Mánudagsblaðið - 28.08.1950, Qupperneq 2
MANUDAGSBLAÐIÐ • Mánudag-ui 28. ágúst 1950.
- -- If.r-- .. . - — —-— ^______ ■----
i*>
Þýzka úrvalsliðið vann
Fram 6:3
Reykvíkingar sáu síðastlið-
ið mánudagskvöld einhvem
fjörugasta og skemmtil.
leik og jafnframt beztu knatt-
spyrau, sem sézt hefur hér i
f jölmörg ár. Þrátt fyrir mikla
yfirburði Þjóðverjanna, börð-
ust Frammarar, eins og þeirra
er vandi, vasklega fram á síð-
ustu stundu og létu engan bil-
bug á sér finna. En sjaldan
hefi ég séð Frammarana eins
útkeyrða og þreytta eins og
í lok leiksins og þó eru þeir
frægir fyrir gott úthald.
Strax og leikurinn hófst
kom í Ijós að hér voru engir
smákarlar á ferðinni. Þarna
sáum við loksins nútíma knatt
spyrau eins og hún er bezt
leikin í Evrópu. Er óhætt að
fuilyrða, að þetta er langsterk
asta lið sem sést hefur á vell-
inum í síðustu 10—15 ár. Leik
ur þeirra einkennist af stutt-
um og mjög hröðum samleik.
Þeir gera lítið að þvi að sk jóta
á mark en leika saman bók-
staflega að markalínu. Þeir
leika ekki eins mikið á útherj-
ana eins og okkar menn. Sókn
araðferð þeii’ra fer meira
fram á miðju vallarins og eru
það báðir innherjarnir og mið-
framh. ásamt framvörðunum,
sem eru miðpunkturinn í
sókninni. Þeir sóttu hart f ram
með stuttum og hröðum sam-
leik og tættu bókstaflega
sundur hina traustu vörn
Frammara.
Leikurinn byrjaði mjög vel
fyrir Fram. Strax á fyrstu
minútunum skoruðu þeir
mark. Þjóðverjarnir vöruou
sig ekki á „leynivopni“ Fram-
ara, Ríkharði. í þessari fyrstu
sóknarlotu Framara sendi
Hermann langan bolta til
Ríkharðs sem hafði fundið op
í vöra Þjóðverja, tók hann
mjög vel á móti boltanum og
skaut samstundis óverjandi
skoti á markið. Lárus átti
siim þátt í að opna vörnina
með því að draga miðframv.
Þjóðverja Unkelbach út á
hægra kant. Þjóðverjarnir
stóðu sem þrumulostnir eftir
þetta mark. Þeir hófu st^rgx
sókn á eftir, sem endaði með
þvi að Karl bjargaði á mark-
Hnunni marki Framara. Litlu
seinna áttu Þjóðverjarnir tvö
föst skot í stöngina á mark
Framara. Þegar um 15 mín.
voru liðnar af leiknum skorar
Ríkharður annað mark. Hljóp
Ríkharður einn upp með knött
inn, lék á tvo Þjóðverja og
lék sig frían. Helmut Jahn
markmaður hljóp á móti hon-
un, cn var of seinn, knöttur-
inn hafnaði í netinu (2:0).
Þetta hleypti kjarki í Fram-
ara og höfðu þeir nokkur tök
á leiknum um tíma. Upphlaup
Þjóðverja urðu hættulegri
þegar fór að líða á hálf-
leikinn en vörn Framara varð
ist af fádæma dugnaði og
bjargaði oft á elleftu stundu.
Undir lok hálfleiksins skoruðu
Þjóðverjarair sitt fyrsta
mark. Var það Gauchel v. inn-
herji þeirra þar að verki. Var
það mjög laust skot sem Hall-
dór hefði átt að verja. (2:1).
Seinni hálfleikur
I byrjun seinni hálfleiks
skiptust á sóknarlotur beggja
liðanna, til að byrja með, en
Þjóðver jarnir náðu fljótt yfir-
höndinni. 1 einu upphlaupi
þeirra skorar Ahlbach mið-
framh. með skalla eftir mjög
gott skot frá Warth v. úth.
Litlu seinna skorar Ahlbach
aftur, eftir að Þjóðverjarnir
höfðu spilað vörn Framara
ávalt sundur. (3:2). Fjórða
markið verður að skrifast á
reikning Halldórs mark-
manns, sem sparkaði mjög
klaufalega út og var of seinn
í markið aftur. Skoraði Warth
það mark af löngu færi og
hafnaði knötturinn í mark-
inu (4:2).
Fimmta markið skoraði
Ahlbach einnig og var það
hnitmiðað skot i bláhornið
(5:2). Rétt eftir þetta mark
varð Lárus að yfirgefa völl-
inn eftir mjög slæman árekst-
ur AÚð Jahn markmann. Síðla
í leiknum var dæmd víta-
spyrna á markmann Þjóð-
verja fyrir það að grípa um
fætur Magnúsar. Ríkharð
skcraði auðveldlega úr víta-
spýrnunni (5:3). Þegar 5
mín. voru eftir af leik skoraði
svo Gauchel óverjandi úr
nokkurri þvögu (6:3).
Bezti maður Þjóðverjanna
var óefað v. innherji þeira,
Gauchel, sem leikið hefur í
landsliði Þjóðverja í fjölda-
mörg ár. Hann var aðal drif-
fjöðurin í sókninni. Landsliðs
markmaðurinn Helmut Jahn
var mjög öruggur í markinu
sn frekar litið reyndi á hann.
Ahlbach sem setti flest mörk-
,in yar mjög snöggur og skot-
harður. Annars voru Þjóðverj
arnir allir mjög jafngóðir og
engar eyður í liði þeirra.
Beztu menn Framara voru
Ríkharður, Sæmundur og Her
mann. Varnarleikmenn voru
einnig mjög duglegir. Halldór
markmaður virtist nokkuð
taugaóstyrkur enda var þetta
fyrsti stóri leikur hans.
Guðjón Einarsson dæmdi
leikinn og dæmdi prýðilega
eins og hans er vandi, enda
var þetta mj'ög prúðmannleg-
ur leikur af beggja hálfu, að
hans sögn. m . -.“4
Dr. Erbach' sem komið hef-
Ur hingað í þrjú skiþti með
þýzkum knattsýrhuliðum,
sagði eftir leik þennan, að
hann hefði aldrei séð eins
eins sterkt (íslenzkt) lið eins
og Fram-liðið, hvorki hér né
í Þýzkalandi 1935 og’39.
Þann sagði jafnframt að
þetta þýzka lið sem nú væri
hér væri sterkara en þau sem
hefðu komið hér áður.
Þýzka úrvalsliðið vann
Víking 5:4
Allflestir, sem fóru á völl-
inn síðastliðið þriðjudags-
kvöld bjuggust við miklum ó-
sigri Víkinga, en það kom
annað upp úr kafinu. Víking-
ar sýndu eitt bezta spil sem
þeir hafa nokkru sinni sýnt og
sjaldan hefur íslenzkt lið sýnt
eins gott samspil og Víking-
arnir þetta kvöld. Lánsmenn-
irnir féllu mjög vel inn í liðið
og áttu sinn þátt í þessum
góða árangri. Sérstaklega
voru það Noregsfararnir
Gunnlaugur, Ellert, Sæmund-
ur og Sveinn, sem voru mjög
samstilltir og voru driffjöð-
urin í sókninni. Að visu var
þýzka liðið nokkuð veikara en
kvöldið áður, að sögn þeirra
sjálfra. Þeirra bezti maður
Gauchel lék ekki í fyrri hálf-
leik en kom inná í seinni hálf-
leik. Hilgert framh. var held-
ur ekki með. Auk þess voru
nokkrar stöðuskiptingar sem
virtust veikja liðið. Þjóðverj-
arnir náðu aldrei eins miklum
yfirtökum á leiknum eins og
á móti Fram enda var hrað-
inri í leik þeirra ekki eins
mikill og kvöldið áður.
Fyrri hálfleikur
Leikurinn byrjaði með upp-
lilaupum beggja liðanna og
nokkru þófi. Víkingar skor-
uðu fyrsta markið, var það
Hörður sem skaut óverjandi
eftir að Ellert hafði bókstaf-
lega lagt boltan fyrir fætur
hans (1:0). Nokkru áður hafði
Hörður átt fast skot í stöng.
Warth v. útherji kvittaði
nokkru seinna úr þvögu (1:1).
Víkingar fengu kláufamark á
sig litlu seinna. Hafði Warth
skotið en Sveiribjörn breytti
óvart stefnu boltans svo að
hann hafnaði í netinu (2:1).
Síðla i þessum hálfleik var
dæmd vítaspyrna á Þjóðverja.
Annar bakvörður þeirra hafði
breytt stefnu boltans með
hendinni. Gunnlaugur tók
vítaspyrnuna, Jahn varði
skotið, en Gunnlaugur náði
boltanum aftur og skoraði
(2:2). 1 lok hálfleiksins pot-
aði Sveinn boltanum í blá-
hornið i mark Þjóðverja eftir
nokkra þvælu fyrir framan
markið (2:3).
Seinni hálfleikur
1 byrjun seinni hálfíeiks
sóttu þjóðverjarnir fast að
marki Víkings enda var G&Æ-
hel kominn í sókniria. En vom
in tók vasklega á móti þeim.
Sérstaklega varði Gunnar
markmaður glæsilega hvað
eftir annað. Þó tókst h. út-
herja Gutendorf að skora með
mjög glæsilegu skoti, þegar
nokkuð var liðið af leik. (3:3).
Litlu seinna bætti Ahlbach
fjórða markinu við (4:3). Á
vörn Víkings nokkra sök á
þessu marki. Gauchel brenndi’
af í dauðafæri þegar 15 mín.
voru af leik. Litlu seinna varði
Gunnar mjög gíæsilega með
því að kasta sér fyrir fætur
eins Þjóðverjans sem var einn
í mjög góðu færi. Fimmta
mark Þjóðverja skoraði Oden
h. innh. (5:3). I lok leiksins
skoraði Ellert með því að lifta
knettinum yfir Jahn markm.
(5:4). Talsverð harka kom í
Þjóðverjana seinast í leiknum
og á dómarinn óefað sinn þátt
í því. Á tímabili voru fjórir
Þjóðverjanna draghaltir.
Beztu menn Þjóðverja voru
Gauchel (meðan hans naut
við), Warth, Ahlbech og
Voightmann. Jahn var einnig
mjög traustur í markinu.
Gunnar markmaður var
bezti íslendingurinn á vellin-
um þetta kvöld. Helgi var
traustasti maður í vörninni
eins og endranær. Noregsfar-
arnir, Gunnlaugur, Ellert,
Sæmundur og Sveinn voru
kjarninn í sóknarliðinu.
Dómari var Hrólfur Bene-
diktsson og var ekki mjög
góður.
Þjóðverjarnir sögðu eftir
Ieik þennan, að þeir hefðu
aldrei búizt við svona fallegu
samspili af íslenzku liði eins
og vikingar sýndu þetta kvöld.
Vaiur og K.R. nm
Þjóðverja 3:2
Þetta var í senn lélegasti og
leiðinlegasti leikurinn af þess-
um þrem leikjum sem leiknir
hafa verið við Þjóðverjana.
Falleg knattspjTna eða sam-
spil sást varla hjá þessu sam-
blandi Vals og KR og þó að
lið þetta hafi unnið er alls
ekki hægt að segja að það gefi
rétta mynd af leiknum. Þjóð-
verjarnir áttu óneitanlega
miklu meira í leiknum þó að
þeir næðu aldrei virkilega
góðu spili. Þegar líða tók á
leikinn varð hann mjög „brút-
all“ og einna líkastur ,Rugby‘
fótbolta. Var þetta frekar leið
inlegt sérstaklega þegar tekið
er tillit til hinna prúðmann-
legu leikja sem Framarar og
Víkingar sýndu.
Fyrri hálfleikur.
Fyrri hálfleikur hófst með
tölhverðu 'þófi' og riáðí hvori-<
ugt liðið nokkrum tökum á
leiknum. Þeg^r nokkuð var
liðið áf leik skoruðu Þjóðverj-
arair fyrsta mark sitt, var
það hálfgert klaufamark. Öin
hljóp út úr markinu á óheppi-
legum tíma (1:0). Sigurður
Bergsson * úthverji kvittaði
litiu seinna eftir mjög
skemmtilegt upphlaup seni
Ellert og Halldór áttu mestan
þátt í. Síðar í hálfleiknum
skoraði Ahlbach fallegt mark
með föstu skoti frá vítateig.
Fyrri 'hálfleik lauk því með
2:1 fyrir Þjóðverja. Þeir náðu
aldrei eins góðum samleik eins
og á Fram-leiknum.
Seinni hálfleikur,
Þjóðverjamir sóttu fast að
marki Vals og KR. 1 byrjun
seinni hálfleiks, en flest upp-
hlaup þeirra strönduðu á
hinni traustu vörn Islending-
anna og varði Örn snilldar-
lega nokkur skot. Upphlaup
Vals KR voru fálmkennd og
tilviljunarkennd, og þrátt fyr-
ir ítrekaðar tilraunir Sveins
að koma á stuttu samspili hjá
framlínunni, mistókst það al-
gjörlega. Hann virtist aldrei
finna sína menn í sókninni.
Um miðjan hálfleikinn skcr-
aði Ellert glæsilegt mark með
föstu jarðarskoti, sem fór
undir Jahn markmann (2:2).
Hafði Ellert hlaupið einn upp
með. knöttinn. Á. töluverðri
hörku fór nú að bera í Ieikn
um og varð dómarinn að
dæma fríspark eftir fríspark
á bæði liðin og gerði þetta
leikinn mjög leiðinlegan. Eft-
ir eitt upphlaup Þjóðverja lá
fyrirliði Þjóðverja Gauchel í
valnum og varð að bera hann
útaf. Hann kom þó inná rétt
í lok leiksins. Litlu seinna var
v. útherji Þjóðverja einnig
borinn útaf eftir harðan á-
rekstur við Ellert. Undir lok.
hálfleiks skoraði Hörður mjög
fallegt mark eftir að hafa
leikið sig frían. Þegar fáar
mínútur voru eftir var dæmt
fríspark á Þjóðvcrja rétt við
vítateig. Sveinn skaut en Jahn
markmaður varði snilldar-
lega.
Beztu menn í liði Þjóðverja
voru eins og fyrri daginn
Gauchel, Ahlbach og Oden.
Sá .sem mest kom á óvart í
íslenzka liðinu var Öm. Hann
sýndi mjög góðan leik og
varði oft snilldarlega. Er hann
að verða einn af okkar beztu
markmönnum. Varnarleik-
menn: Einar, Guðbrandur og
Guðbjörn voru allir mjög
traustir. Þó að góðir einstakl-
ingar væru i framlínunni
vantaði allt samspil hjá þeim.
Dómari var Þráinn Sigurðs-
son.
Mói.