Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 02.10.1950, Blaðsíða 1

Mánudagsblaðið - 02.10.1950, Blaðsíða 1
SlaS fyrir alla S. áre;angur. Mánudagur 2. október 1950 3 7 ’SSs tölublað bk_Ja». I REYKJAVIK VARHUGA VERÐASTA ALMANNAHÆTTAN Gagnger endurskoðun á lögreglumálum landsins nu BHilegt i Hefst dómsmálaráðherra handa? Síðastliðinn fimmtudag birtu dagblöðin ein- hvérja þá óhugnanlegustu skýrslu frá Rann- sóknarlögreglunni, sem enn hefur sézt hér á landi. Skýrsla þessi rak eins og endahnútinn á þau stórhneyksli, sem skeð hafa hjá götulög- reglunni hér í Reykjavík undanfarin ár. Atburður sá, er skýrslan fjallar um, er í stórum dráttum þesi: Meðvitundarlaus maður finnst liggj- andi fyrir framan Eimskipafélagshúsið, áverkalaus að því er bezt er séð, en úr vit- um hans telur lögreglan, að hún hafi fund- ið vínlykt. An nokkurra frekari aðgerða er manni þessum stungið í kjallarann, og þar er hann látinn dúsa þar til tvær grím- ur renna á lögreglumennina, því að þeir geta ekki vakið hann. Læknir er þá kall- aður til, og sendir hann manninn tafar- laust á sjúkrahús, en þar deyr hann tveim dögum síðan úr heilablæðingu. Skýrsla sú, sem rannsóknarlögreglan gaf út um þetta mál, er eitt hið fáheyrðasta plagg, sem enn hefur verið samið og um leið eitthvert skýrasta dæmi um framkomu reykvísku götu- lögreglunnar gagnvart samborgurum sínum og röggsemdarleysi núverandi lögreglustjóra. Hún sannar það, sem almenningur reyndar veit, að lögreglan gerir engan mun á, hver í hlut á, þegar hún fremur msumrán sín hér að næturlagi — hvort um þekktan misyndis- mann er að ræða, slagsmálamann eða alkunn- an ribbalda, sem ekki er tjónkandi við á ann- an hátt en byrgja hann inni í kjallaranum eða hvort um sé að ræða mann, sem drukkið hef- ur vín ríkiseinkasölunnar og verið barinn eða aðeins fallið á steingötur bæjarins og slasað sig. Hún sýnir, að lögreglustjóri hefur dauf- heyrzt við öllum tillögum þessa blaðs, sem annarra, um, að læknir sé á vakt allar nætur á lögregluvarðstofunni til þess að athuga meiðsli manna og ástand áður en lögreglu- stjóri sem ábyrgðarmaður manna sinna~tekur það upp á sitt eindæmi að setja menn í hina miður vistlegu fangaklefa lögreglunnar. Enn- fremíur sánnar skýrslan, að ekki er gerð til- raun af hálfu lögreglunnar til að tilkynna að- standendúm fanga sirina, hvar þeir eru niður komnir, og er það eitt fyrir sig glæpur gegn aðstarideridum þeirra, sem í hlut eiga. Ef svo á að halda áfram, að dómsmála- ráðuneytið haldi hendi yfir þeim, sem hvað eftir anriað hafa sýnt sig með öllu óhæfa að gegna embætti lögreglustjórans og hafa hemil á liði sínu, þá hlýtur að draga að því, að lög- reglan í Reykjavík verður ein varhugaverð- asta almannahættan í þessum bæ. Það er enn svo, að heimilt er án afskipta hins opinbera að drekka vín hér í Reykjavík, og lögreglunni er óheimilt að hafa afskipti af þeim, sem ekki gera sig bera að ófögnuði eða slagsmálum, þegar þeir eru við vín. Sjálfur lögreglustjór- inn sikrifar- undir öll vínveitingaleyfi, sem veitingastaðirnir hér fá, og ekki gerir hann það í þeirn tilgangh að víns sé ekki neitt. Maður sá, sem hér hefur orðið sárgræti- legt dæmi um hið svívirðilega embættisbrot iögreglustjórans, er lögreglunni ekki kunnur að neinu vansæmandi með víni eða áns. Það hefði verið og er því skylda lögreglunnar, þeg- ar hún finnur borgara liggjandi meðvitundar- lausa á götum bæjarins að næturþeli ekki ein- ungis að ná tafarlaust í lækni heldur og til- kynna ættingjum þess, sem í hlut á, hvernig komið sé og sjá svo manninum fyrir farkosti til heimilis síns eða til hjúkrunar annars staðar ef þörf er. Það er nú svo komið, að mönnum, sem hætt er við yfirliði eða einhverju viðlíka, er beinlínis hættulegt að vera á götum úti, ef lögregluþjónn er einhvers staðar í grennd við þá. Hver veit nema þeir vakni í kjallaranum og sleppi ekki fyrr en þeir hafa greitt brenni- vínsektir, ef þeir þá lifa dvölina af ? Afsökun á framkomu lögreglunnar í þessu dæmi er ekki til. Skýrslan sjálf eins og hún er úr garði gerð er nógu mikil sönnun á því, hvernig lögreglustjórinn hefur reynzt í em- bætti sínu. Honum er í lófa lagið að koma því Framhald á 8. síðu. Samkomulag um Greiðslubandalag Evrópu undirritað Hoffman og Sfikker fagna Sl. þriðjudag hinn 19. þ.m. undirrituðu allar meðlima- þjóðir efnahagssamvinnu- stofnunarinnar í París sam- komulag um stofnun greiðslu bandalags Evróþulandanna. ísland og öll önnur Evrópu- lönd, sem þátt taka í efnahags samvinnunni, eru meðlimir þessa bandalags. 1 Washington fagnaði Paul Hoffmann, framkvæmdast jóri efnahagssamvinnustofunar- innar í Washington, stofnun greiðslubandalagsins sem stærsta sporsins í áttina að efnahagslegri sameiningu EV- rópuþjóðanna síðan efnahags- samvinnustofnuhin var sett á laggirnar". Hann sagði einnig, að „samkomulag um greiðslu- bandalagið, sem verkar aftur fyrir sig til 1. júlí s.l., færi nú hið langþráða takmark um auðveldari gjaldeyrisyfirfærsl ur og aukna verzlun á milli Evrópulandanna nær veruleik anum. Hinn stóri sölumarkaður meðal 270 milljón íbúa Ev- rópu, sem verður að eflast ef framleiðendur eiga að selja vörur sínar við lægra verði og gera almenningi kleift að kaupa þær, mun aukast miklu fyrr með stofnun þessa banda lags en hann mundi ella gera. Eg lít svo á að starfsemi greiðslubandalagsins muni beinlínis stuðla að bættum lífs skilyrðum meðal íbúa Evrópu landanna". „Með því að gera sölu á gjaldeyri í raun og veru mögu lega á meðal ýmissa Evrópu- landa, mun greiðslubandalag- ið efla frjálsari verzlun á milli þessara landa. Einnig muu aukin útrýming verzlunar- hafta, svo sem takmörkun á magni ýmissa vörutegunda, sem flytja má inn til sumra landa, auka framleiðshihæfni og verzlun á meðal meoilma- landanna og verða til'bóta fyr neytenduma. Evrópa stefnir Framhald á 2. síðu.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.