Morgunblaðið - 17.01.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2005 15
DAGLEGT LÍF
Vers l un Odda • Hö fðabakka 3 • S ím i 515 5105
www.oddi.is
Verð áður: 16.900 kr.
9.900 kr. Oddi hf -
L7
94
7
Vers l un Odda • Hö fðabakka 3 • S ím i 515 5105
www.oddi.is
Verð áður: 12.900 kr.
7.490 kr. Oddi hf -
L7
94
7
Vers l un Odda • Hö fðabakka 3 • S ím i 515 5105
www.oddi.is
Verð áður: 49.900 kr.
39.900 kr. Oddi h
f -
L7
94
7
NEVER TURN YOUR MATTRESS AGAIN
Technology so advanced, it´s
TURN-FREE
Amerískar
lúxus heilsudýnur.
ÚTSALA - ÚTSALA
TURN-FREE
Verð frá 72.000.-
Dýnusett frá kr. 59.000
Skipholt 35
Sími 588 1955
www.rekkjan.is
Skemmuvegi 48 • Kópavogi • S: 557 6677
www.steinsmidjan.is
!"#$%&'()* +++,-.$-/-,%
NÝSMÍÐI - BREYTINGAR - VIÐGERÐIR
HLYNUR SF
alhliða byggingastarfsemi
Pétur J. Hjartarson
húsasmíðameistari
SÍMI 865 2300
KARLAR reyna frekar að ná völdum á vinnu-
staðnum og eru líklegri til að upphefja sjálfa sig
á kostnað annarra og taka heiður fyrir það sem
þeir hafa ekki gert, en konur. Þær reyna frekar
að hjálpa öðrum en forðast að taka stjórnina, að
því er vísindamenn við Sálfræðistofnun Oslóar-
háskóla komust að, en greint er frá niður-
stöðum könnunar þeirra á vef Aftenposten.
Könnunin náði til 400 vísindamanna, ráðgjafa
og blaðamanna sem svöruðu ítarlegum spurn-
ingalista. Allir unnu á vinnustöðum þar sem
samkeppni ríkti en ekki í umönnunarstörfum.
Í ljós kom m.a. að fleiri karlar en konur sögð-
ust geta hugsað sér að svindla til að þjóna eigin
hagsmunum í vinnunni. Konur velja fremur
hópvinnu og eru ekki eins uppteknar af að vinna
mikið og lengi. Bæði konur og karlar leggja
mikla áherslu á að þróast í starfi.
Aðstandendur könnunarinnar draga m.a.
þær ályktanir að áætlanagerð sé ekki bara hluti
af starfi þess sem stjórnar á vinnustaðnum,
heldur geri allir áætlanir til að koma sjálfum sér
á framfæri. Þeir segja að gott ráð til kvenna
sem vilja hærri laun sé að reyna að sýna sjálfar
sig í jákvæðu ljósi og taka stjórnina í sínar
hendur.
KÖNNUN | Í samkeppn-
isumhverfi á vinnustað
Karlar upphefja
sig frekar á
kostnað annarra
Tveir er betra en einn
Depill er tæpum tveimur árum eldri en Dúfa og
bjó einn með Unni fyrsta æviskeiðið. En þar sem
Unnur þurfti að vera mikið að heiman vegna
starfs síns, þá ákvað hún að fá sér annan kött til
að halda honum selskap. „Dúfu Dalalæðu fékk
ég þriggja mánaða gamla frá Selfossi en þá var
Depill á þriðja ári. Þau hafa verið perluvinir allt
frá fyrsta fundi, þvert á fullyrðingar margra um
að þessar samvistir myndu aldrei ganga. Depill
var vissulega mjög undrandi þegar hann hitti
Dúfu fyrst en ég vissi ekki af fyrr en þau voru
farin að kúra saman og hann var farinn að þvo
henni og hugsa vel um hana. Nú er Dúfa
tveggja ára og sambúðin gengur vel.“
Postulínskettir og lítið fyrir útivist
Depill hefur níu líf eins köttum sæmir. Hann
hefur þrisvar dottið ofan af svölunum þar sem
hann býr á þriðju hæð. „Hann lendir alltaf á
löppunum og verður ekki meint af. En hann er
óskaplega viðkvæm sál. Þegar hann var yngri
gerði ég tilraunir til að fara með hann út að
labba í beisli. Þegar ég rölti með hann hér í
kringum tjörnina varð hann skíthræddur við
endurnar. Svo ég gafst upp á útivist með hon-
um. Hann vill bara vera inni í sínu öryggi.“
Dúfa er aftur á móti meiri veiðiköttur og töffari
á heimavelli en hún er þó með merarhjarta að
sögn eigandans. „Þau eru bæði ósköp miklir
postulínskettir, en Dúfa má eiga það að hún er,
eins og kvenfólk almennt, síkjaftandi og hún
talar heilmikið við mig. Hún er mjög jákvæð og
segir iðulega já við því sem ég spyr hana um og
stundum leysum við saman heimsmálin.“
Kettirnir krefjast þess á hverjum morgni að
fá að fara niður á fyrstu hæð til vinar síns,
Sverris. „Ég fer ævinlega á fætur klukkan sex
á morgnana og hleypi þeim þá fram á stigagang
og þá trítla þau niður tröppurnar og heilsa upp
á Sverri sem tekur þeim fagnandi.“
Dúfa vermir rúmið
Unnur kann því vel að vera í nálægð við skepn-
ur og hún er mikið náttúrubarn. Hún var með
hross í bænum þegar hún var ung kona en
seinna fór hún að gera meira af því að ferðast á
hestum postulanna. Hún hefur gengið á fjölda
fjalla, bæði hér heima
og í útlöndum. Hún
spilar golf og er í golf-
klúbbnum MissTiger
en þar má enginn vera
með nema hann sé
mátulega mistækur.
Unnur hefur verið
virkur meðlimur í
leikhópnum Hugleik í
þau tuttugu ár sem
hann hefur starfað og
hún er einn af stofn-
endum hans. Hún
hefur leikið, leikstýrt
og skrifað nokkur leikrit fyrir Hugleik og
aðeins fyrir aðra líka. Einnig vermir hún
skólabekk í Háskóla Íslands og lærir þar að
skrifa kvikmyndahandrit. Kattakonan Unnur
hefur því mörg járn í eldinum. Hún segir Dúfu
Dalalæðu sofa upp í hjá sér, en Depill hefur
ekki fengið að kúra þar frá þeim degi sem Dúfa
flutti inn. „Hún rak hann úr rúminu með þjósti
og hann hlýddi henni eins og kurteis herra-
maður. En hann er samt miðDepillinn, þó svo
að Dúfa haldi að hún sé prinsessan á heim-
ilinu.“
khk@mbl.is
Í einu afmæl-
inu laumuðust
gestirnir inn á
baðherbergi
og máluðu á
sig veiðihár og
gerðu sig
þannig eins
kisulega og
hægt var.
Depill hinn fagri
gefur einhverju
óvæntu gaum.
Morgunblaðið/Jim Smart