Alþýðublaðið - 31.05.1922, Síða 2
2
ALÞYÐUBLAÐIÐ
vva flokksmönnum. Listinn hefir
Kloíið íremsta sæti þeirra lísta er
fram komu A-listinn. Allir verka
menn og konur og yfirleitt ailir
þeir sem unna mannúðinni munu
kjósa þann lista. Enginn má ijggja
á liði sinu. Allir verða að kjósa
A listann.
Þið, sem af handafla ykkar lifið,
munið áð ekki eru slysin lengi að
vilja til, þá þurfið þið kannske að
leita á náðir þjóðfélagsins, og
verðið þá svift öllum mannréttind
um. Kjósið því þá eina, er afnema
viija þetta hróplega misrétti, er
Jón Magnússon á mesta sök á,
að ennþá er við lýði Munið að
Alistinn er listi Alþýðuflokksins.
Kvásir.
Fluflið krinpm jörðina.
Eins og getið var um í sím-
skeytum til dagblaðanna hér, er
írlendingurinn Blake, ásamt Eng
lendingnum Broom og Skotanum
Macmiiiam á flugi kringum jörð-
ina.
Bl&ke hefír undanfarlð verið
fljúgandi fréttaritari enska blaðsins
.Daily News*. I fyrrasumar flaug
haun íyrir blað sitt til hungurs-
héraðanna í Rússlandi til þess að
rannsaka ástandið, siðan hefír
hann skroppið tii Marokko. Blake
er 31 árs gamall og herforingi.
24. maí lögðu þeir iélagar af
stað frá London Þeir fara þaðan
um Frakkland, ftaliu, Grikkland,
Krítey tii Egyftalands og þaðan
með viðkomu i Bagdad og Basra
til Karí chi og Kaikutta i fndlandi;
því næst meðfram ströndinni á
Birma til Ramgoon, þaðan til Lai-
gon og Hongkong, meðfram strönd
Kina til Tokio; því næst með
strönd Koreu og Síberíu til Aieu-
terne, þaðan til Alaska og yfír
pvert Kanada tii Bandarikjanna
og New York. Þaðan fer hann
norðureítir til Nýfundnalands, það-
an til Reykjavikur, um Færeyjar
til Skotiands og svo verður ferð-
inni lokið i London. þessa leið
um Grænland og ísland velja þeir
félagar til þess að fá sem skemsta
leið yflr sjó, en það verður um
1300 km. Auk þess álíta þeir að
þessi leið sé frá náttúruanar hendi
jheppiiegust.
Blake mun ekki reyna að ná
meti í þessu flugi, en hann vonar
að verða skemur á leiðinni en
þeir sem áður hafa fljótastir verið,
sem er 60—70 dagar.
4. maí flaug Blake yflr Ermar-
sund, og setti þá rret Saemma
um morguninn lagði flugvélin af
stað frá Croydon Morgunverður
var etinn í Paris og aftur lagt af
stað til Croydon og komið þang
að ki. 12. Þaðan var farið til le
Bourget kl 2,52 siðd. Te var svo
drukkið i Paris og þaðan farið
aftur til Croydon og komið nægi
lega snemma til þess að borða
miðdegísverð. Til jafnaðar fór
flugvélin 117 milur á klst. og er
þar með sett met i fleiru en einu
falli. Þetta er i fyrsta sinn sem
farið hefir verið í flugvél milli
London og Parisar tvisvar á dag,
það er í fyrsta sinn sem sama
véi heflr farið i samskonar ferð,
það er í fyrsta sinn að farið hefir
verið 4 sinnum fram og aftur yfir
Ermarsund á skemri tfma en 24
kist. með farþega, og það er i
fyrsta sinn sem meira en IOOO
miiur hafa verið farnar i flugvél
á 9 klst.
I nglegur sláttnnaðiir.
Undanfarin tvö sumur heflr maður
að naíni Sigurgeir Albertsson, ætt-
aður norðan af Vatnsnesi, verið
i kuupavinnu hjá Einari Gunnars-
syni í Gröf í Breiðuvík, og þykir
hann vera atkvæða-sláttumaður. —
Sumarið 1920 slö Sigurgeir á engi,
hektarann á 7 klukkust. og 21
mínútu. Það var í þurki og beit
ekki vel á, enda þurfti hann að
brína sjötiu sinnum þennan tíma.
Féllu af blettinum 15 þurrabands
hestar.
í fyrrasumar, 19. ágúst, sló bann
sörnu skák, 1 hektara á 5 kiukkust.
og 22 mínútum. Það var rösklega
að verið. Og á þessum tíma drakk
hann tvisvar kaffl og fóru i það
8 míuútur. Hefir hann því í raun
og veru siegið skákina á 5 stund-
nm og 14 mínútum.
í þetta sinn var góð rekja, og
bríndi sláttumaðurinn ekki nema
42 sinnum. Tók það V4—lJ% mfn-
útu í hvert sinn að brína. Ljá
farið var 40 sm til jafnaðar, og
heii-skárinn 4—5,5 metra breiður
eftir iandslagi. Éts lacdið er vei
greiðfært, Og sléttir blettir innan
um.
Sigurgeir slær skorpuiaust, en
jafnt og liðiega. Hann virtist ekki
taka nærri sér, og. var ómóður,
er hann iauk við skákina. Hann
byrjaði á þessari útmældu skák
kl 3 um dagina, og hafði þá fram
að því slegið */* hektara — Hið
eina, er finna mætti að siætti hans
er það, að hann slær ekki rétt
vel. Verða sumstaðar eftir ofur-
smáar manir og toppar. En at-
ment séð, er þó þessi hliðin á
slætti hans, — á útjörð — óað-
finnanleg.
Sigurgeir hefir nú sett nýtt met
í slætti. Hver gerir það næst?
mFreyrm.
jerðnm Ólajs.
(Einkaskeyti til Alþýðublaðsins.j
Norðfirði, 30. maf.
Ölafur Friðriksaon kom hingað
f nótt á mótorbátnum Drífa, eftir
7 tfma ferð af Seyðisfirði. Véla-
biiun á hafi.
Km iagims if vegluL
Syndlr Jóns Magnússonar hafa
undanfarið verið taldar upp £
Morpunblaðinu, og þykir sumum
þar undarlega við bregða, er sjálft
málgagn Jóns reynir að sanna
mönnum það, að þrátt fyrir sv©
mörg stjórnarár Jóns hafi hann
ekki verið viðriðinn nein af heiztu
stórmálum landsins. Ýmist sé það
látinn maður, eða Magnús Guð-
mundsson, sem starfað hafi að
málunum, eða þá Aiþingi. En
hvað hefir þá Jón Magnússon gert
f stjórn landsins? Hefir hann bara
streizt við að sitja öll þessi ár?
Aumingja Moggi, honum gengur
hálf klaufalega að hampa Jóni.
Hvað eftir annað hefir hann hæðst
að honum og nú kórónar hann
alt saman með þvf að sanna það
að Jón hafi verið eitt stórt núil i
iandsstjórninni. Hvað hefir hann
þá að gera á þing? — Syndir