Morgunblaðið - 19.01.2005, Síða 11

Morgunblaðið - 19.01.2005, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005 11 FRÉTTIR Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. La gavegur 182 • 105 Rvík • Fax 53 481 • i r idborg.is Höfum kaupanda að 120-180 fm hæð eða hæð og risi í Hlíðun- um, sunnan Miklubrautar. Íbúðin þarf að hafa a.m.k. fjögur svefn- herbergi. Bein kaup eða skipti á fallegri 102 fm 4ra herbergja efri hæð við Drápuhlíð. Nánari upplýsingar veitir Sigurður. Drápuhlíð – skipti á hæð eða hæð og risi Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali. La gavegur 182 • 105 Rvík • Fax 53 481 • i r idborg.is 186,7 fm glæsilegt raðhús á tveimur hæðum, þar af 19,3 fm bíl- skúr. Húsið skiptist í forstofu, hol, nýtt glæsilegt eldhús með borð- krók, sjónvarpshol, þrjú baðherbergi, tvær samliggjandi stofur með stórum suðursvölum og frábæru útsýni, fimm svefnherbergi, þvottahús og geymslur. Nýtt gegnheilt eikarparket á gólfi. 5258. Verð 34,8 millj. Hulduland Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 - Ægir Breiðfjörð löggiltur fasteignasali Glæslilegt ca 200 fm einbýli á tveimur hæðum, þar af innbyggður bílskúr ca 28 fm. Húsið er glæslilega innréttað með arinn í stofu, náttúrustein og fallegu parketi á gólfum. Fjögur svefnherbergi (2 uppi og 2 niðri). Úti er stór verönd, frágengnar stéttar og fallegur garður. Mikið útsýni. Sjá myndir á netinu. Verð 43,0 millj. 6561 ÓLAFSGEISLI - GLÆSIEIGN Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17 BLÓÐBANKINN hefur hafið skráningu á sjálfboðaliðum í stofn- frumugjafaskrá hér landi sem verður hluti af norsku stofn- frumugjafaskránni. Stefnt er að því að um 2.500 sjálfboðaliðar verði skráðir í íslensku stofn- frumugjafaskránni að fimm árum liðnum. Upplýsingar um þá verða sendar til Noregs og jafnvel í al- þjóðlega stofnfrumugjafaskrá (Bone Marrow Donors Worldwide) þar sem um níu og hálf milljón sjálfboðaliða er skráð. „Íslenska stofnfrumugjafaskráin gerir Íslendingum kleift að gefa stofnfrumur til einstaklinga með hvítblæði eða aðra illkynja sjúk- dóma, hvar sem er í heiminum,“ segir Sveinn Guðmundsson, yf- irlæknir Blóðbankans. Hann segir að íslenskir sjúklingar hafi fengið stofnfrumur erlendis frá, en með íslensku stofnfrumugjafaskránni verði Íslendingar ekki einasta þiggjendur heldur einnig gef- endur. Sveinn segir að lyfjafyrirtækið Actavis, Kristínarsjóður Krabba- meinsfélags Íslands og Norræna ráðherranefndin hafi styrkt stofn- un íslensku stofnfrumugjafaskrár- innar. En hvað þarf til að vera sjálf- boðaliði í stofnfrumugjafaskránni? „Viðkomandi þarf að vera blóð- gjafi á Íslandi og heimila nákvæma vefjaflokkun úr blóðsýni,“ útskýrir Sveinn. Upplýsingarnar verða svo, eins og áður sagði, sendar til Nor- egs og jafnvel áfram á alþjóðlega skrá. Ef íslenskur sjálfboðaliði get- ur gefið stofnfrumur, þ.e. ef hann er með sama eða mjög svipaðan vefjaflokk og þiggjandinn, þarf að senda hann til Noregs. Þar fer stofnfrumusöfnunin fram. Spurður hvernig hún fari fram segir Sveinn. „Sjálfboðaliðinn leggst á bekk og er tengdur við litla vél eins og þegar hann gefur blóð.“ Stofnfrumur eru aðskildar frá blóðinu, segir Sveinn. Alls tekur þetta ferli um fjóra tíma. Blóðbankinn skráir sjálfboða- liða í stofnfrumugjafaskrá Ljósmynd/Hreinn M. Stofnfrumugjafaskráin var kynnt í bási Actavis á Læknadögum á Nordica Hotel í gær. Frá hægri: Torstein Egeland, yfirlæknir norsku stofn- frumugjafaskrárinnar, Harpa Leifsdóttir, markaðsstjóri Actavis á Íslandi, og Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir Blóðbankans. TENGLAR ..................................................... blodbankinn.is STÆRSTI styrkur sem ESB hefur úthlutað til íslenskrar vísindarann- sóknar hefur fallið Íslenskri erfða- greiningu í skaut, að fjárhæð 330 milljónir króna. Styrkurinn er til rannsókna á erfðafræði áfengissýki og fíknar og mun ÍE vinna að rann- sókninni í samstarfi við SÁÁ. Sam- starfssamningur þeirra var undirrit- aður í gær af Kára Stefánssyni forstjóra ÍE og Þórarni Tyrfingssyni yfirlækni á Vogi. Samstarfssamningurinn er liður í viðamiklu evrópsku samstarfsverk- efni átta rannsóknastofa um rann- sóknir á líffræðilegum orsökum fíkn- ar sem hlotið hefur 8,1 milljónar evra styrk frá ESB. ÍE fær helming styrksins, um 330 milljónir íslenskra króna, en hinar rannsóknastofurnar skipta afganginum á milli sín. Styrk- urinn er ætlaður til rannsókna á sviði mannerfðafræði sem ÍE mun ann- ast. Um klínískan hluta rannsókn- anna sér SÁÁ. Kári Stefánsson sagði í samtali við Morgunblaðið að hug- myndin með rannsókninni væri að öðlast nýjan skilning og þekkingu á tilurð áfengissýki og hvernig sjúk- dómurinn flyst á milli kynslóða. Framhaldið réðist af því til hvaða þekkingar rannsóknin mundi leiða. Mikil rannsóknarvinna „Ef sú þekking býður upp á þróun lyfja þá komum við til með að reyna það. Það yrði gott ef sú þekking leiddi til nýrra aðferða til að fyrir- byggja og lækna þennan slæma sjúkdóm,“ sagði Kári. Lögð verður mikil vinna í að rannsaka svipgerð áfengissýki þ.e. hvernig sjúkdómur- inn lýsir sér í einstaklingi og tengslin milli þess og breytileika í erfða- mengi. Að sögn Þórarins Tyrfingssonar þarf um 2-3000 áfengissjúklinga til að taka þátt í rannsókninni auk að- standenda þeirra. „Það er hagur okkar að afla upplýsinga um áfeng- issjúklinga og við höfum haft það fyrir satt að erfðir skipti máli fyrir þróun sjúkdómsins,“ sagði hann við undirritun samningsins. „Við höfum ekki komist nákvæmlega að því hvað það er í erfðunum sem gerir menn veikari, en ef við komumst nær um það, þá mun það auðvitað nýtast okk- ur í forvörnum og meðferð. Jafnvel munum við fá tæki í hendurnar til að vinna gegn áfengissýkinni, hugsan- lega lyf, ekki endilega til að koma al- veg í veg fyrir sjúkdóminn, heldur gætum við hjálpað mönnum til að komast aftur til eðlilegs lífs.“ Þórarinn lagði áherslu á að enginn áfengissjúklingur yrði rannsakaður nema að fengnu skriflegu samþykki og leyfi. Kári Stefánsson sagði við undirritun samningsins að ÍE væri í einstaklega góðri aðstöðu til að rann- saka erfðir áfengissýki á Íslandi þar sem SÁÁ og sjúkrahúsið Vogur hefðu hlúð að stórum hópi áfengis- sjúklinga hér á landi. Þar af leiðandi væri um að ræða einstakan sam- starfsaðila til að skoða sjúkdóminn. „Ein ástæða þess að menn vilja rannsaka erfðir alkóhólisma er sú að menn vilja reyna að skilja þennan sjúkdóm sem er einhver alvarlegasti og algengasti sjúkdómur sem leggst á fólk á miðjum aldri á Íslandi. Sú von er alltaf fyrir hendi að aukinn skilningur leiði til betri aðferða til að lækna sjúkdóm af þessari gerð.“ Um samstarf SÁÁ og ÍE sagði Kári að um væri að ræða tvo íslenska og mjög sérstaka aðila í hinu alþjóð- lega umhverfi enda væri óvíða í heiminum jafngóð aðstaða til leitar að meingenum og hjá ÍE. „Og ég held að leita verði grannt og lengi að stofnun erlendis sem sér um að höndla eins stóran hluta þeirra sem leita sér hjálpar við alkóhólisma og SÁÁ og Vogur.“ Verkefnisstjóri er Þorgeir Þor- geirsson hjá ÍE. Sameiginleg rannsókn Íslenskrar erfðagreiningar og SÁÁ um erfðir áfengissýki Morgunblaðið/Árni Sæberg Kári Stefánsson, forstjóri ÍE, og Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi, undirrita samninginn. Valgerður Rúnarsdóttir, læknir á Vogi, er yst. Rannsókn á áfengissýki gæti leitt til lyfjaþróunar ÍE með 330 milljóna kr. styrk til verkefnisins RÍKISSTJÓRNIN hefur sam- þykkt að haldin verði hönnunar- samkeppni um deiliskipulag á svæði Landspítala-háskólasjúkra- húss við Hringbraut. Segir Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingaráðherra að keppnin verði auglýst á næstunni. „Þarna er um langtímaskipulag að ræða og gert ráð fyrir að undirbúningur taki um fjögur ár.“ Í undirbúningsvinnunni er gert ráð fyrir að 5-7 hönnunarhópar hefji samkeppni í febrúar en nið- urstöðurnar verði kynntar í sept- ember. Búist er við að bæði inn- lendir og erlendir hönnuðir taki þátt en gerðar verða kröfur um þekkingu á starfsemi sjúkrahúsa og reynslu af sambærilegum verkefnum. Kostnaður við vinnu við deiliskipulagið verður 25 millj- ónir. Samkvæmt frumathugun sænsku arkitektastofunnar White þarf að reisa um 85 þúsund fer- metra af nýbyggingum og endur- gera 26 þúsund fm af eldra hús- næði. Þá þurfi að byggja bílastæðahús. Kostnaður við þessa framkvæmd er áætlaður 36,9 milljarðar króna. Samkeppni um hönnun á lóð LSH

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.