Morgunblaðið - 19.01.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 19.01.2005, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR á morgun Nýsköpun 2005 Frumkvöðlar skapa ný störf og stuðla að hagvexti. FULLTRÚAR Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins komu fyrir félagsmálanefnd Al- þingis í gær vegna starfsmanna- mála við Kárahnjúkavirkjun, auk þess sem forstjóri Vinnumála- stofnunar kom öðru sinni til fund- ar við nefndina. Meðal þess sem kom til umræðu á fundinum var hvort tilefni væri til breytinga á lögum um atvinnuréttindi útlend- inga og hvort setja ætti sérstök lög um starfsmannaleigur. Að sögn Sivjar Friðleifsdóttur, formanns félagsmálanefndar, munu þessi mál án vafa koma til tals þegar Al- þingi kemur saman að nýju í næstu viku eftir jólafrí. Eins og greint var frá í Morg- unblaðinu eftir fyrri fund félags- málanefndar sl. föstudag vildu fulltrúar Impregilo ekki funda með ASÍ-mönnum á sama tíma. Var því ákveðið að boða annan nefndar- fund. Í máli fulltrúa ASÍ í gær kom fram að öll samskipti við Imp- regilo hefðu verið erfið og ekki hefði verið boðið upp á mikið samstarf. Á því hefði nú orðið breyting þegar formlegt boð barst ASÍ sl. mánudag um að funda með fulltrúum Imp- regilo og alþjóð- legum verka- lýðsfélögum næstkomandi föstudag í Reykjavík. Er sá fundur í tengslum við heimsókn samráðs- nefndar alþjóðlegra verkalýðs- félaga og Impregilo til landsins. Siv segir að eftir þessa fundi vakni sú spurning í sínum huga hvort hægt sé að manna stöðurnar við Kárahnjúka í meira mæli með Íslendingum og Evrópubúum eða ekki. Þar greini menn á og svör málsaðila séu óskýr. „Impregilo segir eitt og ASÍ segir annað,“ segir Siv en talsmenn ASÍ upp- lýstu félagsmálanefnd m.a. um að til skoðunar væri að fara með deil- una fyrir Félagsdóm. Upplýsingarnar gefa nefnd- armönnum góðan grunn Hún segir fundina hafa verið upplýsandi fyrir félagsmálanefnd. Málefnaleg rök og sjónarmið hafi komið fram hjá öllum aðilum og upplýsingarnar gefi nefndarmönn- um góðan grunn til að byggja á í væntanlegum umræðum sem fram muni fara á Alþingi. Skýrt hafi komið fram hve þenslan í bygging- ariðnaði sé mikil á höfuðborgar- svæðinu og hafi áhrif á ráðningar annars staðar á landinu. Illa gangi að manna störfin við Kárahnjúka með Íslendingum eða fólki annars staðar frá Evrópu. Félagsmálanefnd hitti fulltrúa ASÍ og SA í gær Rætt um breytingar á lögum um atvinnuréttindi Siv Friðleifsdóttir FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA og dómsmálaráðherra eru með það til skoðunar að efla eftirlit með ólög- legri atvinnustarfsemi útlendinga hér á landi. Forstjóri Vinnumála- stofnunar fagnar því frumkvæði sem Samiðn hefur sýnt í að upp- ræta þessa starfsemi, sem hefur stórlega aukist síðustu misserin og er að mati Samiðnar farin að hafa áhrif á markaðslaun í byggingariðn- aði, líkt og fram kom í blaðinu í gær. Árni Magnússon félagsmálaráð- herra bendir á að það sé á könnu lögreglunnar og Útlendingastofnun- ar, sem gefi út dvalarleyfi, að hafa eftirlit með ólöglegu vinnuafli. Það hafi komið til umræðu milli sín og Björns Bjarnasonar dómsmálaráð- herra að skoða hvernig efla mætti þetta eftirlit, enda hafi athygli stjórnvalda verið vakin á því að um vaxandi vandamál sé að ræða. Finnbjörn Hermannsson, formað- ur Samiðnar, sagði í blaðinu í gær að stjórnvöld gætu ekki sagt eins og félagsmálaráðherra hefði gert í sjónvarpsfréttum að það væri ís- lenskrar verkalýðshreyfingar að halda uppi lögum og reglum á Ís- landi. Árni segir þetta vera frjálslega túlkun á sínum ummælum. Hins vegar hafi verið sátt um það á vinnumarkaðnum að verkalýðs- hreyfingin hafi eftirlit með því að kjarasamningar séu uppfylltir. Þarna hafi einhver misskilningur átt sér stað. Félagsmálaráðherra telur það koma til greina að hafa útgáfu dval- ar- og atvinnuleyfa á einni hendi en í dag eru þau í höndum Útlend- ingastofnunar og Vinnumálastofn- unar. Alvarlegra mál en deilurnar við Kárahnjúka Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir þetta mál vera mun alvarlega en þær deil- ur sem sprottið hafa upp við Kára- hnjúkavirkjun, þó hann hafi vissu- lega áhyggjur af þeim málum. Ástæða sé til að hafa enn meiri áhyggjur af ólöglegu vinnuafli í landinu, sem komi hingað án dvalar- og atvinnuleyfis. Um klárt lögbrot sé að ræða en samkvæmt upplýs- ingum frá Samiðn hafa þetta eink- um verið Lettar og Litháar. „Ég hef fyrst og fremst áhyggjur af því hve margir virðast vilja hafa þessa menn í vinnu en einnig hef ég áhyggjur af því hve margir virðast vilja kaupa þjónustu af þeim. Þetta er eitthvað sem við verðum að koma í veg fyrir,“ segir Gissur. Aðspurður segir hann Vinnu- málastofnun hafa takmarkaða möguleika til aðgerða. Stofnunin hafi ekki löggæsluvald, um brot á hegningarlögum sé að ræða sem lögreglan hafi eftirlit með. Það sé hins vegar gott fyrir Vinnumála- stofnun að vita hvaða aðilar hafa þessa útlendinga í þjónustu. Þau fyrirtæki fyrirgeri rétti sínum til að fá erlent vinnuafl með löglegum hætti. Gissur segir lítið annað hægt að gera en að uppræta þetta með „físískum“ hætti, líkt og Samiðn sé að gera, að hlaupa þessa starfsmenn uppi. „Ég styð Samiðn heilshugar í sinni baráttu,“ segir Gissur sem tel- ur það einnig mikilvægt að fá al- menning sem liðsauka og koma með ábendingar um erlenda iðnaðar- menn sem bjóði vinnu sína á svörtu. Vinnumálastofnunin fagnar frumkvæði Samiðnar Efla á eftirlit með ólög- legri atvinnustarfsemi Morgunblaðið/Arnaldur ALLS voru gefin út 3.750 at- vinnuleyfi til útlendinga á árinu 2004, en það eru um 450 fleiri leyfi en gefin voru út á árinu 2003 og rúmlega 100 fleiri en gefin voru út á árinu 2002. Atvinnuleyfi eru flokkuð niður í nokkra flokka samkvæmt upp- lýsingum Vinnumálastofnunar og fjölgar nýjum tímabundnum atvinnuleyfum verulega frá ár- unum á undan. Þau meira en tvöfaldast á árinu 2004 og eru 1.374 talsins samanborið við 563 á árinu 2003 og 502 leyfi á árinu 2002. Hins vegar fækkar fram- lengdum tímabundnum leyfum millli ára. Fækkunin nemur um 300 leyfum. Þau eru 1.135 í fyrra, en voru 1.434 árið 2003 og 1.796 árið 2002, sem er nær 700 fleiri en í fyrra. Þá kemur fram í tölum Vinnu- málastofnunar að framboð á lausum störfum jókst í desem- bermánði miðað við nóvember. Þannig voru 727 laus störf í boði á vinnumiðlunum í lok desem- ber, en þau voru 662 í lok nóv- ember. Aðeins eitt starf laust á Suðurnesjum Á tímabilinu fækkaði lausum störfum á höfuðborgarsvæðinu um 157 en þeim fjölgaði á lands- byggðinni vegna mikilla fjölg- unar starfa á Austurlandi þar sem fjölgunin er 242. Einungis 14% lausu starfanna eru á höfuðborgarsvæðinu. Þar voru þannig 103 laus störf í des- emberlok, en þau eru 431 talsins á Austurlandi. Aðeins eitt starf var þá laust á Suðurnesjum. Nær fjögur þús- und atvinnuleyfi gefin út í fyrra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.