Morgunblaðið - 17.01.2005, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2005 7
FRÉTTIR
9:30
Ávarp menntamálaráðherra,
Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur
9:40
Reikningsskil þekkingar
Hvernig eflir og samræmir fyrirtæki
þekkingu og færni starfsfólks? Beita
má þekkingarreikningsskilum til að
rækta og varðveita mannauð og
þekkingarauð. Eggert Claessen,
framkvæmdastjóri hjá Tölvumiðlun hf
10:15 Kaffihlé
10:30
Starfsmenn læra og kenna
Magna Fríður Birnir,
starfsþróunarstjóri SKÝRR
Skóli í fyrirtæki
Auður Þórhallsdóttir,
fræðslustjóri Alcan á Íslandi
Mannauður skili arði (ROI)
Leifur Geir Hafsteinsson,
lektor við viðskiptadeild HR
Að nýta leynda og ljósa þekkingu,
framlag háskóla og fyrirtækja
Ingi Rúnar Eðvarðsson, prófessor við
viðskiptadeild Háskólans á Akureyri
11:30
Pallborðsumræður
Þátttakendur: Framsögumenn.
Stjórnandi pallborðs: Bogi Ágústsson,
forstöðumaður fréttasviðs RÚV
Fundarstjóri:
Vilmundur Jósefsson, formaður SI
Ölfusi, og þar voru aldar upp um
3.000 risarækjur í tveimur tjörn-
um, á mismunandi tíma. „Með því
sýndum við fram á það að þetta
væri alveg hægt, og við teljum
okkur hafa sýnt fram á það með
útreikningum að í þessu felist arð-
vænlegt tækifæri,“ segir Bergþór.
Þar með er tilrauninni sem lagt
var upp með í raun lokið, þó að-
staðan á Bakka verði rekin eitt-
hvað áfram. Áframhaldandi til-
raunir verða gerðar, m.a. til að
reyna að hafa fleiri einstaklinga í
sama plássi. Bergþór segir koma
vel til greina að leigja stöðina,
enda hafi hún bara verið ætluð til
þessarar tilraunar.
Heildarkostnaðurinn við tilraun-
ina var um 15 milljónir króna.
Bergþór segir það stefnu OR að
koma taplaust út úr þessu verk-
efni, ekki sé farið út í verkefni af
þessu tagi til þess að græða bein-
línis á tilraunaverkefninu sjálfu.
Í raun gætu tvenns konar fyr-
irtæki sprottið úr tilraunum OR
með risarækjueldi. Annars vegar
rekstur klakstöðvarinnar, og hins
vegar eldisstöðvar sem kaupa
myndu nýklaktar rækjur af klak-
stöðinni, og gæti ein klakstöð ann-
að fjölmörgum eldisstöðvum. Tals-
vert flókinn tæknibúnað þarf í
klakstöðinni, og ekki hagkvæmt
fyrir hverja eldisstöð að eiga slík-
an búnað. Því segir Bergþór að
ekkert sé því til fyrirstöðu að
nokkrir aðilar á landinu taki upp
eldi á risarækjum, og kaupi til þess
nýklaktar rækjur af einni klakstöð.
Nægur markaður hér á landi
Hvað varðar áhuga á risarækjum á
markaðinum segir Bergþór að
nægur markaður ætti að vera hér
á landi til að byrja með, enda séu
t.d. þeir matreiðslumeistarar sem
rætt hafi verið við áhugasamir um
að hafa stöðugt framboð af fersk-
um risarækjum til að bjóða upp á á
matseðlum veitingahúsa. „Einnig
er vaxandi áhugi á þessari vöru er-
lendis, en við erum nú meira að
einblína á að koma þessari vöru á
heimamarkað áður en við förum
að ætla okkur að fara til útlanda.“
Bergþór segir þó alveg ljóst að
OR muni ekki standa í neinni
markaðssetningu eða sölu á risa-
rækjum, það verði einkaaðilar sem
taki við sem sjái um það. OR hafi
sýnt fram á að hægt sé að nota
heitt vatn sem ekki nýtist í annað í
þess konar eldi, og þar með sé
hlutverki þeirra lokið.
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar
sótti slasaðan mann í hlíðar Esju
seinnipart laugardags. Maðurinn,
sem er um sextugt, mun hafa
hrapað þegar hann var á leiðinni
niður af Þverfellshorni rétt upp úr
hádegi og féll hann um tuttugu
metra. Í fallinu brotnaði farsími
mannsins og hann gat því ekki lát-
ið vita af sér. Laust fyrir kl. tvö
tókst honum að ganga í veg fyrir
göngumenn á fjallinu og létu þeir
Neyðarlínuna vita.
Fjallabjörgunarsveit Slökkviliðs
höfuðborgarsvæðisins fór á stað-
inn en einnig var reynt að aka
jeppa sveitarinnar á staðinn en
sóttist seint og illa. Var síðan ósk-
að eftir því að þyrla Landhelg-
isgæslunnar færi á vettvang til að
flytja manninn og koma honum
undir læknishendur.
Maðurinn var lagður inn á gjör-
gæsludeild Landspítalans í Foss-
vogi en hefur verið útskrifaður
þaðan.
Meiðsl hans voru þó talsverð að
sögn lækna LSH.
Þyrla sótti slasað-
an mann í Esjuna
Björgunarmenn í Esjunni: Kristinn Haraldsson björgunarsveitarmaður,
Ingvar R. Rögnvaldsson, sem rakst á manninn, og Kristján Sigfússon og
Rúnar Helgason frá SHS.
síma, en auk þess gengu sjálfboðalið-
ar með söfnunarbauka í verslunar-
miðstöðvum á höfuðborgarsvæðinu.
Elín telur að um 400 til 500 sjálf-
boðaliðar hafi verið að störfum á
laugardag. Þar af hafi um 120 manns
setið í þjónustuveri Landssíma Ís-
lands og tekið á móti framlögum í
gegnum beina söfnunarsímann.
„Mörg dæmi er um að litlir krakk-
ar hafi hringt inn og gefið úr spari-
bauknum sínum eða af afmælispen-
ingunum sínum,“ segir Elín.
Áður en landssöfnunin hófst höfðu
mannúðarsamtökin fimm safnað um
115 milljónum hér á landi vegna
hamfaranna í Asíu. Auk þess sam-
þykkti ríkisstjórn Íslands fyrr í mán-
uðinum að verja samtals 150 millj-
ónum til hjálparstarfa á flóða-
svæðunum. Sé þetta lagt saman er
framlag Íslendinga til hjálparstarfa
á hamfarasvæðunum um 375 millj-
ónir króna.
Fjölmargir aðilar komu að söfn-
uninni, auk mannúðarsamtakanna
sem hér hafa verið nefnd. Þeirra á
meðal eru m.a. níu útvarpsstöðvar,
þrjár sjónvarpsstöðvar, þrjú dag-
blöð, þrjár verslunarmiðstöðvar,
listamenn og fyrirtæki.
Reuters