Mánudagsblaðið - 28.08.1950, Page 5
Mánudagttr 28. ágúst 1950.
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
og
skrípaleikir
Jæja ,þá er nú búið að
velja „Fegurstu stúlkuna í
Reykjavík 1950“, og eins og
kunnugt er varð frú Kolbrún
Jónsdóttir fyrir valinu. Eins
og sakir stóðu álít ég að hún
hafi verið vel að sigrinum
komin, því að enginn getur
neitað því að frú Kolbrún er
mjög lagleg. Óska ég henni
því hér með til hamingju.
Því miður gat ég ekki ver-
ið viðstödd í Tívolí þetta
kvöld, þótt víst sé um það, að
mér hefði þótt mjög gaman
að sjá þessa fegurðarkandi-
data spóka sig á sviðinu. En
mér heyrist á fólki, að það
sé heldur óánægt með keppni
þessa, og hefur hún jafnvel
verið nefnd s k r í p a 1 e i k-
u r. Mun ástæðan til þess
vera sú, að fólki finnst þátt-
tííka verulegþ Tallegra
stúlkna ekki hafa verið nóg,
en aftur á móti hafi sumar
af keppendunum varla getað
talizt snoppufríðar, — að
ekki sé nú minnzt á vaxtar-
lagið, sem var víst talsvert
ábótavant hjá þeim mörg-
um. Þykir það að vonum
fjári hart í bæ, sem frægur
er fyrir fallegt kvenfólk.
Mörgum fannst það órétt-
mætt, að stúlkunum var
leyft að vera í öllum fötun-
um í stað baðfata, og halda
því fram að hefðu þær haft
vit á að klæða af sér galla
með lífstykkjum, mjaðma-
púðum, fölskum brjóstum og
velsniðnum, smekklegum föt-
um, þá hefðu þær getað það.
Og auðvitað er það alveg
satt. En víst er um það, að
svona fegurðarsamkeppni gat
aldrei farið svo, að öllum
líkaði — og er það ekki sízt
vegna þess, að Reykvíkingar
eru því miður þannig gerðir,
að þeir eru alltaf illkvittnir
gagnvart sigurvegurum 1 slík
um keppnum. Þó finnst
manni, að Fegrunarfélagið
hefði átt að hafa vit á að
hleypa ekki öðrum til keppni
en þeim, sem velvaxnar voru
og laglegar, en á því kvað
hafa orðið einhver misbrest-
ur.
Annað mál er það, að að
mínum dómi á yfirleitt a 11 s
é k k i að halda fegurðarsam-
keppnir hér í Reykjavík, —
og þá auðvitað allra sízt
svona hálfgildingskeppni eins
og þessa. Erlendis er það
talið sjálfsagt að halda feg-
úrðarsamkeppnir og er þá
sigurvegaranum sómi sýnd
ur. Hér... gegnif öðru máli
Bærinn er svo lítill að allir
þekkja alla, molbúaháttur
inn virðist á hærra stigi en
annars staðar, og fegurðar-
samkeppni hér er því aðeins
höfð a'ð sþe og spotti. Hún
gefur kjaftvíðu - og ill-
kvittnu fólki þyr undir báða
vængi 'og nóg umtalsefni, —
• en gera-þax með sigurvegar-
anum lífið leitt með ókurteis- að banna berjatínslu í lönd- en daginn eftir. Hestar hafa
legu glápi og athugasemdum
óuppalins skríls.
Segja má, að keppni þessi
hafi verið illa undirbúin, og
að betur kunni að takast
næst, er Fegrunarfélagið efn-
ir til annarrar. En ég held,
að Fegrunarfélagið ætti ekki
að stofna aftur til svona
keppni, því að ekki er víst,
að allar stúlkur séu svo harð-
gerðar að geta þolað hróp,
hlátra og hæðnisblístur áhorf
enda eins vel og sumir kepp-
endur þann 18. núna þurftu
að þola í Tívolí.
Fari aftur á móti svo, að
ísland einhverntímá sendi
fulltrúa til fegurðarsam-
keppni Evrópu, mundi málið
horfa öðru vísi við. Þá mundu
candidatarnir þurfa að vera
svo fullkomnar, að þær
treystu sér til að spankúlera
fyrir framan alla í sundbol,
og þá þyrftu þær auðvitað
yfirleitt að uppfylla þau skil-
yrði, sem viðurkennt er, að
keppendur í fegurðarsam-
keppni þurfi að uppfylla. —
Mundu því aðeins allra-feg
urstu stúlkur landsins koma
þar til greina, og þátttaka
eflaust verða betri, því að
þá yrði til mikils að vinna.
Auk þess mundi slík keppni
fara fram fyrir luktum dyr-
um, en ekki framan í „mis-
litu fé“ eins og í Tívolí um
daginn, og |færustu menn
landsins fengnir til að dæma.
Þangað til þetta getur orð-
ið, finnst mér, að fallegu
stúlkurnar í Reykjavík og
annars staðar á landinu ættu
að fá að vera í friði með fríð
leik sinn.
um sínum, sem ekki er nema i komizt í jslægjurnar fyrir
eðlilegt, því að margt fólk mér, að ég ekki tali um bréfa
gengur svo illa um, veður ruslið og flöskurnar, sem það
yfir slægjur, skilur eftir op- skilur eftir úti um allt.
Tínum ber...
Svo virðist sem það ætli
að verða mikið um ber í ár
Þegar er orðið krökt af stór-
um og vel þroskuðum kræki-
berjum í nágrenni Reykja-
víkur, en ribsber og bláber
eiga enn nokkuð í land.
Það er ekki nema eðlilegt,
að fólk flykkist út úr bænum
til þess að tína ber upp um
móa og hlíðar, því að bæði
er, að berin eru vítamínrík
og góð fæða, og eins hefur
það löngum verið ein mesta
skemmtun allra íslenzkra
barna — og margra fullorð-
inna líka — að fara til berja
á haustin. Þetta eru nú líka
einu ávextirnir, sem hér
vaxa villtir, — óg hvaða á-
bætir er betri en bláber með
rjóma eða bðrjaskyr með
rjóma?
En einn er ljóðurinn á
berjátínslúnni. Nú hafa marg
•ir bæftdur tekið upp á því
in hlið á peningagirðingiun
og jafnvel brýtur niður girð-
ingar. Flestfr bændur eru
þó svo liðlegir, að þeir leyfa
fólki berjatínslu í löndum
sínum, ef það kemur heim á
ibæinn, biður kurteislega um
leyfi eða borgar lítillega
þóknun fyrir. En sú al-
menna kurteisi virðist flestu
berjatínslufólki vera um
megn.
Þegar ég var lítil, fórum
við krakkarnir stundum í
leik, sem við nefndum „Pilla,
pilla akur, kóngsins akur!“.
Nú hafa krakkarnir breytt
þéssum leik nokkuð og syngja
í staðinn: „Tínum ber, tín-
um ber, skessan er ekki
heima!“ Mér var nú að detta
í hug, hvort þessi breyting
sé tilkomin af því, að nú séu
þau orðin svo vön því að stel
ast í ber á forboðnum svæð-
um?
Allir, sem ribsberjarunna
eiga í görðum sínum og hugs-
að hafa sér gptt til glóðarinn
ar að sulta bérin, þegar þau
eru orðin mátulega þroslcuð,
vita, hve ergilegt það er, þeg-
ar krakkaskríllinn ryðst inn
í garðana kvöld eftir kvöld
og hámar í sig allt, sem á
runnunum er. Foreldrar hafa
verið hvattir til þess að
banna börnum sínum slíka
rányrkju, og er það ágsstt
og rétt út af fyrir sig.
En svo um næstu helgi
laumast svo sömu foreldrar
með sömu börn til berja-
tínslu á landi einhvers bónd-
ans í nágrenninu og fremja
þar allskonar spellvirki! Er
nokkurt samræmi í þessu?
Myndarbóndi nokkur, sem
býr ekki all langt frá Reykja
vík og á mikið iberjaland, átti
tal við mig fyrir skömmu og
þá sagði hann:
„Um hverja helgi koma
stórhópar af fólki úr Reykja-
vík til þess að tína ber
landi mínu. Ég er ekki svo
smásmugulegur, að ég hafi
hingaðtil getað fengið mig til
þess að banna því að tína
berin, enda hef ég svo fátt
fólk á búi mínu að það kemst
ekki yfir að tína helminginn
af berjunum hvað þá heldur
meira, og er þá ekki of gott
að einhverjir aðrir njóti góðs
af þeim. En nú er fólk þetta
búið að brjóta niður fyrir
mér ellefu girðingarstólpa!
Þfisvar hafa beljurhar þvi
komizt ut úr girðingu sinni
Ef nú þetta fólk vill vera
svo kurteist, að koma heim
og spyrja um leyfi til berja-
tínslu, þá mun ég ekki aðeins
leyfa því það, heldur mundi
ég einnig geta leiðbeint því.
hvernig það á að komast tii
berjanna án þess að vinna
mér tjón. Að öðrum kosti
neyðist ég til að banna því
hér eftir að tína ber í land-
inu“.
Og finnst ykkur þessi sjálf-
sagða kurteisi frágangssök,
kæra berjatínslufólk? Ef ekki
er hægt að finna nóg ber í
andi, sem er opinber eign
og pkki afgirt, þá vil ég fyrir
lönd bónda þessa og annarra
jarðeigenda, skora á ykkur
að biðja um leyfi til berja-
tínslunnar á viðkomandi bæj
um og fá þar leiðbeining-
ar um það, hvernig bezt sé
að komast til þeirra.
Það fyrirkomulag ætti að
geta orðið öllum að skapi.
_* _
Fegrum bæinn okkar sjálf
Einhvern tíma stakk ég
upp á því hér, að gamlir og
nýir nemendur Menntaskól-
ans í Reykjavík tækju að sér
að fegra Menntaskólalóðina
í sjálfboðavinnu, þar eð hún
væri hvort sem er öllum til
skammar eins og hún er. -
Stuttu seinna birti ég bréf
frá „Borgara", sem var mér
alveg sammála, en vildi
ganga lengra, þar eð hann
stakk .upp á því að bæjar-
búar i hinum ýmsu hverf-
um bæjarins tækju sig sam-
an um að fegra svæði þau í
sjálfboðavinnu, sem þeir sí-
fellt hafa fyrir augunum.
Nú hafa mér borizt fjölda-
mörg bréf um þéssa hug-
mynd „Borgara“. Öll eru þau
á einn veg, og virðist svo
sem ótrúlega margir bæjar-
búar séu reiðubúnir til þess
að leggja hart að sér til þess
að fegra íbúðarhverfi sín. —
„Múrari“ vill vinna að því
að koma upp gosbrunni með
fallegum grasvelli í kring á
Miklatorgi, — „það er svo
veðrasamt þar, að trén koma
aldrei til með að þrifast“,
segir hann. Margir segjast
vilja gefa trjáplöntur á ýmsa
staði, sem fegrunar þurfa
með, og segjast viljá setja það
niður sjálfir. Enn fleiri til-
kynna bara, að þeir séu til
1 að vinna í Sjálfboðavinnu
við hvað, sem er, og segjast'
aðeins mundu hafa gaman af
að dunda við það á kvöldin
með nágrönnum sínum.
Hugmynd þessi var prýði-
leg hjá „Borgara“ og eftir
undirtektunum að dæma aetti
það að vera tilvalið verk-
efni fyrir Fegrunarfélagið að
hafa forgöngu um þessi mál
og bjóða mönnum út tii sjálf-
boðavinnu í hinum ýmsu
hverfum. Úr því að þeir efna
til fegurðarsamkeppni
kvenna og samkeppni um
fegursta garðinn, því geta
þeir þá ekki alveg eins efnt
til samkeppni næsta sum-
ar um það, hvaða hverfi hafi
fegrað mest og smekklegast
í sjálfboðavinnu?
Úr því að fólkið vill sýna
þann þegnskap að gera þetta
sjálft, og spara þannig okk-
ar blanka bæjarfélagi mikið
fé, — því þá ekki að leyfa
því það? En einhver þarf að
hafa forgönguna, og til þess
er Fegrunarfélagið bezt fall-
ið.
Gg ef dæma má eftir öll-
um þeim bréfum, sem mér
haf borizt um þessi efni og
orðum ótal margra, sem ég
hefi talað við, þá munu bæj
arbúar ekki liggja á liði sínu
þegar þar að kemur!
bg ékki fundúft allar fyrr|,
Ég undirrit.........óska eftir að gerast áskrifaudi aS
Mánudagsblaðinu.
Nafn
Helmili
Staður
Utanáskrift:
Máaudagsblaðlð
'5'
Kearkjavik