Morgunblaðið - 19.01.2005, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ætli flokkurinn haldi sig ekki við rækjusalatið, góði, frekar en að fara í niður-
dýfingu bara til að sjá dúfur sem ekki má einu sinni borða.
Síminn og Og Voda-fone hafa sett verð-þak, þ.e. hámarks-
verð, á erlent niðurhal.
Þýðir það að verð fyrir
ADSL-internetþjónustu
fer ekki yfir tiltekin mörk,
óháð því hversu mikið af
gögnum er halað niður. Er
hámarksverðið mismun-
andi eftir því hvaða áskrift-
arleið er farin. Þetta þýðir
að viðskiptavinur greiðir
áfram fast mánaðargjald
sem inniheldur visst
gagnamagn og greiðir svo
ákveðið krónugjald (2,5 kr.
hjá Símanum og 2,49 kr.
hjá Og Vodafone) fyrir
hvert umfram megabæt þar til
upphæð verðþaksins er náð.
Þrátt fyrir þessa breytingu býð-
ur Hive, sem er vörumerki IP-
fjarskipta ehf. og kom til sögunnar
í haust, enn besta verðið. Verð-
skrár Símans og Og Vodafone eru
mjög sambærilegar hvað varðar al-
gengustu áskriftarleiðir, og voru
þessar breytingar á gjaldskrá til-
kynntar nær samdægurs.
Sáralítill verðmunur
Sé miðað við tengingu sem býð-
ur 2 megabita á sekúndu (Mb/s) í
hraða og 100 megabæta (MB)
gagnamagn greiðir viðskiptavinur
Símans nú í mesta lagi 9.500 krón-
ur á mánuði en viðskiptavinur Og
Vodafone 9.481 krónu. Er verð-
munurinn 19 krónur, Og Vodafone
í vil. Fastagjaldið fyrir þessa
ákveðnu tengingu er 4.820 kr. hjá
Símanum og 4.750 kr., eða 70 kr.
lægra, hjá Og Vodafone.
Átta Mb/s tenging hjá Hive, með
ókeypis ótakmörkuðu niðurhali,
kostar 5.990 kr. á mánuði, en Hive
býður minnst 8 Mb/s tengingu og
mest 20 Mb/s tengingu sem kostar
9.990 kr. á mánuði. Þá býður Hive
þriðja möguleikann, 12 Mb/s teng-
ingu, á 7.990 krónur.
Sé miðað við 2Mb/s tengingu
með 2 gígabæta (GB) gagnamagni
inniföldu greiða viðskiptavinir Og
Vodafone 6.990 krónur á mánuði,
óháð gagnamagni sem þeir nota
(þ.e. fastagjaldið er 6.990 kr. og há-
marksverðið það sama). Hjá Sím-
anum greiða þeir 7.200 kr. í fasta-
gjald en mest 7.500 kr., fari þeir
umfram innifalið gagnamagn (2
GB). Verðmunurinn er 210 kr. sé
miðað við fastagjaldið og 510 kr. sé
miðað við hámarksverð, hvort
tveggja Og Vodafone í vil.
Eva Magnúsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Símans, segir ekki rétt að
Síminn sé að svara harðnandi sam-
keppni á markaðnum með því að
setja verðþak á erlent niðurhal.
Síminn sé einfaldlega að svara
kröfum viðskiptavina sinna um
meira öryggi á Netinu og koma í
veg fyrir mjög háa reikninga vegna
erlends niðurhals. Aðspurður um
hvers vegna verðmunurinn á al-
gengri tengingu (2 Mb/s hraði og
100 MB gagnamagn) sé ekki meiri
milli Símans og Og Vodafone og
raun ber vitni (19 kr.) segir Sverrir
Hreiðarsson, markaðsstjóri Og
Vodafone, að með tilkomu ADSL-
þjónustu Íslandssíma og síðar Og
Vodafone hafi verðið á þjónustunni
hríðlækkað. „Við bjuggum í raun og
veru til samkeppni á þessum mark-
aði. Það sem gerist í kjölfarið er að
Síminn eltir okkur og hefur haldið
sig eins nálægt okkur og hann
treystir sér til.“
Spurður af hverju þessi breyting
sé gerð á verðskrá símafyrirtækj-
anna tveggja núna segir Sverrir að
ljóst hafi verið strax og Farice-
strengurinn var tekinn í notkun að
svigrúm myndast skapast til breyt-
inga, en bendir á að tekið hafi tíma
að losa fyrirtækið undan skuldbind-
ingum varðandi útlandasamband.
Svar Evu er að Síminn hafi m.a. náð
hagkvæmari samningum við birgja
erlendis.
Aðspurð hvort Síminn komi til
með að bjóða ókeypis erlent niður-
hal, líkt og Hive gerir nú, segir Eva
niðurhal frá útlöndum ekki verða
ókeypis á meðan Síminn þurfi að
borga fyrir flutning til og frá landi,
auk þess að borga internetveitum
erlendis fyrir aðgang. Sverrir segist
ekki sjá fyrir sér að Og Vodafone
komi til með að bjóða upp á ókeypis
erlent niðurhal. „Við erum með
„framlengingarsnúrur“ yfir til Evr-
ópu sem kosta nokkra milljarða.
Einhver þarf að borga fyrir það.“
Flutningsgetan sjöfaldast
„Það er alveg ljóst að þessar frá-
bæru viðtökur sem við höfum feng-
ið hafa skapað verulegan óróa á
markaðnum,“ segir Arnþór Hall-
dórsson, framkvæmdastjóri Hive.
„Það hefur nú leitt til þess að Sím-
inn og Og Vodafone svara okkar
útspili á ákveðinn hátt en samt
vantar töluvert upp á að þeir séu að
bjóða viðskiptavinum sínum jafn
góð kjör og við erum að gera.“
Segir hann að lítil sem engin
samkeppni hafi ríkt á þessum
markaði áður en Hive kom til og að
Hive hafi svipt hulunni af
ákveðnum þáttum í netþjónustu á
Íslandi. Væntir hann þess að fyr-
irtækið muni gera það sama í síma-
þjónustu mjög fljótlega. Arnþór
segir viðtökur almennings við Hive
hafa verið vonum framar. Hann
segir að svokölluð útlandagátt
stækkuð í samstarfi við fyrirtækið
Teleglobe nk. mánaðamót, en við
það mun flutningsgetan sjöfaldast.
Fréttaskýring | Verðsamanburður á
ADSL-netþjónustu
Ennþá ódýrast
hjá Hive
Og Vodafone og Síminn setja
hámarksverð á erlent niðurhal
Niðurhal innanlands
gjaldfrjálst
Hjá öllum þremur fjarskipta-
fyrirtækjum er niðurhal innan-
lands gjaldfrjálst. Ávallt þarf að
greiða fyrir fastalínu, þ.e. heima-
síma, til að hafa ADSL-þjónustu.
Mánaðargjald fyrir hana er 1.260
kr. hjá Og Vodafone og 1.295 kr.
hjá Símanum. Hjá Hive miðast
verð á ADSL við 12 mánaða
binditíma, annars þarf að greiða
stofngjald. Ekkert stofngjald er
hjá Símanum og Og Vodafone.
Verðskrár Símans og Og Voda-
fone eru óháðar binditíma. Og
Vodafone býður viðskiptavinum
að auki að hala niður frítt 500 Mb
á sunnudögum.
sunna@mbl.is
FUGLAVERNDARFÉLAG Íslands hvetur félagsmenn
og alla landsmenn að huga að smáfuglunum nú þegar
harðnar á dalnum. Félagið bendir á að fóðrun fugla í
görðum sé bæði áhugavert og skemmtilegt viðfangs-
efni fyrir unga sem aldna. Fram kemur á vefsíðu fé-
lagsins að fóðrun smáfugla skipti kannski ekki meg-
inmáli fyrir heildarstofn viðkomandi tegunda en hún
geti skipt sköpum fyrir suma fugla.
„Skógarþrestir sem hafa vetrardvöl á Íslandi ættu
t.d. erfitt með að lifa af veturinn ef ekki kæmu til fóð-
urgjafir fuglavina. Hinn litli varpstofn svartþrasta á
innnesjum byggir líklega afkomu sína að vetrarlagi á
fóðurgjöfum,“ segir á vef félagsins. Þar er einnig hægt
að fræðast um fóðrun fugla, t.d. hvað henti hvaða fugl-
um og hvernig best skal staðið að fóðruninni. Meðal
þess sem þar kemur fram er að mikilvægt sé að fuglar
hafi aðgang að vatni í mestu frosthörkunum til þess að
drekka og baða sig. Slóðin er www.fuglavernd.is/
html/vetrarfodrun.html.
Fuglavernd bendir einnig á að rétt sé að hvetja katt-
areigendur að hafa ketti sína sem mest inni nú þegar
birtutíminn er stuttur og fuglar hafa lítinn tíma til þess
að afla lífsviðurværis. Fram kemur að mikið sé kvartað
yfir ágangi katta og sumstaðar sitji fjórir til fimm kett-
ir um líf fuglanna við fóðurstaði. Fuglavernd biður
kattaeigendur vinsamlegast að halda köttum inni á
meðan bjart er og helst allan sólarhringinn. Sveitar- og
bæjarstjórnir eru hvattar til þess að setja skýrari regl-
ur um kattahald.
Hvatt til garðfuglaskoðunar
Á liðnum vetri stóð Fuglavernd fyrir svokallaðri garð-
fuglaskoðun að breskri fyrirmynd, en hún stóð yfir
eina helgi, dagana 24. og 25. janúar 2004. Þátttaka var
ágæt, fylgst var með fuglum á 40 athugunarstöðum. Í
garðfuglaskoðun 2004 sáust 13 fuglategundir og alls
3.640 fuglar. Snjótittlingur sást í flestum görðum og
var jafnframt langalgengasti fuglinn. Helgina 29.–30.
janúar stendur Fuglavernd aftur fyrir garðfugla-
skoðun og hvetur hún landsmenn til þátttöku. Hægt
verður að nálgast upplýsingar um garðfuglaskoðun
2005 á vef félagsins á www.fuglavernd.is.
Fólk hvatt til þess að
huga að smáfuglunum
Mikilvægt er að huga að smáfuglunum nú þegar vetrarfrostið er sem mest.
Ljósmynd/Örn Óskarsson