Morgunblaðið - 17.01.2005, Page 2
2 MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
GÁFU 110 MILLJÓNIR
Um 110 milljónir söfnuðust í
landssöfnuninni Neyðarhjálp úr
norðri vegna náttúruhamfaranna í
Asíu. Elín Þorsteinsdóttir, verkefn-
isstjóri söfnunarinnar, segir verk-
efnið hafa farið fram úr björtustu
vonum.
Halldór Ásgrímsson forsætisráð-
herra segir að með söfnuninni komi
skýrt fram að Íslendingar sýna mik-
inn samhug með því fólki sem er
hrjáð af völdum náttúruhamfaranna
í Asíu.
PLO leggst gegn árásum
Framkvæmdastjórn Frels-
issamtaka Palestínumanna (PLO)
krafðist þess í gær að herskáar, pal-
estínskar hreyfingar hættu árásum
á Ísraela og sagði að þær gæfu Ísr-
aelsstjórn „afsökun“ fyrir því að
hindra friðarumleitanir. Fyrr um
daginn kvaðst Ariel Sharon, for-
sætisráðherra Ísraels, hafa fyr-
irskipað hernum að herða aðgerð-
irnar gegn hreyfingunum til að
koma í veg fyrir árásir á Ísraela.
Sakaði hann Mahmoud Abbas, nýjan
forseta Palestínumanna, um að hafa
ekki gert neitt til að hindra þær.
ÍE uppgötvar merkilegt gen
Vísindamenn Íslenskrar erfða-
greiningar hafa uppgötvað breyt-
ingu í erfðamengi mannsins, svo-
nefnda umhverfu sem orðið hefur til
fyrir þremur milljónum ára. Rann-
sóknir á eiginleikum hennar hafa
leitt í ljós að þeir einstaklingar sem
hafa þessa umhverfu í erfðamenginu
eignast að meðaltali fleiri börn en
aðrir.
Snjóflóðs í Súðavík minnst
Hátt í 200 manns voru við minn-
ingarguðsþjónustu í íþróttahúsinu í
Súðavík í gær þegar snjóflóðsins og
þeirra fjórtán sem í því fórust fyrir
tíu árum var minnst. Þá var haldin
minningar- og bænastund í Lága-
fellskirkju í Mosfellsbæ í gærkvöldi
en hún var í höndum þeirra sr. Jak-
obs Ágústs Hjálmarssonar og sr.
Karls V. Matthíassonar.
Í fangelsi fyrir pyntingar
Margir Írakar létu í gær í ljósi
óánægju með þá ákvörðun herréttar
í Bandaríkjunum að dæma banda-
ríska herlögreglumanninn Charles
Graner í tíu ára fangelsi fyrir að
misþyrma föngum í Írak og nið-
urlægja þá kynferðislega. Þykir
mörgum Írökum að dómurinn sé of
vægur. Herlögreglumaðurinn átti
yfir höfði sér allt að sautján ára
fangelsi.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 31
Viðskipti 11 Bréf 22
Erlent 12/13 Dagbók 30/32
Listir 14/16 Leikhús 33
Umræðan 17/22 Fólk 34/37
Forystugrein 20 Bíó 34/37
Hestar 23 Ljósvakar 38
Minningar 24/29 Veður 39
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is Skarp-
héðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FJÓRIR vélsleðamenn voru sóttir
sjóleiðina í slysavarnaskýlið í Héðins-
firði á laugardagskvöldið en áður
höfðu björgunarsveitarmenn sótt fé-
laga þeirra í Hólsskarð. Komið var
með þá til Siglufjarðar um miðnætti
og var einn þeirra, sem meiðst hafði á
hné, lagður inn á sjúkrahúsið þar.
Að sögn Ægis Bergssonar, for-
manns Björgunarsveitarinnar Stráka
á Siglufirði, voru tveir þeirra sem
sóttir voru í Héðinsfjörð lítillega slas-
aðir og þörfnuðust læknisaðstoðar.
Hann segir að þar sem færð hafi verið
mjög þung hafi verið ákveðið að
björgunarskipið Sigurvin myndi sigla
með björgunarsveitarmenn og lækni
í Héðinsfjörð, en gott var í sjóinn að
sögn Ægis en nær ómögulegt að
flytja mennina landleiðina. Maðurinn,
sem sóttur var í Hólsskarð, var með
farsíma og gat látið vita af sér og af
ferðum félaga sinna. Sóttu björgun-
arsveitarmenn hann síðan á vélsleð-
um og snjóbíl. Vélsleðamaðurinn var
vel á sig kominn þegar hann fannst
enda vel klæddur og amaði ekkert að
honum.
Einn vélsleðamannanna, Stefán
Einarsson, fyrrverandi bóndi í Siglu-
nesi, segir að ekkert hafi amað að
þeim í skýlinu í Héðinsfirði en hins
vegar hafi talstöðin þar verið raf-
magnslaus og því hafi þeir ekki getað
látið vita af sér. Stefán segir óverj-
andi að talstöðin í skýlinu sé raf-
magnslaus.
Meiðsli annars mannanna hafi ver-
ið mjög lítil, hann hafi aðeins marist,
en hinn hafi meiðst á hné þegar sleði
hans fór fram af hengju. Þeir hafi því
ætlað að bíða af sér veðrið í skýlinu í
Héðinsfirði en fara síðan til Siglu-
fjarðar þegar því slotaði þar sem einn
sleðanna sem þeir voru á hafi verið
lítill og ekki komist upp úr firðinum.
Stefán segir björgunarsveitina á
Siglufirði hafa gefið út að ekkert yrði
leitað að þeim en einn eigenda Þor-
móðs ramma hafi hins vegar gengið í
það að farið yrði sjóleiðina og björg-
unarsveitarmenn hefðu síðan fengið
far með skipinu.
Stefán, sem er alvanur sleðamaður
og hefur ferðast ótal sinnum á þessu
svæði, segir þá fimmmenninga hafa
verið að leita kinda, þrír þeirra hafi
verið á öflugum sleðum en svo hafi
tveir minni sleðar verið með í för.
Annan þeirra hafi þeir skilið eftir
þegar þeir fóru ofan í Héðinsfjörð og
hann tekið þann vélsleðamann á sinn
sleða. Þegar halda átti heim hafi hann
farið með þann mann upp og beðið
hann að bíða uns þeir kæmust allir
upp. Engin vandræði hafi verið að
koma stærri sleðunum upp en brös-
uglega hafi gengið með minni sleð-
ann, hann síðan lent fram af hengju
og ökumaður hans meiðst. Stefán
segir að vélsleðamaðurinn sem upp
var kominn hafi síðan gerst óþolin-
móður og haldið út í sortann og lent
ofan í Hólsdal. Þess vegna hafi hann
síðan haft samband við lögregluna.
Vélsleðamenn sótt-
ir í Héðinsfjörð
RÚMLEGA 41% allra einstaklinga
sem töldu fram til skatts á árinu
2003 voru ekki í sambúð og ekki
með börn á framfæri sínu. Í vefriti
fjármálaráðuneytisins er fjallað
um fjölskyldumynstur framtelj-
enda hér á landi og þar kemur
fram að árið 2003 voru þessir
framteljendur, sem voru hvorki í
sambúð né með börn á framfæri
sínu, alls tæplega 96.000 en fram-
teljendur alls á landinu voru þá
230 þúsund.
Stór hluti þessa hóps er ungt
fólk en 55.000 af þessum hópi voru
25 ára og eldri. Hjón eða sam-
sköttuð pör sem ekki eru með
börn á framfæri (yngri en 16 ára)
voru tæplega 30.000. „Pör með eitt
barn voru samtals rúmlega 12.000
en pör með tvö börn voru litlu
færri. Næsti hópur þarna á eftir
eru einstæðir foreldrar með eitt
barn en í honum voru 6.700 full-
orðnir. Einstæðir foreldrar með
tvö börn voru rúmlega 5.100 en
næsti hópur þar á eftir eru pör
með þrjú börn, tæplega 4.600.
Einstæðir foreldrar með 3 börn
voru rúmlega 2.300. Pör með 4
börn og fleiri voru tæplega 800 en
einstæðir foreldrar með svo mörg
börn litlu færri,“ segir í vefriti
fjármálaráðuneytisins.
41% framtelj-
enda einhleypir
og barnlausir
ÓVENJU mikill snjór hefur verið á höfuðborgarsvæðinu
í vetur og þótt hann kunni að fara fyrir brjóstið á öku-
mönnum léttir hann þó skammdegið og býður upp á
skemmtilega möguleika til útiveru. Nýttu fjölmargar
fjölskyldur sér skíðabrekkuna í Breiðholti í gær og
renndu sér á skíðum, brettum og þeir minnstu í þotum.
Morgunblaðið/Golli
Á skíðum, brettum og þotum
STEFÁN Jón Hafstein, formaður
framkvæmdastjórnar Samfylking-
arinnar, varpaði fram þeirri hug-
mynd í þættinum Silfri Egils í
gær, að Reykjavíkurlistinn léti
fara fram leiðtogaprófkjör fyrir
næstu borgarstjórnarkosningar.
„Hugmyndin er sú að það sé ljóst
fyrir næstu borgarstjórnarkosn-
ingar hver sé borgarstjóraefni
Reykjavíkurlistans og að það
borgarstjóraefni hafi umboð úr
einhvers konar leiðtogaprófkjöri,“
útskýrir Stefán Jón í samtali við
Morgunblaðið.
Stefán Jón segir að Reykjavík-
urlistinn hafi sterka málefnalega
stöðu og að hann sé að vinna að
mörgum góðum málum. Stefán
Jón kveðst þó ekki vera ánægður
með „hremmingar“ Reykjavík-
urlistans, eins og hann orðar það,
og segist vísa til þess að R-listinn
hafi tvisvar þurft að skipta um
borgarstjóra. Í því ljósi sé eðlilegt
að þeir sem verði í forystu fyrir
Reykjavíkurlistann í næstu kosn-
ingum hafi til þess skýrt umboð.
Stefán Jón bendir á að hug-
myndir um leiðtogaprófkjör innan
Reykjavíkurlistans séu ekki nýjar
af nálinni. Slíkar hugmyndir hafi
t.d. verið ræddar sl. haust. „Þess-
ar hugmyndir voru komnar upp
þegar Þórólfur [Árnason] varð
borgarstjóri og Ingibjörg Sólrún
[Gísladóttir] ræddi það að henni
litist vel á leiðtogaprófkjör. Ég er
að taka þessar hugmyndir upp.“
Inntur eftir því hvernig slíkt
leiðtogaprófkjör ætti að fara
fram, segir hann ýmsar leiðir
koma til greina, en telur ekki
ástæðu til að fara út í þær að svo
komnu máli.
R-listinn láti
fara fram leið-
togaprófkjör
EFTIR að loðnukvótinn hefur verið
aukinn verulega leita útgerðir og
loðnuverksmiðjur leiða til að ná
sem mestu af því sem í þeirra hlut
kemur. Meðal þeirra ráða sem grip-
ið er til er að senda verkefnalaus
skip á miðin og munu þau dæla
loðnunni úr veiðarfærum loðnu-
skipanna og flytja í land.
Örn KE hélt frá Neskaupstað
áleiðis á miðin á vegum Síld-
arvinnslunnar og mun skipið flytja
loðnuna til verksmiðja fyrirtæk-
isins sem fjær eru veiðislóðinni. Þar
með slær fyrirtækið tvær flugur í
einu höggi, fær betri nýtingu á eig-
in verksmiðjum og trúlega meiri
afla.
Verkefnalaus
skip flytja
aflann að landi