Morgunblaðið - 18.01.2005, Page 1
STOFNAÐ 1913 16. TBL. 93. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Lúra Finnar á
leyndarmáli?
Bryndís Schram fjallar um árangur
skólastarfs í Finnlandi | Umræðan
Forvarnir
til bjargar
Um sex hundruð Íslendingar fá heila-
blóðfall á ári hverju | Daglegt líf
Verður upplýsingatækni
þriðja stoðin í verðmæta-
sköpun og gjaldeyristekjum
Íslands árið 2010?
ÞRIÐJA STOÐIN?
Ráðstefna Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja
þriðjudaginn 25. janúar
Sjá glæsilega dagskrá ráðstefnunnar
á vefsetri Samtaka iðnaðarins; www.si.is
Moya sleginn út Maldini: 900
leikir á 20 árum Helgi í upp-
skurð Sigurður hættur með FH
Íþróttir í dag
ALLS þurftu 103 íbúar á Vestfjörðum að yfirgefa
heimili sín vegna snjóflóðahættu í gærdag og í gær-
kvöldi. Ákveðið var að rýma 37 hús á hættusvæðum
og þurftu 49 íbúar að fara af heimilum sínum á Pat-
reksfirði, 23 á Ísafirði og í Hnífsdal og í dreifbýli
Ísafjarðarbæjar og 31 í Bolungarvík og af tveimur
bæjum þar við.
Veðurstofan lýsti yfir hættuástandi vegna snjó-
flóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum um miðj-
an dag í gær og ákvað rýmingu á svonefndum
C-reit í Skutulsfirði, en á honum er iðnaðarhúsnæði
við Grænagarð á Ísafirði, og var hann rýmdur fyrir
klukkan 17. Þá ákvað Veðurstofan rýmingu á svo-
nefndum M- og N-reitum í Hnífsdal frá kl. 17 í gær.
Hús voru einnig rýmd í Bolungarvík í gær og á
sunnanverðum Vestfjörðum var lýst yfir viðbún-
aðarstigi á þéttbýlisstöðum í gær vegna snjóflóða-
hættu.
Fengu inni hjá vinum og ættingjum
Rýmd voru 14 hús vegna snjóflóðahættu á Pat-
reksfirði í gærkvöldi, ákveðið var að rýma sex hús
við Urðargötu, fjögur við Hóla, og fimm við Mýrar.
Höfðu allir íbúarnir yfirgefið hús sín um kl. 21 í
gærkvöldi og fengu þeir inni hjá ættingjum og vin-
um, skv. upplýsingum lögreglu.
Snjóflóð féll yfir þjóðveginn undir Raknadalshlíð
við Patreksfjörð á áttunda tímanum í gærkvöldi.
Féll flóðið örskömmu eftir að lögreglubíll fór þar
um en hann var þar á ferð til að aðstoða fólk við að
komast úr Breiðafjarðarferjunni Baldri.
Stillt og gott veður var á Patreksfirði í gær-
kvöldi, skv. upplýsingum lögreglu, en mikinn snjó
hafði sett þar niður í gærdag.
Mikil snjókoma og slæm spá
Mikið snjóaði á Vestfjörðum í gær og var veð-
urspá slæm fyrir nóttina. Veður var þó enn skap-
legt á Ísafirði og í Bolungarvík í gærkvöldi þegar
rætt var við lögreglu og forsvarsmenn almanna-
varna.
Almannavarnanefnd Ísafjarðarbæjar kom sam-
an tvívegis í gær í stjórnstöð almannavarna við
Fjarðarstræti og ákvað til viðbótar við áðurnefndar
rýmingar að rýma þær íbúðir við Árvelli í Hnífsdal
sem búið er í og bæinn að Hrauni.
Almannavarnanefnd ákvað ennfremur að rýma
Fremstuhús í Dýrafirði, Neðri-Breiðadal, Fremri-
Breiðadal, Veðrará í Önundarfirði og Kirkjuból í
Korpudal. Einnig var ákveðið að rýma Kirkjubæ og
Höfða í Skutulsfirði eftir kl. 17 og Funa, Gámaþjón-
ustu Vestfjarða og útihús á sama svæði frá sama
tíma.
Við aðstæður eins og voru í gær vegna snjósöfn-
unar og veðurspár taldi almannavarnanefnd og
vegagerð einnig nauðsynlegt að takmarka umferð
um vegi. Snjóflóð féllu á veginn um Óshlíð í gær.
Sett var upp vakt á Skutulsfjarðarbraut síðdegis
og umferð takmörkuð eftir þann tíma. Á Hnífsdals-
vegi, Kirkjubólshlíð, Hvilftarströnd, Breiðadal og
Súgandafirði var umferð takmörkuð og þessum
leiðum var svo öllum lokað eftir kl. 18. Þá var Súða-
víkurhlíðinni lokað síðdegis.
30 rýmdu hús sín í Bolungarvík
Almannavarnanefnd Bolungarvíkur ákvað í gær
að rýma hús við Dísarland, auk þriggja húsa við
Traðarland og bæinn Tröð í Bolungarvík. Var bær-
inn Geirastaðir í Syðridal einnig rýmdur og umferð
um hesthús undir Erni bönnuð. Gekk rýmingin vel
skv. upplýsingum lögreglu. Alls búa um 30 manns í
þessum húsum og fengu flestir inni hjá ættingjum
og vinum. Almannavarnanefndin kom aftur saman
undir kvöld og ákvað að aflétta ekki rýmingu í gær-
kvöldi og nótt. Nokkur minni snjóflóð féllu fyrir of-
an byggðina í gær.
Nauðsynlegar varúðarráðstafanir
Halldór Halldórsson, bæjarstjóri og formaður al-
mannavarnanefndar Ísafjarðarbæjar, sagði í gær-
kvöldi að rýming þar hefði gengið vel. Þó einhverj-
um hefði kannski fundist að gengið væri langt með
þessum aðgerðum væri hér um nauðsynlegar var-
úðarráðstafanir að ræða.
Hættuástand vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum
Fjöldi húsa rýmdur
og umferð takmörkuð
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
LÖGREGLUMENN í Sankti Péturs-
borg kljást við konu á útifundi í gær.
Eftirlaunaþegar hafa mótmælt víða
um Rússland að undanförnu vegna
óánægju með skert kjör. Vladímír
Pútín forseti sagði í gær að ekki
væri nóg að hækka mánaðarleg eft-
irlaun um 100 rúblur, u.þ.b. 220
krónur og skömmu síðar var ákveð-
ið að hækkunin yrði 240 rúblur.
Reuters
Mótmæli í Sankti
Pétursborg
FJÖLDI íbúa þurfti að yfirgefa heimili sín vegna snjóflóðahættu á Vestfjörðum síðdegis í gær og í
gærkvöldi. Almannavarnanefnd Ísafjarðar ákvað lokun vega í gærkvöldi þar sem flóðahætta er talin
mest, m.a. við Ísafjörð og voru íbúar beðnir um að vera ekki á ferðinni. Þrjú snjóflóð féllu á veginn
um Óshlíð í gærdag. Veðurspá var slæm fyrir gærkvöldið og nóttina. Enn var þó stillt og bjart veður
við Ísafjörð í gærkvöldi, eins og sjá má á myndinni, rjómalogn eins og veðurfræðingur orðaði það.
Engu að síður full ástæða til að hafa allan vara á og hættuástandi ekki aflýst, að sögn hans. Mikinn
snjó setti niður í gær og lausasnjór var yfir öllu. Vakt var á snjóflóðadeild Veðurstofunnar í nótt.
Nokkur snjóflóð hafa fallið
FRANSKUR kokkur, Philippe
Pitiot, vann í 17 ár á hóteli í bænum
Lalouvesc í Bourgogne-héraði án
þess að fá kaup eða frí. Hefur dóm-
stóll nú dæmt honum bætur er nema
rúmlega 70.000 evrum, tæpum sex
milljónum króna. Hjónin sem áttu
hótelið seldu það í fyrra og nýr eig-
andi benti Pitiot á að krefjast bóta.
„Fyrst í stað var ég reiðubúinn að
gera litlar kröfur vegna þess að hún
og eiginmaðurinn voru í peninga-
vandræðum,“ segir Pitiot. Hann
fékk greidd laun í fimm mánuði en
síðan ekki neitt. Segir hann vinnu-
veitanda sinn, Genevieve Arnaud,
hafa lofað að borga síðar það sem
upp á vantaði en aldrei gert það.
Hún sá hins vegar um að hann fengi
mat og húsaskjól á hótelinu. Stöku
sinnum keypti hún handa honum föt.
Eftir að hótelið var selt fóru hjón-
in í leyfi til Spánar. „Þegar þau
komu til baka gáfu þau mér karton
af sígarettum og pólóskyrtu en ég
vildi fá kaupið mitt,“ sagði Pitiot.
Verjandi hjónanna segir þau alltaf
hafa greitt launatengd gjöld fyrir
Pitiot og þau séu nú hissa á því að
„hann skyldi ekki gera eitthvað í
málinu fyrr“ fyrst hann hafi verið
ósáttur.
Launalaust
puð í 17 ár
Annonay í Frakklandi. AFP.
AUÐUG ríki hafa ekki staðið við fyr-
irheit um aukin fjárframlög til að
minnka um helming sára fátækt í
heiminum fyrir árið 2015, að sögn
sérfræðinga á vegum Sameinuðu
þjóðanna. Ný og ítarleg skýrsla um
fátækt og leiðir til að berjast gegn
henni var lögð fyrir Kofi Annan,
framkvæmdastjóra SÞ, í gær og seg-
ir þar að lausnirnar séu þegar fyrir
hendi. „Og í fyrsta sinn er kostnað-
urinn ekki meiri en svo að hann er
fyllilega viðráðanlegur. Allt sem til
þarf er að hefjast handa,“ segir í
skýrslunni sem er um 3000 síður.
Bent er á að á næsta áratug sé
hægt að tryggja að yfir 500 milljónir
manna losni úr viðjum fátæktarinnar
og tugir milljóna manna komist hjá
því að deyja ótímabærum dauðdaga
ef auðug ríki á borð við Bandaríkin,
Japan og fleiri standi við loforð sem
gefin voru árið 2000 um stóraukna
þróunaraðstoð. Segir í skýrslunni að
markmiðin um að helminga fátækt-
ina muni ekki nást ef fram haldi sem
horfir. En þar að auki er hvatt til
þess að gripið verði strax til ráðstaf-
ana eins og að útvega ókeypis mosk-
ítónet til að berjast gegn malaríu.
„Jafn mörg börn deyja í hverjum
mánuði úr malaríu í Afríku og dóu í
flóðbylgjunni í Indlandshafi, um
150.000 eða fleiri, þau deyja úr hinni
þöglu flóðbylgju malaríu, sjúkdómi
sem er að miklu leyti hægt að koma í
veg fyrir og auðvelt að lækna,“ sagði
hagfræðingurinn Jeffrey Sachs sem
stýrði gerð skýrslunnar.
Auðvelt að draga úr neyð
Sameinuðu þjóðunum. AP, AFP.
♦♦♦