ef mikið liggur við. Það virðist
sjálfgefið að svína fyrst í öðrum rauða
litnum, því ef svíningin heppnast, er
slemman örugg með því að fría svo
hinn litinn.
En hvort á að taka svíninguna í
hjarta eða tígli?
Lausn: Það er örlítið betra að svína
í hjartanu fyrst. Ef svíningin mis-
heppnast, verður næsta verk að taka
ÁK í tígli og reyna að fella drottn-
inguna, en auðvitað er líklegra að hún
komi önnur þar sem fimm spil eru úti
en sex. Komi tíguldrottningin ekki,
má enn leita eftir tólfta slagnum í
laufinu. Þessi leið gefur 87% vinn-
ingslíkur.
(6) Fimm hjörtu.
Norður
♠K4
♥D1083 S/Allir
♦ÁD82
♣1093
Vestur Austur
♠DG10763 ♠9852
♥95 ♥7
♦105 ♦KG97
♣KD6 ♣8742
Suður
♠Á
♥ÁKG642
♦643
♣ÁG5
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 hjarta
2 spaðar 4 hjörtu 4 spaðar 5 hjörtu
Pass Pass Pass
Útspil vesturs er spaðadrottning.
Sagnhafi tekur hjartaás í öðrum slag.
Hvernig er best að spila?
Greining: Strax er ljóst að vinn-
ingshorfur sagnhafa eru góðar, en
hitt blasir ekki við að þær séu í reynd
100%. Fyrsta hugmyndin sem kvikn-
ar er mjög líklega þessi: Sagnhafi
spilar trompi á borðið í þriðja slag,
hendir tígli niður í spaðakóng og læt-
ur svo lauftíuna rúlla hringinn.
Vestur fær slaginn og verður að spila
tígli. Svíningin er prófuð, hún mis-
heppnast og austur spilar laufi. Það
verður að hleypa því, en… ekkert
gengur. Vestur á KD í laufi og austur
tígulkóng.
Þessi leið er góð þótt hún mis-
heppnist hér – vinningslíkur eru 88%.
En það er pirrandi að geta ekki tekið
möguleikann á 3-3 legu í tígli inn í
myndina. Og raunar er það hægt með
smávegis breytingu: Það er betra að
taka síðari trompslaginn heima og
svína strax tíguldrottningu. Austur
drepur og spilar laufi, sem er hleypt
til vesturs. Nú verður vestur að spila
tígli, en það er tekið með ás, tígli hent
í spaðakóng og tígull trompaður. Ef
liturinn brotnar er öllu lokið, annars
er svínað aftur í laufi.
Þessi endurbót hækkar vinnings-
líkur upp í 92%.
En við sögðum 100% í upphafi.
Hvernig er sú leið?
Hún er þannig: Sagnhafi tekur
annað tromp (hvorum megin sem er),
tekur tígulás, hendir tígli í spaðakóng
og spilar svo litlum tígli úr borði! Ef
vestur fær slaginn, lendir hann strax í
vandræðum, en hér mun austur
væntanlega taka á gosann. Segjum að
hann spili litlum tígli. Þá hendir suður
laufi og er rétt sama þótt vestur fái
slaginn, því annað lauf fer síðar niður
í tíguldrottningu. Ef austur spilar
laufi, fær vestur slaginn og verður að
gefa slag, hvað sem hann gerir og
hvað sem hann á.
Lokaorð: Við spilaborðið er engin
leið að finna alltaf réttu lausnina í
slíkum spilum, einfaldlega vegna þess
að tíminn er ekki nægur til flókinna
útreikninga. En tilfinningin fyrir
bestu leiðinni kemur með reynslunni.
Guðm. Páll Arnarson
FLENSBORGARSKÓLI braut-
skráði 48 nemendur 18. desember
sl., 46 stúdenta og tvo nemendur af
upplýsinga- og fjölmiðlabraut með
fjölmiðlatækni sem sérsvið
Bestum námsárangri á stúdents-
prófi náði Sigrún Bjarnadóttir sem
var að útskrifast eftir 7 anna nám á
náttúrufræðibraut. Hún hlaut við-
urkenningar fyrir góðan árangur á
stúdentsprófi sem og fyrir dönsku
og íslensku. Auk hennar fengu eft-
irtaldir nýstúdentar viðurkenningar
fyrir góðan námsárangur: Björgvin
Benediktsson fyrir fjölmiðlafræði,
Fannar Gíslason fyrir íþróttir, Guð-
rún Erna Júlíusdóttir fyrir frönsku,
Hjörleifur Þórðarson fyrir þýsku,
Hugrún Ósk Guðjónsdóttir fyrir
námsástundun, Hörður Krist-
jánsson fyrir tölvugreinar, Kjartan
Yngvi Björnsson fyrir ensku og
norsku, Pálmar Garðarsson fyrir
eðlisfræði og náttúrufræðigreinar,
Reynir Örn Reynisson fyrir eðl-
isfræði, Sandra Björg Sigurjóns-
dóttir fyrir félags- og sálfræði,
Steingrímur Atlason fyrir norsku
og Snæbjörn Brynjarsson fyrir rit-
störf.
48 brautskráðir frá Flensborgarskóla
FLUGFÉLAG Íslands hefur í ár, eins og undanfarin ár,
ekki sent jólakort til viðskiptavina. Í stað þess hefur
upphæðin sem sparast við þetta verið gefin til góðs
málefnis. Í ár var það Sjónarhóll sem gefnar voru
300.000 krónur. Sjónarhóll er ráðgjafarmiðstöð fyrir
börn með sérþarfir, sjá nánar á www.sjonarholl.net.
Á meðfylgjandi mynd sem tekin var við afhendingu
styrksins eru Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri
Flugfélags Íslands, Ragna K. Marinósdóttir, formaður
stjórnar Sjónarhóls og Þorgerður Ragnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Sjónarhóls.
Flugfélag Íslands styrkir Sjónarhól