Morgunblaðið - 18.01.2005, Blaðsíða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Notaðu daginn til þess að telja peninga
og vega og meta eignir þínar og skuldir.
Þú gætir magalent á jörðinni en það er
mikilvægt að átta sig á stöðunni endrum
og sinnum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Tunglið er í nauti núna og gerir þig til-
finningasamari en ella. Góðu fréttirnar
eru síðan þær að slík afstaða hefur í för
með sér aukin tækifæri.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú þarft að draga þig í hlé í smástund í
dag. Reyndu að tryggja þér ró og næði.
Þú hefur margt á þinni könnu og þarft
að taka það rólega inni á milli.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Notaðu daginn til þess að tala við vini
þína, einkum og sér í lagi vinkonu. Ekki
hika við að tjá þín innstu leyndarmál. Við
þurfum öll að sýna trúnað annað veifið.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Leggðu sérstakan metnað í útlitið í dag.
Líkur eru á því að athyglin beinist að þér
og því gott að vera undir það búinn.
Svona er þetta bara stundum.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Reyndu að brydda upp á einhverju
óvenjulegu í dag. Innst inni þráir þú að
læra eitthvað nýtt eða lenda í ævintýr-
um. Farðu á nýjan áfangastað.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er í eðli þínu að halda friðinn. Þú vilt
ekki ögra umhverfinu. Þér gefst innsýn í
hugarheim annarra og þú færð tækifæri
til þess að kynnast öðruvísi gildismati.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Tunglið er í merki sem er beint á móti
sporðdrekanum í dag og kannski finnst
þér sem allir séu á móti þér fyrir vikið.
Aðra langar bara að vita hvað þér finnst
um hlutina.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Taktu frá tíma til þess að reyna að bæta
skipulagið á heimilinu og í vinnunni.
Hvaðeina sem þú gerir til þess að gera líf
þitt skilvirkara er vel þess virði.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú nýtur þess að bregða á leik með smá-
fólkinu í dag. Hvers kyns skapandi við-
fangsefni veita þér ánægju. Reyndu að
njóta þín við föndur og hannyrðir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Bernskuminningar koma tilfinningalíf-
inu óvænt úr jafnvægi. Þú dregur lær-
dóm af því að skoða uppvaxtarár þín með
augum fullorðinnar manneskju.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Samræður við nágranna, ættingja og
vini eru óvenju gefandi í dag. Hafðu í
huga að það er erfitt að heyra það sem
aðrir segja meðan maður er sjálfur að
tala.
Stjörnuspá
Frances Drake
Steingeit
Afmælisbarn dagsins:
Þú hefur duttlungafullar og léttlyndar
hliðar og ert í eðli þínu gáskafull
manneskja. Það gildir einu hversu al-
varleg þú ert í einrúmi, fólk sér þig
sem líflega og skemmtilega. Ímynd-
unarafl þitt er einstakt.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Lárétt | 1 kafaldið, 8 gata,
9 guðum, 10 uxa, 11 bik,
13 líffærum, 15 hreinsa, 18
moð, 21 kvendýr, 22
blessa, 23 svardagi, 24
endis.
Lóðrétt | 2 svertingja, 3
svikula, 4 hljóðfæri, 5 tóm-
ar, 6 bríni, 7 tunnum, 12
bein, 14 fiskur, 15 sæti, 16
hryggi, 17 óhreinkaðu, 18
áfall, 19 fim, 20 sjá eftir.
Lausn síðustu krossgátu.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 kúgar, 4 sekur, 7 tíðum, 8 álkan, 9 tel, 11 ræna,
13 espi, 14 numið, 15 forn, 17 alfa, 20 ára, 22 sálir, 23 nifls,
24 skaði, 25 auman.
Lóðrétt | 1 kútur, 2 gæðin, 3 rúmt, 4 skál, 5 kokks, 6 rengi,
10 eimur, 12 ann, 13 eða, 15 fisks, 16 rulla, 18 lofum, 19 ass-
an, 20 Árni, 21 anga.
Myndlist
Anddyri Suðurlandsbrautar 4 | Rafn Sig-
urbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíumálverk.
Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli – Stefnumót
lista og minja.
Gallerí Banananas | Baldur Björnsson –
Hefur þú upplifað geðveiki?
Gallerí Sævars Karls | Hulda Vilhjálms-
dóttir – Hver er að banka á hurðina?
Kannski barnið í landslaginu?
Gallerí Tukt | Kristjana Rós Guðjohnsen
sýnir abstrakt olíumálverk.
Gerðuberg | Rosemarie Trockel sýnir ljós-
myndir, skúlptúra, teikningar og mynd-
bönd.
Hallgrímskirkja | Jón Reykdal – 6 ný olíu-
málverk.
Hrafnista Hafnarfirði | Sigurbjörn Krist-
insson myndlistamaður sýnir málverk og
tússmyndir í Menningarsal.
Kaffi Sólon | Sigríður Valdimarsdóttir –
Snjókorn.
Kunstraum Wohnraum | Alda Sigurð-
ardóttir – Landslagsverk.
Listasafn ASÍ | Valgerður Guðlaugsdóttir –
Á skurðarborði Augans.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Birgir
Snæbjörn Birgisson – verk úr tveimur
myndröðum, Snertingar og Ljóshærðar
starfstéttir. Elías B. Halldórsson – Olíuljós.
Verk úr einkasafni Þorvaldar Guðmunds-
sonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur á
neðri hæð.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið – yfirlitssýning á verkum
Ásmundar Sveinssonar.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Þórð-
ur Ben Sveinsson – Borg náttúrunnar.
Bjargey Ólafsdóttir – Láttu viðkvæmt útlit
mitt ekki blekkja þig. Erró – Víðáttur. Brian
Griffin – Áhrifavaldar.
Tjarnarsalur Ráðhúss Reykjavíkur | Sör-
en Solsker Starbird – Er sálin sýnileg?
Ljósmyndasýning.
Þjóðmenningarhúsið | Bragi Ásgeirsson er
myndlistarmaður mánaðarins í samstarfi
Þjóðmenningarhússins og Skólavefjarins.
Yfirlitssýning á verkum Braga, bæði í veit-
ingastofu og í kjallara.
Bækur
Kaffi Reykjavík | Skáldaspírukvöld kl. 20.
Upplesarar eru: Hermann Stefánsson, Árni
Larsson, Þorsteinn Guðmundsson, Pétur
Gunnarsson og Kristín Svava Tómasdóttir.
Öll lesa þau upp úr nýjum verkum sínum,
nema Kristín Svava sem les óbirt efni.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Sýningaröðin Tón-
listararfur Íslendinga: Kynntar eru nýjar
rannsóknir á tónlistararfinum og útgáfa
efnis á geisladiskum. Fyrsta sýningin fjallar
um Silfurplötur Iðunnar sem Kvæða-
mannafélagið Iðunn og Smekkleysa gaf ný-
lega út á 4 geisladiskum ásamt veglegu
riti.
Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning
Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til–
menning og samfélag í 1200 ár. Opið kl 11–
17.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd Kópavogs | Opið milli
kl. 16 og 18. Fatamóttaka og úthlutun á
sama tíma.
Fundir
Hótel Bláfell | Sjálfstæðisflokkurinn heldur
stjórnmálafund í dag kl. 16. Yfirskrift fund-
arins er: Með hækkandi sól – lægri skattar
– aukin hagsæld. Framsögumenn: Einar K.
Guðfinnsson og Arnbjörg Sveinsdóttir al-
þingismenn.
Hótel Höfn | Sjálfstæðisflokkurinn heldur
stjórnmálafund á morgun kl. 20. Yfirskrift
fundarins er: Með hækkandi sól – lægri
skattar – aukin hagsæld. Framsögumenn:
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra og Guðjón Hjörleifsson al-
þingismaður.
Hótel Framtíð | Sjálfstæðisflokkurinn
heldur stjórnmálafund kl. 20. Yfirskrift
fundarins er: Með hækkandi sól – lægri
skattar – aukin hagsæld. Framsögumenn:
Einar K. Guðfinnsson og Arnbjörg Sveins-
dóttir alþingismenn.
Krabbameinsfélagið | Samhjálp kvenna
verður með opið hús kl. 20 í húsi Krabba-
meinsfélagsins Skógarhlíð 8, Reykjavík.
Sigríður Eyjólfsd. og Hildur B.Hilmarsd.
segja frá ráðstefnu sem þær sóttu í Ósló.
Sýnt verður myndband um breytingar á
nánum samskiptum, hjálpartæki o.fl. Allir
velkomnir.
OA-samtökin | OA-samtökin verða 45 ára
19. jan. Í tilefni af því verður opinn afmæl-
isfundur kl. 20.15, í Gula húsinu, Tjarn-
argötu 20, þrír OA félagar segja sögu sína.
OA-samtökin eru samtök fólks sem á við
sameiginlegt vandamál að stríða, átfíkn,
sem á sér ýmsar birtingarmyndir. Nánari
uppl. www.oa.is.
Safnaðarheimili Breiðholts | Sameig-
inlegur fundur kvenfélaganna í Breiðholti
verður haldinn í safnaðarheimili Breið-
holtskirkju (jarðhæð, suðurenda) kl. 20.
Konur í Breiðholti eru velkomnar. Kvf.
Breiðholts, Kvf. Seljasóknar og Fjallkon-
urnar.
Slysavarnadeild kvenna í Reykjavík |
Fundur í Höllubúð þriðjudaginn 18. janúar
kl. 20, vegna vorferðarinnar sem farin
verður til Prag 9.–16. júní. Fulltrúi frá
Heimsferðum mætir á fundinn. Nokkur
sæti eru enn laus í ferðina. Upplýsingar í
síma 695 3012.
Slysavarnahúsið Þorbjörn | Sjálfstæð-
isflokkurinn heldur stjórnmálafund í Slysa-
varnahúsinu, Grindavík í kvöld kl. 20. Yf-
irskrift fundarins er: Með hækkandi sól
–lægri skattar – aukin hagsæld. Fram-
sögumenn: Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra og alþingismennirnir Guðjón
Hjörleifsson og Gunnar I. Birgisson.
Fyrirlestrar
Snorrastofa | Torfi Tulinius prófessor í
fönsku og miðaldabókmenntum við Há-
skóla Íslands flytur fyrirlestur byggðan á
bók sinni, Skáldið í skriftinni, í bókhlöðu
Snorrastofu kl. 20.30. Umræður að lokn-
um fyrirlestri. Kaffiveitingar í hléi, að-
gangseyrir 500 kr.
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í er-
lendum tungumálum | Er menning heyrn-
arlausra til? Júlía G. Hreinsdóttir, tákn-
málskennari, þriðjudaginn 18. janúar kl.
12:15, stofa 101 í Lögbergi Fjallað verður um
menningarmun milli heyrnarlausra og
heyrandi. T.d. mismunandi aðferðir við að
ná athygli fólks. Einnig verður fjallað um
ljóðaflutning og brandara.
Málstofur
Verkfræðideild Háskóla Íslands | Hjörtur
Þráinsson flytur erindi um: Reiknilíkön til
að meta áhættu af völdum nátt-
úruhamfara, fimmtudag 20. janúar kl.
16.15–17, í stofu 158, verkfræðideild HÍ við
Hjarðarhaga 6. Í þessu spjalli verður farið
yfir uppbyggingu slíkra líkana og rætt um
vandamál sem að steðja við gerð þeirra.
Námskeið
Gigtarfélag Íslands | Hópþjálfun Gigt-
arfélags Íslands er byrjuð aftur eftir jólafrí.
Í boði eru mismunandi hópar, s.s. róleg leik-
fimi, vefjagigtarhópar, bakleikfimi fyrir
karlmenn og jóga. Þjálfunin fer fram í húsi
GÍ að Ármúla 5. Nánari upplýsingar hjá GÍ.
ITC samtökin á Íslandi | Haldið verður
námskeið á vegum ITC dagana 19. jan–9.
mars. Fjallað verður um ímynd, raddbeit-
ingu og líkamstjáningu.Þátttakendur taka
virkan þátt í námskeiðinu og fá frammi-
stöðumat að því loknu. Skráning stendur
yfir hjá Addú s: 897-4439 eða á itc@sim-
net.is. Vefsíða : http://www.simnet.is/itc.
Íslenska Kristskirkjan | Alfa er námskeið
um andleg mál, kristna trú og tilgang lífs-
ins. Nýtt námskeið hefst nk. þriðjudags-
kvöld kl. 19. Alfa er tíu þriðjudagskvöld í röð
frá kl. 19–22. Verð kr. 6000. Matur og
kennsla innifalin. Skránining hjá Íslensku
Kristskirkjunni, Fossaleyni 14, Grafarvogi.
s. 567-8800 frá kl. 13–17.
Mímir-símenntun ehf. | Jóhanna Krist-
jónsdóttir heldur námskeið um Menning-
arheim araba. Þetta er fimm kvölda nám-
skeið sem hefst 20. jan. Rætt er um islam,
sögð saga Múhammeðs spámanns, fjallað
um stöðu, mennun og klæðnað kvenna.
Rætt um menningartengd efni o.fl. Þá er
einnig boðið upp á arabískan mat.
Skipulag og skjöl ehf | Námskeiðið „Inn-
gangur að skjalastjórnun“ verður haldið
mið. 19. og fim. 20. jan. kl. 13–16.30. Í nám-
skeiðinu, sem er öllum opið, er farið í
grunnhugtök skjalastjórnunar; lífshlaup
skjals, virk skjöl, óvirk skjöl, skjalaáætlun
og skjalalykil. Uppl í síma 564-4688 og
695-6706 eða skipulag@vortex.is.
Útivist
Laugardalurinn | Stafganga í Laugar-
dalnum á þriðjudögum og fimmtudögum kl.
17.30 gengið er frá Laugardalslauginni.
Nánari upplýsingar á www.stafganga.is og
gsm: 6168595 og 6943571, Guðný Ara-
dóttir og Jóna Hildur Bjarnadóttir.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Rf6 4. d3 Be7
5. 0–0 0–0 6. h3 d6 7. a4 Be6 8. He1
Bxc4 9. dxc4 h6 10. Rbd2 Rh7 11. Rf1
Bg5 12. a5 Bxc1 13. Dxc1 f5 14. exf5
Hxf5 15. Dd1 Dd7 16. a6 Haf8 17. Rh4
Hxf2 18. Rg6 b6 19. Rxf8 Hxf8 20. c3
Rg5 21. Re3 e4 22. Dd5+ Kh8 23. Hf1
He8 24. Df5 Dd8 25. Rd5 Re5 26. h4
Re6 27. Dxe4 Rc5 28. Df4 Rcd3 29. Dg3
Rxb2 30. Re3 Dd7 31. Ha2 Red3 32.
Rd5 c6 33. Rf4 Rxf4 34. Hxf4 He2 35.
Hf8+ Kh7 36. h5 De6
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Hastings á
Englandi. Alþjóðlegi meistarinn Ro-
bert Gwaze (2.410) frá Simbabve hafði
hvítt gegn enska stórmeistaranum
Mark Hebden (2.521). 37. Dg6+! Dxg6
38. hxg6+ Kxg6 39. Kh2! og svartur
gafst upp enda hefur leppun riddarans
á b2 og veika peð hans á a7 í för með
sér að staðan er gjörtöpuð. Þannig
væri 39. … Hd2 svarað með 40. Ha8 og
svartur er varnarlaus.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
KVIKMYNDASAFN Íslands
sýnir í kvöld kl. 20 mynd
spænska leikstjórans Luis
Buñuel, Nazarín frá árinu
1959. Myndin, sem framleidd
er í Mexíkó, er önnur þriggja
uppáhaldsmynda Thors Vil-
hjálmssonar sem rithöfund-
urinn valdi til sýninga í Bæj-
arbíói. Thor mun ávarpa gesti
við upphaf sýningarinnar og
segja frá kynnum sínum við
myndina sem fyrir hans
áeggjan var sýnd í Bæjarbíói á
sínum tíma.
Myndin segir frá prestinum
Nazarín sem reynir að fylgja
Kristi og lifa hreinræktuðu og
heiðarlegu lífi samkvæmt
boðskap hans. En sam-
ferðamennirnir tortryggja
hann og láta í ljós andúð sína
á líferni hans ef undan er skil-
in hóran í þorpinu. Um mynd-
ina sagði Bunuelsjálfur meðal
annars þetta: „Ég finn til
sterkra tengsla við Nazarín.
Hann er prestur, en gæti eins
verið hárgreiðslumaður eða
þjónn. Það sem vekur áhuga
minn á honum er að hann
stendur við hugmyndir sínar, hugmyndir sem eru óásættanlegar meginþorra samfélags-
ins og það, að ævintýri hans með hórkonum, þjófum og þess háttar menningarkimum
leiða til þess að hann verður óafturkallanlega fordæmdur af ríkjandi samfélagsskipan.“
Myndin er á spænsku og verður sýnd án texta en sýningarskrá á íslensku liggur
frammi í bíóinu þar sem söguþráður myndarinnar er rakinn.
Bunuel er án efa einna þekktastur fyrir samstarf sitt við listmálarann súrrealíska
Salvador Dali, en það samstarf gat af sér kvikmyndina Andalúsíuhundinn (Un Chien
Andalou).
Nazarín í Bæjarbíói
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti 11 sími 551 3930