Morgunblaðið - 05.01.2005, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.01.2005, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 2005 19 MINNSTAÐUR Munið að slökkva á kertunum ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄ Er reykskynjari á þínu heimili? Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins ❄ ❄ ❄❄ ❄ ❄ ❄ ❄❄ ❄ SUÐURNES Reykjanesbær | „Já, tvímælalaust. Við unnum alla titla sem í boði voru og sjálf átti ég gott tímabil,“ segir Birna Valgarðsdóttir, fyrirliði körfuknattleiksliðs kvenna í Kefla- vík, þegar hún er spurð hvort síð- asta ár hafi verið hennar besta í körfuboltanum til þessa. Birna var útnefnd íþróttamaður Reykjanes- bæjar á íþróttahátíð Íþrótta- bandalags Reykjanesbæjar. Birna átti gott ár með liði Kefla- víkur í körfuboltanum. Þær urðu Íslandsmeistarar og sigruðu auk þess í bikarkeppninni, Hópbíla- keppninni og urðu deildarmeist- arar og meistarar meistaranna. Birna er ánægð með þetta en segir að eftirminnilegasti atburðurinn frá árinu sé þó Promotion Cup, smáþjóðamótið í körfuknattleik sem fram fór í Andorra, þar sem hún náði því marki að leika sinn fimmtugasta leik með landsliði Ís- lands. Níu leikir hafa nú bæst við og er Birna einum leik frá því að jafna landsleikjamet félaga síns úr Kefla- víkurliðinu, Önnu Maríu Sveins- dóttur. „Ég ætla að ná gömlu kon- unni,“ segir Birna þegar hún er spurð að því hvort metingur sé milli þeirra um landsleikjafjölda. Kom á óvart Birna er fædd á Sauðárkróki fyr- ir bráðum 29 árum og hefur leikið með Keflavík í átta ár. Hún horfir bjartsýn til áframhaldandi vel- gengni á þessu ári. Markmið henn- ar er að bæta sig enn og vinna alla titla sem í boði verða á árinu. „Verður maður ekki að reyna að toppa síðasta ár?“ segir hún. Birna hefur nú um áramótin ver- ið heiðruð á ýmsan hátt. Hún var útnefnd körfuknattleiksmaður Keflavíkur, íþróttamaður Keflavík- ur, körfuknattleikskona ársins hjá Körfuknattleikssambandi Íslands og íþróttamaður Reykjanesbæjar. Hún segir að síðastnefndi titillinn hafi komið mest á óvart og hafi mikla þýðingu fyrir sig í ljósi þess hvað margir afreksmenn í íþróttum séu í Reykjanesbæ. Er þetta í fyrsta skipti sem hún nær þeim titli og segist ekki hafa látið sig dreyma um að ná honum nokkru sinni. Hún er einnig ánægð með að útnefn- inguna sem körfuknattleikskona ársins en hún hefur einu sinni áður verið heiðruð með þeim hætti. Birna vinnur við prentun hjá Margt smátt – Bolur ehf. í Reykja- vík og ekur daglega á milli. Liðið æfir fimm til sex sinnum í viku þannig að ekki er mikill tími eftir fyrir önnur áhugamál. Hún segir að það sé helst að hún nái smátíma með fjölskyldunni eftir æfingar. Margir afreksmenn Jóhann Rúnar Kristjánsson, borðtennismaður úr Íþróttafélag- inu Nesi og ólympíufari, varð í öðru sæti í kjöri íþróttamanns Reykja- nesbæjar og Erla Dögg Haralds- dóttir, sundkona úr Njarðvík, varð í þriðja sæti. Á hátíðinni voru einnig útnefndir íþróttamenn einstakra greina: Sæv- ar Ingi Borgarsson í lyftingum, Daníel Þórðarson í hnefaleikum, Karl Þór Harðarson í siglingum, Birna Valgarðsdóttir í körfuknatt- leik, Jóhann Rúnar Kristjánsson í íþróttum fatlaðra, Örn Ævar Hjart- arson í golfi, Erla Dögg Haralds- dóttir í sundi, Viktoría Sigurð- ardóttir í hestaíþróttum, Selma Kristín Ólafsdóttir í fimleikum, Stefán Gíslason í knattspyrnu, Helgi Rafn Guðmundsson í taek- wondo, Guðni Pálsson í skotfimi og Guðjón Björnsson í badminton. Birna Valgarðsdóttir átti gott ár í körfuboltanum Reynir að gera enn betur Morgunblaðið/Golli Sigurvegari Birna Valgarðsdóttir tekur við fimmta bikar ársins. Reykjanesbær | Karen Valdimarsdóttir leikskólastjóri hefur tekið við rekstri leikskólans Gimli í Njarðvík samkvæmt þjónustusamningi sem hún hefur gert við Reykjanesbæ. Gimli er fyrsti leikskólinn í Reykja- nesbæ sem rekinn er af einkaaðila. Karen sóttist sjálf eftir að taka við rekstri leikskól- ans og naut við það stuðnings foreldrafélagsins. Hug- myndir hennar féllu í frjóan jarðveg hjá stjórnendum bæjarins, meðal annars Árna Sigfússyni bæjarstjóra og Böðvari Jónssyni, formanni bæjarráðs, sem rituðu undir samninginn við hana. „Ég hef starfað í tæp þrjá- tíu ár hjá Reykjanesbæ, þar af rúm tuttugu sem leik- skólakennari. Eftir allan þennan tíma er ég orðin for- vitin að kanna nýtt rekstrarform og er tilbúin að takast á við þetta ögrandi verkefni,“ segir Karen í samtali við Morgunblaðið. „Ég er að sækjast eftir auknu sjálfstæði og frelsi til að auka gæði leikskóla- starfsins. En þessu fylgir einnig mikil ábyrgð,“ segir Karen. Aukið samstarf við heimilin Samningurinn er gerður til eins árs, til reynslu. Karen tekur húsnæði skólans á leigu og fær ákveðna fjárhæð á mánuði hjá Reykjanesbæ til að reka leik- skólann. Börnin eru innrituð hjá leikskólafulltrúa bæj- arins og Gimli innheimtir sömu leikskólagjöld og aðrir leikskólar í Reykjanesbæ. Hún segir að breyting á rekstrarformi eigi ekki að hafa neinar breytingar í för með sér fyrir börnin í leik- skólanum og foreldra þeirra, nema þá til batnaðar. „Meginmarkmið mitt er að auka gæðin. Í þeim tilgangi legg ég áherslu á meira samstarf milli heimilis og skóla,“ segir Karen. Hún leggur áherslu á að hún hafi mikið af góðu fag- fólki og leiðbeinendum í leikskólanum og byggi því á góðum grunni. Tveir kennarar hafa fengið aukið hlut- verk, Guðrún Þorsteinsdóttir er rekstrarstjóri og Guð- rún Sigurðardóttir aðstoðarleikskólastjóri er fagstjóri. Í leikskólanum eru nú 74 nemendur og hann starfar samkvæmt Hjallastefnunni, sem byggir upp þau við- horf í starfi að jákvæðni, gleði og kærleikur ráði alltaf ferðinni. Karen segist hafa notið dyggrar ráðgjafar Margrétar Pálu Ólafsdóttur, höfundar Hjallastefnunn- ar. „Ég tekst á við þetta ögrandi og spennandi verkefni full bjartsýni og jákvæðni,“ segir Karen og kveðst vonast til að þetta fyrirkomulag muni leiða til fram- fara sem nýtist Reykjanesbæ. „En ljóst er að við þurf- um að vanda okkur og vera einlæg, hreinskiptin og ög- uð í vinnubrögðum,“ segir Karen Valdimarsdóttir. Gimli er fyrsti einkarekni leikskólinn í Reykjanesbæ Stefnt að auknum gæðum Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Í leikskólanum Karen Valdimarsdóttir með þremur nemendum sínum sem voru að koma inn af leikvellinum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.