Morgunblaðið - 19.01.2005, Side 24

Morgunblaðið - 19.01.2005, Side 24
24 MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN M isskipting auðs í veröldinni er mikil. Hér á Vest- urlöndum búa menn almennt við mikla velsæld, þótt auðvitað sé hún mismunandi mikil. Hér eru forríkir menn, milljarðamær- ingar, en hérna eru meðaltekjur og algengustu tekjur miklu hærri en almennt gerist í hinum vanþró- aðri löndum. Þau eru styttra á veg komin að flestu leyti; þar er ör- birgð og þar svelta heilu fjölskyld- urnar mánuðum saman. Auðvitað kemur þetta verst niður á börn- unum, því þau eiga erfiðast með að bjarga sér þegar samkeppnin um að lifa af er jafn hörð og raun ber vitni. Við á Vest- urlöndum höf- um komið auga á þessa miklu misskiptingu. Með einföldun er hægt að segja að við skiptumst í tvo hópa, eftir því hvaða ályktun við drögum af ástandinu. Annars vegar kennum við sjálfum okkur um, nánar til- tekið vestrænum fyrirtækjum, og teljum að þau stundi arðrán á fá- tækum Asíu- og Afríkubúum. Hinn hópurinn horfir til þess, hversu skipulag í okkar heims- hluta er ólíkt skipulagi í fátækari ríkjum. Lausnarorðið er frelsi, frelsi til að hífa sig upp úr ör- birgðinni upp á eigin spýtur. Þetta frelsi hafi ekki ríkt í vanþró- uðum löndum og þess vegna hafi fólkinu einfaldlega ekki gefist tækifæri á að auka hagsæld sína. Reyndar er ábyggilega til þriðji hópurinn, sem álítur skýringuna fólgna í muni á kynþáttum, en það sjónarmið er ekki svara vert. Við erum einstaklingar, eins misjafnir og við erum margir; hvaðan sem við komum, hvernig sem húð okk- ar er á litinn, hvaða trú sem við höfum og af hvoru kyninu við er- um. Það er sjálfsögð forsenda sem við gefum okkur í umfjöllun um þessi mál. En víkjum aðeins að arðráns- kenningunni. Samkvæmt henni höldum við, á Vesturlöndum, fólk- inu í fátæku löndunum niðri. Sum- ir hafa gengið svo langt að tala um þrælahald í erlendum verk- smiðjum, þar sem alþjóðleg stór- fyrirtæki hafi verkamenn í vinnu við smánarkjör; aðeins brot af því sem við sættum okkur við í hinum vestræna heimi. Í síðasta Viðhorf- spistli undirritaðs var fjallað um brestina í þessari kenningu, eink- um þá að fólkið hefði val um hvort það þæði störfin og að við værum ekki þess umkomin að meina því að taka valkostinn fram yfir óbreytt ástand, með þeirri sáru fátækt sem því tilheyrði. Lausnin er því ekki að banna stórfyrirtækjunum að starfrækja verksmiðjur þar sem laun eru lág. Lausnin felst í að veita hinum fá- tæku löndum það sem við höfum (að nokkru leyti a.m.k.) og skýrir muninn á velferð okkar og þeirra. Það er frelsi. Auðvitað er erfitt um vik, að fá harðstjóra og stjórnlyndar rík- isstjórnir til að víkja af þeirri braut og leyfa fólkinu að athafna sig að vild. Margar ríkisstjórn- irnar eru gerspilltar og hafa hreiðrað um sig með því að kúga saklaust fólk. Þar er sannarlega hægt að tala um arðrán. Það verður hins vegar að gera eitthvað í málunum, eigi þjóðanna að bíða aukin velferð. Við verðum að beita þessi ríki þrýstingi; fá þau til að leyfa innflutning á ódýr- ari vörum en framleiddar eru í heimalandinu og leyfa útflutning á ódýrum vörum frá þeim. En þar liggur hundurinn graf- inn. Vesturlandabúar halda hin- um vanþróuðu löndum nefnilega niðri, eftir allt saman. Ekki með því að reka „þrælaverksmiðjur“ með ódýru vinnuafli, heldur með tollum. Raunin er sú, að við erum með ýmiskonar atvinnustarfsemi, að- allega þó í landbúnaði, sem væri miklu betra að viðhafa í þessum fátæku löndum. Alls kyns land- búnaðarvörur er ef til vill mun hentugra að framleiða í Afríku og Asíu en Evrópu, einfaldlega vegna hagstæðari skilyrða. Afr- íkulönd eru, svo dæmi sé tekið, gríðarlega rík af náttúru- auðlindum. Þar þarf ekki gróð- urhús. Til að halda þessari óhag- kvæmu starfsemi gangandi gríp- um við til verndaraðgerða. Við leggjum tolla á aðfluttar landbún- aðarafurðir, svo innlendir bændur geti keppt við erlenda. Þetta kem- ur auðvitað niður á okkur sjálfum; við þurfum að borga mun hærra verð fyrir vörurnar en ella, en verr kemur þetta þó niður á þeim sem síst skyldi. Og hverjir skyldu það nú vera? Jú, það er fólkið sem á ekki til hnífs og skeiðar. Það eru íbúar fá- tæku landanna. Þeir eru fangar okkar, í löndum sem eru rík af auðlindum sem ekki er hægt að nýta. Það er reyndar ekki hægt að tala um arðrán í þessu sambandi, því við töpum á fyrirkomulaginu, en hægt er að tala um vanhugsað ofbeldi. Evrópusambandið er tolla- bandalag. Það snýst að langmestu leyti um að verja evrópska fram- leiðslu með ýmiskonar tollum og sköttum, eða hinum svokölluðu „Evrópustöðlum“, sem koma í veg fyrir samkeppni utan frá. Hver væri annars tilgangurinn með „Evrópusambandi“, ef það væri ekki lokað fyrir öðrum þjóðum? Væri ekki alveg hægt að koma á frjálsu flæði fjármagns og fólks milli Evrópulanda, án þess að loka fyrir það annars staðar frá? Bandaríkjamenn eru skárri, en hafa þó sömu tilhneigingu að vernda eigin framleiðslu. Íslendingar ættu að ganga fram fyrir skjöldu og aflétta tollum á allar innfluttar vörur. Það er hin sanna þróunaraðstoð og þannig myndum við stíga fyrsta skrefið í þá átt að draga úr misskiptingu auðs í heiminum. Við eigum að taka þetta mál upp á vettvangi þjóðanna, í þeirri von að önnur ríki fetuðu í fótspor okkar, til að draga úr fátækt í heiminum og veita hinum kúguðu tækifæri til að lifa sæmandi lífi. Misskipt- ing auðs En þar liggur hundurinn grafinn. Vest- urlandabúar halda hinum vanþróuðu löndum nefnilega niðri, eftir allt sam- an. Ekki með því að reka „þrælaverk- smiðjur“ með ódýru vinnuafli, heldur með tollum. VIÐHORF eftir Ívar Pál Jónsson ivarpall@mbl.is Í LOK nóvember sl. skrifar Þór- ólfur Árnason, fv. borgarstjóri, opnu- grein í Morgunblaðið, sem varla er unnt að draga lærdóm af. Það er óvanalegt að verkfræðingur skuli rita sápu í blöð án þess að merkja megi rök um kost og löst. Skrifin eru íð- orðaflaumur um ágæti borg- arstjórnar, sér í lagi meðan hann var borgarstjóri, sbr. framsækin vinnu- brögð, markviss áætlunargerð, styrkja og samþætta þjónustu, agi í rekstri, rekstur mála- flokka stenst áætlanir […]. Borgin er jú til fyrirmyndar. „Með sérstöku fjármálasviði, sem nú heyrir beint undir borgarstjóra, verður enn skýrari áhersla á það svið.“ Já, miklir listamenn eiga ekkert föðurland. Fjár- mál borgarinnar hafa ítrekað farið úr bönd- um þrátt fyrir að Orku- veita Reykjavíkur hafi yfirtekið 4 milljarða með skuldabréfi og greitt vaxandi arð í borgarsjóð. Nú tekur borgin útsvar í botn og hækkar prósentu fast- eignaskatta þrátt fyrir 15–20% hækk- un fasteignamats. Eldri borgarar kunna þessu litla þökk, herra Þór- ólfur. Upplýst hefur verið, að kostn- aður við yfirstjórn borgarinnar hafi tvöfaldast sl. áratug en íbúafjöldi vax- ið um 10%. Agi í rekstri! Með tilkomu OR hafa borgarbúar kynnst óhagkvæmni stærðarinnar. Ásetningur með sameiningu þriggja veitufyrirækja var glæstur; með henni skyldu borgarbúar njóta hag- kvæmni, en þá hækkar bara sukkstu- ðullinn á móti. OR fékk í heim- anmund eignir og rekstur þriggja veitufyrirtækja. Þá var reist prjál- bygging fyrir 4,3 milljarða og svo fór fyrirtækið, að undirlagi Alfreð Þor- steinssonar, að setja fé í fjarskipta- fyrirtæki; það endaði með ósköpum og 5 milljarða sóun. Nú er ljóst að grafa á tapið í jörðu með dularfullum samningi við Og Vodafone um lagn- ingu á gratís ljósleiðara í íbúðir fólks; hann má svo eignfæra að vild og stinga þannig snuði upp í fólk. Fag- menn í fjarskiptum segja, að ekki sé unnt að reka sjónvarpsbreiðband með ljósleiðaranum; Alfreð veit bet- ur; menn vita ekki hvílíkur snillingur hann er. OR hefur keypt veitur úti um hvippinn og hvappinn og Alfreð Þor- steinsson segir í sjónvarpi að mark- mið OR sé að selja sem mest af heitu vatni; auðvitað rugl, það er ekkert markmið; það á að vera að sjá eig- endum fyrir sem ódýrustu vatni og arði af rekstri. Þórólfur Árnason seg- ir í grein sinni að farsælt samráð hafi verið haft við stéttarfélög starfs- manna borgarinnar um sameiningar fyrirtækja. Hvaða stéttarfélög? Síma- eða fjarskiptamanna? Starfs- menn OR bera ekki ábyrgð á vafstri Alfreðs og leiðitamra; þeim er engin þökk í brölti út fyrir verksvið OR, en það bitnar á þeim, því miður. Af úrhellisbrölti OR lætur hanna virkj- anir í Skjálfandafljóti. Á OR að hýsa sérfræðinga í virkjun fallvatna á kostnað borgarbúa? - Svo er unnið að virkj- unum á Hellisheiði og samningar gerðir um rafmagnssölu til álframleiðslu. Alfreð Þorsteinsson sagði í sjónvarpi í desember, að gerð- ur hafi verið samningar um 40 millj- arða næstu 20 ár; það þýðir a.m.k. 175 MW gufuvirkjun (fréttabréf OR) og niðurhellingu á 900 MW af heitu vatni í bergið; þessum viðskiptum er fagnað af þeim, sem vilja Norð- lingaölduveitu feiga. Alfreð er háll eins og áll og slímugur eins og brek- kusnigill. Borgarstjórn hefur nýlega samþykkt erlendar lántökur um 20 milljarða. OR tekur lán í evrum og gerir sölusamninga í dollurum, sem standa illa. Auðvitað drýpur smjör af hverju strái á meðan verið er að fjár- festa fyrir lánsfé. 30. des. grobbaði Alfreð Þorsteinsson í beinni um 50 milljarða innspýtingu í atvinnulífið; auðvitað er lánsfé vítamínsprauta í byrjun, en bara ef ráðstöfun er raun- hæf; annars inniheldur sprautan fíkniefni. Alfreð er gjörsamlega óhæfur til að meta fýsileika málsins og það er vítavert að steypa borg- arbúum út í risaævintýri án þess að kosið sé um það. Samfylkingin ber ábyrgð á þessu og hún lætur Alfreð kúga sig og fífla. Já, Þórólfur Árna- son talar um öguð vinnubrögð en minnist ekki á 2–3 milljóna skuldir á hverja fjölskyldu í borginni vegna OR. Auðvitað er virkjun á Hellisheiði gott mál á meðan það er í samræmi við þarfir borgarinnar. Nei, æðib- unugangur skal það vera og Fram- sókn hefur 4,4% fylgi í borginni. Stef- án Jón Hafstein og Ingibjörg Sólrún hafa einnig komið sér í alvarlegt klandur; þau vita að Alfreð hefur tak á þeim og hikar ekki við að beita ill- indum ef honum er andæft. Það hefur kostað borgarbúa milljarða og þau sjálf niðurlægingu. Fulltrúaglapræði eða fulltrúalýðræði Ekki byrjar borgarstjóri Steinunn V. Óskarsdóttir vel. Á borgarstjórn- arfundi 4.1. flutti Guðlaugur Þ. Þórð- arson tillögu um að fram fari rann- sókn innri endurskoðunar borgarinnar á fjarskiptamálum OR; Steinunn Valdís úrskurðaði þá fyrir framan nefið á Stefán Jóni, forseta og fundarstjóra, að tillaga Alfreðs um að rannsókn undir stjórn hennar sjálfrar á fjarskiptarekstri Landsvirkjunar og OR gengi lengra en tillaga Guð- laugs; já, hún úrskurðar að hún sé bær til að stjórna rannsókn á OR, hvar hún er varaformaður. Þar með var „úrskurðað“, að tillaga Guðlaugs kæmi ekki til atkvæða. Þetta er tvö- falt svínarí, auðvitað gengur hlutlaus og djúp rannsókn lengra en sú sem er útþynnt og framkvæmd undir stjórn Steinunnar Valdísar á eigin verkum. Liðið þorði ekki að láta fara fram at- kvæðagreiðslu um tillögu um rann- sókn á svínaríi Alfreðs; þau Stefán Jón og Steinunn Valdís hljóta að hafa sammælst um þetta og er það á kostnað Stefáns Jóns. Slímið mun loða við hann. Loðinmulla Jónas Bjarnason fjallar um Orkuveitu Reykjavíkur ’Með tilkomu Orku-veitu Reykjavíkur hafa borgarbúar kynnst óhagkvæmni stærð- arinnar.‘ Jónas Bjarnason Höfundur er efnaverkfræðingur. ÍRAKSSTRÍÐIÐ er sífellt á dagskrá. Furðulegt er að næstum aldrei er minnst á megintilefni innrás- arinnar, olíulindirnar sem eru meðal hinna auðugustu í heimi og ennþá fremur lítt nýttar. Samt liggur í augum uppi að banda- rísk og bresk olíu- fyrirtæki sjá fram á þurrð fjölda annarra olíulinda á næstu ára- tugum. Þeim bráðligg- ur á að ná tangarhaldi á þessum auðlindum án þess að þurfa að semja um verð við einhverja inn- lenda skálka. Ríkisstjórnir her- námsveldanna gengu erinda þeirra. Glæpir Saddams Husseins gegn þjóðinni voru ekki annað en yfirskin. Margir aðrir valdaþrjótar eru látnir óáreittir. Það er sama hvort pistlahöf- undar í New York Times eða ís- lenskum blöðum skrifa um stríðið. Þeir fjasa um hvort innrásin hafi verið lögleg eða ekki, hvort hún hafi verið rétt- lætanleg vegna ger- eyðingarvopna, hvort upplýsingar um þau hafi verið falsaðar eða hversu mikil hryðjuverk Saddam hafi unnið. Jafnvel Vinstri grænir minn- ast varla á olíuna. Guðjón frá Fag- urhólsmýri minntist reyndar óbeint á olíu í Morgunblaðinu 10. janúar, en það var á þá lund að Frakkar hefðu kannski haft olíuhagsmuni í huga þegar þeir vildu ekki styðja innrás Bandaríkjamanna og Breta! Ljóst má vera að hernámsveldin fara ekki úr Írak fyrr en búið er að kæfa andstöðu landsmanna með innlendri leppstjórn í þeim mæli að olíufélögin geti starfrækt lindirnar að eigin geðþótta. Þau skiptir litlu máli hversu mörgum mannslífum og öðrum verðmætum þarf að fórna í þeim tilgangi. Olíuþögn Árni Björnsson fjallar um ástæður Íraksstríðsins ’…hernámsveldin faraekki úr Írak fyrr en búið er að kæfa andstöðu landsmanna með inn- lendri leppstjórn í þeim mæli að olíufélögin geti starfrækt lindirnar að eigin geðþótta.‘ Árni Björnsson Höfundur er doktor í menningarsögu. Eftirfarandi greinar eru á mbl.is: Jakob Björnsson: „Mannkynið þarf fremur á leiðsögn að halda í þeirri list að þola góða daga en á helvítisprédikunum á valdi ótt- ans eins og á galdrabrennuöld- inni.“ Jakob Björnsson: „Það á að fella niður með öllu aðkomu for- setans að löggjafarstarfi.“ Guðrún Lilja Hólmfríðardóttir: „Ég vil hér með votta okkur mína dýpstu samúð vegna þeirr- ar stöðu sem komin er upp í ís- lensku þjóðfélagi með skipan Jóns Steinars Gunnlaugssonar í stöðu hæstaréttardómara. Ég segi okkur af því að ég er þol- andinn í „Prófessorsmálinu“.“ Ólafur F. Magnússon: „Ljóst er að án þeirrar hörðu rimmu og víðtæku umræðu í þjóðfélaginu sem varð kringum undirskrifta- söfnun Umhverfisvina hefði Eyjabökkum verið sökkt.“ Ásthildur Lóa Þórsdóttir: „Vilj- um við að áherslan sé á „gömlu og góðu“ kennsluaðferðirnar? Eða viljum við að námið reyni á og þjálfi sjálfstæð vinnubrögð og sjálfstæða hugsun?“ Bergþór Gunnlaugsson: „Ég hvet alla sjómenn og útgerðar- menn til að lesa sjómannalögin, vinnulöggjöfina og kjarasamn- ingana.“ Á mbl.is Aðsendar greinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.