Morgunblaðið - 05.01.2005, Blaðsíða 40
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
ÞAÐ SEGIR MÉR ENGINN
HVAÐ ÉG Á AÐ GERA!
FÁÐU ÞÉR SVOLÍTIÐ
AÐ BORÐA GRETTIR
ÞETTA ER ORÐIÐ FREKAR
VANDRÆÐALEGT
HVIRFILLINN Á
ÞER ER SÆTUR
ÉG VILDI AÐ ÉG
VÆRI ENNÞÁ
UPP Í RÚMI!
ÉG GÆTI HLUSTAÐ Á
VINDINN OG HORFT Á
RIGNINGUNA DYNJA Á
GLUGGANUM. SÍÐAN GÆTI
ÉG DREGIÐ SÆNGINA BETUR
YFIR MIG, LOKAÐ AUGUNUM
OG LÁTIÐ MIG LÍÐA INN Í
DRAUMALAND
Í STAÐINN
STEND ÉG
HÉR, ÚTI Í
RIGNINGUNNI,
OG BÍÐ EFTIR
SKÓLABÍLUM
SEM ER AÐ
FARA MEÐ MIG
Í GÚLAKIÐ!
ÉG VONA AÐ SÆNGIN MÍN
VERÐI ENNÞÁ HEIT ÞEGAR ÉG
FER AFTUR INN
FALLEGT
AF ÞÉR
HOBBES
Bubbi og Billi
HVAÐ ER AÐ
SJÁ YKKUR!!
© DARGAUD
EKKI SEGJA MÉR AÐ ÞIÐ ÆTLIÐ
AÐ SITJA HÉRNA OG HORFA Á
SJÓNVARPIÐ MEÐAN SÓLIN
SKÍN ÚTI
ÚT MEÐ YKKUR! UNGT
OG HRAUST FÓLK Á AÐ
VERA ÚTI AÐ LEIKA SÉR Í
SVONA VEÐRI!!
JÁ,JÁ ÉG
FER EINS
HRATT OG ÉG
GET!
STUNA
STUNA
STUNA
HEYRÐU! ...
BSSSSSS .....
JÁ ALLT Í LAGI
... BSSSS ...
STUNA
Dagbók
Í dag er miðvikudagur 5. janúar, 5. dagur ársins 2005
Víkverji hélt sig aðmestu innandyra
á gamlárskvöld og var
lítilli stúlku til sam-
lætis sem harðneitaði
að fara út fyrir húss-
ins dyr með skyld-
fólkinu og sagðist af
barnslegri hreinskilni
vera hrædd við lætin
úti.
Unglingarnir í fjöl-
skyldunni mættu
hinsvegar með risa-
vaxna kassa af flug-
eldum og skutu á loft í
gríð og erg. Unga
fólkið var fjarska
ánægt með raketturnar úr „vopna-
búrinu“ og ekki fannst því verra að
tefla fram „bardagatertum“ í orr-
ustuleikinn. Þetta eru semsagt heit-
in á þeim flugeldum sem börnin
okkar eru að skjóta á loft á gamlárs-
kvöld, bardagatertur og vopnabúr.
Víkverji hefur um árin umborið
skotgleði fjölskyldunnar og annarra
Íslendinga en þetta kvöld lét hann
raketturnar og bomburnar fara
óhemju í taugarnar á sér. Honum
fannst hreinlega óþægilegt að sjá
krakka handfjatla vopnabúr og bar-
dagatertur með glampa í augum.
Svo til að kóróna allt saman þá
þurfti Víkverji nauðsynlega að fara
milli húsa rétt fyrir
miðnætti og rakst þá á
mann sem hafði fengið
þá hugdettu að fara í
göngutúr með hund-
inn sinn! Hundurinn
var auðvitað skelfingu
lostinn, gelti í gríð og
erg og hljóp eins og
taumurinn leyfði út og
suður. Ekki var það
nú til að bæta skapið
hjá Víkverja þetta
gamlárskvöld – hann
gaf hundaeigandanum
illt auga og vorkenndi
dýrinu sem auðsjáan-
lega leið vítiskvalir í
þessum spássitúr mannsins.
x x x
Víkverji fór fyrir jólin í bakaríiðKornið á Hrísateigi. Þar rakst
hann á þýskar saltkringlur sem
fólkið hans kunni að meta. Ýmsar
brauðtegundir þar hafa líka heillað
heimilisfólkið upp úr skónum. Um
daginn keypti hann nokkur brauð í
einu og fannst hann borga furðu-
lega lítið fyrir. Ástæðan var þá að
sögn afgreiðslustúlkunnar að á
miðvikudögum eru brauðdagar og
þá eru öll brauð seld með afslætti
og kosta 199 krónur. Þetta vakti
kátínu Víkverja.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
Austurbær | Æfingar eru hafnar á nýrri uppfærslu á söngleiknum Ávaxta-
körfunni, sem sló rækilega í gegn árið 1998, þegar hann var sýndur í Íslensku
óperunni. Áætlað er að frumsýna verkið í febrúar í Austurbæ, en í helstu
hlutverkum verða m.a. Jón Jósep Snæbjörnsson, Birgitta Haukdal og Selma
Björnsdóttir. Tónlistin í Ávaxtakörfunni er eftir Þorvald Bjarna Þorvalds-
son, en leikstjóri sýningarinnar er Gunnar Ingi Gunnsteinsson.
Leikhópurinn kom saman í fyrsta skipti í fyrradag og las saman úr þessum
skemmtilega fjölskyldusöngleik.
Morgunblaðið/Þorkell
Aftur ofan í Ávaxtakörfuna
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munuð finna, knýið á, og fyrir
yður mun upp lokið verða. (Matt. 7, 7.)