Morgunblaðið - 17.01.2005, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2005 37
INCREDIBLES ER VINSÆLASTA
JÓLAMYNDIN, YFIR 32.000 ÁHORFENDUR
FRÁ ÖÐRUM DEGI JÓLA TIL DAGSINS Í DAG
Hva er mÆli me Alfie?
Pott Øtt r mant sk gamanmynd me
JudeLaw sem n lega var kosinn
kyn okkafyllsti karlma urinn.
FrÆb r t nlist.
ÁLFABAKKI
4, 6.15, 8.30 og 10.40.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.
KRINGLAN
kl. 4.30, 6.45, 9 og 10.10.
Ein vinsælasta myndin í
USA í 4 vikur samfleytt
l
l
Furðulega frábær og spennandi fjörug
ævintýramynd með hinum einu sönnu,
Jim Carrey, Jim Carrey og Jim Carrey.
ÁLFABAKKI
kl. 3.30 og 6. Ísl.tal.
kl. 5.30, 8 og 10.30. Enskt tal.
YFIR 32.000 ÁHORFENDUR
Ó.H.T. Rás 2. .T. ás 2
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8.30 og 10.40.
KRINGLAN
kl. 5. Ísl.tal.
kl. 5 og 7.30. Enskt tal.
Ein vinsælasta myndin í
USA í 4 vikur samfleytt
l í
l
Furðulega frábær og spennandi fjörug
ævintýramynd með hinum einu sönnu,
Jim Carrey, Jim Carrey og Jim Carrey.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
HINIR ELLEFU
ERU ORÐIN TÓLF.
OCEAN´S TWELVE
S.V. Mbl.
„Algert augnayndi“ Mbl.
Kvikmyndir.com
„Hressir ræningjar“
Fréttablaðið
GEORGE
CLOONEY
BRAD
PITT
ANDY
GARCIA
andJULIA
ROBERTS
BERNIE
MAC
DON
CHEADLE
MATT
DAMON
CATHERINE
ZETA-JONES
H.L. Mbl..L. bl.
DV
Rás 2ás 2
Kvikmyndir.comvik yndir.co
Kvikmyndir.is
FRÖNSK kvikmyndahátíð er að
festa sig vel í sessi sem árviss við-
burður í kvikmyndalífi landsins. Í
fyrra sóttu hátíðina yfir tólf þúsund
gestir sem gera hátíðina að einni
mest sóttu kvikmyndahátíð í langan
tíma.
Á föstudag fór hátíðin í ár svo af
stað með pomp og prakt en opn-
unarmyndin var Trúlofunin langa
eða Un long dimanche de fiancaill-
es. Leikstjóri hennar er Jean-
Pierre Jeunet sem einnig hefur
leikstýrt kvikmyndunum Delicat-
essen og Amelie sem svo eftir-
minnilega slógu í gegn. Aðalleik-
konan úr Amelie, Audrey Tautou,
fer einnig með aðalhlutverk í Trú-
lofuninni löngu sem þykir alfrönsk
mynd þrátt fyrir að hafa nýverið
verið dæmd bandarísk af frönskum
dómstólum vegna fjármögnunar.
Alls eru níu kvikmyndir sýndar á
hátíðinni sem þykja hver annarri
betri eða eins og Christof Weh-
meier hjá Sambíóunum kýs að orða
það: „Níu framúrskarandi nýjar
kvikmyndir.“ Má þar m.a. nefna
Grjóthaltu kjafti eða Tais Toi með
Jean Reno og Gérard Depardieu í
aðalhlutverkum.
Christof segir að þótt ekki séu til-
búnar aðsóknartölur fyrir helgina
hafi aðsókn að hátíðinni verið mjög
góð og flestar myndirnar gengið
vel. Þeir sem standa að hátíðinni
eru Samfilm sem rekur Háskólabíó,
Alliance Française, Bergvík og fyr-
irtækið Eff sem er í eigu Friðberts
Pálssonar.
Upplýsingar um hátíðina og sýn-
ingartíma allra kvikmynda má
nálgast á mbl.is vefnum. Hátíðin
stendur til 31. janúar og jafnvel
lengur.
Kvikmyndir | Frönsk kvikmyndahátíð opnuð um helgina
„Níu fram-
úrskarandi
nýjar kvik-
myndir“ Úr kvikmyndinni Son Frére eða Bróðirinn sem sýnd er áfranskri kvikmyndahátíð.
Morgunblaðið/Eggert
Friðbert Pálsson hjá Eff ehf., Olivier Dintinger, framkvæmdastjóri All-
iance française, Christof Wehmeier hjá Sambíóunum og Ólafur Guðmunds-
son, framkvæmdastjóri Bergvíkur ehf.
Morgunblaðið/Eggert
Hátíðargestirnir Sigríður Thorlacius, Guðrún Halldóra Jónsdóttir og Jóna
Harpa Gylfadóttir hýrar á svip.
MEIRA en aldarfjórðungi eftir
dauða Elvis Presley er „konungur
rokksins“ enn í fullu fjöri á listum yf-
ir vinsældir og plötusölu. Þau tíðindi
hafa orðið í Bretlandi að Elvis hefur
nú þúsund sinnum átt topplag vik-
unnar þar í landi.
Endurútgáfa lagsins One Night á
smáskífu sló helsta keppinautinum
Manic Street Preachers við um ein-
hver 5.000 eintök í síðustu viku. Þar
á undan átti Elvis metið, 999 topp-
lög, en það síðasta var Jailhouse
Rock.
Í tilefni af að Elvis Presley hefði
fagnað 70 ára afmæli á þessu ári
mun plötuútgáfa hans endurútgefa
öll átján lögin sem upphaflega voru
þau sem komust á topp vinsældalist-
ans í Bretlandi.
Associated Press
Margir hafa reynt að feta í fótspor
Elvis en fáum tekist. Að minnsta
kosti ekki hvað topplögin varðar.
Þúsund
sinnum
númer eitt
NÝ kvikmynd um Superman ku vera á leiðinni og virðist ljóst að henni eru
ætlaðir stórir hlutir. Nú þegar hefur Kevin Spacey samþykkt að leika í
myndinni sem Bryan Singer (X-Men) mun leikstýra. Hinn óþekkti Brandon
Routh hefur verið ráðinn sem Clark Kent/Superman sjálfur. Nú eru leik-
ararnir Hugh Laurie og James Marsden sagðir hafa bæst í hópinn.
Marsden, sem lék áður í kvikmyndinni X-Men undir leikstjórn Singer,
mun fara á fjörurnar við Lois Lane sem Richard White. Um hlutverk Lane
standa viðræður yfir við leikkonuna Kate Bosworth (Beyond the Sea). Laur-
ie mun eiga að leika ritstjóra dagblaðsins sem Superman vinnur á utan starfa
sinna sem ofurhetja.
Hinn lítt þekkti Brandon Routh fer
með hlutverk næsta Ofurmennis.
Hugh Laurie væntanlegur í næstu
Superman-mynd.
Bætist í leikaralið
Ofurmennisins