Morgunblaðið - 13.01.2005, Síða 35

Morgunblaðið - 13.01.2005, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2005 35 MINNINGAR Nú er komið að kveðjustund. Þórður og Bagga voru samhent hjón og söknuður Þórðar því mikill er Bagga féll frá fyrir tæpum níu árum. Sem barni fannst mér ævintýri líkast að heimsækja þau í Bólstað- arhlíðina og síðar í Mávahlíðina og Hraunbæinn. Ætíð var gestkvæmt á heimili þeirra af vinum og ættingj- um. Á afmælisdegi Böggu, 6. desem- ber, mátti ég fara í jólakjólnum mín- um í veisluna og eflaust hefur mér þótt það tilheyra því mér var treyst fyrir að nota fína sparistellið og veit- ingarnar voru eftir því. Og yfirleitt var lagt á borð í borðstofunni frekar en eldhúsinu hvort sem haldin var veisla eða drukkið hversdagskaffi. Þórður hafði alltaf áhyggjur af að gestirnir væru sársvangir og ef þeir röðuðu ekki krásunum í sig að hans ósk spurði hann hvort þetta væri svona vont?! Mælti hann þá með að bæta smá „smér“klípu við af ís- lensku smjöri hvort sem var á jóla- kökurnar eða á fiskinn, já „smér“ var hægt að nota með öllu. Ófáir voru bíltúrarnir farnir í leigubílnum hans og síðar er þau hjón keyptu hjólhýsi opnaðist algjör draumaveröld hjá mér sem barni og meira að segja uppvaskið varð bráð- skemmtilegt í litla vaskinum. Mér er einstaklega minnisstæð jólabjalla sem Þórður átti og sagði að í byggi jólasveinn, þegar togað var í spottann hraut hann en síðan spilaði hann þetta fallega jólalag! Og síðan skellihló Þórður því ég var agndofa yfir þessari skemmtilegu galdra- bjöllu. Ég vil þakka allar góðar og skemmtilegar stundir og er sann- færð um að nú hafa þau hjón hist aft- ur og tekið upp þráðinn sem frá var horfið. Blessuð sé minning hans. Kristín Guðjónsdóttir. Mig langar með nokkrum orðum að minnast föðurbróður míns Þórðar Elíassonar. Hann var einn af systk- inunum frá Saurbæ í Holtum og eru þau nú öll látin. Minningarnar leita á hugann við fráfall Þórðar. Hann var heilsteypt- ur persónuleiki og ákaflega hlýr og greiðvikinn við okkur bræðurna, eins og öll systkini hans. Hann var ættfróður og minnugur á menn og málefni. Ég minnist Þórðar og Böggu konu hans þegar þau komu austur að ÞÓRÐUR ELÍASSON ✝ Þórður Elíassonfæddist í Saurbæ í Holtum í Rangár- vallasýslu 21. apríl 1917. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Eir aðfaranótt 29. desember síðastlið- ins og fór útför hans fram frá Árbæjar- kirkju 7. janúar. Saurbæ á sumrin með hjólhýsið sitt og voru í nokkra daga hjá okkur og þá var gaman að spjalla saman um gam- alt og nýtt. Það var ákaflega gott að koma til þeirra hjóna í Bólstaðarhlíð- ina, Mávahlíðina eða í Hraunbæinn og alltaf var borið fram það besta, sem var til hverju sinni, og enginn fór frá þeim fyrr en hann var mettur. Eftir að þau fluttu í Hraunbæinn fór heilsu Böggu að hraka og þá hugsaði Þórður um hana af mikilli umhyggju og einnig eftir að hún fór á Eir. Hann heimsótti hana eins oft og hann gat og tók hana einnig heim um helgar þegar heilsan leyfði það, og gerði allt til þess að gera henni lífið léttara. Þórður var leigubílstjóri á Hreyfli í mörg ár og var mikils metinn í því starfi og var valinn til trúnaðarstarfa hjá því félagi. Hann var þar við störf þar til heilsa og aldur fóru að segja til sín. Þegar ég var á Bændaskólanum á Hvanneyri árið 1970 kom taflfélag Hreyfils til að tefla við nemendur og var Þórður einn af þeim sem komu til okkar. Hann var þá stjórnarformað- ur Samvinnufl. Hreyfils og hélt ræðu í skólanum og sagðist hafa komið með af því að frændi hans væri í skólanum. Þá var ég ákaflega stoltur af Þórði frænda mínum og sá hve mikils metinn hann var á Hreyfli og hvað hann lagði á sig til þess að rækta frændsemina. Þórður hugsaði mikið til átthag- anna og vildi fylgjast með öllu sem þar gerðist og ef einhverjar fram- kvæmdir voru fyrirhugaðar eða eitt- hvað var verið að byggja í Saurbæ kom Þórður austur og lét álit sitt í ljós á framkvæmdunum fullur áhuga. Einnig á sínum tíma, þegar faðir minn lét ræsa fram mýrarnar með finnskum lokræsaplóg, sem var þá nýjung í framræslu mýrlendis, þá kom Þórður austur og fylgdist með framkvæmdinni og spurði svo oft hvernig rynni úr ræsunum. Þannig var hann alla tíð með hugann við hvað væri verið að gera í sveitinni sinni. Þórður var mikill áhugamaður um uppbyggingu Hagakirkju og gaf m.a. til þeirrar uppbyggingar. Hann vildi koma þar við þegar hann kom austur og tók þá aðeins í orgelið, til að heyra orgeltónana hljóma í kirkjunni. Þórður vildi velferð sinna nánustu sem mesta, og sveitarinnar sinnar þar sem hann var fæddur og uppal- inn. Með þessum fátæklegu orðum vil ég minnast frænda míns Þórðar, með hlýhug, þökk og virðingu. Guð blessi minningu hans. Elías Pálsson. Nú er Þórður Elíasson fallinn frá 8 árum eftir að elskuleg eiginkona hans Guðbjörg Jónsdóttir lést.Er ég hugsa til baka koma upp í huga minn skemmtilegar minningar um þau hjónin Böggu og Þórð. Ferðir í hjól- hýsið þeirra í Þjórsárdalnum, góðar stundir í Heimalandi hjá Ingu ömmu, ótal heimsóknir í Mávahlíð- ina. Fallega heimilið þeirra var engu líkt fyrir litla glysgjarna dömu eins og mig. Þau áttu svo marga fallega hluti sem ég fékk að skoða og koma við eins og mig lysti. Þær eru margar myndirnar sem ég á til af mér í kjól- um og með skartið hennar Böggu frænku! Ég var svo heppin að vera skyld þeim báðum, þar sem Bagga var systir Guðmundar afa míns og Þórður var bróðir Ingu ömmu. Ég leit þó alltaf á Böggu og Þórð sem einskonar ömmu mína og afa enda voru þau alltaf svo góð við mig. Í hvert sinn sem við komum í heim- sókn var lagt á borð með borðbúnaði sem myndi sæma kóngafólki og kappkostað að bera fram dýrindis kræsingar og troða í okkur. Það þýddi sko ekki að fara saddur til Böggu og Þórðar, því ef við borð- uðum ekki nógu mikið eða vorum eitthvað að halda í við okkur þá var spurt: Hva, er þetta svona vont hjá mér? Og það voru kræsingarnar svo sannarlega ekki, þannig að það var ekki annað hægt en að halda áfram að raða í sig. Ég man að frá fæðingu hafa þau gefið mér svo fallega muni. Ég var nú oft hissa á fullorðinsgjöfunum frá þeim eins og kristalsmunum, bókum, spiladós, jólakirkju, glerbjöllu o.fl. sem hæfðu kannski ekki litlum og klaufalegum fingrum, en í dag eru þessar gjafir ómetanlegar fyrir mig. Handgerða dúkkukarfan sem Bagga bjó til fyrir mig er enn í notkun. Mér þykir einnig mjög vænt um að hafa fengið nokkra muni frá búskap þeirra hjóna sem núna prýða heimili mitt og minna mig á þau. Nú kýs ég að trúa því að þau séu sameinuð á ný hjá Drottni og eru væntanlega að leggja á borð fyrir kóngafólk, systk- ini sín og foreldra þeirra beggja, ást- vini sem farin eru yfir móðuna miklu. Hvíl í friði elskulegu hjón. Með þökk fyrir gamlar, hlýjar og ógleym- anlegar stundir. Hildur Guðjónsdóttir, Hólmavík. Erfidrykkjur Salur og veitingar Félagsheimili KFUM & KFUK Holtavegi 28, 104 Reykjavík. Upplýsingar í síma 588 8899. www.kfum.is Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VILHJÁLMUR ÓSKARSSON frá Reiðholti, Lýtingsstaðahreppi, andaðist á Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki laugardaginn 8. janúar. Jarðarförin fer fram frá Mælifellskirkju laugar- daginn 15. janúar kl. 11.00. Ingimar Vilhjálmsson, Guðrún Kristmundsdóttir, Laufey Þ. Vilhjálmsdóttir, Árni P. Björgvinsson, Sigurlína Vilhjálmsdóttir, Sveinn Árnason, Óskar S. Vilhjálmsson, Elísabet B. Vilhjálmsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Okkar góða móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN JAKOBSDÓTTIR fyrrum húsmóðir á Grund, sem andaðist á Héraðssjúkrahúsinu á Blöndu- ósi miðvikudaginn 5. janúar, verður jarðsungin frá Blönduóskirkju laugardaginn 15. janúar kl. 13.00. Jarðsett verður í Auðkúlukirkjugarði. Lárus Þórðarson, Valdís Þórðardóttir, Brjánn Á. Ólason, Ragnhildur Þórðardóttir, Sigurður H. Pétursson, Þorsteinn Tr. Þórðarson, ömmu- og langömmubörnin. Ástkær dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞURÍÐUR AXELSDÓTTIR sjúkraliði, Marklandi 2, Reykjavík, sem lést laugardaginn 8. janúar, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 14. janúar kl. 13.00. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Þorbjörg Bjarnadóttir, Herborg Þuríðardóttir, Gunnar B. Þorsteinsson, Matthildur Þuríðardóttir, Hólmgrímur Sigvaldason og barnabörn. Ástkær móðir okkar og tengdamóðir, SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR frá Görðum, Ægisíðu 52, Reykjavík, sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut fimmtudaginn 6. janúar, verður jarðsungin frá Neskirkju mánudaginn 17. janúar kl. 13.30. Fyrir hönd fjölskyldna okkar, Ólafur Rúnar Jónsson, Steinunn María Valdimarsdóttir, Ólöf Kristín Sigurðardóttir, Sigurþór Heimisson. Ástkær bróðir okkar, mágur, frændi og vinur, JÓN INGVARSSON, Silfurtúni, Búðardal, lést sunnudaginn 9. janúar. Jarðsett verður frá Hvammi í Dölum laugardaginn 15. janúar kl. 14.00. Sigurbjörg Kristjana Ingvarsdóttir, Árni Ingvarsson, Grétar Bæring Ingvarsson, Mundhildur Birna Guðmundsdóttir og fjölskylda, Júlíus Baldursson. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, PÉTUR HALLGRÍMSSON, Hrafnistu, sem lést á Landspítalanum Fossvogi föstu- daginn 7. janúar, verður jarðsunginn frá Árbæj- arkirkju í dag, fimmtudaginn 13. janúar, kl. 15. Hallgrímur Pétursson, Áslaug Haraldsdóttir, Jörgen Pétursson, Jóhanna Pétursdóttir, Rafn Guðmundsson, Sólborg Pétursdóttir, Sturla Jóhannsson, Kristín Pétursdóttir, Þóroddur Gunnarsson, Soffía Pétursdóttir, Arne Jónsson, Pétur Guðni Pétursson, Anna Soffía Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.