Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 28.08.1950, Síða 3

Mánudagsblaðið - 28.08.1950, Síða 3
Mánudagur 28.- ágúst 1950. MANUDAGSBLAÐIÐ rj Jóns Reykvíkings Ameríkanar þekkja sína Það hl jóp aldeilis á snær- ið hjá Halldórí Kiljan á dögunum. Eftir því, sem Þjóðviljinn segir, lét banda rískur „forleggjari“ ein hverja 3000 „bókmennta- fræðinga“ átvelja höfunda til að birta eftir þá úrvals kafla í safnbók. Ameríkan- ar gera mikið af því að gefa út slík safnrit. Þáu heita alltaf „The World’s Best“ af þessu og þessu og fást í öllum bókabúðum vestra fyrir lítinn pen- ing. Venjulega eru slíkar bækur lítið annað en „húm- búkk“, eins og gefur að skilja, þó í einstökum til- fellum slæðist eitthvað með, sem unnt er að telja í flokki hins bezta. Þjóð- vil jinn verður nú allt í einu ákaflega hrifinn af Ame- rikönum fyrir að haf a gefið Kiljan út í svona safnriti, og það má Þjóðviljinn líka með réttu vera, því það sést á þeim lista, sem blað- ið flytur um þá, er hrepptu hnossið með Kiljani, að hann er einasti kommúnist- inn, sém fengið hefur þá miklu æru að komast í þetta heimiMsrit. Hinir eru flestallir svartir aftur- haldsmenn í litteratur, en sumir eru flóttamenn frá kommúnistum, eins og Gide, Silone og Wright. Það fyrirbrigði, að Kiljan skuli vera einasti fulltrúi Káðstjórnarríkjanna þessu bandaríska heimilis- riti, gæti bent til, að hann liefði lent þar af slysni, en svo mun þó ekki vera, því Aineríkanar finna vel SÍNA lykt af Kiljani, eða réttara sagt þessa Ham- sun—Hemingway lykt, sem aldrei skilur við Kilj- an og er jafnbándarísk eins og lykt af kæstum hákarli er íslenzk. Séfétið og afémsprengjan i Það virðist svo sem Kiljan hafi stigið.það meira en lítið til höfuðs að hafa komizt í þetta bókmennta- lega heimilisrit. Daginn eftir, að hin mikla fregn barst um heiður Kiljans, birtir hann í Þjóðviljanum hið velþekkta sendibréf til erkibiskupsins af Kantara- | borg, þar sem biskupinn ei* talinn sérlegur ambassa 1 dor þess gamla. Ekki liafði | - erkibiskupinn þó annað til saka unnið, en að telja, að fleira væri hættulegt en at- ómsprengjan ein, enda mátti lesa á milli línanna hjá biskupnum vel meintar áminningar til Bússa út af andlegum og líkamlegum pyntingum þeirra á millj- ónum manna í eða utan við fangabúðir þeirra og þræla hald. Þetta stóðst Kiljan auðvitað ekki og hotaði óð- ara stór orð og talaði eins og sá sem fengið hefur pláss í bandarísku heimil isriti. AHt er þetta í meira lagi broslegt, og má segja, að kommúuistar hafi sjaldan gert sig jafn hlægilega og í áróðri sínumog ávörpum út af atóminu. Hver er sem sé ástæðan fyrir því, að full- trúar Sófétisins um víða veröld óskapast sérstak- lega út af atómsprengj- unni? Ástæðan er einfald- lega sú, að Sófétið er kom- ið nokkru skemmra á leið með tilbúning slíkrar sprengju en Bandaríkja- menn, og ÞESS VEGNA er sjálfsagt að hamast á móti henni. Hins vegar eru Bússar orðnir sérlega vel að sér í því að búa til fangabúðir, smíða pyntingartæki, skipu Ieggja þrælahald og yfir- leitt tortima mönnum og jafnvel heilum þjóðstofn- um (sbr. Eystrasaltsþjóð- imar) með öllum ráðum nema þá atóminu. ÞESS VEGNA dettur þeim ekki í hug að berjast sérstak- lega á móti SLÍKUM pyntingum og eyðilegging- araðferðum og þeim, sem Bússar kunna svo vel, en einbeita sér gegn sprengju Ameríkumanna. Fischer biskup sveigði aðþessu, og það þoldi Kiljan auðivtað ekki. Þegar Kiljan ðýsti sjálfum sér hann er. 1 einni af bókum sínum lýsir Kiljan manni einum þannig, að ekki er sjáanlegt annað en að mað- ur þessi muni mót allri venju, verða eins og hver annar sómasamlegur mað- ur og án allra sérstakra ó- þrifa, bæði til líkama og sálar. En í endanum á lýs- ingunni þarf Kiljan auðvit- að að setja, að tennurnar í manninum voru „eins og hann hefði aldrei étið ann að en skít.“ Það er alveg eins með Kiljan og þessa persónu. Þó hann líti bæri lega út við fyrstu sýn, er innrætið þannig, að það er eins og hann hafi aldrei nærzt á öðru en andlegum „sltít“, svo notað sé kilj anskt orðfæri. Og hvar á slíkur ritsóði að eiga heima annarsstaðar en h já kommúnistum. Kvöldskéli K.F.U.M. Þessi ágæti og einkar vin- sæli skóli byrjar 2. okt. n. k.‘ og starfar vetrarlangt. Skól- inn er einkum ætlaður fólki, sem vill stunda gagnlegt nám samhliða atvinnu sinni. Einsk- is inntökuprófs er krafizt, en væntanlegir nemendur verða að sjálfsögðu að hafa notið lögboðinnar barnafr. Skól- inn starfar eins og áður bæði í byrjendadeildum og fram- haldsdeild, síðdegis og að kvöldlagi, og ganga eldri nemendur hans fyrir um skólavist í framhaldsdeild- inni, ef þeir sækja nógu tím- anlega um hana. Þessar námsgreinar eru kenndar: Islenzka, danska, enska, kristin fræði reikníng- ur, bókfærsla og handavinna (námsmeyjum) í byrjunar- deildum, en í framhaldsdeild- inni er auk þess kenndur upp- lestur (framsagnarlist) og íslenzk bókmenntasaga. Skólinn hefur ágætum kennurum á að skipa og notar mjög hagkvæmar kennslu- bækur, sem mjög mikið má læra af á ótrúlega skömmum tíma. Skólann hafa undanfar- in 30 ár sótt nemendur, jafnt konur sem karlar, frá ferm- ingaraldri og fram til þrítugs. Hefur það færzt mjög í vöxt í seinni tíð, að ungt fólk víðs- vegar af landinu sæki þangað til náms, oft samhliða starfi eða námi í sérskólum. Umsóknum um skólavist verður eins og áður veitt mót- taka í nýlenduvöruvezluninni Vísi á Laugavegi 1 frá 1. sept. og þar til skólinn er fullskip- aður að því marki, sem hið takmarkaða húsrúm hans set- T5 i v i i Það kemur stuudum fyr- ir, að menn með góða skynsemi láta í ljós hálf- gerða eftirsjá þess, að Kil jan skuli vera kommún- isti. Eg hef aldrei séð á- stæðu til þessa, fyrir mitt leyti. Hvar getur maður eins og Kiljan átt heima annars staðar en hjá kommúnistum? Eg sé ekki ur honum Er fólki eindregið annað en allir aðrir megi ráðlagt að innrita sig sem vera því fegnir, að hann er, aiira fyrst, því að ólíklegt er, einraitt þár t flökki sem] Framh. á t. síðu Mánudagsblaðið fæst á eftirlöldum stöðum Bókaverzlunum: Bókabúð Austurbæjar Sigfús Eymundsson fsafoldar Lárusar Blöndal Bókabúð Laugarness Bókastöð Emreiðarinnar Bókabúð Laugav. 15 Baga Brynjólfssonar Verzl. Helgafell, Bergstaðastr. Bækur og ritföng Greiðasölustöðum: Fjólu Florida West End Tóbaksbúðinni Kolasundi Gosa óðinsgötu 5 Vöggnr Hressingarskálinn Stjarnan (Laugaveg 86)] Skeifan fsbúðin, Bankastræti Bjargi Veitingast. Vesturgötu 53. Verzlunum: Skáiholt Axelsbúð, Barmahlíð 8 Söluturni Austurbæjar Sigfús Guðfinnsson, Nönnug. 5 Árni Kristjánsson, Langh.v. Rangá, Skipasundi Drífandi, (Samtúni 12) Leifangag., Laugaveg 45 Drífandi, Kaplaskjólsv. -- Nesbúð Þorsteinsbúð Verzlunin Ás Júlíusar Evert, Lækjargötu Hverfisgötu 71 Áma Pálssonar, Miklubr. Krónan, Mávahlíð Fossvogsbúðin Kópavogsbúðin

x

Mánudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.