Morgunblaðið - 17.01.2005, Page 20
20 MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
U
m 200 félagar eru í
Sambandi garð-
yrkjubænda sem er
samband félaga
grænmetisframleið-
enda, blóma-, garðplöntu- og kart-
öfluframleiðenda. Ekki eru allir
þessir aðilar stórir í sniðum en um
100 fyrirtæki í þessum greinum
sinna framleiðslu og sölu afurða
sinna að nokkru marki, bæði ylrækt
og útirækt, og er ársvelta í grein-
inni talin um hálfur annar milljarð-
ur króna. Sambandið fagnar í dag
50 ára afmæli sínu og segir Helgi
Jóhannesson, formaður þess, að
brýnustu málin um þessar mundir
séu að geta búið áfram við þolanlegt
raforkuverð og standa traustum
fótum í samkeppni við innfluttar af-
urðir, m.a. unnið og pakkað græn-
meti og salat.
Helgi Jóhannesson segir ýmsar
breytingar hafa orðið í atvinnu-
greininni síðustu árin.
Margs konar sameigin-
legir hagsmunir
„Sameiginlegir hagsmunir þessa
hóps eru meðal annars á faglegu
nótunum, að rekstrarumhverfið allt
og lagasetning séu greininni hag-
stæð og að gjöldin sem landbúnað-
arkerfið innheimtir séu nýtt í ráð-
gjafarþjónustu og menntakerfi á
okkar sviði en þar á ég við Garð-
yrkjuskólann sem nú hefur samein-
ast í Landbúnaðarháskólanum. Síð-
an hafa hóparnir innan grein-
arinnar ýmsa sérhagsmuni sem
geta farið saman við hagsmuni ann-
arra hópa eins og til dæmis hjá
grænmetis- og blómaframleiðend-
um,“ segir Helgi og vekur í fram-
haldi af því máls á sameiginlegu
máli þeirra sem stunda ylrækt og er
í nokkurri óvissu í svipinn:
„Það er raforkuverðið í ylrækt-
inni. Ef við lítum aðeins til baka þá
eru 15–20 ár síðan framleiðendur
tóku að nýta sér lýsingu við blóma-
ræktun og um 10–15 ár frá því hún
var tekin upp í grænmetinu. Hún
gjörbreytti stöðu þessara garð-
yrkjubænda því með jafnri lýsingu
yfir vetrarmánuðina má stunda
blómarækt allt árið og ekki síður
ræktun á grænmeti, gúrkum, tóm-
hafa gert víða erlendis. Við b
lýsingu að vetrarlagi nokkur
inn samfellt daga og nætur
irleitt þarf síðan að hvíla plönt
hluta úr sólarhring. Á sum
lýsingin helst notuð ef dimm
ríkir í marga daga. Þetta
gjörbreytt stöðunni og ger
vinnu og markaðssetningu j
yfir árið sem þýðir betri
gagnvart innflutningi.“
Árið 2002 skrifuðu garð
bændur undir 10 ára aðlög
samning við ríkið um aðsto
greinina um leið og tollar á inn
grænmeti voru felldir niðu
lækkaðir. Fá bændur ákveðið
lag á ári hverju, beingreiðslu
ár, til að mæta samkeppnin
síðan eru veittir fjármunir
kaupa ráðgjöf og sérfræðiþek
frá útlöndum sem ráðunautu
Bændasamtökunum, M
Ágústsson, sér um.
Helgi segist samt sem áður
sýnn á framtíð íslenskra garð
bænda. „Ég hef fulla trú á
getum haldið áfram að laga
ötum og öðrum matvörum. Þetta
hefur líka haft í för með sér að vinn-
an verður jafnari, hægt er að ráða
fólk í föst störf allt árið og garð-
yrkjubændur geta sent framleiðslu
sína jafnt og þétt á markað árið um
kring. Það er liðin sú tíð að íslenskir
neytendur kaupi erlent grænmeti
hluta úr ári en snúi sér þess á milli
að því íslenska þegar það var aðeins
fáanlegt hluta úr ári.
Þegar garðyrkjubændur tóku að
nýta sér lýsingu fengu þeir góð kjör
á orkunni, hafa nýtt afgangsorku og
fengið góðan afslátt. Þessir samn-
ingar eru allir í uppnámi með laga-
breytingunni í orkumálum sem
varð um áramótin því þar eru af-
slættir eða sérsamningar bannaðir.
Það varð ekki verðhækkun við kerf-
isbreytinguna heldur voru sérkjör-
in bönnuð. Raforkunotkun garð-
yrkjubænda hefur sífellt verið að
aukast og ræktun með lýsingu
stendur og fellur með því að fá
orkuna á því verði sem við höfum
búið við. Við verðum því að fara þá
leið að ná samningum við ríkisvald-
ið um að greiða orkuverðið niður
með einhverjum hætti.“
Hyggjast ræða við stjórnvöld
Helgi segir að þetta varði kring-
um 30 fyrirtæki í greininni og sé
sambandið nú að undirbúa erindi
þar sem farið verði fram á framlag
til garðyrkjubænda til að halda
megi svipuðu orkuverði áfram. Seg-
ir hann brýnt að fá botn í málið fyrir
mánaðamótin.
Eins og fyrr segir tóku íslenskir
garðyrkjubændur að nýta sér lýs-
ingu við ákveðna ræktun fyrir rúm-
um áratug og segir Helgi þá hafa
meðal annars sótt sér þessa þekk-
ingu til starfsbræðra á Norðurlönd-
um. „Síðan höfum við þróað þessa
aðferð og lagað hana að aðstæðum
okkar og ég tel reyndar að við höf-
um náð á ýmsan hátt lengra en þeir
Garðyrkjubændur hafa í mjög auknum mæli tekið að nýta sér lýsingu við ræktun matjurta og blóma.
Samband garðyrkjubænda fagnar 50 ára a
Brýnt að mæta b
um neysluven
Íslenskir garðyrkjubændur keppa við inn
fluttar afurðir og telja sig bjóða góða og fers
vöru. Jóhannes Tómasson komst að því að þ
eru bjartsýnir á afmælisári samtaka sinna
Morgunbla
Helgi Jóhannesson segir mik
vægt að neytendur sjái strax
varan er íslensk.
ÞRISVAR í viku er ekið með blóm frá Emil
Gunnlaugssyni á Flúðum til Reykjavíkur en
Emil er meðal frumkvöðla í Sambandi garð-
yrkjubænda og var formaður samtakanna árin
1971 til 1978. Emil rekur ásamt sonum sínum
stöðina Land og synir sem áður hét Laugar-
land og sérhæfa þeir feðgar sig nú í blómarækt
í um 6 þúsund fermetra húsnæði. Emil segir
lýsinguna hafa gjörbreytt blómaræktinni.
Hann segir skilyrði til grænmetisræktunar góð
að Flúðum, bæði inni- og útiræktunar, nóg
rek
hér
heitt vatn og mikil veðursæld. „Þannig að ef
einhver kjarkmaður vill koma og byggja upp
Senda blóm
á markað
þrisvar í viku
Rafn Emilsson sinnir blómaræktinni í Landi og sonum
NÁTTÚRUHAMFARIR
OG SAMHUGUR
Við Íslendingar erum í hópiþeirra þjóða heims sem þekkjanáttúruhamfarir af eigin raun.
Við höfum öldum saman misst fólk á
sjó þegar náttúruöflin hafa tekið völd-
in þar. Fáar íslenzkar fjölskyldur hafa
ekki orðið fyrir barðinu á sjóslysum.
Við þekkjum þær hörmungar sem
geta leitt af snjóflóðum. Það er bæði
gömul saga og ný í okkar sögu. Og rifj-
aðist upp með sársaukafullum hætti
um helgina þegar þess var minnzt að
áratugur var liðinn frá hinum hörmu-
legu atburðum í Súðavík, litlu sjávar-
plássi þar sem fólk hefur gengið í
gegnum erfiðar raunir svo lengi sem
þar hefur verið byggð.
Við þekkjum úr okkar sögu þær
hörmungar sem geta leitt af eldgosum
og hraunflóðum.
Við þekkjum hvernig veðurofsinn
getur farið með fólk.
Við vitum að um leið og landið okkar
er fallegt getur það líka verið hættu-
legt.
Þessi sterka tilfinning þjóðarinnar
fyrir náttúruhamförum, og sú bitra
reynsla sem hún hefur af þeim í marg-
víslegum myndum, skýrir þann sér-
staka samhug sem íslenzka þjóðin hef-
ur sýnt þeim íbúum Asíulanda sem
hafa orðið illa úti í ótrúlegum náttúru-
hamförum þar. Við vitum hvernig
þessu fólki líður. Við vitum hvað það
er að ganga í gegnum.
Þess vegna eru Íslendingar allir
sem einn maður tilbúnir til að veita þá
aðstoð sem við megum, eins og hefur
komið skýrt í ljós undanfarnar vikur
og þá ekki sízt í fyrrakvöld.
LJÓSVAKAMIÐLAR OG TÆKNIÞRÓUN
Sú ákvörðun forráðamanna 365ljósvakamiðla að loka nokkrum
útvarpsstöðvum hefur vakið athygli.
Hún er hins vegar skynsamleg.
Tækniþróunin er óhagstæð fyrir
hefðbundna ljósvakamiðla, bæði út-
varpsstöðvar, ekki sízt þær sem
senda út mikið af tónlist, og einnig
fyrir hefðbundnar sjónvarpsstöðar
sem bjóða upp á ákveðna dagskrá
með margvíslegu myndefni.
Sú tækni breiðist nú ört út, ekki
sízt meðal ungs fólks, sem hefur
hlustað mikið á tónlistarstöðvarnar,
að hægt er að sækja á Netið mikið
magn af tónlist að eigin vali, hlaða
þeirri tónlist inn í litla kubba sem síð-
an eru settir í lítil hlustunartæki. Á
hverjum kubbi getur verið ótrúlegt
magn tónlistar.
Í þessu felst ýmislegt. Diskaútgáfa
mun dragast mjög saman og þar með
starfsemi smásöluverzlana, sem
byggja á diskasölu. Í þessu ljósi var
einnig skynsamlegt hjá forráða-
mönnum Norðurljósa að selja Skíf-
una út úr samstæðunni sl. vor.
Hlustun á tónlistarstöðvarnar mun
dragast saman og jafnframt áhugi
auglýsenda á að nota þær til þess að
ná til ungs fólks með auglýsingum.
Möguleiki þeirra á að móta tónlist-
arsmekk ungs fólks verður einnig
mjög takmarkaður. Hver nær til ungs
fólks með auglýsingum á tónlistar-
stöðvum þegar sú kynslóð sækir tón-
listina sem hún vill hlusta á annað?
Þessi þróun gengur nú yfir með sí-
auknum hraða.
Þetta þýðir jafnframt að notkun
Netsins eykst, sem þar af leiðandi
verður fýsilegri kostur fyrir auglýs-
endur og má sjá augljós merki þess
nú þegar bæði erlendis og hérlendis.
Sama þróun á eftir að verða varð-
andi myndefni þótt hraði hennar sé
enn sem komið er ekki jafnmikill.
Fólk á öllum aldri mun í vaxandi mæli
sækja myndefni á Netið með sama
hætti og unga fólkið sækir nú tónlist-
ina þangað. Það mun aftur leiða til
þess að áhorf á hefðbundnar sjón-
varpsstöðvar, hvort sem um er að
ræða ríkisreknar, áskriftarsjónvarp
eða auglýsingasjónvarp, dregst sam-
an. Auglýsendur munu með sama
hætti átta sig á því að möguleikar
þeirra til þess að ná til fólks með aug-
lýsingum í hefðbundnu sjónvarpi
minnka mjög.
Þessi þróun blasir nú við öllum
þeim sem láta sig hana á annað borð
einhverju varða og þess vegna aug-
ljóslega skynsamlegt hjá 365 ljós-
vakamiðlum að fækka útvarpsstöðv-
um.
KJARKUR
Stór hópur fólks á um sárt að bindavegna geðveiki. Allt fram á síð-
ustu ár voru fáir tilbúnir til að ræða
þá lífsreynslu opinberlega. Það er að
breytast.
Í gær birti Morgunblaðið viðtal við
ungan læknanema, Önnu Sigríði
Pálsdóttur, sem ræddi um geð-
sjúkdóm sem hún hefur átt við að
stríða og baráttu hennar við eigin
fordóma af þeim sökum. Hún er stað-
ráðin í að ljúka læknaprófi og íhugar
alvarlega að sérhæfa sig í geðlækn-
ingum.
Það þarf mikinn og raunar einstak-
an kjark til þess að koma í slíkt við-
tal. En með því hjálpar Anna Sigríð-
ur Pálsdóttir stærri hópi en hún
gerir sér nokkra grein fyrir sem hef-
ur lokað sig inni með þessi vandamál.
Vonandi finnur þessi unga stúlka
þann stuðning frá fólki sem hún þarf
til þess að ljúka ætlunarverki sínu.
Fyrir u.þ.b. áratug stóð önnur
kona, prófessor í sálfræði við John
Hopkins-háskóla, frammi fyrir þeirri
erfiðu spurningu, hvort hún ætti að
segja sína eigin sjúkdómssögu í bók.
Margir samstarfsmenn hennar réðu
henni frá því og sögðu að hún mundi
ekki eiga sér nokkra framtíð í starfi
eftir útkomu bókarinnar. Bókin kom
út, og m.a. á Íslandi, og Kay Redfield
Jamison hlaut heimsfrægð fyrir.
Fordæmi hennar verður Önnu Sig-
ríði Pálsdóttur vonandi hvatning til
að hvika hvergi frá þeirri braut sem
hún hefur markað sér.