Morgunblaðið - 06.01.2005, Síða 1
2005 FIMMTUDAGUR 6. JANÚAR BLAÐ D
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÓLAFUR STÍGSSON ÚR LEIK HJÁ FYLKI / D4
REAL Madrid sigraði í „sjö mínútna“ leikn-
um í spænsku knattspyrnunni í kvöld en leik-
ið var gegn Real Sociedad. Leiknum var
frestað vegna sprengjuhótunar á Bernabeu-
leikvanginum í Madríd 12. desember en þá
var staðan 1:1 og 7 mínútur eftir af leiknum.
Í gærkvöld léku heimamenn af miklum
krafti frá upphafi enda vitað að leikmenn
myndu hafa þrek til þess að gefa allt sem
þeir áttu þann tíma sem eftir lifði. Franski
leikmaðurinn Zinedine Zidane tryggði Real
Madrid sigur með marki úr vítaspyrnu er 1
mínúta lifði af leiknum en brotið var á Bras-
ilíumanninum Ronaldo.
Þetta var fyrsti leikur Real Madrid undir
stjórn Wanderley Luxemburgo sem nýverið
tók við sem aðalþjálfari en þess má geta að
alls mættu 72.000 áhorfendur á völlinn.
Zidane tryggði
Real sigur
HÉR má sjá listann yfir landsleik-
ina sautján í handknattleik, sem
Svíar og Íslendingar hafa leikið á
sænskri grund frá því að þjóðirnar
léku þar fyrst í Lundi 1950 þar til í
ár, keppnisstaðir og úrslit við-
ureignanna – allt tapleikir:
1950 í Lundi..............................15:7
1959 í Borås............................29:16
1969 í Helsingborg................16:15
1977 í Halmstad.....................28:17
1977 í Ysrad ...........................20:14
1988 í Stokkhólmi..................23.20
1989 í Gautaborg...................25:24
1993 í Gautaborg...................21:16
1995 í Lindköping .................28:21
1998 í Eskilstuna ...................28:25
1999 í Gautaborg...................29:26
2000 í Solnar ..........................28:18
2000 í Lindköping .................30:24
2002 í Stokkhólmi..................33:22
2002 í Gautaborg...................31:26
2003 í Landskrona.................27:26
2005 í Borås............................29:28
Alltaf tap í Svíþjóð
Við höfum í gegnum tíðina veriðað tala um „Svíagrýluna“ en í
þessum leik fengum við nýja Grýlu
sem við þurftum að
glíma við og sú
Grýla var norsk.
En að mínu mati
var það norska
dómaraparið sem var erfiðasti
mótherjinn en þeir félagar fóru al-
veg á kostum í leiknum. Langt frá
því að vera boðlegt og að mínu
mati ætlaði annar dómari leiksins
okkur ekki að sigra í þessum leik.
Hann dæmdi eins og byrjandi frá
upphafi til enda,“ sagði Viggó og
var langt frá því að vera sáttur við
dómaraparið.
Roland frábær
Um leikinn sagði Viggó að
margt jákvætt mætti draga fram
úr leiknum og þá sérstaklega í
vörn og markvörslu en Roland
Eradze stóð í markinu frá upphafi
til enda og varði alls 19 skot. „Þeir
komust lítt áleiðis gegn 3:3 vörn-
inni okkar í fyrri hálfleik enda var
staðan 15:11 okkur í hag. Svíarnir
skoruðu megnið af sínum mörkum
eftir hraðaupphlaup en lítið utan
af velli. Ef ég ætti að nefna það
sem við getum bætt enn frekar er
það að við erum ekki nógu fljótir
að hlaupa aftur í vörnina og þeir
skora auðveld mörk í hröðum
sóknum.“
Viggó lét Alexander Petersson
leika í hægra horninu og var hann
ánægður með nýliðana í leiknum,
en Vilhjálmur Halldórsson fékk
einnig eldskírn gegn Svíum.
„Ég veit hins vegar að Guðjón
Valur Sigurðsson og Ólafur Stef-
ánsson geta gert mun betur en
þeir sýndu í þessum leik. Báðir
misnotuðu þeir 3–4 upplögð færi
einn gegn markverði og Ólafur
gerði einnigtæknileg mistök í
sendingunum. En það er jákvætt
að við eigum þá bara inni fyrir síð-
ari leikinn í Skövde. Ég þarf ekki
að segja þessum leikreyndu mönn-
um að þeir voru slakir í þessum
leik og þeir vita það vel sjálfir,“
sagði Viggó Sigurðsson.
„Svíagrýlan“ sofnaði ekki á verðinum í gærkvöld í Borås en Íslendingar máttu þola tap á lokasekúndunni
Norsk
grýla var
á sveimi
FREDRIK Lindahl tryggði Svíum sigur er fimm sekúndur voru eftir í
vináttulandsleik gegn Íslendingum í Borås í gær, en jafnt var á með
liðunum er Svíar hófu síðustu sókn leiksins – lokatölur 29:28. Viggó
Sigurðsson, þjálfari íslenska landsliðsins, var samt sem áður
ánægður með leik íslenska liðsins en taldi að í leiknum hefðu
vandamál handknattleiksíþróttarinnar komið berlega í ljós.
Ljósmynd/Berndt Wennebrink
Alexander Petersson skoraði þrjú mörk úr hægra horninu í fyrsta landsleik sínum fyrir Ísland
gegn Svíum í Borås í gær – og hér skorar hann eitt marka sinna.
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson
ÉG hef reynt að ná í Jaliesky
Garcia undanfarna daga á Kúbu
og án árangurs fram að þessu,“
sagði Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri Handknattleiks-
sambands Íslands í gær, en ís-
lenski landsliðsmaðurinn hefur
ekkert látið í sér heyra frá því
hann fór til Kúbu frá Þýska-
landi til þess að vera við útför
föður síns sem lést á öðrum degi
jóla. Einar sagði að Garcia hefði
ekki leikið síðasta leik Göpp-
ingen fyrir áramót og haldið
rakleiðis til Kúbu án þess að
láta Viggó Sigurðsson landsliðs-
þjálfara vita af ferðum sínum,
eða starfsfólk HSÍ. „Að sjálf-
sögðu skiljum við að Garcia
þurfi að sinna sínum málum
vegna fráfalls föður síns en það
sem okkur finnst verra er að
hann hefur ekki látið einn né
neinn vita af ferðum sínum frá
því hann kom til Kúbu. Og hvort
hann sé klár í slaginn á heims-
meistaramótið í Túnis,“ sagði
Einar í gær við Morgunblaðið.
Einar hefur einnig reynt að ná
tali af forráðamönnum Göpp-
ingen en skrifstofa félagsins
verður lokuð fram til 10. janúar
en flest handknattleikslið í
Þýskalandi hafa gefið starfsfólki
sínu og leikmönnum frí fram að
þeim tíma.
Jaliesky Garcia hefur
enn ekki látið vita af sér