Morgunblaðið - 19.01.2005, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 19.01.2005, Blaðsíða 15
H rin gb ro t BRAUÐBÆR - SÍMI 511 6200 - FAX 511 6201 ODINSVE@ODINSVE.IS - WWW.ODINSVE.IS SMURT BRAUÐ veisla í hverjum bita RAFSÓL Skipholti 33 • 105 Reykjavík Sími: 553 5600 ENDURNÝJUN OG VIÐHALD E i n n t v e i r o g þ r í r 2 6 6 .0 0 2 lögg i l tu r ra fverk tak i Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Aftur Bæjarpóstur | Bæjarpósturinn á Dalvík kemur aftur út á morgun, fimmtu- dag, eftir nokkurt hlé. Útgáfufélagið Rimar ehf. sem gefur út héraðsfréttablaðið Norð- urslóð hefur tekið við útgáfunni en blaðið verður áfram prentað í prentsmiðju Vík- urprents á Dalvík. Fyrir utan nokkrar útlits- breytingar verða þær breytingar helstar á útgáfunni að blaðið kemur nú út þrisvar í mánuði en fjórðu viku hvers mánaðar kemur Norðurslóð út þannig að kaupendur blaðsins fá eftir sem áður sitt vikulega blað. Kaup- endur Norðurslóðar verða á hinn bóginn ekki sjálfkrafa áskrifendur að Bæjarpóst- inum nema þeir óski sérstaklega eftir því. Innan skamms verður svo þriðja þætti út- gáfunnar hrint úr vör en það er vefútgáfan Rimar.is. Ritstjórar Bæjarpóstsins og Norð- urslóðar eru þeir Hjörleifur Hjartarson og Jóhann Antonsson og blaðamaður er Hall- dór Ingi Ásgeirsson. Útgáfunni er fyrst og fremst ætlað að mæta knýjandi þörf fyrir vikulegan, lifandi frétta- og auglýsingamiðil við utanverðan Eyjafjörð og vettvang lýðræðislegrar um- ræðu sem nauðsynlegur er hverju samfélagi sem vill taka sig alvarlega, segir í frétt frá nýjum eigendum Bæjarpóstsins. Ný ritstjórnarskrifstofa blaðsins hefur verið opnuð á annarri hæð Ráðhúss Dalvíkur Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Söfnun í stað æfingagjalda | Stjórn Knattspyrnufélags Siglufjarðar hefur ákveðið að innheimta ekki æfingagjöld yngri flokka vegna vorannar 2005 og hvetur þess í stað foreldra barna hjá félaginu að hringja í söfnunarsíma og láta andvirði æf- ingagjalda renna til landssöfnunarinnar Neyðarhjálp úr norðri vegna hamfaranna í Asíu. Með þessu vill félagið sýna stuðning sinn í verki við þau samfélög sem búa nú við hörmulegar aðstæður í kjölfar hamfaranna. Skólastarfið lamað | Flensan er að stinga sér niður fyrir vestan og eru þess merki víða en á meðal þeirra sem illa hafa orðið úti eru skólabörn og starfsfólk Birki- melsskóla á Patreksfirði. Þar var kennsla felld niður á mánudag sökum þess að nán- ast öll skólabörnin og starfsfólk skólans lögðust í flensu. Helga Nönnudóttir, kenn- ari í Birkimelsskóla, segir í samtali við fréttavefinn Tíðis að langt sé síðan veikindi hafi lagst svona yfir allan skólann. Flensufaraldurinn vestra er í hámarki um þessar mundir að því er haft er eftir lækni hjá Heilbrigðisstofnun Patreks- fjarðar . Þórbergsvefurinn,thorbergur.is, erskaftfellskur vefur um Þórberg Þórðarson, Þórbergssetur og Suð- ursveit. Vefurinn hefur verið settur upp að nýju og alltaf er að berast inn á vefinn nýtt efni sem tengt er Suðursveit og Þór- bergssetri. Á hverjum degi er fært inn í dagbók, bæði veðurlýsingar og einnig það helsta sem er á döfinni hjá Þórbergssetri. Fyrirhugað er að vera með lýsingar á eftirtekt- arverðum stöðum í ná- grenni Hala og er nú kom- in inn fyrsta greinin þar sem fjallað er um mosa og fléttur á Kvennaskála- steininum. Á næstunni verður fjallað um fjal- höggin í Hvannadal og reynihrísluna á Reynivöll- um. Þórbergsvefur Fyrsti Akureyringurinn á þessu ári kom í heiminná fæðingardeild FSA skömmu eftir kl. 20 á ný-ársdagskvöld, myndarlegur drengur, 15 merk- ur og 52 cm. Foreldrar hans eru Hjördís Guðmunds- dóttir og Þorsteinn Skjóldal sem búsett eru í Hríseyjargötunni og er þetta fjórði drengurinn í fjöl- skyldunni. Finnbogi Marinósson, sem rekur ljósmynda- stofuna Dagsljós, heimsótti fjölskylduna og færði henni gjafabréf fyrir myndatökum á fyrsta barni ársins. Geta foreldrarnir komið með drenginn mánaðarlega í myndatöku út þetta ár. Morgunblaðið/Kristján Fyrsta barnið myndað Gunnlaugur Har-aldsson kom meðábendingu vegna vísu sem eignuð hefur verið Pétri Péturssyni biskupi um Skagamenn. Hún var flutt af Pétri við umræður á Alþingi sumarið 1863. Þá voru á dagskrá þingsins bæn- arskrár Mýramanna og Borgfirðinga um að lög- giltur yrði verslunar- staður við Krossvík eða Lambhúsasund á Skipa- skaga. Pétur var harður andstæðingur þess að kauptún risi á Akranesi og sagði m.a. að hann vefengdi ekki nafna- fjöldann undir bæna- skránni, en héldi þó að ekki væru allir Borgfirð- ingar samdóma, og fór með „stöku eftir einn Borgfirðing“ til dæmis um það: Kaupstaður á Skipaskaga skötnum verður mjög til baga; eftir sig hann dilk mun draga, drykkjurúta’ og letimaga. Um Skagamenn pebl@mbl.is Akureyri | Ekkert lát virðist vera á snjókomu norðan heiða, en snjó kyngdi niður í allan gær- morgun og fram yfir hádegi. Nokkur viðbrigði fyrir íbúa bæj- arins, sem ekki hafa séð svo mik- inn snjó í áratug. Sigurborg Sveinsdóttir var á leið heim úr leikskólanum með dætur sínar, Kristínu Halldóru, sem bráðum verður 5 ára og tvíburasysturnar Sigríði Rós og Jónínu Lilju sem allar eru á Holtakoti. Færðin er ekki upp á það besta innanbæjar vegna fannfergisins, en stúlk- urnar ferðuðust á milli skóla og heimilist á ágætum snjóþotum og virtist fara vel um þær. Morgunblaðið/Kristján Á leiðinni heim úr leikskólanum Snjókerlingar SETTUR hefur verið upp nýr ratsjárbún- aður og sjálfvirkur auðkenningarbúnaður um borð í varðskipinu Tý. Auk þess að nýt- ast sem siglingatæki eru ratsjárnar búnar sérstökum eiginleikum sem hannaðir hafa verið fyrir sjóheri meðal annars til að fylgj- ast með flugvélum og til að leiðbeina þyrl- um til lendingar. Búnaður þessi hefur það fram yfir eldri ratsjárbúnað varðskipsins að hann getur tengst svokölluðu IBS-kerfi sem tengir öll stjórn- og siglingatæki skipsins þannig að þau mynda eina heild. IBS-kerfi verður sett í varðskipin á næstu tveimur árum. Ratsjárbúnaðurinn var keyptur af fyrirtækinu Radiomiðun í kjöl- far útboðs á vegum Ríkiskaupa og verður sams konar búnaður settur í varðskipið Ægi á næstu dögum. Myndin var tekin þegar Sigurður Steinar Ketilsson skip- herra prófaði ratsjána en hjá honum stóðu Gylfi Geirsson forstöðumaður hjá Land- helgisgæslunni og Jóhann Bjarnason framkvæmdastjóri Radíómiðunar. Sjálfvirki auðkenningarbúnaðurinn tek- ur við upplýsingum um staðsetningu skipa, sem sendar eru sjálfvirkt frá þeim, og öðr- um upplýsingum um skipin og birtir á rat- sjárskjá og í siglingatölvu. Ný ratsjá í varðskipin Höfðahreppur | Hreppsnefnd Höfða- hrepps mótmælir harðlega þeirri hækkun sem fyrirliggjandi er á raforkuverði til húshitunar og beinir því til iðnaðarráð- herra að gangast fyrir því að niður- greiðslur verði auknar til að minnka áhrif þessara hækkana. Rætt var um málið á fundi hreppsnefndar Höfðahrepps í vik- unni. Hreppsnefndin skorar jafnframt á Samtök sveitarfélaga á svokölluðum köld- um svæðum að fylgjast með málinu og gæta hagsmuna þeirra sem þurfa að hita hús sín með raforku. Mótmæla hækkun raforkuverðs ♦♦♦       ❖ Opið virka daga 10-18 ❖ Laugardaga 10-16 Nýbýlavegi 12 Kópavogi s. 554 4433 Útsalatsala

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.