Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 02.10.1950, Qupperneq 3

Mánudagsblaðið - 02.10.1950, Qupperneq 3
r t : 5 >: • 'T2 wr Mánudagur 2. október 1950 MÁNUDAGSBLAÐK) ■^r í Jóns Reykvíkings Nýjasta uppátæki Fjárhagsráðs Er um að ræða grímu- klædda ritskoðun ? Eins og kunnúgt er, þarf innf lutnings- og gjaldeyris- leyfi fyrir bókum hingað til lands. Er mjög erfitt orðið fyrir einstaklinga að afla sér prentaðs máls er- lendis frá, með því að leyfi fyrir prentuðu máli — blöð- um og bókum — er treg- lega veitt. Það nýjasta, sem hefur gerzt hjá Fjárhagsráði í þessum efnum, er, að þeim, sem sækja um leyfi fyrir prentuðu máli, er bent á að geta þess í beiðnum, hvað þær bækur eða blöð heita, sem panta á! Fer nú að þrengjast um frelsi, þegar jafnsjálfsagð- ir hlutir og bækur og blöð, er gert að vamingi, sem mjög erfitt og næstmn ó- mögulegt er að fá, og þeg- ar svo langt er gengið, að krafizt er upplýsinga um, hvaða andleg fæða það er, sem menn ætli sér að kaupá. Þess má geta, að sömu erfiðleikar hafa verið á ff Glæsigreinar ii ans því að fá leyfi hjá Fjár- hagsráði, hvort sem um er að ræða aigeng rit eða fag- bækur. Fyrirtæki og ein- staklingar, sem þurfa nauð- synlega á prentuðu máh að halda vegna starfrækslu sinnar, fá unnvörpum ann- aðhvort ekkert svar eða neitandi svar Fjárhagsráðs við beiðnum um bækur. Um tíma var af hálfu Fjárhagsráðs látið í veðri vaka, að menn ættu að leita til bóksalanna, því þeir f engju fyrst og f remst leyfi til innflufcings á prentuðu máh. En sú tilvísun reynd- ist algerlega haldlaus, því ekki stoðar hið minnsta að leita til bóksalanna. Væri víst áreiðanlega um mjög skemmtilegt og fróðlegt rannsólmarefni að ræða, ef leyfisveitingr til bóksala annars vegar og bókakaup þeirra hins vegar yrðu at- huguð. En hve lengi ætla menn að sætta sig við þessa með- ferð Fjárhagsráðs? Ef svo verður haldið áfram sem verið hefur, er stefnt að því að loka landinu gagnvart umheiminum á m jög mikils verðum sviðum og hefur slíkt atferli aldrei þeklízt í sögu okkar fj rri. Viðgerðir á úrum og klukkum F r a r ie h e I se n Laugaveg 39 Sími 3462 íslenzka þjóðin hefur að undanförnu verið örlát við skáld sín og listamenn, svo ör- lát, að langt er um efni fram. Sumir þessara manna hafa fengið opinbera styrki að verð leikum, en aðrir miður og margir mjög óverðskuldað. Eg vil taka það fram í upp- hafi þessa greinarkoms, til þess að fyrirbyggja misskiln- ing, að ég er ólærður og ó- þekktur leikmaður, einn úr hópi þeirra manna, sem sjald- an láta hugsanir sínar opin- lega í ljós og tel mig þar með í meirihluta aðstöðu. Tilefni þess, að ég læt þessar hugleiðingar mínar á pappír inn, eru innrammaðar „glæsi greinar“ frá tveimur skáld- um, er nýlega birtust á síðum ,,Þjóðviljans“. Halldór Kiljan Laxness og Jóhannes úr Kötlum hafa af sumum verið taldir, a. m. k. annar þeirra, með fremstu skáldum þessarar þjóðar. En þessar greinar þeirra á síðum ,,Þjóðviljans“ slá öll met í því, sem hingað til hefur verið kölluð saurblaðamennska. Halldór Kiljan tekur sér fyrir hendur að ausa auri einn þekktasta kirkjunnar leið- toga, biskupinn í Kantara- borg, fyrir það eitt, að hann hefur varað fólk við að skrifa undir hið lævíslega áróðurs- plagg, sem kallað er „Stokk- hólmsávarp". Orðbragð á grein Kiljans er sjaldgæft á prenti og aðeins þeim manni einum sæmandi, enda sérstæður um marga hluti. Hafi andskotinn stjórnað gerðum biskupsins, eins og Kiljan orðar það svo fagur- lega í grein sinni, þá er auð- velt að álykta, að sá hinn sami hafi oft og mörgum sinnum r «3 r if iigisiigsstisiica os hálfan eða allan daginn Sími 3975 stjórnað penna skáldsins í ó- geðslegu níði þess um land sitt og þjóð. Það er eins og lesa megi milli línanna í grein skáldsins ávítur til „aðstoð- arans“ fyrir það að skipta sér af gerðum biskupsins. „Yfir- gef mig ekki, ég einn er þjónn þinn“. Um Jóhannes úr Kötlum er hægt að vera fáorður. Þeim, sem ekki þekkja manninn, vil ég ráðleggja að kynnast hon- um á fimmtu síðu „Þjóðvilj- ans“ fimmtudaginn 21. sept. 1950. Það, sem virðist skelfa þetta skáld mest, er atom- bomban. Ekki vegna þess að henni verði varpað á milljóna borgir, heldur á „skáldið" Jó- hannes úr Kötlum. Ástæðurnar til þessarar hræðslu ,,skáldsins“ er ekki svo ýkjalangt að leita, ef sú saga er sönn, sem gamansam- ir borgarar skemmta sér við, að „skáldið" elti börnin í ná- grenninu með fulla vatnsfötu á lofti. Það skyldi þó aldrei vera, að þar finnist honum hann sjá þessa „bílandi og fljúgandi bófaklíku“, sem hann talar um í grein sinni. Það skyldi þó aldrei vera, að manninn hafi gripið hundaæði, eins og hann sjálfur orðar það. Eg vil eindregið ráðleggja þessum hrjáða og taugaveikl- aða vesalingi að skreppa aust- ur fyrir járntjaldið, þar sem hann fengi að lifa í friði undir föðurlegri umsjá, fjarri öllu hundaæði og bófaflokkum, sem erta þreytta sál. Nei, Jó- hannes, það þorir þú ekki, frekar en aðrir sálufélagar þínir, þrátt fyrir það að þeir fengju frían farareyri. Nú vaknar spuraing hjá okkur, þessum ómenntuðu al- þýðumönnum: Hvað lengi eig um við að verðlauna þessa menn? Ber okkur skylda til, sem vinnum okkar verk í kyrr látri þjónustu við þjóðfélagið, að halda lífi í þessum blekbull- um, sem hingað til hafa að miklu leyti lifað á okkar striti ? Eg er þess fullviss, að væri látin fara fram með þjóðinni atkvæðagreiðsla um það, hvort styrkja bæri þessa menn eða ekki, mundi niður- staðan verða neikvæð fyrir þá. Það væri “auðvelt að gera skoðanakönnun í • þessu máli. Það væri í ahda lýðræð- is, en bara ekki þess lýðræðis, sem Kiljan og Jóhannes éru málsvarar fyrir, og þess' vegna mundu þeir óttast slíka skoðanakönnun engu síður en atomið. Það er mannlegt að láta í ljós skóðanir sínar, og það er Kiljan og Katla-Jóhannesi leyfilegt, meðan þeir hírast hérna megin járntjaldsins. En hitt er miklu verra fyrir þessa einstaklinga, að meginþorri þjóðarinnar fyrirlítur þann hugsunarhátt og orðaval, sem þeir hafa tileinkað sér. Þessa menn grípur ótti, ótti við það, að ísl. þjóðin er að snúa við þeim bakinu. Fólki er áð verða ljóst, að það hefur verið blekkt. .Kommúnistar eru að verða hræddir við sinn eigin draug. Þeir eru að finna, hve málstaður fimmtu herdéild- anna um heim allan er að fara halloka fyrir heilbrigðri dóm- greind fólksins. Finna, hversu herfilega þeir hafa svikið hið íslenzka í íslenzkri alþýðu. Hræddir og reiðir ata þeir út um síður Þjóðviljans auri svívirðingum menn og mál- efni. Og þegar hinar daglegu blekbullur þrýtur máttinn, er leitað á hærri staði, til „skáld- anna“, þaðan sem hinn and- legi fóðurbætir kemur inn- rammaður með eiginhandar yfirskrift höfundar. íslenzka þjóð!, langar þig ekki til að kynnast betur þess um „glæsimennum" ? Fjöldafundur í Vesturþýzkalandi. — Fánar ýmisissa þjóða í baksýn.

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.