Mánudagsblaðið - 04.12.1950, Side 1
desember 1950
43. tölublað.
Ræða Bjarna Benediktssonar 1. desember
íjallaoi um þau mál, sem allir íslendingar ættu
að líta á, sem eitt alvarlegasta atriði í utanríkis-
steínu okkar íslendinga — landvarnir okkar.
Að vísu var ræða ráðherrans svo almenn um
þetta mál, að ekki kom fram neitt nýtt né heldur
hverjar ráðstafanir verða gerðar (eða hafa verið
gerðar), til þess að tryggja öryggi landsins, ef til
skyndilegs ófriðar kynni að koma. Það er leitt
til þess að vita að stjórnarblöðin skuli ekki láta
þvílíkt mál meira til sín taka en raun er á, og
má ætla, ef ekki verður þegar gripið til raunhæfra
ráðstafana, þá verði allt um seinan og landið her-
numið, áður en okkur varir, nema stjórnin hafi eitt-
hvað í pokahorninu, sem alþýða manna er leynd
— og þá af beim styrjaldaraðila, sem allur þorri
manna vill síður að hér setjist að.
Því betur sem menn huga að ástandinu í al-
þjóðmálum jafnframt ástandinu hér, því Ijósara
hlýtur mönnum að verða það, að ísland er algjör-
lega óundirbúið og varnarlaust.
Ef siglingatepppa verður af styrjaldarástæðum,
má búast við mjög almennum skorti á nauðsynj-
um, því að þegar er um mikinn skort að ræða, auk
þess sem stríðandi þjóðirnar í Evrópu yrðu vart
aflögufærar á matvæli og hráefni. Ef til árásar
kæmi, sem vel getur orðið, bá eru hér engin
hæli gegn sprengjum né heldur æft hjúkrunar- eða
lögregluliðið til þess að hafa umsjón með hegðun
almennings.
Þess hefur ver-ið lítillega minnzt í blöðunum
að æskilegt væri, að hér yrði stoínað landvarnarlið,
og fullyrða má að stofnun slíks liðs er bæði sjálf-
sögð og nauðsynleg. Allar þær þjóðir, sem ekki
eru í þjónustu einræðisherrans í Moskva, hafa
séð þann kost væn'stan að reyna efíir megni að búa
bannig að 'öryggismálum sínum, að herhlaup rúss-
nesku herjanna komi þeim ekki að óvörum. En auk
landvarnarliðs haía þau reglulegan her, sem án
nokkurs fyrirvara er tilbúinn að berjast við hlið
stórveldanna. og verja sameiginlegar hugsjónir um
frelsi gegn áþján.
Það má telja mjög varhugaverða og óæskilega
afstöðu stjórnarinnar, að ekki skuli vera gefin
nokkur skýring á því, hversu ætlazt er til að landið
verði varið í styrjöld. Blöð hinna vestrænu þjóða
hafa hvað eftir annað minnzt á hlutverk íslands,
ef til átaka kemur og fara ekki dult með það, að
eyjan er bæði nauðsynleg og skylda hennar sé ekki
síður en annarra þjóða í bandalagi lýðfrjálsra
þjóða að vera á verði gegn austrænu ofbeldi.
Fulltrúar okkar hafa setið fundi um þessi mál
en þeir hafa ekki enn talið tímabært að gefa yfir-
lýsingar varðandi þátttöku okkar. Allir fulltrúar
annarra landa telja það heilaga skyldu sína að
skýra löndum sínum hlutverk sinnar þjóðar. Hér
er um að ræða mjög almennt atriði í þjóðfélagi þar
sem stjórnmálamennirnir eru svo rígbundnir við
hreppapólitíkina og háðir pólitískum hrossakaup-
um, að þeir virðast láta sig það engu skipta, þótt
beii verzli með líf og limi landsmanna, ef þeir
halda að kjósendur leyfi beim að sitja á valda-
stóli hóti lengur.
Hreinlég yfirlýsing um. afstöðu ríkisstjórnar-
innar eða meirihluta hennar í landvarnarmálum
okkar er það minnsta, sem við getum vænzt af
leiðtogum þjóðarinnar á alvarlegum tímum. Hvar
er nú einurð og karlmennska þeirra, sem skrifa
um sig lofgreinar í stóru blöðin.
TORTRYGGILEG
LÆKNiSHJÁLP
Þau hörmulegu tíðindi
gerðu'st fyrir skömmu, að
ungur maður varð öðrum
manni að bana með hnefa-
höggi.
ÖII blöðin hafa skrifað
um þennan atburð, lýst að-
dragandanum og endalok-
unum, og mun blaðið ekki
ræða það nánar.
Blaðinu og öllum þorra
manna mun hins vegar
vera mikil forvitni á,
hvernig sé hagað vinnu-
brögðum á Iæknavarðstof-
unni eftir fréttum um at-
burðinn. Maður er fluttur
á varðstofuna, stórlega
meiddur og blæðandi, fær
að því er virðist ónákvæma
hjúkrun og er síðan vísað
brott. Ekki skal það rætt,
hvort bjarga hefði mátt lífi
mannsins, en hins vegar
verður að kref jast þess, að
heilbrigðisyfirvöldin hefji
þégar rannsókn um starf
læknis þess, sem gæzlu
Iiafði þetta kvöld.
Lögreglan hefur sætt
Aiþjóða Bridge-
keppni lokið
Síðastliðinn föstudag komu
frá Bermuda þeir Gunnar
Guðmundsson og Einar Þör-
finnsson, sem þangað fóru til
þátttöku í alþjóða brigde-
keppni.
Fyrir hönd Evrópu mættu
sex keppendur og voru f jórir
frá Svíþjóð en tveir héðan.
Brezka heimsveldið sendi sér-
staka keppendur.
Úrslit keppninnar urðu þessi:
USA — Bretland 3660.
USA — Evrópa 4720
Evrópa — Bretland 1940.
Það er ekki lítil viðurkenn-
ing fyrir Bridge-menn ísl.
þjóðarinnar að þeim býðst
þátttaka í slíkri keppni, enda
stóðu þeir sig sem fyrr með
ágætum. Allir landar þeirra
kunna þeim þakkir fyrir
frammistöðuna.
Barnasaga effir
Loff Guðmundsson
Blaðinu hefur borizt „Teikni-
bókin hans Nóa“, barnasaga
eftir Loft Guðmundsson,
blaðamann. Bókin er 32 blað-
síður í stóru broti, prýdd
fjölda mynda, sem teiknistof-
an Pictograph hefur gert.
Bók þessi er hin skemmti-
legasta aflestrar fyrir börn
og á efalaust gott erindi á jóla
markaðinn.
þungum ásökunum vegna
dauða manns nýlega — en
fregnir af dauða bifreiða-
stjórans eru þó enn vofveif-
legrí.