Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 28.08.1950, Side 1

Mánudagsblaðið - 28.08.1950, Side 1
S. árgangiir.__________ Mántidagnr 28. ágnst 1950. 33. tölublað. í tveimur grelnum Toríi Bryngeirsson, sigrarí langstökki Breti vinnur 200 metra Hanpið Rúmlega sjötíu þúsund áhoríendur á Heysel leikvanginum í Brussel horfðu á Torfa Bryngeirs- son sigra í langstökki á Evrópumeistaramótinu þar, sem lauk á sunnudag. Torfi stökk 7,32 metra og er það jafnframt íslandsmet. Næstur Torfa var Hol- lendingurinn Vessel, sem stökk 7,22 m., en sá þriðji var tékkneskur, og stökk 7,20 m. Eins og þegar er kunnugt af dagblöðum, þá sigraði hinn ágæti íþróttamaður Gunnar Huseby í kúluvarpi, er hann kastaði 16,74 metra, en það er rúmlega hálfum öðrum metra lengra en næsti mað- ur kastaði og jafnframt íslenzkt met. Á Evrópumeistaramótinu S.Í. laugardag fóru leikar þannig í hinum ýmsu grein- um: 5000 metra hlaup: 1. Zatopek, Tékkóslóvakía 14 mín., 3 sek, sem er bezti tími á Evrópumeistaram. 2. Minoun, Frak-kl. 14 mín., 26 sek. 3. Reiff, Belgía 14 mín., 26,2 sek. Næstir honum urðu Finn- amir Mákela og Posti. 800 m hlaup: Parlett, Engl. 1 m,n. 50,5 sek. Hansenne, Frakkl. 1 mín., 50,7 sek. Næstir honum urðu Eng- lendingurinn Bannister og Bengtson, Svíþjóð og Boysen, Noregi. Kringlukast: 1. Consolini, Italíu, kastaði 53,75 metra. 2. Tosi, Italíu, 52,31 m. 3. Partansen, Finnl. 48.69 m. 80 m. grindahlaup kvenna: Blankers-Koen, Holl. 11,1 sek. Hástökk kvenna: Alexander, Bretland, stökk 1,63 m. Stangarstökk: 1. Ragnar Lundberg, Sviþjóð, stökk 4,30 m. 2. Oleníus, Finnl. stökk 4,25, SUNNUDAGUR: Hástökk: 1. Patterson Bretl. 1.96 m. Öm Clausen, sein varð annar í tugþraut á Evrópumeistara- mótinu. Har.n fékk 7297 stig, en sigur- vegarinn, Frakki, 7364. 2. Áhman, Svíþjóð, 1,93 m. 3. Benard, Frakkland, 1,93 m. Sleggjukast: 1. Sverre Strandli, Noregur, 55,71 metrar. 2. Patti, Italía, 54,73 m. 3. Dadak Rússl. 53.64 m. Islendingarnir á þessu móti hafa staðið sig með slíkum á gætum, að undrum sætir.Þessi fámenna þjóð hefur á undan- förnum árum vakið mikla at- hygli og aðdáun erlendra þjóða fyrir afreksmenn okk- ar á sviði frjálsíþróttanna. Nöfnin Clausen, Bryngeirs- son, Huseby, Lárusson og enn fleiri eru nú rædd jöfnum: höndum og nöfn afreksmanna stöí<þjóðanna í íþró^tum. í hvert sinn, sem einhver í- þrótttaunnandi erlendis get- ur þessara nafna þá er þess jafnan getið, að hann sé frá Islandi, litlu sögueyjnni nyrzt 1 Atlantshafi. Fyrir íslenzku þjóðina er þessi landkynning ómetanleg verðmæti. Áhorf- endur, hvar sem er í heimin nm og þó meira erlendis en á Islandi hrífast af afrekum í- þróttamannanna, og þeirra er jafnan getið 'sem vöskustu riddara og herkonunga áður fyrr. 1 kring um nöfn þeirra ljómar drenglyndi, dugnaður og kjarkur eða það, sem kall- að er „sportmanship". Það er ekki fyrr en á seinni árum, að Islendingar hafa byrjað að hlúa að íþrótta- mönnum sínum, sem skyldi. Þjóðinni í heild var seint 1 jóst, hversu góðs hún nýtur, ef hún elur upp góða íþrótta- menn á öllum sviðum. Áhugi þjóðarínnar er nú að vakna, enda sýndu sigurópin á í- þróttavellinum s.l. laugardag, þegar sigur Torfa var tilkynnt ur, að almenningur varð mjög hrifinn af afreki hans. En íþróttamennirnir bera líka skyldur og ábyrgð. Æska íslands lítur á þá sem sínar hetjur, og unglingum er títt að segja sig í flokk með ein- hverjum þeirra fremur öðrum eins og menn segja sig í flokk knattsp'ymuflokka. Þetta ger ir íþróttamamiinn ábyrgan fyrir hegðun sína ,svo að hún Torfi Bryngetrsson Evrópumeistari í langstökki. Stökk 7,32 m. sé æskunni til fyrirmyndar og prýði. Enginn efast um, að íslenzkum íþróttamönnum verður lítið fyrir að bera slíka ábyrgð, enda hefur hegðun þeirra ekki gefið tilefni til annars. íslenzku keppendurnir frá mótinu í Brussel eru nú á leið heim. Hinum keppendunum verður fagnað að verðleikum hverjum í sínu landi. Hér hef- ur aldrei verið mikið um glæsilegar móttökur, en nú gefa afrek þeirra fulla ástæðu til þess, að þeim sé gerður verulegur dagamunur. Það er sjálfsögð skylda borgarstjór- ans í Reykjavík og bæjar- stjórnar í heild að sýna í verki, að hún kann að meta íþróttaafrek þau, sem hinir frábæru íslenzku íþróttamenn okkar hafa innt af hendi. Bæj aryfirvöldunum ber fyrst og fremst skylda til að hafa for- göngu um móttöku keppend- anna og sýna, að þeim ekki síður en öðrum skiljast hin miklu afrek og ágæta land kynning, sem felst í sigrum þeirra. Við hyggjum, að við tölum fyrir munn allra sannra Is- lendinga, þegar við segjum: Við þökkum ykkur afrekin og óskum ykkur alls hins bezta. Urslit í 4x100 nietra boð- hlaupi urðu þessi: 1. Rússland 41,5 sek. 2. Frakkland 41,8 sek. 3. Svíþjóð 41,9. Siðustu fréttir I 200 m. hlaupi urðu þessir fyrstir: 1. Bryan Shenton Bretl. 21,5. 2. Lamnes 21.6. Framh. á 4. siðu. Gunnar Huseby, Ev- rópumeistari í kúhi- varpi. Kastaði 16,74 metra. (Ljósm. Ól. K. Magn- ússon).

x

Mánudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.