Mánudagsblaðið - 28.08.1950, Side 3
Mánudagur 28.- ágúst 1950.
MANUDAGSBLAÐIÐ
rj Jóns Reykvíkings
Ameríkanar þekkja sína
Það hl jóp aldeilis á snær-
ið hjá Halldórí Kiljan á
dögunum. Eftir því, sem
Þjóðviljinn segir, lét banda
rískur „forleggjari“ ein
hverja 3000 „bókmennta-
fræðinga“ átvelja höfunda
til að birta eftir þá úrvals
kafla í safnbók. Ameríkan-
ar gera mikið af því að gefa
út slík safnrit. Þáu heita
alltaf „The World’s Best“
af þessu og þessu og
fást í öllum bókabúðum
vestra fyrir lítinn pen-
ing. Venjulega eru slíkar
bækur lítið annað en „húm-
búkk“, eins og gefur að
skilja, þó í einstökum til-
fellum slæðist eitthvað
með, sem unnt er að telja
í flokki hins bezta. Þjóð-
vil jinn verður nú allt í einu
ákaflega hrifinn af Ame-
rikönum fyrir að haf a gefið
Kiljan út í svona safnriti,
og það má Þjóðviljinn líka
með réttu vera, því það
sést á þeim lista, sem blað-
ið flytur um þá, er hrepptu
hnossið með Kiljani, að
hann er einasti kommúnist-
inn, sém fengið hefur þá
miklu æru að komast í
þetta heimiMsrit. Hinir eru
flestallir svartir aftur-
haldsmenn í litteratur, en
sumir eru flóttamenn frá
kommúnistum, eins og
Gide, Silone og Wright.
Það fyrirbrigði, að Kiljan
skuli vera einasti fulltrúi
Káðstjórnarríkjanna
þessu bandaríska heimilis-
riti, gæti bent til, að hann
liefði lent þar af slysni, en
svo mun þó ekki vera, því
Aineríkanar finna vel
SÍNA lykt af Kiljani, eða
réttara sagt þessa Ham-
sun—Hemingway lykt,
sem aldrei skilur við Kilj-
an og er jafnbándarísk eins
og lykt af kæstum hákarli
er íslenzk.
Séfétið og afémsprengjan
i Það virðist svo sem
Kiljan hafi stigið.það meira
en lítið til höfuðs að hafa
komizt í þetta bókmennta-
lega heimilisrit. Daginn
eftir, að hin mikla fregn
barst um heiður Kiljans,
birtir hann í Þjóðviljanum
hið velþekkta sendibréf til
erkibiskupsins af Kantara-
| borg, þar sem biskupinn ei*
talinn sérlegur ambassa
1 dor þess gamla. Ekki liafði
| - erkibiskupinn þó annað til
saka unnið, en að telja, að
fleira væri hættulegt en at-
ómsprengjan ein, enda
mátti lesa á milli línanna
hjá biskupnum vel meintar
áminningar til Bússa út af
andlegum og líkamlegum
pyntingum þeirra á millj-
ónum manna í eða utan við
fangabúðir þeirra og þræla
hald. Þetta stóðst Kiljan
auðvitað ekki og hotaði óð-
ara stór orð og talaði eins
og sá sem fengið hefur
pláss í bandarísku heimil
isriti.
AHt er þetta í meira lagi
broslegt, og má segja, að
kommúuistar hafi sjaldan
gert sig jafn hlægilega og í
áróðri sínumog ávörpum út
af atóminu. Hver er sem sé
ástæðan fyrir því, að full-
trúar Sófétisins um víða
veröld óskapast sérstak-
lega út af atómsprengj-
unni? Ástæðan er einfald-
lega sú, að Sófétið er kom-
ið nokkru skemmra á leið
með tilbúning slíkrar
sprengju en Bandaríkja-
menn, og ÞESS VEGNA
er sjálfsagt að hamast á
móti henni. Hins vegar eru
Bússar orðnir sérlega
vel að sér í því
að búa til fangabúðir,
smíða pyntingartæki, skipu
Ieggja þrælahald og yfir-
leitt tortima mönnum og
jafnvel heilum þjóðstofn-
um (sbr. Eystrasaltsþjóð-
imar) með öllum ráðum
nema þá atóminu. ÞESS
VEGNA dettur þeim ekki
í hug að berjast sérstak-
lega á móti SLÍKUM
pyntingum og eyðilegging-
araðferðum og þeim, sem
Bússar kunna svo vel, en
einbeita sér gegn sprengju
Ameríkumanna. Fischer
biskup sveigði aðþessu, og
það þoldi Kiljan auðivtað
ekki.
Þegar Kiljan ðýsti sjálfum
sér
hann er. 1 einni af bókum
sínum lýsir Kiljan manni
einum þannig, að ekki er
sjáanlegt annað en að mað-
ur þessi muni mót allri
venju, verða eins og hver
annar sómasamlegur mað-
ur og án allra sérstakra ó-
þrifa, bæði til líkama og
sálar. En í endanum á lýs-
ingunni þarf Kiljan auðvit-
að að setja, að tennurnar í
manninum voru „eins og
hann hefði aldrei étið ann
að en skít.“ Það er alveg
eins með Kiljan og þessa
persónu. Þó hann líti bæri
lega út við fyrstu sýn, er
innrætið þannig, að það er
eins og hann hafi aldrei
nærzt á öðru en andlegum
„sltít“, svo notað sé kilj
anskt orðfæri. Og hvar
á slíkur ritsóði að eiga
heima annarsstaðar en h já
kommúnistum.
Kvöldskéli
K.F.U.M.
Þessi ágæti og einkar vin-
sæli skóli byrjar 2. okt. n. k.‘
og starfar vetrarlangt. Skól-
inn er einkum ætlaður fólki,
sem vill stunda gagnlegt nám
samhliða atvinnu sinni. Einsk-
is inntökuprófs er krafizt, en
væntanlegir nemendur verða
að sjálfsögðu að hafa notið
lögboðinnar barnafr. Skól-
inn starfar eins og áður bæði
í byrjendadeildum og fram-
haldsdeild, síðdegis og að
kvöldlagi, og ganga eldri
nemendur hans fyrir um
skólavist í framhaldsdeild-
inni, ef þeir sækja nógu tím-
anlega um hana.
Þessar námsgreinar eru
kenndar: Islenzka, danska,
enska, kristin fræði reikníng-
ur, bókfærsla og handavinna
(námsmeyjum) í byrjunar-
deildum, en í framhaldsdeild-
inni er auk þess kenndur upp-
lestur (framsagnarlist) og
íslenzk bókmenntasaga.
Skólinn hefur ágætum
kennurum á að skipa og notar
mjög hagkvæmar kennslu-
bækur, sem mjög mikið má
læra af á ótrúlega skömmum
tíma. Skólann hafa undanfar-
in 30 ár sótt nemendur, jafnt
konur sem karlar, frá ferm-
ingaraldri og fram til þrítugs.
Hefur það færzt mjög í vöxt
í seinni tíð, að ungt fólk víðs-
vegar af landinu sæki þangað
til náms, oft samhliða starfi
eða námi í sérskólum.
Umsóknum um skólavist
verður eins og áður veitt mót-
taka í nýlenduvöruvezluninni
Vísi á Laugavegi 1 frá 1. sept.
og þar til skólinn er fullskip-
aður að því marki, sem hið
takmarkaða húsrúm hans set-
T5
i v i i
Það kemur stuudum fyr-
ir, að menn með góða
skynsemi láta í ljós hálf-
gerða eftirsjá þess, að
Kil jan skuli vera kommún-
isti. Eg hef aldrei séð á-
stæðu til þessa, fyrir mitt
leyti. Hvar getur maður
eins og Kiljan átt heima
annars staðar en hjá
kommúnistum? Eg sé ekki ur honum Er fólki eindregið
annað en allir aðrir megi ráðlagt að innrita sig sem
vera því fegnir, að hann er, aiira fyrst, því að ólíklegt er,
einraitt þár t flökki sem]
Framh. á t. síðu
Mánudagsblaðið
fæst á eftirlöldum stöðum
Bókaverzlunum:
Bókabúð Austurbæjar
Sigfús Eymundsson
fsafoldar
Lárusar Blöndal
Bókabúð Laugarness
Bókastöð Emreiðarinnar
Bókabúð Laugav. 15
Baga Brynjólfssonar
Verzl. Helgafell, Bergstaðastr.
Bækur og ritföng
Greiðasölustöðum:
Fjólu
Florida
West End
Tóbaksbúðinni Kolasundi
Gosa
óðinsgötu 5
Vöggnr
Hressingarskálinn
Stjarnan (Laugaveg 86)]
Skeifan
fsbúðin, Bankastræti
Bjargi
Veitingast. Vesturgötu 53.
Verzlunum:
Skáiholt
Axelsbúð, Barmahlíð 8
Söluturni Austurbæjar
Sigfús Guðfinnsson, Nönnug. 5
Árni Kristjánsson, Langh.v.
Rangá, Skipasundi
Drífandi, (Samtúni 12)
Leifangag., Laugaveg 45
Drífandi, Kaplaskjólsv. --
Nesbúð
Þorsteinsbúð
Verzlunin Ás
Júlíusar Evert, Lækjargötu
Hverfisgötu 71
Áma Pálssonar, Miklubr.
Krónan, Mávahlíð
Fossvogsbúðin
Kópavogsbúðin