Morgunblaðið - 17.01.2005, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2005 31
DAGBÓK
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
LÓÐIR ÓSKAST TIL KAUPS
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
Til mín hefur leitað traustur og fjársterkur
byggingaverktaki sem óskar eftir að kaupa
lóðir fyrir íbúðar eða atvinnuhúsnæði. Eignir
sem þarfnast niðurrifs koma einnig til greina.
Staðgreiðsla í boði, Áhugasamir vinsamlega
hafið samband og ég mun fúslega veita nánari
upplýsingar.
Hákon Svavarsson, lögg.
fasteignasali, sími 898 9396.
Reykjavíkurmótið.
Norður
♠D1074
♥Á8642 A/Allir
♦10754
♣--
Vestur Austur
♠86 ♠ÁG95
♥73 ♥DG95
♦KG932 ♦Á8
♣10943 ♣G76
Suður
♠K32
♥K10
♦D6
♣ÁKD852
Veikar grandopnanir eru trúar-
atriði hjá sumum spilurum og þeir
kjarkmestu nota veikt grand í öllum
stöðum, líka á hættunni. Í þeim hópi
eru Karl Sigurhjartarson og Sævar
Þorbjörnsson, sem opna galvaskir á
12-14 punkta grandi, hvernig sem lit-
irnir eru á spilabakkanum.
En þeir eru reyndar með nákvæmt
flóttakerfi þegar mótherjarnir taka
fast á móti með dobli.
Í fjórðu umferð Reykjavíkurmóts-
ins reyndi á kerfið. Karl vakti þá á
grandi og Ásmundur Pálsson í suður
doblaði til sektar.
Dálkahöfundur var í norður:
Vestur Norður Austur Suður
Sævar Guðm. Karl Ásmundur
-- -- 1 grand Dobl
Pass * Pass Redobl Pass
2 lauf 2 hjörtu Pass 2 grönd
Pass 3 spaðar Allir pass
Pass Sævars við doblinu er hluti af
flóttakerfinu, kröfusögn, sem biður
makker um redobl. Þegar Sævar tek-
ur síðan út úr redoblinu í tvö lauf, er
hann að sýna báða lágliti, minnst 4-4
skiptingu.
Karl á þrjú lauf og tvo tígla og
hefði því valið að spila tvö lauf, sem
Ásmundur hefði sennilega látið eftir
sér að dobla við hentugt tækifæri.
Það tækifæri gafst ekki og dálkahöf-
undur fór tvo niður á þremur spöð-
um.
„Þú hefur ekki viljað spila við þá
tvö lauf?“ sagði Ásmundur spyrjandi
eftir leikinn.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Menntadagur iðnaðarins verður haldinní þriðja sinn á morgun, en hann varfyrst haldinn árið 2003. Á Mennta-deginum hafa Samtök iðnaðarins
(SI) haldið á lofti sérstökum málum. Í fyrra birtu
SI niðurstöður könnunar á þörf iðnaðarins fyrir
menntun, en í ár er sjónum beint að mikilvægi
mannauðs og þekkingarauðs.
Samtök iðnaðarins vilja með þessum degi vekja
athygli stjórnvalda, skólafólks og félagsmanna SI
á mikilvægi menntunar fyrir nútímafyrirtækja-
rekstur, en menntamál skipti samkeppnishæfni
fyrirtækja miklu.
Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Tölvu-
miðlunar, flytur á Menntadeginum erindi um
þekkingarstjórnun og svonefnd reikningsskil
þekkingar. „Margir hafa áhyggjur af litlum og
meðalstórum fyrirtækjum í alþjóðlegri sam-
keppni, en nær öll íslensk fyrirtæki eru í þeim
flokki,“ segir Eggert og bætir við að þekking og
þar með menntun gegni lykilhlutverki í að tryggja
samkeppnishæfni í framtíðinni. „Það þarf ekki að-
eins vel menntað starfsfólk heldur þarf að gera
fyrirtækjum kleift að nýta þekkingarauð sinn með
því að skrá hann og vinna með hann með skipu-
lögðum hætti. Þetta krefst þess að stjórnvöld
skapi þær aðstæður að fyrirtækjum sé gert kleift
að vinna með þessi verðmæti sín og þau studd til
þess með ráðum og dáð.“
Hvað eru þekkingarverðmæti og hvernig nýt-
ast þau fyrirtækjum?
„Það eru margar aðferðir til þess að útskýra
hvað þekkingarverðmæti eru, en auðveldast er að
segja að það séu þau verðmæti sem fyrirtækið á,
en eru ekki skráð í ársreikning þess. Þekkingar-
verðmætin hafa einnig verið kölluð óáþreifanlegar
eignir þar sem þekking og möguleikar hennar til
verðmætasköpunar eru oftar en ekki óáþreif-
anleg.
Þessar óáþreifanlegu eignir er að finna í fólki,
ferlum og ytri tengslum sem ekki eru skráð sér-
staklega. Þetta eru verðmæti því fólkið býr yfir
vitneskju (þekkingu) og hæfni, ferlarnir fela í sér
verklag til árangurs og ytri tengslin gera fyrir-
tækinu kleift að afla aðfanga og selja afurðir.“
Hversu mikilvæg er símenntun starfsmanna og
hvaða möguleikar eru þar fyrir hendi?
„Samkeppnisforskot fyrirtækja byggist sífellt
meira á þekkingu og hæfni starfsmanna. Líftími
þekkingar er alltaf að styttast og breytingar á
flestum sviðum eru mjög örar. Það er því hagur
fyrirtækja að starfsmenn þeirra eigi kost á endur-
menntun sem geri þeim kleift að nýta reynslu sína
í starfi í stað þess að þurfa að segja upp starfs-
mönnum til þess eins að ráða nýlegra menntað
fólk. Þannig næst að halda í við þá öru þróun sem
er á flestum sviðum og jafnvel skara framúr.“
Menntun | Samtök iðnaðarins halda Menntadaginn í þriðja sinn á morgun
Þekking og hæfni æ mikilvægari
Eggert Claessen er
fæddur árið 1959 í
Reykjavík. Hann varð
stúdent frá Versl-
unarskólanum árið
1979 og lauk cand.
oecon-prófi frá HÍ
1984. Þá lauk Eggert
M.Sc.-gráðu í við-
skiptafræði frá HÍ
2001. Hann stundar
einnig doktorsnám í
Bretlandi. Eggert starf-
ar nú sem framkvæmdastjóri Tölvumiðlunar
hf. og er stjórnarformaður GoPro ehf. auk
þess sem hann er stundakennari við HÍ. Þá
hefur hann gegnt fjölda trúnaðarstarfa.
Eggert er kvæntur Sigrúnu Kjartansdóttur,
forstöðumanni markaðsmála hjá Íslandsbanka
hf., og eiga þau þrjú börn.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. exd5 exd5 4. Rf3
Bd6 5. Bd3 Rc6 6. c3 Rge7 7. O-O Bg4
8. He1 Dd7 9. Rbd2 O-O-O 10. b4 Rg6
11. Rb3 Hde8 12. Be3 Rh4 13. Be2 Rf5
14. Bd2 Hxe2 15. Dxe2 Rh4 16. b5 Rb4
17. Re5 Bxe2 18. Rxd7 Rc2 19. Hxe2
Rxa1 20. Rdc5 Rxb3 21. axb3 Rf5 22.
h3 b6 23. Rd3 Kd7 24. Re5+ Bxe5 25.
Hxe5 Re7 26. Kf1 a6 27. bxa6 Ha8 28.
c4 dxc4 29. bxc4 Hxa6 30. Ke2 f6 31.
Hh5 h6 32. Kd3 Ha3+ 33. Bc3 Ha2 34.
Bd2 Ha3+ 35. Bc3 Ha2 36. Bd2 c6 37.
g4 Ha3+ 38. Ke4 Ha4 39. Kd3 Ha3+
40. Ke4 Ha4 41. Kd3 Ke6 42. h4 Ha3+
43. Ke4 Hb3 44. Bf4 Kf7 45. d5 cxd5+
46. cxd5
Staðan kom upp í Rilton Cup sem
haldið hefur verið í Stokkhólmi í marga
áratugi í kringum áramótin. Emanuel
Berg (2534) hafði svart gegn Kezli
Ong (2363). 46... f5+! 47. gxf5 kóngs-
leikir hefðu þýtt mannstap bæði eftir
47. Kd4 Hb4+ og 47. Ke5 Rg6+ 48.
Kxf5 Hf3.
Í framhaldinu reynist hvíti hrók-
urinn lítt annað en peð. 47... Rg8! 48.
Be5 Rf6+ 49. Bxf6 Kxf6 50. d6 Hb2 51.
f4 Hd2 52. Hg5 hxg5 53. fxg5+ Kf7 54.
Ke5 He2+ 55. Kf4 b5 56. h5 b4 57. h6
gxh6 58. gxh6 He8 59. Kg5 b3 60. h7
b2 61. d7 Hd8 og hvítur gafst loksins
upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Hvar er réttlætið?
ER MÁLIÐ að skipta um borgar-
stjóra á tveggja ára fresti? Ég ætla
rétt að vona ekki. Er ekki hægt að
finna spillingu í kringum alla, bara
mismikla?
Setjum upp dæmi. Ef að yfirmað-
ur þinn, lesandi góður, myndi gera
eitthvað ólöglegt af sér sem forstjóri
í sínu fyrirtæki og þú værir bara al-
mennur starfsmaður sem að situr
alla fundi þar sem allar ráðagerðir
fara fram, þ.e. „skipulagning á ólög-
legu athæfi“, síðan kemst þú í opin-
bera stöðu og forstjórarnir löngu
hættir. Síðan fer málið í rannsókn og
þarft þú þá sem opinber starfmaður
að segja af þér af því að yfirmaður
þinn gerði rangan hlut, en síðan
sleppur fyrrverandi yfirmaður þinn
með einhverja smá sekt?
Ef við berum þessar tvær að-
stöður saman þá kemur í ljós að þú
sem opinber starfsmaður tapar
meira á þessu. Því að þú tapar öllu
traustinu sem þú ert búinn að
byggja upp hjá borgarbúum á þess-
um tíma frá því að þú komst í þessa
stöðu og þangað til að þetta kom
upp. Síðan þegar þú segir af þér þá
lítur það út eins og að þú skammist
þín fyrir eitthvað sem þú gerðir
ekki. En á meðan eru fyrrverandi
forstjóranir einhvers staðar að lifa
af vöxtunum af peningunum sem
þeir sviku út úr landanum. Svo er
manni sagt að þetta sé réttlæti!
Spaugstofan var ansi góð laugardag-
inn 5. nóvember sl. Þar tóku þeir
fyrir olíumálið svokallaða og hvernig
Íslendingar láta vaða yfir sig, og að
meðal nöldur hjá Íslendingi stæði
ekki lengi yfir. Og þetta er alveg rétt
hjá þeim, við Íslendingar látum svo-
leiðis vaða yfir okkur eins og við
fáum borgað fyrir það og svo er mál-
ið dautt.
Olíufélögin eru búin að biðjast af-
sökunar en hvernig ætla þau að
borga okkur aftur þessa peninga
sem þau sviku út úr okkur? Mín
ályktun er sú að þau muni ekki
borga okkur til baka heldur segja að
heimsmarkaðsverð hefði hækkað.
En þegar heimsmarkaðsverð lækk-
ar gera olíufélögin ekki neitt og al-
menningur blótar því hvað bensín
verð sé hátt.
Ég viðurkenni að olíufélögin
lækkuðu öll eldsneytislítrann um
eina krónu, allavega á höfuðborg-
arsvæðinu þar sem undirritaður býr.
En hverju skilar það fyrir mig sem
almennan notanda ef ég kem á mín-
um bíl með 60 lítra bensíntank og
kaupa eina tankfylli hjá Ego út af
því að þeir eru tiltölulega ódýrir.
Það sem ég hagnast á einni tankfylli
af ódýrara bensíni eru miðað við þær
forsendur sem ég gef mér um 66
krónur. Fyrir þessar 66 krónur fær
maður að 0,64 lítra, ekki kemst mað-
ur langt á því. Það þarf því að lækka
bensínlítrann verulega til þess að
það skili sér í raun og veru til neyt-
andans. Fólk gerir sér ferð eftir
ódýrara bensíni eins og sjá má á bið-
röðunum hjá Ego, en þeir hafa lækk-
að lítrann reglulega niður í 99,9
krónur. Olíufélögin eiga að lækka
bensínverð og borga fólki þannig til
baka það sem þau höfðu af okkur, en
þannig sýna þau í verki að þau iðr-
ist?
Mér finnst allavega rökréttast að
gera það þannig. Hver segir svo að
fólk sé fífl?
Valdimar Guðmundur
Þórarinsson, Barðavogi 38, Rvík.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa og leik-
fimi kl. 9, boccia kl. 10, félagsvist kl.
14. Ath. vinningsupphæð ræðst af
fjölda spilagesta.
Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handa-
vinna kl. 9–16.30, söngstund kl.
10.30, smíði/útskurður kl. 13–16.30,
félagsvist kl. 13.30, myndlist kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, bútasaumur, samverustund,
línudans, fótaaðgerð, kl. 14–15 línu-
dans.
Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og
blöðin, kl. 10–10.45 leikfimi, kl. 11.15–
12.15 matur, kl. 13–16 brids, kl. 13–16
samverustund með Guðnýju, kl. 15–
15.45 kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan í Gullsmára 9 er opin í
dag kl. 10 til 11.30. Félagsvist spiluð í
Gullsmára í kvöld kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids í dag kl. 13, kaffitár með ívafi kl.
13.30, línudanskennsla byrjendur kl.
18, samkvæmisdans framhald kl. 19
og byrjendur kl. 20.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 |
Gullsmárabrids. Bridsdeild FEBK
Gullsmára spilar tvímenning alla
mánu– og fimmtudaga. Skráning kl.
12.45 á hádegi. Aðgangseyrir kr. 200.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15,10.05 og 11,
pílukast og bridge í Garðabergi kl. 13,
skráning stendur yfir í ferð í Borg-
arleikhúsið að sjá Híbýli vindanna
sunnudagskvöldið 30. janúar.
Miðar sóttir í Garðaberg 19. og 20.
janúar.
Gam-Anon-samtökin | Fundir eru
alla mánudaga að Skúlatúni 6, 3. hæð
kl. 20. Allir velkomnir. Gam-Anon-
samtökin eru sjálfshjálparsamtök
fyrir aðstandendur spilafíkla.
Hraunbær 105 | Kl. 9 Postulíns-
málun. keramik–perlusaumur–
kortagerð, kl. 10 fótaaðgerð, bæna-
stund, kl. 12 hádegismatur, kl. 13.30
skrautskrift, kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnu-
stofa, kl. 9–16, jóga kl. 9–11, frjáls
spilamennska kl. 13–16, böðun virka
daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið öll-
um opið. Handverki í Betri stofu kl. 9–
16, framsögn og framkoma í Lista-
smiðju.
Á dagskrá eru ljóð Jóns úr Vör. Fé-
lagsvist kl. 13.30. S. 568–3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Vatnsleikfimi
í Grafarvogslaug á morgun, þriðjudag
kl. 9.30.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 hann-
yrðir, kl. 9–10 boccia, kl. 11–12 leikfimi,
kl. 11.45–12.45 hádegisverður, kl. 13–
16 kóræfing, kl. 14.30–15.45 kaffiveit-
ingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, bókband myndlist og hár-
greiðsla kl. 9, morgunstund og fót-
snyrting kl. 9.30, boccia kl. 10,
handmennt, glerbræðsla og frjáls spil
kl. 13.
Kirkjustarf
Árbæjarkirkja | Starf með sjö til níu
ára börnum í Árbæjarkirkju kl. 15.35.
Starf með 10–12 ára börnum í Ártúns-
skóla kl. 15. Starf með 7–9 ár börnum
á sama stað kl.16. Allir velkomnir að
koma og vera með. Söngur, leikir,
ferðalög o.fl.
Laugarneskirkja | Kl. 18 Opinn 12
sporafundur í safnaðarheimilinu. Vin-
ir í bata. Athugið að kynningarfundur
á 12 sporahópum Laugarneskirkju fer
fram í Laugarneskirkju annað kvöld
(þriðjud.) kl. 20.30.
Morgunblaðið/Jim Smart
Árbæjarkirkja: Starf með sjö til níu ára börnum kl. 15.35.