Morgunblaðið - 19.01.2005, Blaðsíða 44
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur það til skoðunar að bæta
lóðamati fasteigna við brunabóta-
mat til viðmiðunar í lánveitingum
Íbúðalánasjóðs. Sjóðurinn býður
sem kunnugt er lán fyrir allt að
90% af kaupverði, þó aldrei hærra
en 14,9 milljónir króna, og miðar
við 100% brunabótamat fasteigna,
sem í mörgum tilvikum er orðið
talsvert lægra en stöðugt hækk-
andi markaðsvirði fasteigna.
Mörg dæmi eru um nærri helm-
ingsmun, þannig að brunabótamat
íbúðar með 25 milljóna króna ásett
verð sé um 13 milljónir króna.
Hallur Magnússon, sviðsstjóri þró-
unar- og almenningstengslasviðs
Íbúðalánasjóðs, segir að bruna-
bótamatið sé farið að hefta mögu-
leika fólks á að fá 90% lán hjá
sjóðnum og nýta sér þannig há-
markslánin. Brunabótamatið hefti
fólk einnig í lántökum hjá bönk-
unum.
Hallur segir það hafa, að tillögu
Brunabótamatið hefur að undanförnu dregið úr mögu-
leikum fólks á að taka hámarkslán hjá Íbúðalánasjóði
Til skoðunar er að
bæta lóðamatinu við
Morgunblaðið/Ómar
Íbúðalánasjóðs, verið til skoðunar í
félagsmálaráðuneytinu síðan í des-
ember sl. að bæta lóðamatinu við
brunabótamatið. Komist þetta til
framkvæmda með nýrri reglugerð
geti það skipt miklu fyrir íbúðar-
eigendur, einkum þá sem eiga litl-
ar og meðalstórar eignir, eða eign-
ir undir 16,6 milljónum króna að
markaðsvirði. Fyrir meðalíbúð geti
þetta hækkað lánsmöguleika við-
komandi eiganda um 1-1,5 millj-
ónir króna. Í fjölbýli verði áhrifin
minni.
Hallur segist reikna með því að
þegar ákvörðun liggi fyrir um
lóðamatið, áður en langt um líður,
verði tekið til ítarlegrar athugunar
hvort brunabótamat sé eðlileg við-
miðun í lánveitingum sjóðsins. Til
þess verks þurfi að koma m.a.
Íbúðalánasjóður, Fasteignamat
ríkisins, félagsmálaráðuneytið og
fjármálaráðuneytið.
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 19. JANÚAR 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Næring ekki
refsing
GUNNAR Friðriks-
son, fyrrverandi forseti
Slysavarnafélags Ís-
lands, frá Látrum í Að-
alvík, lést á Landspít-
ala, Landakoti,
síðastliðinn föstudag,
91 árs að aldri.
Gunnar fæddist 29.
nóvember 1913, að
Látrum í Aðalvík. For-
eldrar hans voru hjónin
Friðrik Magnússon, út-
vegsbóndi og Rannveig
Ásgeirsdóttir.
Gunnar ólst upp í Að-
alvík en sótti barna-
skóla, m.a. á Ísafirði, einn vetur og
gagnfræðanám og útskrifaðist úr
gagnfræðaskóla á Ísafirði 1932.
Sama ár hóf hann útgerð og fisk-
vinnslu í heimabyggð sinni í Aðalvík
aðeins 18 ára gamall. Rak hann þar
útgerð og stundaði sjómennsku til
ársins 1935. Gunnar stundaði sjó-
mennsku, verslunar- og verksmiðju-
störf í Djúpuvík og Reykjavík til
1940 er hann stofnaði ásamt Sæ-
mundi Stefánssyni eigið innflutn-
ingsfyrirtæki, Vélasöluna hf. í
Reykjavík. Rak hann það fyrirtæki í
yfir 60 ár.
Upp úr 1950 hóf
Gunnar undirbúning að
innflutningi á fiskiskip-
um fyrir útgerðarmenn
og jukust smám saman
umsvif hans á því sviði.
Stóð hann að innflutn-
ingi mikils fjölda skipa
um árabil. Þá átti
Gunnar um skeið hlut í
útgerðarfyrirtækjum.
Gunnar lét sig slysa-
varnamál miklu varða.
Hóf hann störf á þeim
vettvangi um 1950 og
var kjörinn í aðalstjórn
Slysavarnafélags Ís-
lands 1956. Var Gunnar rúman ald-
arfjórðung í stjórn SVFÍ og var
hann forseti félagsins í 22 ár, frá
árinu 1960 til 1982. Gunnar vann að
ýmsum öðrum félagsmálum allt frá
unglingsárum og átti sæti í stjórn
fjölda félaga og samtaka. 17 ára
gamall var hann t.d. fulltrúi á þingi
Alþýðusambands Íslands.
Árið 1940 kvæntist Gunnar Unni
Halldórsdóttur frá Sandbrekku í
Hjaltastaðaþinghá. Unnur lést árið
1999. Eignuðust þau þrjú börn, Frið-
rik, Rúnar og Guðrúnu, en áður átti
Gunnar einn son, Sæmund.
Andlát
GUNNAR
FRIÐRIKSSON
FJÓRIR prófessorar við Háskóla Íslands
hafa lýst því yfir að þeir hyggist gefa kost á
sér í embætti rektors HÍ. Umsóknarfrestur
um embættið rennur út á morgun en Páll
Skúlason, rektor
Háskólans, til-
kynnti sl. haust að
hann gæfi ekki kost
á sér til áframhald-
andi starfa.
Prófessorarnir
sem vitað er að ætla
að sækja um emb-
ættið eru: Ágúst
Einarsson, prófess-
or við viðskipta- og
hagfræðideild, Ein-
ar Stefánsson, pró-
fessor við lækna-
deild, Jón Torfi
Jónasson, prófessor í uppeldis- og mennt-
unarfræði, og Kristín Ingólfsdóttir, pró-
fessor við lyfjafræðideild.
Í lögum um Háskóla Íslands segir að
menntamálaráðherra skipi rektor HÍ til
fimm ára samkvæmt tilnefningu háskóla-
ráðs, að undangengnum almennum kosn-
ingum í Háskólanum. Stefnt er að því að
kosningarnar fari fram mánudaginn 15.
mars næstkomandi.
Ef enginn frambjóðandi fær meirihluta
greiddra atkvæða þarf að efna til annarra
kosninga 22. mars um þá tvo sem fá flest at-
kvæði.
Framboðsfundur verður
hjá stúdentum á morgun
Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta
við HÍ, heldur málfund með frambjóðend-
unum fjórum kl. 12.15 á morgun í stofu 101 í
Odda. Frambjóðendurnir munu halda tíu
mínútna framsögu og svara spurningum
nemenda og gesta að því loknu, segir í til-
kynningu frá Vöku.
Rektorskjör við
Háskóla Íslands
Fjórir hafa
lýst yfir
framboði
NÝ skíðalyfta verður opnuð í Kóngsgili í
Bláfjöllum um miðjan næsta mánuð og er sú
lyfta mun stærri en þær sem fyrir eru á
svæðinu.
Þannig getur nýja lyftan flutt um 2.200
manns á klukkustund, sem er tvöfalt meiri
afkastageta en hjá stærstu lyftunni í Blá-
fjöllum til þessa en alls er lyftan um 762
metrar á lengd og fallhæðin 223 metrar.
Talsverðar tafir hafa orðið á uppsetningu
lyftunnar og má þær einkum rekja til óblíðs
veðurfars í vetur. „Það er komin ákveðin
seinkun á þessa framkvæmd. Við erum nátt-
úrlega komnir í harðan vetur,“ segir Gretar
Hallur Þórisson, forstöðumaður skíðasvæð-
isins í Bláfjöllum og Skálafelli. Alls eru taf-
irnar orðnar 6–8 vikur, en auk þess segir
Gretar að langur tími hafi t.a.m. farið í
hönnun lyftuhússins.
Gretar sagði einnig að nýja lyftan ætti
eftir að verða góð viðbót við þær lyftur sem
fyrir væru í Kóngsgili.
Ný skíðalyfta sett upp í Bláfjöllum
Morgunblaðið/Golli
Það er fimbulkuldi uppi á tindum Bláfjalla þar sem endastöð lyftunnar verður, enda hefur uppsetning hennar tafist um 6–8 vikur.
Flytur 2.200 manns á klukkustund
Ný skíðalyfta opnuð í Kóngsgili/4