Morgunblaðið - 15.01.2005, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2005 53
MENNING
ÞESSI þrjú rit eru næsta ólík. Öll
hafa þau valið sér sitt sérstaka
snið.
Árbók Ólafsfjarðar er langyngst,
kemur nú út í fimmta sinn. Hún er
í allstóru broti. Þrír leturdálkar
eru á síðu og myndir eru fjölmarg-
ar. Hún er nýtískulegust hinna
þriggja og hefur ekki við gamlar
hefðir að styðjast. Áberandi eru
hversu mjög hún er bundin Ólafs-
fjarðarkaupstað – Horninu. Þar er
myndasíða af þeim sem fæddust á
árinu 2003, önnur myndasíða af
þeim sem fermdust og sú þriðja af
þeim sem gengu í hjónaband. Aft-
arlega í ritinu eru minning-
argreinar um látna. Annáll Ólafs-
fjarðar 1900–2000 sem hófst fyrir
nokkrum árum heldur nú áfram og
eru tekin fyrir árin 1936–1940.
Friðrik G. Olgeirsson sagnfræð-
ingur hefur tekið þennan annál
saman. Ólafsfjörður eru nú hrað-
fara að taka á sig svipmót kaup-
staðar. Aðalskipulag hefur verið
samþykkt og þegar þessu tímabili
lýkur eru íbúar kauptúnsins orðnir
736.
Ýmsar smágreinar eru í þessu
forvitnilega hefti. Þar er sögð saga
merkra hjóna, Þorsteins Þorkels-
sonar og Guðrúnar Ólafar Jóns-
dóttur frá Ósbrekku. Þá er brot úr
ævisögu einkar listfengrar konu,
Kristínar Þorsteinsdóttur, ásamt
litmyndum af nokkrum listmunum
hennar. Og sitthvað fleira er hér
að finna.
Skagfirðingabók
Skagfirðingabók kemur nú út í 29.
sinn og er því orðin gamalgróin.
Mér skilst að ákveðið hafi verið að
hún muni nú koma út annað hvert
ár, svo að árbók getur hún naum-
ast talist lengur. Meginefni ritsins
er að þessu sinni tvær langar rit-
gerðir. Sú fyrri er ritgerð um
Hjörleif Kristinsson bónda á Gils-
bakka í Austurdal. Hjörleifur ólst
upp á Gilsbakka frá ellefu ára aldri
í skjóli fóstra síns Hjörleifs Jóns-
sonar bónda þar og gerðist svo
sjálfur bóndi á Gilsbakka og dvald-
ist þar uns hann lést árið 1992. Ná-
granni Hjörleifs og vinur í áratugi
Gunnar Oddsson í Flatatungu ritar
þessa ágætu grein. Hjörleifur var
einkar sérstæður maður, sem öll-
um varð minnisstæður, sem honum
kynntust. Hann var mikill nátt-
úruunnandi og raunar vís-
indamaður í grasafræði. Þá var
hann bráðvel hagmæltur.
Önnur langa greinin nefnist Goð-
dæla. Hugleiðingar um fornbyggð í
Vesturdal. Þá grein skrifar hinn
merki fræðimaður Kristmundur
Bjarnason á Sjávarborg. Raunar er
þetta miklu meira en ,,hugleið-
ingar, því að um er að ræða ít-
arlega heimildakönnun á fornbyggð
í þessum langa og skjólríka dal.
Kristmundur hefur fengist lengi
við þessa rannsókn og er mér
kunnugt um að þessi ritgerð er að-
eins hluti af miklu stærra verki,
sem vonandi á eftir að koma fyrir
sjónir lesenda. Annað efni í þessu
riti eru smágreinar og frásagnir.
Árbók Þingeyinga
Þá kemur að þriðju árbókinni, Ár-
bók Þingeyinga. Hún er langelst
þessara þriggja og kemur nú út í
fertugasta og sjötta sinn, alltaf
með sama sniði eins og vera ber.
Hún flytur einar tólf stuttar rit-
gerðir eða frásagnir og er þar að
mörgu vikið. Athyglisverðar þykja
mér tvær ritgerðir um nauðlend-
ingu þýskrar flugvélar við Leirhöfn
í lok seinni heimsstyrjaldarinnar
og björgun flugmannanna af
heimamönnum. Þá vil ég nefna
fróðlega grein Sigurðar Gunn-
arssonar um ufsaveiðar með hring-
nót 1962–1975. Og margt er hér
fleira bitastætt sem oflangt yrði
upp að telja. Fréttir úr héraði taka
hér mikið rúm eins og vonlegt er,
þar sem um tvær sýslur er að
fjalla og Húsavík til viðbótar. Smá-
greinar eru um alla sem látist hafa
á árinu 2003.
Það má vel vera að sumum bók-
menntapáfum þyki ekki mikið til
héraðsrita sem þessara koma. Þar
er ég á öðru máli. Þau bera með
sér blæ menningar í byggðum
landsins. Þar er í raun fjöl-
breytilegra og gróskumeira mann-
líf en sumir ætla sem ekki þekkja
til. Og síst má gleyma að málfar
þessara ágætu rita er yfirleitt
vandaðra en maður sér og heyrir
annars staðar.
Þrjár ólíkar árbækur
Sigurjón Björnsson
BÆKUR
Héraðsrit
Árbók Ólafsfjarðar 2003
5. árg. Útg.: Hornið
Ritstj. og ábm.: Hannes Garðarsson
Ólafsfirði, 124 bls.
Skagfirðingabók, 29. árg.
Rit Sögufélags Skagfirðinga
Ritstjórn: Gísli Magnússon, Hjalti Páls-
son, Sigurjón Páll Ísaksson, Sölvi Sveins-
son
Reykjavík, 2004, 216 bls.
Árbók Þingeyinga 2003, XLVI. árg.
Ritstj.: Guðni Halldórsson, Sigurjón Jó-
hannesson
Útg.: Suður-Þingeyjarsýsla, Norður-
Þingeyjarsýsla, Húsavíkurbær
Akureyri, MMIV, 280 bls.
DANSKA dag-
blaðið Jyllands-
Posten hefur út-
nefnt Ólaf Elías-
son listamann
ársins í Dan-
mörku. Var
Ólafi veitt við-
urkenning í
ARoS-safninu í
Árósum en þar
er hann um þessar mundir með
stóra sýningu sem nefnist „Mind-
ing the World“.
Blaðið segir að stjarna Ólafs
hafi tekið að rísa þegar á náms-
árunum í Kaupmannahöfn og í
dag sé hann einn eftirsóttasti
myndlistarmaður heims. Geti valið
úr tilboðum frá listasöfnum og
sýningarsölum um gjörvallan
heim.
Metaðsókn í Árósum
Sýningu Ólafs í Árósum lýkur á
morgun en 140 þúsund manns
hafa séð hana síðan hún var opn-
uð í október síðastliðnum. Það
mun vera mesta aðsókn á sýningu
í 145 ára sögu safnsins.
Ólafur valinn
listamaður ársins
Ólafur Elíasson
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
70
43
01
/2
00
5
ÚTSALA
á hollustu
á Græna torginu Sigtúni
laugardag og sunnudag
10-30% afsláttur
af öllum vörum, m.a.
ávöxtum og grænmeti, lífrænt
ræktuðum vörum, vítamíni, bætiefni,
sælkeravörum o.m.fl.
Fuglasýning
halda glæsilega sýningu
á páfagaukum og ýmsum
öðrum fuglategundum í
Blómavali Sigtúni um
helgina.
Laugard. kl. 11.00 - 18.00
Sunnud. kl. 11.00 - 18.00
Fuglar í ótal stærðum,
gerðum og litum.
Dýralæknir frá Dýraspítalanum
verður til skrafs og ráðagerða
kl. 13-15 laugard. og sunnudag.
Blómaval, Dýraríkið og Fuglavinir