Morgunblaðið - 17.01.2005, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2005 19
UMRÆÐAN
R-LISTINN gaf okkur borg-
arbúum jólagjöf sem ekki fæst
skilað. Allt hækkar í Reykjavík,
útsvar, fasteignaskattar, þjón-
ustugjöld og orkureikningar.
Þessar hækkanir voru ekki á
óskalistanum mínum en þær voru
heldur ekki á loforðalista R-listans
fyrir síðustu borgarstjórnarkosn-
ingar.
R-listinn hikar ekki núna frekar
en áður við að svíkja gefin loforð
og viðkvæðið er alltaf það sama:
„Nei, það er ekki svo!“
Íslandsmet
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
borgarstjóri ver útsvarshækkun
R-listans með því að benda á að
ríkið sendi sveitarfélögunum sí-
felld aukin verkefni sem þurfi að
fjármagna. Hún getur þess hins
vegar ekki að Reykjavíkurborg
hefur á undanförnum árum gengið
lengst allra sveitarfélaga á landinu
í að hækka útsvarið.
Ekki er undarlegt þó að sveit-
arfélög sem búa við laka fjárhags-
stöðu nýti sér lögleyfða tekju-
stofna til að mæta þeim vanda
sem þau standa frammi fyrir.
En að Reykjavík, sem er lang-
stærsta sveitarfélagið og höf-
uðborg landsins, skuli telja sig þar
í hópi er með ólíkindum. R-listinn
slær Íslandsmet í útsvarshækk-
unum þrátt fyrir að skatttekjur
hafi aukist verulega á síðustu ár-
um og sjóðir Orkuveitunnar hafi
verið nýttir til að veita milljörðum
inn í borgarsjóð.
Kennarasamningurinn
Heldur finnst mér R-listinn með
borgarstjórann í fararbroddi
leggjast lágt þegar
hann kennir grunn-
skólakennurum um
skattahækkanirnar.
Á fundi fræðsluráðs
15. desember sl.
lagði ég fram fyr-
irspurn um sund-
urliðaðan kostnað
við kjarasamninginn
sem ég hafði þó áður
reynt að afla á milli
funda en ekki tekist.
Meðal þess sem ósk-
að er svara við er
hver sé áætlun um
heildarlaunakostnað á árinu 2005
vegna þeirra sem njóta kjara sam-
kvæmt kjarasamningi LN og KÍ
og hver hann hefði orðið miðað við
eldri kjarasamning. Enn hefur
ekkert svar borist. R-listanum
hefði mátt vera ljóst að nokkru
yrði til að kosta við samningagerð-
ina ekki síst í ljósi þess hve illa
tókst til við framkvæmd eldri
samnings eins og ég ítrekað benti
á. R-listinn heldur þannig utan um
fjármál borgarinnar að hann telur
sig ekki hafa efni á að greiða
kennurum almennileg
laun! Ekki nóg með
það, hann samþykkir
fjárhagsáætlun fyrir
árið 2005 án þess að
taka mið af kjarasamn-
ingnum sem þá hafði
verið samþykktur.
Þetta er hvorki styrk
né ábyrg fjár-
málastjórnun.
„Segðu að það sé
ekki svo“
Fulltrúar R-listans
réttlæta gjörðir sínar
með því að kenna ríkinu og kenn-
urum um eða bera sig saman við
fámenn sveitarfélög. Þrátt fyrir
sínar eigin samþykktir stinga
fulltrúar R-listans höfðinu í sand-
inn og hreykja sér af því að þeir
stýri fjármálum Reykjavíkur-
borgar af festu og ábyrgð! Stað-
reyndir tala hins vegar sínu máli
sama hve heitt þeir óska þess að
svo sé ekki.
Kennarar eiga ekki sök á
skattahækkunum R-listans
Guðrún Ebba Ólafsdóttir
fjallar um skattahækkanir ’R-listinn heldur þannig utan um fjár-
mál borgarinnar að
hann telur sig ekki hafa
efni á að greiða kenn-
urum almennileg laun
nema með því að
hækka skatta.‘
Guðrún Ebba
Ólafsdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins.
MEIRIHLUTI bæjarstjórnar
Seltjarnarness tilkynnti á dögunum
að hann hygðist leggja
fram tillögu um lækk-
un fasteignagjalda á
Seltjarnarnesi á fundi
bæjarstjórnar síðar í
þessum mánuði. Sjálf-
stæðismenn telja sig
geta lækkað gjöldin
vegna styrkrar fjár-
málastjórnar og góðr-
ar afkomu bæjarsjóðs.
Hækkun fast-
eignamats um áramót-
in skilar sér í umtals-
vert meiri tekjum til
sveitarfélaganna en
gert var ráð fyrir í
áætlunum. Í stað þess
að hirða ávinninginn
gera bæjarfulltrúar
meirihlutans á Sel-
tjarnarnesi það eina
rétta í stöðunni; að
láta bæjarbúa njóta
góðs af styrkri stöðu
bæjarins. Þessu ber að
fagna og eiga þeir hrós
skilið.
Ekki verður það
sama sagt um meiri-
hluta R-listans í borg-
arstjórn Reykjavíkur.
Þess er skemmst að minnast að
meirihlutinn hækkaði fasteignagjöld
á íbúa borgarinnar fyrir áramótin
um 0,025% af fasteignamati. Þetta
gerist þrátt fyrir auknar tekjur
vegna hækkunar fasteignamats í
borginni. Einnig hefur meirihluti
R-listans hækkað útsvar borgarbúa í
hæsta leyfilega mark. Er þetta enn
einn sorglegi vitnisburðurinn um
gífurlega óráðsíu í fjármálum borg-
arinnar.
Borgarfulltrúar Sjálfstæð-
isflokksins vöktu athygli á skatta-
hækkunum R-listans í auglýsingu
sem birtist í Morgunblaðinu 3. jan-
úar sl. Viðbrögð Steinunnar Valdísar
Óskarsdóttur borgar-
stjóra við auglýsing-
unni bera vott um
hentistefnu R-listans,
þar sem hún staðhæfði
að sveitarfélög undir
stjórn sjálfstæð-
ismanna væru einnig að
hækka sömu gjöld.
Þessi staðhæfing borg-
arstjóra er ekki aðeins
útúrsnúningur heldur
beinlínis röng.
Rétt er að benda
borgarstjóra á að ekki
bætir böl að benda á
annað. Hún gerist ekki
aðeins sek um slíka til-
burði, heldur á bölið
sem bent er á sér ekki
einu sinni stoð í raun-
veruleikanum. Útsvar
hefur ekkert hækkað
undanfarið á Seltjarn-
arnesi, Mosfellsbæ né í
Garðabæ, en í Kópavogi
um aðeins brot af
hækkunum R-listans í
Reykjavík. Ekki styrk-
ist „málsvörn“ borg-
arstjóra þegar nú ligg-
ur fyrir tillaga um
lækkun fasteignagjalda á Seltjarn-
arnesi á nýju ári. Styrk fjár-
málastjórn er forsenda þess að hægt
sé að lækka álögur á íbúa og það
hafa sjálfstæðismenn lagt sig í líma
við. Það er ljóst að borgarbúar hafa
keypt köttinn í sekknum með því að
treysta R-listanum fyrir stjórn
borgarinnar.
Húrra fyrir sjálf-
stæðismönnum á
Seltjarnarnesi
Sesselja Sigurðardóttir
fjallar um stjórnmál
Sesselja Sigurðardóttir
’Styrk fjár-málastjórn er
forsenda þess
að hægt sé að
lækka álögur á
íbúa og það hafa
sjálfstæðismenn
lagt sig í líma
við.‘
Höfundur er formaður Hugins,
FUS í Garðabæ.
Nýbýlavegi 14, Kópavogi. Sími 554 4443. Fax 554 4102.
rafport@rafport.is www.rafport.is
Umboðsmenn um land allt
• Miðar á bréf, pakka, bréfabindi o.fl.
• Á CD/DVD diska, miðar úr plasti
• Prentar miða úr Word-, Excel- og Outlook
• Prentar merkiborða bæði á pappír og plast,
stærðir eftir vali, allt að eins meters langa
• Allt að 62mm breidd
• 50 miðar á mínútu*
• USB tenging
• Windows hugbúnaður
• Sjálfvirk klipping
• Heilar lengjur eða staðlaðar
*Staðlaðir póstfangamiðar
Fljótvirkasti miðaprentarinn
Umboðsaðili:
QL-550
NÝTT !
Kynningarverð 12.999 kr. Augl.
Þórhildar
1390.40
! "#$ %&
&'&( )
& *