Morgunblaðið - 19.01.2005, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005 33
DAGBÓK
Starfsmannaviðtöl eru að margra matiafar mikilvægur þáttur í samskiptumvinnuveitenda og starfsmanna og erekki sama hvernig farið er með slík
tækifæri. IMG Ráðgjöf stendur í næstu viku
fyrir námskeiði um starfsmannaviðtöl, en þar
mun Halla Jónsdóttir, ráðgjafi hjá IMG, leiða
þá sem hafa hug á að innleiða og endurbæta
starfsmannasamtöl á vinnustað til betri vinnu-
bragða og kynna nýjar hugmyndir.
Námskeiðið er kennt 25. janúar milli kl. 13
og 16 og 26. janúar milli kl. 9 og 13 hjá IMG á
Laugavegi 170.
„Í fyrri hluta námskeiðsins er fjallað um
helstu forsendur starfsmannasamtala, tilgang
og ávinning,“ segir Halla. „Farið er í gegnum
þau skref sem taka þarf þegar unnið er að inn-
leiðingu samtala s.s. skilgreiningu markmiða,
tæknilegar ákvarðanir og hönnun eyðublaða og
leiðbeininga.
Seinni hluti námskeiðsins gefur frekari inn-
sýn í samtalið sjálft allt frá undirbúningi til
eftirfylgni auk þess sem kennd eru grundvall-
aratriði viðtalstækni.“
Hver er tilgangur starfsmannaviðtala?
„Í starfsmannasamtölum fá stjórnandi og
starfsmaður tækifæri til að ræða á skipulagðan
hátt um störf starfsmanns yfir ákveðið tímabil
og kröfur og væntingar beggja aðila. Innihald
samtalanna veltur á því hvaða markmið er lagt
upp með á hverjum vinnustað. Oft er rætt um
frammistöðu og/eða starfsþróun en einnig um
aðra þætti s.s. starfsumhverfið, starfsánægju,
samskipti og upplýsingaflæði. Starfsmanna-
samtöl eru hugsuð sem umbótatæki og því
enda þau á því að fyllt er út áætlun um það
sem gera þarf til að umbætur eigi sér stað.“
Hvað getur gott starfsmannaviðtal fært fyr-
irtæki og starfsmanni?
„Undanfarið hefur ég orðið vör við vaxandi
áhuga á starfsmannasamtölum og það má e.t.v.
skýra með aukinni vitund bæði stjórnenda og
starfsmanna um gildi uppbyggjandi leiða í
mannauðsstjórnun. Mikilvægt er þó að hafa í
huga að það er með samtölin eins og önnur
tæki að þau virka bara ef þau eru notuð rétt.
Sé vel staðið að málum leiða samtölin af sér
ýmsan ávinning allt eftir því hvernig þau eru
útfærð. Mögulegur ávinningur er t.d. bætt
tengsl milli stjórnanda og starfsmanns, end-
urgjöf til starfsmanna og markviss starfsþró-
un.“
Hægt er að skrá sig á námskeiðið í síma 540
1000 og á vefnum www.img.is.
Símenntun | Námskeið um starfsmannaviðtöl hjá IMG Ráðgjöf
Bæta tengsl og endurgjöf
Halla Jónsdóttir er
fædd á Sauðárkróki ár-
ið 1973. Hún lauk stúd-
entsprófi frá MA 1994,
BA í sálfræði frá HÍ
1998 og MSc prófi í
vinnu- og skipulags-
sálfræði frá Háskól-
anum í Amsterdam
2004.
Halla hefur starfað við
ráðgjöf og þjálfun hjá
IMG Ráðgjöf síðan 2004. Helstu verkefni eru
á sviði mannauðsstjórnunar s.s.í tengslum við
starfsmannasamtöl, frammistöðustjórnun,
starfsmannaval og starfsþróun.
Halla er gift Ragnari Pétri Ólafssyni sálfræð-
ingi og eiga þau tvær dætur.
40 ÁRA afmæli. Í dag, 19. janúar,er fertug Guðrún Ósk Jóns-
dóttir, Miklubraut 58, Reykjavík. Guð-
rún verður að heiman á afmælisdaginn.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
50 ÁRA afmæli. Í dag, 19. janúar,er fimmtugur Valgarður Ein-
arsson miðill. Valgarður fagnar áfang-
anum erlendis.
unin gekk vel því okkur Íslendingum
rennur til rifja eymd fólks þegar um
náttúruhamfarir er að ræða. Mikið
fé safnaðist, menn og fyrirtæki voru
örlát.
En athugasemdir Gísla Marteins
fóru fyrir brjóstið á mér (þótt hann
bæði afsökunar á orðum sínum).
Vissi maðurinn ekki til hvers var
verið að safna fé eða við hvaða hörm-
ungar fólkið býr, sem varð fyrir
Er Gísla Marteini
ekkert heilagt?
ÞJÓÐIN safnaðist saman fyrir
framan sjónvarpið síðastliðið laug-
ardagskvöld þegar söfnunin fór
fram til hjálpar fólkinu sem varð illa
úti í flóðbylgjunni á annan dag jóla
síðast liðinn. Dagskráin var fjöl-
breytt og allar sjónvarpsstöðvar
lögðu saman um dagskrána. Söfn-
þessum ósköpum? Fulltrúar okkar,
sem vinna við erfiðar aðstæður eins
og þeir sem talað var við þarna niður
frá, standa sig með prýði.
Ég held að það hefði þurft að
senda Gísla Martein á staðinn til
þess að hann skildi hvað þarna er um
að vera. E.t.v. mega menn þakka
fyrir að komast í bað og eiga hreina
skyrtu til að fara í.
Virðingarfyllst,
Helga Jörgensen,
kt. 100537-4519.
Er Kristur kominn?
EINN er sá málstaður sem mig
langar að vekja máls á. Til eru al-
þjóðleg samtök að nafni Share Int-
ernational sem boða að Kristur sé
kominn á meðal okkar. Heimsfræð-
arinn væri réttara nafn yfir manninn
en hans er vænst af fleiri trúar-
brögðum sem t.d. Imam Mahdi af
múslimum eða fimmti Búdda. Í
gegnum Share International hafa
verið birtir spádómar Krists sem
síðan hafa ræst og einnig sýn hans á
heimsmálin. Share International
hafa líka vakið máls á þeim mál-
efnum sem Kristur lætur sig varða
en hann segir að vandamál mann-
kyns nú verði leyst á sviði stjórn-
mála og efnahagsmála í heiminum.
Nánast má setja boðskap hans í
eina setningu: „Deilið lífsins gæðum
og bjargið heiminum með því“. Mis-
skipting auðs, í hvaða formi sem er,
er sem sagt undirrót flestra vanda-
mála samtímans. Hvet ég sem flesta
til að skoða heimasíðu Share Int-
ernational www.share-internation-
al.org eða síðuna www.them-
iraclespage.org. Ef satt reynist þá
stendur mannkynið á þröskuldi eins
stærsta viðburðar sem dunið hefur
yfir það.
Sveinn Jónsson,
Grundartanga 40, Mosf.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
HEIMILI FASTEIGNASALA KYNNIR NÝTT FJÖLBÝLISHÚS VIÐ
ÞÓRÐARSVEIG Í GRAFARHOLTI
LEITIÐ NÁNARI UPPLÝSINGA UM SKILALÝSINGU, TEIKNINGAR OG FJÁRMÖGNUNARMÖGULEIKA
HJÁ LÖGGILDUM FASTEIGNASÖLUM SKRIFSTOFUNNAR.
Verð á 2ja herbergja 75 fm íbúð í lyftuhúsi: 13,9 m. án bílskýlis
Verð á 3ja herbergja 97 fm íbúð í lyftuhúsi: 18,5 m. með bílskýli
Verð á 4ra herbergja 112 fm í lyftuhúsi: 21,2 m. með bílskýli
Verð á 4ra herbergja 116 fm m. sérinngangi: 22,1 m. með bílskýli
Verð á 5-6 herbergja 170 fm íbúð á efstu hæð í lyftuhúsi: 32,9 m.
með tveimur stæðum í bílskýli.
Möguleg fjármögnun miðað við 90% lán í eign.
Við undirritun kaupsamnings 6% kaupverðs.
Við afhendingu eignar 2% kaupverðs.
Við afsal eignar 2% kaupverðs.
Dæmi um greiðslutilhögun á 3ja herbergja íbúð með stæði í bílskýli,
verð 18.500.000:
Fasteignalán til íbúðakaupa frá Íbúðalánasjóði eða bankastofnun
16.650.000 – greiðslubyrði mánaðarlega kr. 71.000.
Við undirritun kaupsamnings kr. 1.100.000.
Við afhendingu eignar kr. 375.000.
Við afsal eignar kr. 375.000.
Þórðarsveigur 26-30 er 27 íbúða fjölbýli. Hús 26 og 28 eru á þremur hæðum og er sérinngangur í íbúðirnar. Hús nr. 30 er fimm hæða lyftuhús. Íbúðirnar
eru frá 2ja og upp í 5-6 herbergja. Eingöngu 4ra herbergja íbúðir eru í húsum númer 26 og 28. Allar íbúðirnar eru með sérþvottahúsi innan íbúðar og sér-
geymslu í sameign. Íbúðirnar skilast fullbúnar að utan sem innan með öllum gólfefnum. Vandaðar innréttingar, tæki og gólfefni skv. fyrirliggjandi skilalýs-
ingu. Íbúðirnar verða til afhendingar í maí nk.
Skipholti 29a • 105 Reykjavík • sími 530 6500 • fax 530 6505 • heimili@heimili.is
Einar Guðmundsson lögg. fasteignasali • Finnbogi Hilmarsson lögg. fasteignasali • Bogi Pétursson lögg. fasteignasali
Brúðkaup | Gefin voru saman 26. júní
2004 í Reykholtskirkju þau Helena
Dögg Magnúsdóttir og Haukur Þórð-
arson.
Ljósmynd/Sissa